Morgunblaðið - 03.05.1978, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 03.05.1978, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 1978 Knattstöðvun — móttaka knattar Að taka sér stöðu gagnvart aðsvífandi knetti og ná fullkomnu valdi yfir honum (knattvald) getum við haft sem skilgreiningu á knattstöðvun — móttöku knattarins. Þannig aðstæður koma oft upp í leiknum, að við erum ekki fær um að senda knöttinn viðstöðulaust frá okkur eftir að hafa fengið sendingu frá samherja. Ástæðan fyrir þessu getur m.a. verið sú, að þaö sé of erfitt tæknilega séð eða jafnvel ótímabært á því augnabliki sem leikmaöurinn fær knöttinn. Hér verðum við því að stöðva hann — ná fullkomnu valdi yfir honum, eða það sem æskilegra er, að halda áfram með hann á hreyfingu okkar upp völlinn. Að stöðva knöttinn algerlega höfum við sjaldnast tíma til og er ekki æskilegt í nútíma knattspyrnu, því mótherjinn er þegar mættur — hann sækist einnig eftir knettinum og sem meira er, að ná yfirhöndinni við stjórnun hans, og einnig það að ef við stöðvum knöttinn algerlega í hvert skipti sem við fáum hann komum við til með að stöðva leikhraða liðsins á óheppilegum tímum. Móttaka knattar er eitt af mikilvægustu atriðum í tækni knattmeðferðar. Hver sá sem ætlar að ná langt á knattspyrnusviðinu þarf því að ná góðum tökum á grundvallar- atriðum varðandi móttöku knattarins. Grundvallarframkvæmd knattstöðvunar Leyfilegt er að framkvæma knattstöðvun með öllum hlutum líkamans að undanskild- um örmum og höndum. Tæknin við móttöku knattarins er í rauninni alltaf sú sama, sama meö hvaða líkamshluta hún er framkvæmd. Sá líkamshluti sem við ætlum að nota er færöur á móti aðsvífandi knetti. Á því augnabliki er snerting knattarins á sér stað við líkamshlutann færist hann aftur samfara hreyfingu knattarins, og við það tökum við ferðina af honum. Þessari hreyfingu getum við líkt við það að knötturinn lendi á teygju eða gúmíbandi. Því slakari sem vöðvarnir eru og hreyfingin í heild er mýkri verður eftirgjöfin meiri. Verið því mjúkir og afslappaðir þegar þið takið á móti knettin- um. * í stórum dráttum eru hreyfingar við móttöku knattarins gagnstæðar hreyfingum- viö spyrnu knattarins: 1. Staða leikmanns gagnvart knettinum. 2. Framsetning líkamshluta. 3. Snerting við knöttinn. Dregid hjá FYLKI DREGIÐ hefur verið í happdrætti handknattleiksdeildar Fylkis og komu eftirtalin númer upp. Nr. 5492 sólarlandaferð, nr. 2011 sólarlandaferð, nr. 6754 Toyota-saumavél, nr. 7665 djúp- steikingarpottur, nr. 6881 hraðgrill, nr. 6026 steikarpanna og nr. 8336 vöruúttekt í Hólasporti. HM í K N A T T - S P Y R N U Knatt- spyrnu- þættir Janus GiiOlaui^sson tók saman 4. Eftirgjöfin — stöðvunin. Skýringarmynd 42, knattstöðvun innan- fótar, sýnir okkur m.a. stöðvunina í stórum dráttum og þá sérstaklega eftirgjöf fótarins (punktalínan niður á við). Við skulum þá líta á helstu knattstöðvanir: a) Knattstöðvun innanfótar b) Knattstöðvun með il. c) Knattstöðvun með utanverðum fæti d) Knattstöðvun með rist e) Knattstöðvun með læri f) Knattstöðvun með brjósti g) Knattstöðvun með höfði Við höfum einnig nokkrar knattstöðvanir til viðbótar með öðrum líkamshlutum, en vegna lítillar notkunar og ekki mikils gildi tel ég ekki ástæðu að fara í þær. Knattstöðvun innanfótar 1. Tær jafnvægisfótar (sá fótur sem við stöndum í) snúa að aðsvífandi knetti. Fóturinn er mjúkur og fjaðrandi í hnélið. 2. Leikfóturinn (sá fótur er sér um snertingu við knöttinn) er snúinn út í mjaðmalið, lítið eitt boginn í hnélið. Þannig er hann settur fram gegn knettinum. Um leið og knötturinn nemur við fótinn, er hann dreginn mjúkt og létt til baka. 3. Bolurinn hallar lítið eitt fram þegar jarðarknettir eru stöðvaöir, en er nokkuð uppréttur, þegar háir knettir eru stöðvaðir. Armarnir hjálpa til viö jafnvægið. Sjóninni er beint að knettinum. Mynd 42 hjálpar okkur að skilja grundvallaratriðin betur. Stöðvunin æfð 1. Hreyfingarnar marg endurteknar án knattar. 2. Knetti velt (spyrnt) rólega til leikmanns sem framkvæmir stöðvunina. Reynt skal að láta knöttinn loða við fótinn þegar eftirgjöfin á sér stað. 3. Hér er um sömu æfingu að ræða og 2, en nú er spyrnt aðeins fastar til leikmanns. 4. Nú stígum við á móti knettinum áður en við stöðvum hann. 5. Leikmaöur æfir sig við dingul, sbr. mynd 43 sýnir. Hann spyrnir knetti innanfótar og stöðvar hann síðan með sama fæti. 6. 2 og 2 saman og framkvæma innanfótar- spyrnu og innanfótar knattstöðvun. Komið aðeins á móti knettinum og eftir stöðvunina að ýta knettinum aðeins á Mynd 44 undan ykkur áður en þið sþyrnið. Eftir að þið hafið náð góðum tökum á þessum æfingum, getum við spreitt okkur á innanfótarknattstöðvun hoppandi knattar og innanfótar knattstöðvun á lofti. Við fyrri aðferðina, eins og við sjáum á mynd 44, verðum við að athuga vel að um leið og knötturinn hoppar upp í fótinn, gefum við mjúkt eftir svo hann missi ferðina en hoppi ekki frá okkur. Við seinni aðferðina gilda sömu grundvallaratriði og við knatt- stöðvun innanfótar, athugið mynd 45, sem sýnir okkur þessa knattstöðvun. 7. 2 og 2 saman. Annar kastar knetti þannig að hann hoppi einu sinni. Þá stöðvar hann knöttinn með mjúkri eftirgjöf, sbr. mynd 44. 8. Sama æfing og 7, en nú köstum við fastar og af lengra færi. 9. Mynd 46 sýnir okkur framkvæmd næstu æfingu, en þar leggjum viö knöttinn strax fyrir okkur, hægri eða vinstri fót, og spyrnum síðan til félaga okkar. 10. Nú færum við okkur lengra í sundir (10—15 m) og spyrnum með innan- verðri ristarspyrnu (lyftum knetti) til hvors annars og framkvæmum áður- nefnda stöðvun. Framkvæmið nú síð- ustu æfingarnar (6—10) á sama hátt með innanfótar knattstöðvun á lofti. / \ Mynd 43 Mynd 46 Knattstöðvun með il 1. Jafnvægisfæti snúum viö í átt að aðsvífandi knetti. Hann er staðsettur nokkru aftar en hugsaður lendingastaður knattarins. 2. Leikfóturinn, sem boginn er um hné, er færður móti knettinum. Knötturinn skell- ur undir ilina sem færð er yfir þann stað sem knötturinn hopþar af vellinum. Öklanum höldum við krepptum. 3. Bolurinn hallast fram um leið og stöðvunin á sér staö. Armarnir hjálpa okkur til við jafnvægið og athugiö að síðustu að fylgjast meö hreyfingu knattarins allan tímann. Á mynd 47 framkvæmir leikmaður áðurnefnda stöðvun. Stöðvunin æfð 1. Knöttur stöðvaður með il, eftir að leikmaður hefur Iátiö hann falla úr brjósthæð. Til að byrja með er gott að láta knött hoppa tvisvar til þrisvar sinnum áður en stöðvunin er framkvæmd. 2. Knetti sem kastað er til leikmanns eða kemur af vegg er stöðvaður með ilinni. 3. Hlaupið móti knetti sem þið fáið í boga á móti ykkur, hann stöðvaður með ilinni og síöan spyrnt til félaga. 4. Sama æfing og 3, en í stað þess að spyrna knetti, rekur leikmaður hann til félaga síns og hleypur síðan aftur á sinn stað, sbr. mynd 49. 5. Leikmaður kastar knetti upp fyrir sér, hleypur af stað og stöðvar hann með ilinni. Sjá mynd 50. í næsta þætti höldum við áfram með knattstöðvanirnar, en athugiö vel það sem við töluðum um fyrst í þessum þætti, hvað varðar grundvallarframkvæmdina við allar knattstöðvanir. Já, hvað var það aftur? Veist þú það? OKJTAIU15 renúe •s‘vt-T 5d6tta ) vcfc^pjiurvi A k6ti Þ-AO HAFOI vefeio OM. PAU Huoer HA.UU Y(re*\ t/AUlUfO ‘i G*> KKA- r 1

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.