Morgunblaðið - 03.05.1978, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 03.05.1978, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 1978 Utgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjórn og afgreiósla Auglýsingar hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guömundsson. Björn Jóhannsson. Baldvín Jónsson Aöalstrætí 6, sími 10100. Aöalstræti 6, sími 22480. Áskriftargjald 2000.00 kr. á mónuöi innanlands. í lausasölu 100 kr. eintakiö. Atvinnumál Reykjavíkur og minnihlutaflokkarnir Tillögur Birgis ísl. Gunnarssonar borgarstjóra um atvinnu- uppbyggingu í höfuðborginni á næstu árum voru samþykktar í borgarstjórn Reykjavíkur í síðustu viku. Þessi samþykkt á vafalaust eftir að hafa mikil áhrif á þróun atvinnulífsins í Reykjavík svo og þær umræður, sem spunnizt hafa á undanförnum mánuðum um atvinnumál höfuðborgarinnar. Þær umræður hafa undirstrikað þá mismunun, sem orðið hefur milli Reykjavíkur og landsbyggðarinnar. Væntanlega mun meiri jöfnuður ríkja í framtíðinni.í dreifingu fjármagns milli einst?d<ra byggðarlaga þ.á m. til Reykjavíkur. Borgarstjóri vakti athygli á mismunandi afstöðu minnihluta- flokkanna í borgarstjórn til atvinnumála Reykvíkinga í umræðum á borgarstjórnarfundinum. Alþýðubandalagið fjandskapast við framtak einstaklingsins, sem hefur átt mestan þátt í að byggja upp atvinnulífið ' í Reykjavík. Þess í stað vill Alþýðubandalagið opinbera forsjá í atvinnumálum Reykvíkinga. Sú afstaða fær áreiðanlega ekki hljómgrunn meðal Reykvíkinga, hvorki hjá Iaunþegum né þeim, sem byggt hafa upp atvinnurekstur. Birgir ísl. Gunnarsson benti á, að framsóknarmenn mættu ekki heyra minnzt á, að Reykjavík hefði ekki setið við sama borð og aðrir landshlutar í fjárveitingum til atvinnuuppbyggingar. Vafalaust vita borgarfulltrúar Framsóknarflokksins betur en þeim er gert að fylgja þeirri flokkslínu, sem alla tíð hefur verið andsnúin uppbyggingu í Reykjavík. Loks benti borgarstjóri á, að borgarfulltrúi Alþýðuflokksins virtist ekkert sjá til framdráttar atvinnumálum Reykvíkinga annað en eflingu Bæjarútgerðar Reykjavíkur, sem vissulega er fyrirtæki, sem lagt hefur sinn skerf að mörkum til atvinnumála Reykvíkinga.en þar þarf sannarlega fleira til að koma. Þessi afstaða minnihlutaflokkanna í borgarstjórn Reykjavíkur til atvinnumála höfuðborgarinnar sýnir í fyrsta lagi, að engum þeirra er treystandi til þess að veita þá forystu í uppbyggingu atvinnulífsins sem þörf er á og í öðru lagi að enginn þeirra treystir á frumkvæði og framtak Reykvíkinga sjálfra. Hverfafundir borgarstjóra Um þessar mundir standa yfir hverfafundir borgarstjórans í Reykjavík. Birgir ísl. Gunnarsson hefur ákveðið að efna til sex hverfafunda víðs vegar um borgina til þess að kynna borgarbúum það helzta, sem á döfinni er í málefnum borgarinnar og svara fyrirspurnum fundarmanna um þau. Síðast efndi borgarstjóri til slíkra hverfafunda fyrir tveimur árum og má segja, að þeir séu orðnir fastur þáttur í starfi borgarstjóra. Náið samband milli borgarbúa og þeirra, sem þeir fela yfirstjórn sinna mála er mikilvægt en verður æ erfiðara í vaxandi samfélagi. Hverfafundir borgarstjóra eru ein af þeim leiðum, sem hann hefur valið til þess að efla þetta samband. Það kemur borgarstjóra og borgarstjórn að gagni að því leyti, að hverfafundirnir veita tækifæri til þess að kynnast helztu áhugamálum borgarbúa í sambandi við framkvæmdir og aðra starfsemi. Um leíð veita hverfafundirnir borgarstjóra tækifæri til að kynna fyrir borgarbúum helztu framkvæmdir í viðkomandi hverfum. Hverfafundir borgarstjóra hafa unnið sér fastan sess í borgarlífinu og full ástæða er til að hvetja borgarbúa til þess að notfæra sér þennan vettvang til skoðanaskipta við borgarstjóra. Ætlar verkalýðshreyfingin að hafna sáttum? Iræðu sinni í eldhúsdagsumræðum á dögunum hvatti Geir Hallgrímsson forsætisráðherra til þjóðarsáttar, samheldni en ekki sundrungar. Forsætisráðherra skýrði frá því, að hann hefði ráðgast við ýmsa fulltrúa vinnuveitenda og verkalýðssamtaka um viðhorfin í kjaramálum og efnahagsmálum og undirstrikaði að raunhæfum endurbótum innan skynsamlegra marka á þeim reglum, sem settar voru í kjölfar efnahagsráðstafana ríkisstjórn- arinnar, mætti ekki hafna. Það er því alveg ljóst, að ríkisstjórnin hefur rétt fram sáttahönd í þeim deilum, sem nú standa yfir og lýst vilja sínum til þess að koma á þjóðarsáttum. Svar formanns Verkamannasambands Islands er að lýsa yfir enn einu „banni" — nú er það bann við innflutningi á olíu um skeið. Það er orðið tímabært, að forystumenn verkalýðssamtakanna gefi til kynna, hvort þeir séu tilbúnir til sátta — eða hvort þeir ætla að stefna þjóðfélaginu út í enn eitt stríð, sem enginn vill, nema kannski þeir sjálfir. alfort eáginn f i I! XM'' Bjarni Jakobsson formaður Iðju í ræðustól á Lækjartorgi. Frá fundi verkalýðsfélaganna á Lækjartorgi. Ljósmyndir Mbl. Ól.K.M. 1. maí hátíðar- höld í vorblíðu Hátíðahöld 1. maí í Reykjavík fóru fram í góðu veðri og var fjölmenni í göngum dagsins og á útisamkomum. Göngumenn báru kröfuspjöld þar sem vakin var athygli á ýmsum baráttumálum, en nokkur þúsund manns munu hafa sótt hátíðarhöldin í miðbænum. „Kúbanskir málalið- ar varpa napalmi úr sovézkum flugvélum” - segir Eritreumaðurinn Berhanu Kifle, sem er í heimsókn hér á landi HÉR Á landi er nú staddur Eritreumaður, flóttamaður er búsettur er í Noregi, en hann er hér í boði Verkalýðsblaðsins og Einingarsamtaka kommúnista. Tók hann m.a. þátt í fundi samtakanna hinn 1. maí og verður í kvöld, miðvikudagskvöld, ræðumaður á fundi samtakanna í Félagsstofnun stúdenta. Ræðir hann þar um ástandið í Eritreu, en fundurinn hefst kl. 20.30. Berhanu Kifle sagði að Eritrea hefði verið viður- kennd af keisurum Eþíópíu sem landfræðilega og pólitískt sjálfstætt og myndaði áin Belesa landamæri ríkjanna, sem sýndi að Eritrea hefði aldrei verið hluti af Eþíópíu. Vegna legu landsins hefði það orðið að þola innrásir þeirra er vildu stjórna landinu og verzlunarsiglingum á Rauða hafinu, en þjóðin hefði alltaf risið upp til varnar og svo væri enn. Sagði Berhanu Kifle að bæði Tyrkir og Egyptar hefðu hernumið landið og að lokum hefði Sameinuðu þjóð- unum verið falin forsjá lands- ins og framtíð, sem hefðu síðan þvingað það undir keis- ara Eþíópíu fyrir frumkvæði Bandaríkjanna. — Frelsisfylking Eritreu, ELF, hefur berizt gegn yfir- ráðum annarra þjóða Berhanu Kifle flytur kommúnista 1. maí. Ljósm. Ól.K.M. mál fundi Einingasamtaka landinu, sagði Berhanu Kifle, og höfðum við notið aðstoðar frá Súdan og öðrum ná- grannaríkjum og hergögn fengið að mestu sem herfang. Þrátt fyrir skort á lyfjum veitum við fullnægjandi heil- brigðisþjónustu, en í dag eru í landinu 50 spítalar og eru íbúar alls um 4 milljónir. í dag ráðum við 98% lands okkar en fasiska herforingja- stjórnin ásamt stuðnings- mönnum sínum sovésku heimsavaldasinnunum og kúbönsku málaliðunum, hefur hafið sókn á hendur Eritreu- mönnum og eykur flugher Eþíópíu stöðugt loftárásir sínar á frelsuðu svæðin. líúbanskir málaliðar fljúga sovézkum flugvélum sem varpa niður ísraelsku napalmi og skotmörkin sem þeir verja eru skólar, sjúkrahús; börn og gamalmenni verða harðast úti því að vopnfærir karlar og konur taka þátt í baráttunni gegn innrásaröflunum. í ræðu sem Berhanu Kifle hélt á útifundi Einingarsamtaka kommúnista sagði hann m.a. að byltingin í Eritreu hefði fyrst orðið til að afhjúpa þá kúgun sem alþýða Eþíópíu yrði að þola og sagði að hin svokallaða sósíaliska ríkis- stjórn Eþíópíu væri það í orði en fasísk í verki og ætti hún ekki grundvöll sinn í stuðn- ingi alþýðu landsins. Hann sagði einnig að eritreska þjóðin myndi ekki láta neitt afl brjóta á bak aftur bylting- una, sem væri bylting fjöldans og að þjóðin myndi verjast til síðasta manns.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.