Morgunblaðið - 03.05.1978, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. MAI 1978
23
HK VANN MEÐ 9 MÖRKUM
OG FER [ 1. DEILD EN KR FÉLL
ÞAÐ verður HK úr Kúpavogi sem leikur í 1. deild karla næsta
keppnistímabil. Það ótrúlega gerðist í síðari aukaleik HK og KR sem
fram íór í gærkveldi í íþróttahúsinu í Mosfellssveit að HK sigraði með
níu marka mun. 29 mörkum gegn 20. KR-ingar höfðu sigrað í fyrri
leik liðanna 22—15. og ílestir bjuggust við að þeir hefðu gulltryggt
sæti sitt í 1. deild, en HK menn voru á öðru máli og það sönnuðu
þeir rækilega í gærkveldi.
Leikurinn var allan tímann
geysispennandi og skemmtilegur á
að horfa og stemmningin í íþrótta-
húsinu var með ólíkindum,
aðdáendur og fylgismenn HK
höfðu fjölmennt og áttu þeir sinn
þátt í því að sigurinn varð svo stór
sem raun ber vitni því að
hvatningarhróp þeirra gáfu HK
byr undir báða vængi þegar mest
á reyndi. HK byrjaði leikinn af
krafti og var strax augljóst að þeir
ætluðu að selja sig dýrt, KR-ingar
virtust hins vegar frekar tauga-
óstyrkir og voru furðu mistækir og
um miðjan hálfleikinn var staðan
orðin 11—7. HK bætti um betur og
hafði yfir í leikhléi 17—11. Nú var
að bíða og sjá hvort sama sagan
endurtæki sig og í fyrri leiknum en
þá var allur vindur úr HK í síðari
hálfleik, og KR sigraði þá létt. Nú
var annað upp á teningnum, það
var Ingi Steinn sem skoraði fyrsta
mark hálfleiksins, 17—12, en þá
komu tvö mörk frá Hilmari og
Stefáni og spennan jókst jafnt og
þétt út allan hálfleikinn. KR-mgar
Mönnum óheimilt
að fara án leyfis
- segir Ellert B. Schram, formaður KSI
Síðastliðinn sunnudag birtist í
Morgunblaðinu auglýsing. þar
scm danskt 1. deildar lið f
knattspyrnu óskar eftir góðum
knattspyrnumönnum. Heitið er
hálfri eða fullri atvinnumennsku
og eru föst laun í boði ásamt
bónus. Eins og kunnugt er hafa
Danir tekið upp hjá sér atvinnu-
mennsku f knattspyrnu og
auglýsingar sem þessi hafa sést
vfða í dagblöðum á Bretlandi og
á Norðurlöndum að undanförnu.
Við spurðum Ellert B. Schram
formann KSÍ álits á auglýsingu
þessari. Ellert kvaðst ekki hafa séð
auglýsinguna og KSI hefði enn
ekki tekið afstöðu til hennar, en
hann vildi benda á reglur sem
stjórn KSI samþykkti í fyrra
varðandi leikmenn, sem ætluðu sér
að leika með erlendum félagslið-
Fylkir hlaut sín
fyrstu stig
FYLKIR hlaut sín fyrstu stig í
Reykjavíkurmótinu í knattspyrnu
í gærkveldi með 2:0 sigri sínum
«TI1 t1—: ,Qt,»ðan í leikhléi var
2:0. Mörkin skoruðu Hiimai
hvatsson og Hörður Antonsson.
Þetta eru fyrstu mörk Fylkis í
mótinu.
Júgöslavar
í úrslitin
LANDSLIÐ Júgóslavíu í knatt-
spyrnu, leikmenn 21 árs og yngri,
vann sér í gærkvöldi þátttökurétt
í úrslitum Evrópukeppninnar með
því að gera jafntefli við enska
landsliðið í sama aldursflokki.
Leikið var á Maine Road í
Manchester og lauk leiknum 1:1.
Fyrri leik liðanna, sem fram fór
í Novi Sad í Júgóslavíu lauk með
sigri Júgóslava 2:1. Júgóslavarnir
voru fyrri til að skora í gærkvöldi
en Steve Sims frá Leicester
jafnaði skömmu fyrir leikslok.
Ahorfendur voru 20 þúsund. Mjög
margir af beztu mönnum enska
liðsins voru fjarverandi í gær-
kvöldi vegna meiðsla.
um. Samkvæmt þeim væri óheim-
ilt að fara burt eftir að keppnis-
tímabilið væri hafið, nema með
fullu samþykki þess félags sem
leikmaðurinn væri í svo og stjórn-
ar KSÍ. Benti Ellert á að full
ástæða væri fyrir íslensk félagslið
að vera á varðbergi gagnvart
slíkum auglýsingum og flutningi
leikmanna til erlendra liða. Samt
væri þetta eins og hver önnur
starfsauglýsing og efaðist hann
um að lög bönnuðu slíkar auglýs-
mgar.
-Þr.
|Knattspyrnumenn
óskast
Danskt 1. deildarliö óskar eftir 1—2 góðum
knattspyrnumönnum, framherjum eöa miö-
framherjum. Hálf eöa full atvinnumennska.
Föst laun ásamt bónus í boði. Tilvaliö fyrir
menn sem hugsuöu sér nám í Danmörku.
Þeir sem hafa áhuga fyrir þessu vinsamlegast
leggiö inn til blaösins nöfn og helstu
upplýsingar í lokuöu umslagi merkt: „Knatt- I
spyrna — 4486" fyrir miövikudaginn 3. maí.J
Láta rannsaka
12:0 sigur
Borussia
ÞÝZKA knattspyrnusambandið
hyggst láta rannsóknarncfnd
kanna sérstaklega hin einstæðu
iok keppnistímabilsins þar í
landi um s.l. helgi þegar
Borussia Mönchengladbach
missti titilinn naumlega tii FC
Köln þrátt fyrir 12,0 sigur yfir
Borussia Dortmund.
Frammistaða leikmanna leik-
manna Dortmund í leiknum
þykir hafa verið grunsamlega
slök. Verður kannað gaumgæfi-
lega hvort mútur hafi verið í
spilinu, en engar sannanir um
slíkt liggja þó fyrir.
Dortmund rak þjálfarann
Otto Rehhagel strax eftir leik-
inn og sektaði hvern einasta
leikmann liðsins um 250 þúsund
krónur.
léku mjög fálmkennda sókn og
gerðu sig seka um of mikið af
niðurstungum í stað þess að leika
knettinum á milli sín og láta hann
vinna fyrir sig þeim tókst ekki
einu sinni að notfæra sér þótt HK
liðið hefði þrisvar sinnum í
hálfleiknum manni færra vegna
Ragnar Ólafsson átti stóran þátt
í því að slá KR út úr 1. deild.
brottvísunar leikmanna. Vörn HK
var vel leikin og baráttan var góð,
þá var markvarsla Einars sterk.
Þegar 10 mínútur voru ti leiksloka
var staðan 24—15, og þá sýndi
Ragnar Ólafsson frábæran leik og
skoraði fjögur mikilvæg mörk á
lokakaflanum.
Þegar 1 mínúta var til leiksloka
og all’t á suðupunkti reyndu
KR-ingar að hleypa leiknum upp
og taka tvo úr umferð en Kristinn
Ólafsson braust laglega í gegn úr
hægra horninu og innsiglaði
þennan sæta sigur yfir KR, sem
sendir þá rakleiðis niður í 2. deild
aftur, eftir stutta viðdvöl í 1. deild.
KR-liðið er hreint út sagt alveg
óútreiknanlegt, tvívegis hafa þeir
verið með pálmann í höndunum,
og Svo gott sem tryggt sæti sitt í
1. deild en í bæði skiptin gloprað
þeim á hreinu kæruleysi og
óyfirveguðum leik sínum. Liðið
virkaði afar ósamstillt í þessum
leik, og var enginn leikmaður
öðrum fremri. HK á hrós skilið
fyrir þann mikla baráttuvilja og
samstöðu sem liðið sýndi í þessum
leik, þeir voru augsýnilega komnir
til að sigra og það tókst þeim, enda
fögnuðu þeir ákaft í lokin og
tolleruðu þjálfara sinn Axel
Axelsson sem gert hefur góða hiuti
með liðið. Allir leikmenn liðsins
eiga hrós skilið og erfitt að taka
einn fram yfir annan. Þó er óhætt
að segja að Ragnar Ólafsson hafi
verið einn besti maður liðs síns,
hann gafst aldrei upp (ekki frekar
en á golfvellinum), sýndi óhemju
dugnað í varnarleiknum og var
útsjónarsamur í sóknarleiknum
jafnframt því sem hann skoraði
mikilvæg mörk eins og áður
greinir. Til haminaiu HK.
Markhæstir HK: Ragnar Ólafs-
son 8, Hilmar Sigurgíslason 5.
Markhæstir KR: Björn Péturs-
son 5, Símon Unndórsson 4,—
þr.
Þessi mynd er tekin í fyrra er
Karl Jóhannsson tók við sigur-
launum þriðju deildar. Nú
leikur þessi gamla kempa í 1.
deild á næsta ári. að nýju á
fimmtugsaldri.
//
//
Gaman
að leika
í 1. deild
að nýju
VIÐ GERÐUM okkur grein
fyrir því að við höfðum tapað
orrustu en ekki stríði eftir að
fyrri leikur liðanna hafði verið
leikinn og við tapað með sjö
marka mun, sagði Karl
Jóhannsson, fyrirliði HK í
gærkvöldi. En nú vorum við
ákveðnir í að berjast til þrautar
og tapa þá með sæmd, en með
geysilegri samstöðu og baráttu-
vilja allra liðsmanna tókst að
koma sigrinum í höfn, og
ánægjan er ólýsanleg og það
verður skemmtilegt að ieika í 1
deild að nýju. Að lokum sagði
Karl að þjálfari liðsins, Axel
Axelsson ætti sinn stóra þátt í
hve vel hefði gengið hjá liðinu
og ætti hann þakkir skilið.
-þr.
Wolves bjargaði
sér með góðum
sigri yfir Villa
ÞAÐ VAR endanlega útkljáð í
ga>rkvöldi að West Ham fellur í
2. deild í ensku knattspyrnunni.
Eina von liðsins var fólgin í því
að Wolves tapaði tveimur síðustu
KiKj„m m05 niiklum mun
en í gærkvöldi vann Woiven u«
Aston Villa örugglega 3il og þur
með féll West Ilam.
Urslit í ensku knattspyrnunni í
gærkvöldi urðu þessi:
1. deild:
Chelsea — QPR 3:1
West Bromwich — Nottingham
F. 2:2
Wolverhamton — Aston Villa 3:1
2. deild:
Millwall — Mansfield 1:0
Happdrætti
Fram
• Dregið hefur verið í happ-
drætti Ilandknattleiksdeildar
Fram. Vinningar komu á eftirtal-
in númer, 19364, 7397. 15547,
7854 og 7853. Upplýsingar um
vinninga eru veittar í síma 53213.
Vinningsnúmer eru birt án
ábyrgðar.
Skozka úrvalsdeildin:
Clydebank — Dundee Utd.
2:0
Þeir John Richards, Mel Eves og
Billy Rafferty skoruðu mörkin
fyrir Wolves, sem tryggðu liðinu
áframhaldandi setu í 1. deild.
Brian Dittie ^,Qrk Aston
VlHar'
Englandsmeistarar Nottingham
Forest gerðu enn eitt jafnteflið í
gærkvöldi. Ian Boywer og John
Robertsson (vítaspyrna) skoruðu
mörk liðsins en fyrir West Ham
skoruðu Tony Brown og Wayne
Hughes.
Millwall vann sinn sjötta sigur
í röð og tryggði sér áframhald í 2.
deild, en um tíma í vetur var liðið
langneðst og virtist dæmt til að
falla. JOnn ckoraði eina
márk leiksins gegn Mansfield.
Líklegt er að annað hvort Orient
eða Charlton fylgi Hull og Mans-
field niður í 3. deild.
Lokahóf handknattleiks-
manna í Sigtúni í kvöld
Lokahóf handknattleiksmanna fer
fram í Sigtúni í kvöld. Húsið opnar
kl. 19. Á boðstólum verður kvöld-
verður fyrir þá sem þess óska. Að
loknu borðhaldi fer fram verð-
launaafhending fyrir deildir og
bikarkeppni karla og kvenna.
Hljómsveit hússins leikur fyrir
dansi og skemmtikraftar koma
fram.
Grillbarinn á 2. hæð er opinn.
Hófið stendur til klukkan 2.
Verð aðgöngumiða er kr. 3000 sé
snæddur kvöldverður, en annars
kr. 1500. Miðar verða seldir við
innganginn.