Morgunblaðið - 03.05.1978, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 03.05.1978, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 1978 Flugleiðir opna sölu- skrifstofu í FLUGLEIÐIR IIF opnuðu í gær nýja söluskrifstofu í Hótcl Esju við Suöurlandshraut í Reykjavík. Hin nýja skrifstofa cr dcild úr söluskrifstofu fclaKsins í Lækjar- líötu og mun hún annast sölu farmióa ok farskráningu ok veita upplýsinsar og alhliða fyrir- Kreiðslu við ferðafólk. Skrifstof- an er á fyrstu ha'ð og er Kenjjið inn í hana úr anddyri hótelsins. Sigurður Ingvarsson mun sjá um daglegan rekstur skrifstofunn- ar og ásamt honum verða Fjóla Tryggvadóttir og Stefanía Magnúsdóttir starfsmenn þar. Síðar verður starfsmönnum fjölg- að í fimm. í fréttatilkynningu frá kynn- ingadeild Flugleiða hf. segir að nokkur ár séu liðin síðan lítil Hótel Esju söluskrifstofa var opnuð á Hótel Esju. Þar hafi aðeins verið einn starfsmaður og rými lítið. Brýn nauðsyn hafi verið orðin á nýrri fullkominni söluskrifstofu í aust- urborginni með nægum bílastæð- um til að þjóna fyrirtækjum og einstaklingum í þessum borgar- hluta. Síðar í sumar mun skrifstofan verða tengd farskrártölvukerfi félagsins svonefndum Gabríel, og verður nýja söluskrifstofan inni á Hótel Esju fimmti staðurinn á Islandi. sem tengist tölvunni. F’arskrártölvan Gabríel hefur ver- ið í notkun hér á landi síðan 12. apríl 1976 og hefur reynst sérstak- lega vel, stórbætt þjónustu við viðskiptamenn og flýtt fyrir far- skráningu og upplýsingum, segir í frétt h’lugleiða hf. Frá opnun nýju söluskrifstofunnar. Frá vinstrL Birgir Þorgilsson, Sigurður Ingvarsson. Fjóla Tryggvadóttir. Stefanía Magnúsdóttir og Sveinn Sæmundsson hlaðafulltrúi. — Ljósm. Mhl. Friðþjófur. Ein af myndum Fanneyjar á sýningunnii Gamli Garðskagavitinn Opnar málverkasýn ingu á Laugavegi 21 A UPPSTIGNINGARDAG opnar Fanney Jónsdóttir málverkasýn- ingu á Laugavegi 21, en hún hefur áður sýnt myndir að Klausturhól- um. Um 40 myndir verða á sýningunni, flest olíumálverk, en einnig vatnslitamyndir og eru þær flestar unnar á þessu og síðast- liðnu ári. Sýningin verður opin fram að hvítasunnu, frá kl. 14 til 18 alla daga og er aðgangur að sýningunni ókeypis. Kaffisala Kvenfélags Laugarnes- sóknar Hin árlega kaffisala Kvenfélags Laugarnessóknar verður 4. maí, uppstigningardag, kl. 15.00 í Dom- us Medica við Egilsgötu. Kl. 14.00 verður messa í Laugarneskirkju, en þar prédikar séra Ingólfur Guðmundsson, lektor, og sóknar- prestur þjónar fyrir altari. Kverrfélag Laugarnessóknar hefur um árabil staðið fyrir viðamikilli kaffisöiu á uppstign- ingardag og hafa þær löngum verið vel sóttar enda hafa þær mæit með sér sjálfar. Eitt er víst að kvenfélagskonurnar liggja ekki á liði sínu við undirbúning að þessum kaffisölum. Veizluborðið verður fjölskrúðugt og glæsilegt nú sem fyrr og einnig verður happdrætti með mörgum eiguleg- um munum, sem kvenfélagskon- urnar hafa að verulegu leyti búið sjálfar til. Búnaðarþingskosnmgar: 2 framboðslist- ar á Suðurlandi Frá aðalfundi Búnaðarsambands Suöurlands. Ljósm. Mbl.i Sig.Sigm. Syðra-Langholti 26. apríl FRÁMBOÐSLISTAR til búnaðar- þingskosninga á Suöurlandi voru lagðir fram á aðalfundi Búnaðar- samhands Suðurlands sem hald- inn var 21. aprfl sl. Tveir listar komu fram. Fimm efstu menn á lista sjálf- stæðismanna eru: 1. Hermann Sigurjónsson Raftholti, 2. Jón Ólafsson Eystra-Geldingaholti, 3. Siggeir Björnsson Holti, 4. Helgi ívarsson Hólum, 5. Eggert Pálsson Kirkjulæk. Efstu sætin á lista Framsóknarmanna skipa: 1. Hjalti Gestsson Selfossi, 2. Jón Kristins- son Lambey, 3. Júlíus Jónsson Norðurhjáleigu, 4. Stefán Jasonar- son Vorsabæ, 5. Ölver Karlsson Þjórsártúni. Um langan tíma hafa tveir af fulltrúum Búnaðarsam- bands Suðurlands á Búnaðarþingi verið af lista sjálfstæðismanna og þrír af lista framsóknarmanna. Á fundinum kom fram að nú standa yfir viðræður milli Búnaðarsambands Suðurlands og Kaupfélags Árnesinga um kaup á jörðinni Laugardælum, þar sem Búnaðarsambandið hefur rekið tilraunabú í 26 ár og leigt jörðina af kaupfélaginu. Auk venjulegra aðalfundar- starfa flutti Sveinn Hallgrímsson erindi um ullarnýtingu og ullar- vinnslu og Gunnar Sigurðsson talaði um niðurstöður tilrauna í Laugardælum. Fjölmargar ályktanir voru gerð- ar um málefni Búnaðarsambands- ins og hagsmunamál bænda. Úr stjórn áttu að ganga Stefán Jasonarson og Hermann Guð- mundsson Blesastöðum en þeir voru báðir endurkjörnir. Sig.Sigm. Það er ekki ofsögum sagt að kvenfélög vinna göfugt starf. Oft eru þau það safnaðarstarf sem er í hvað mestum blóma. Þannig hefur það verið í Laugarnesi um árabil. Eitt aðaláhugamál Kvenfélags- ins er að við Laugarneskirkju rísi safnaðarheimili. Úm þetta hefur verið rætt í all mörg ár, en nú er svo komið að byggingafram- kvæmdir eru á. næsta leyti. Þessi staðreynd hefur hvatt kvenfélags- konurnar enn til dáða og rennur ágóðinn af kaffisölunni allur í byggingasjóð. Ég hvet Laugarnesbúa og aðra Reykvíkinga til að koma í Domus Medica á uppstigningardag og njóta glæsilegra veitinga og styrkja með því gott málefni. v Jón Dalhú Hróbjartsson sóknarprestur Dr. Magni Guðmundsson: Stutt svar til prófessors Guðmundar Magnússonar Próf. Guðmundur Magnússon ritar um vexti o.fl. í Morgun- blaðið sl. laugardag. Greinin er hógvær í orðalagi, eins og vænta mátti af hendi þess manns. Að minnsta kosti eitt atriði er tilefni athugasemda. Höfundur leitar skýringar á því, hvers vegna sparnaður hérlendis hefir um langt árabil verið tiltölulega stöðugt hlutfall af þjóðartekjunum, þrátt fyrir verðsveiflur. Aðferð hans er sú að skipta „spörun" (sparnaði) annars vegar í peningalegan sparnað, sem fer mestmegnis um banka, og hins vegar í þann hluta tekna, sem varið er til íbúðabygginga, hlutabréfakaupa o.fl. Síðara formið, segir próf. Guðmundur, er eins konar þvingaður sparnaður, því að verðbólgan knýr menn til að hvggja. Niðurstaðan lætur svo ekki á sér standa: Peningalegur sparnaður er háður raunvöxt- um, en heildarsparnaður, sem felur í sér bæði formin, er kominn undir tekjum. Þessi hugdetta próf. Guð- mundar er úr lausu lofti gripin og er ekki einu sinni studd líkum. Það eru ekki alltaf hinir tekjuhæstu, sem byggja. Allur þorri þeirra, sem standa í íbúðabyggingum, er lágtekju- fólk, sumt jafnvel eignalaust. Jafnframt er þarna um hug- takabrengl að ræða hjá próf. Guðmúndi. Ibúðabyggingar, hlutabréfakaup o.fl. er ekki sparnaður (saving), heldur fjár- festing (investment), sem er ýmist meiri eða minni en sparnaðurinn. Fjárfesting á Islandi er langt umfram sparn- að, enda fjármögnuð með l^n- tökum. Það er sparnaðurinn, sem eykst stighækkandi með tekjum — ekki fjárfestingin, sem lýtur allt öðrum lögmálum skv. kenningum hagfræðinnar. Menn eiga að snúa sér undan- bragðalaust að kjarna málsins, sem er þessi: Megnar vaxta- hækkun að auka sparnað og minnka (járfestingu? Reynslan hér virðist óneitanlega hin sama og erlendis, að ekkert beint samband sé milli vaxta og sparnaðar. Ef slíkt samband væri fyrir hendi, myndi hafa dregið verulega úr sparnaði á undangengnum árum, þegar raunvextir fálla af völdum verðbólgunnar. Þetta kemur heim og saman við kannanir ytra. Við erum engin undan- tekning. Breytingar á vöxtum valda aðeins tilfærslum milli einstakra sparnaðar-forma. Það er rétt — og í fullu samræmi við ofanritað — að farvegir sparnaðar hafa breytzt. Hlutdeild banka í sparnaði hefir skroppið. Hvers vegna? Við þurfum ekki að fara í neinar grafgötur með það. Bankakerfið hefir eignazt skæðan keppinaut um sparifé landsmanna. Sá keppinautur er ríkið sjálft með sín vísitölubundnu spariskír- teini. Bönkum og öðrum pen- ingastofnunum er ein leið opin til að mæta þessari samkeppni. Hún er bein verðtrygging spari-innlána, sem framkvæma má með ýmsum hætti. Vöxtur innlána í bönkum og sparisjóðum síðustu mánuði á sér augljósa skýringu í þeirri 60-80% launa- og tekjuhækkun, er varð í landinu seinni hluta árs 1977. Ég hefi lagt á það áherzlu í skrifum mínum, að skattalaga: breytingar séu virkasta meðalið til að örva sparifjármyndun. Ekki veit ég, hví próf. Guð- mundur reynir að gefa annað í skyn. Nokkurrar ónákvæmni gætir hjá próf. Guðmundi, þegar hann segir mig án fyrirvara vilja „lækka vexti“. Svo almennt orðalag er út í hött. Ég geri greinarmun á tegundum lána, svo og á tímalengd þeirra. Hins vegar hefi ég hiklaust staðið gegn þeirri skrúfuhækkun vaxta, sem hófst á miðju sl. ári, því að hún siglir atvinnuvegun- um í strand. Bókstaflega öll rök, sem sett hafa verið fram til stuðnings vaxtaskrúfunni, eru fölsk, eins og ég hefi rakið í einni grein á eftir annarri. T.d. getur hækkun á almennum bankavöxtum engin áhrif haft á eftirspurn lána og verðþenslu, meðan skuld ríkissjóðs við Seðlabankann vex og peninga- framboðið er aukið. Ég fylli ekki flokk þeirra, sem kenna verka- mönnum um efnahagsvandann. Atvinnulífinu stafar meiri hætta af hávaxtastefnunni en hóflegum kaupkröfum hinna lægst launuðu. Svo þakka ég próf. Guðmundi Magnússyni greinina. Hann mætti gjarnan skrifa meira um landsmál og kynna sínar eigin skoðanir. Nógu margir eru til að verja misheppnaða pe'n- inga-pólitík.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.