Morgunblaðið - 13.05.1978, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. MAÍ 1978
45
þingmaður þekki af eigin reynslu
ýmis störf í þjóðfélaginu.
Nú hefur þú verið forseti sam-
einaðs alþingis, er það ekki viðbót
við þingmannsstarfið?
— Jú, það er nokkuð mikil
viðbót og er ekki aðeins það að
stjórna fundum sameinaðs
alþingis heldur að hafa umsjón
með ýmiss konar sýslan í Alþingi,
mannaráðningar og launakjör. Öll
þessi daglegu störf falla að sjálf-
sögðu undir skrifstofu Alþingis, en
samkvæmt þingsköpum eiga for-
setar að sinna þeim einnig og taka
ákvarðanir og hefi ég notið mjög
ánægjulegs samstarfs við Þorvald
Garðar Kristjánsson forseta efri
deildar og Ragnhildi Helgadóttur
forseta neðri deildar svo og
skrifstofustjóra Alþingis Friðjón
Sigurðsson. Margs konar mál eru
send til afgreiðslu og umfjöllunar
bæði frá innlendum og erlendum
aðilum, erlendir þingmenn koma
hingað í heimsókn og þeim þarf að
sinna, okkar þingmenn fara einnig
til útlanda og svo mætti lengi
telja. Húsnæðismál þingsins eru
líka nokkuð umfangsmikil, það
þarf að skapa öllum þingmönnum
og öðru starfsliði Alþingis starfs-
aðstöðu og það er ekki auðvelt að
leysa þessi húsnæðismál. Alþing-
ishúsið er að verða 100 ára gamalt
og það var byggt yfir 36 þingmenn.
Nú eru þeir orðnir 60 og aðrir
starfsmenn þingsins annað eins.
Húsnæðismálin eru að komast á
nokkurn rekspöl þar sem embætti
húsameistara ríkisins hefur skilað
frumhugmyndum að nýju þinghúsi
og geri ég ráð fyrir að þær verði
teknar til athugunar á næsta
kjörtímabili og e.t.v. mjög
snemma. Það hefur hingað til
verið erfitt að ræða um þessi mál
þar sem við höfum ekki haft neitt
sérstakt í höndunum um þau, en
nú geri ég ráð fyrir að það fari að
komast skriður á þau.
Hvað tekur við hjá þér á
næstunni?
— Eg hefi hugsað mér að sinna
nokkuð þeim félagsmálastörfum
sem ég hefi á vegum Búnaðar-
félags Islands, en framtíðin sker
úr um hversu lengi ég geri það og
svo ætla ég að reyna að gera
eitthvert gagn á mínu heimili í
búskapnum, en þar .hefur eldri
sonur minn tekið við forræði. Ég
tel það hafa verið heldur stuðning
fremur en hitt að hafa búið að
bakhjarli, það var ekki að vita
hvenær ég ylti út úr pólitíkinni og
þingmaður verður að vera við því
búinn að hverfa að öðrum störfum.
eiga að líta á sig sem ráðsmenn,
en ekki neina herra þingsins. Þá
má nefna að mér finnst starfsað-
staða þingmanna mun lakari en
þar sem ég þekki til erlendis,
þingmenn þurfa oft að leita til
sérfræðinga með verkefni og sums
staðar erlendis er t.d. hver þing-
maður með einkaritara, en hér er
aðeins einn starfsmaður fyrir
hvern þingflokk, launaður af
Alþingi. Þá vantar t.d. mikið upp
á það að hver þingmaður hafi
fullnægjandi húsnæðisaðstöðu.
— Einnig mætti nefna nefnda-
störfin. Mér finnst þeim ábótavant
á þann hátt að nefndirnar fara of
rólega af stað í þingbyrjun, en
síðan fer allt í fljótræðisvinnu-
brögð þegar þinglok nálgast. Á
þessu þyrfti einnig að verða
breyting.
Hefur þú lagt megináherzlu á
einhver sérstök málefni?
— Mál hafa þróast þannig að ég
hefi skipt mér af flestum málum
en eitt var þó upphaf þess að ég
hóf afskipti af stjórnmálum og það
var krafa Bandaríkjamanna um 3
herstöðvar á íslandi til 99 ára, árið
1945. Það hefur alltaf verið efst í
huga mínum að Islendingar setji
sér það mark að hafa hvorki
erlenda hersetu né erlendan at-
vinnurekstur í landinu; við verðum
að vera menn til að nýta auðlindir
okkar sjálfir og láta ekki aðra um
það.
Heldurðu áfram stjórnmálaaf-
skiptum þótt þú hættr nú á þingi?
— Ég hef verið pólitískur alla
ævi og geri ráð fyrir að láta í mér
heyra öðru hverju. Það er erfitt
fyrir mig að gegna fullu starfi
vegna fötlunar og mun framtíðin
ráðast nokkuð af því hvernig þær
æfingar ganga sem ég er nú í.
Hvernig er með andstæðinga á
þingi, eruð þið líka andstæðingar
eða óvinir utan þings?
— Nei, það hefur tekizt mjög
góður kunningsskapur með mér og
mörgum andstæðingum á þingi, ég
ber ekki heiftarhug til neins þó
skoðanir fari ekki saman. Ég hef
ekki blandað saman skoðunum
manna og persónuleika, það er
tvennt ólíkt.
\br í Reykjavík
Við bjóðum landsmenn velkomna til Reykjavíkur. Vekjum athygli á
þeim sérstöku vorkjörum, sem við bjóðum nú á gistingu.
Leitið upplýsinga, - hafið samband við okkur, eða umboðsskrifstofur
Flugleiða um land allt.
iaulHI
Suöurlandsbraut 2. Sími 82200
HOTEL
LOFTLEIÐIR
Reykjavíkurflugvelli. Sími 22322
14 — 22 og auk þess sem sýnd
eru verk nemenda verða verk-
stæði skólans í gangi og má þar
sjá vinnubrögð t.d. við grafík-
myndir og keramikverk.
Jafnframt þessari sýningu eru
uppi á Mokka og í anddyri
Kjarvalsstaða kynningar-
sýningar, en þar gefst fólki
kostur á að sjá hluta þess sem
sýnt er í skólanum sjálfum, en
aðalsýningin fer fram í öllu
húsnæði skólans við Skipholt 1.
í vikunni unnu nemendur við
að koma upp sýningunni og er
Mbl. leit þar við voru nemendur
hinna ýmsu deilda önnum kafnir
við að velja úr verkum sínum,
hengja upp og koma öllu fyrir.
Hildur Hákonardóttir skóla-
stjóri sagði að þessar vorsýning-
ar skólans væru ekki aðeins
haldnar til að nemendur fengju
tækifæri til að sýna og gestir að
skoða verk þeirra heldur væri
ein meginástæða þeirra sú að
þannig lærðu nemendur að setja
upp sýningar og fengju þannig
dýrmæta reynslu. Nemendur
eiga nokkur verk hver á
sýningunni og velur nemenda-
hópur hverrar deildar verk úr
sínum hópi í samráði við
kennara. Af einstökum verkum á
Framhald á bls. 55
BlLAVERKSTÆÐIÐ
JLTAKE
Skemmuvegi 24 - Kópavogi
Sími 7-32-50
Þjónusta fyrir rússneska bíla
Bílaverkstæöiö LYKILL.
Bílaverkstæðiö BILTAK.
Bifreiöar og landbúnaöarvélar tilkynna hér meö,
aö Bílaverkstæðið Bíltak er viðurkenndur
þjónustuaöili fyrir rússneska bíla og mun
eingöngu annast viögeröir og þjónustu á Lada,
UAZ, Volga, Moskvich og GAZ.
Bifreiðaverkstæðið
Lykill h/f
Smiðjuvegi 20, Kópavogi
sími 76650.
Opið frá kl. 7.30—18.
Vélaviögeröir — Rafkerfi
Stillingar
Hemlaviögeröir — Ljósastillingar.
J /
Bílaverkstæðið LYKILL
Bílaverkstæöið
Bifreiöar og Landbúnaöarvélar h.f. tilkynna hér
meö, aö Bílaverkstæöiö Lykill h.f. er viöurkennd-
ur þjónustuaöili fyrir rússneska bíla og mun
annast viögeröir og þjónustu á Lada, UAZ, Volga,
Moskvich og GAZ.
Biíreiðar & Landbúnaðarvélar hí.
Biírei
Sudurlandshratil 14 - lli'ikjavík - Simi .liiiiOO