Morgunblaðið - 13.05.1978, Qupperneq 16
48
49
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. MAÍ 1978 i
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. MAÍ 1978
hóp áhugafólks ár hvert og telst
mikilvægur þáttur í starfi skólans.
Fyrstu árin sem skólinn starfaði
var miðað við tveggja ára nám í
dagskóla en hefur nú þróast í
fjögur ár hið minnsta, en að
sjálfsögðu getur námið orðið
lengra hjá einstökum líkt og gerist
í öðrum skólum. Lenging námsins
réðst af sjálfu sér með því að ekki
þótti stætt á því að menn settust
í hinar einstöku sérdeildir, sem fór
fjölgandi, án undirbúningsnáms
og án þess að hæfileikar nemenda
væru kannaðir. í aðfarardeild
(forskóla) átti nemandi nú að læra
undirstöðuatriði myndlistar, mál-
un, teiknun, myndmótun, grafík
auk listasögu, — kenna skyldi
I nemanda að vinna rökrétt og auka
Um hvítasunnuhelgina verður
opið hús í Myndlista- og handíða-
skóla Islands og gefst fólki kostur
á að kynnast þar starfsemi þessar-
ar stofnunar með skoðun á vetrar-
vinnu nemenda og fylgjast með
vinnubrögðum á verkstæðum skól-
ans. A næsta ári verður skólinn 40
ára, en stofnandi hans var hinn
mikilhæfi menntafrömuður, Lúð-
vík Guðmundsson árið 1939. Væri
fróðlegt að við þau tímamót væri
gerð nokkur úttekt á starfsemi
skólans þetta tímaskeið og um leið
um þróun myndlistarfræðslu hér-
lendis frá upphafi, — stöðu og
gildi myndlistarskóla í þjóðfélag-
inu með yfirgripsmikilli sýningu.
— Með greinarkorni þessu er a(T
því stefnt að vekja athygli á
slarfsemi skólans og gera um leið
nokkra grein fyrir hlutverki hlið-
stáeðra menntastofnanna í tímans
rás. Tilefnið er einnig að nýverið
mun hafa verið lagt fram, til
kynningar á Alþingi, uppkast að
nýjum lögum fyrir þennan skóla
og mun samþykkt þeirra ótvírætt
boða tímamót um skipan hans í
menntakerfi þjóðarinnar, og þá
innri stjórnun um leið. Þá hafa
farið fram nokkrar umræður um
skólann í fjölmiðlum og fýsir mig
að leggja hér orð að, en ræða þó
hér fyrst og fremst um mynd-
listarskóla almennt — sögu þeirra
og hlutverk.
__________Uppruni_____________
Þegar á 12. öld voru til hópar
listamanna og listáhugafólks á
Italíu og Niðurlöndum er mynduðu
með sér samtök sem upphaf að
samkomum eða náms- og umræðu-
klúbbum, sem að nokkru stuðluðu
að uppfærslu ungs hæfileikafólks.
Þessir hópar nefndu sig gjarnan
„Lúkasargildin", er byggist á
sögninni um guðspjallarmanninn
Lúkas, frá fimmtu öld, en sögnin
greindi frá því, að hann hefði
málað fyrstu myndina af heilagri
guðsmóður. — Má það teljast
frumvísir að útbreiðslu fræðslu á
sviði myndlistar og þarmeð mynd-
listarskólum.
Félaghópur á þessu sviði átti
samastað á vinnustofu Andrea del
Vcrrocchio í Fiórenz á síðari
helmingi 14. aldar og telst hann
gjarna fyrsti vísir að lista-
kademískri menntun, en hið sama
má segja um hópinn, sem
Loonardo da Vinci stofnaði til í
Mílanó 1498, en hann var nemandi
Verrocchio á árunum 1470—78.
Líklegast væri þó að ætla að
frá Michaclangelo og Rafael. um
leið og rannsóknum á náttúrunni.
— Hér var grundvallaður einn
mikilvægasti þáttur ítalskrar
frum-barrokklistar. Mikilhæfasti
nemandi þeirra var Guido Reni.
En eftir að þessir þrír merkilegu
Carracci-bræður voru allir tók
fljótlega að verða vart hnignunar,
og síðan hefur staðið yfir stöðug
rökræða um eðli og tilgang fagur-
listaskóla — og stendur yfir enn
þann dag í dag.
Hin beina fyrirmynd nútíma
fagurlistaskóla telst þó „Academi
de Peniture et la Sculpture" —
háskóli fyrir málara- og mynd-
höggvaralist, sem stofnaður var
1648 í París og seinna sameinaðist
„Academi d‘ Architecture" (stofn-
uð 1671) og nefndist þá „Academie
des Beaux-Arts“ — Háskóli fagur-
lista.
Hugsjón
__________og þörf__________
Þrátt fyrir deilur og andstöðu
má það vera deginum ijósara að
listaskólar eru til komnir af
brýnni þörf. Fyrrum, er einn
meistari varð nafntogaður, hópuð-
ust að honum lærisveinar víða að.
Eftir því sem meistararnir urðu
fleirir og þörfin meiri fyrir
starfskrafta við að sinna margvís-
legum verkefnum á fagurlista-
sviði, óx einnig þörfin fyrir
markvissri kennslu á þessum
vettvangi. Hér er ekki um neina
tilviljun að ræða, heldur rökrétta
þróun sprottna af þjóðfélagslegri
þörf á slíkum stofnunum og
menntuðum starfskröftum á þess-
um sviðum. Segja má að seinni
tíma myndlist hafi þá fyrst farið
að festa rætur að marki meðal
ýmissa þjóða er þar voru stofnaðir
fagurlistaháskólar - og í slíkar
stofnanir leituðu frumkvöðlarnir
menntunar á sínum tíma, m.a.
flestir ef ekki allir frumkvöðlar
norrænnar myndlistar. — Þannig
er það, að um leið og þessar
stofnanir eru réttilega gagnrýnd-
ar, mega menn ekki missa sjónar
á ótvíræðri sögulegri þýðingu
þeirra varðandi framþróun mynd-
listar og útbreiðslu þekkingar á
myndlistarsviði. Hér var og er um
að ræða eina virtustu mennta-
stofnun á háskólastigi flestra
þjóðfélaga, þar sem hún á annað
borð var sett á laggirnar, og því
virtari sem menntun þjóðanna var
á hærra stigi. Hefur mönnum því
snemma verið ljós þýðing mark-
vissrar myndlistarmenntunar fyr-
höggmyndalist — teikningu og
grafík.
Skólinn tók strax í upphafi þá
stefnu, að einangra sig hvorki við
listiðnað né myndlist, heldur safna
sem flestum greinum sjónmennta
undir einn hatt. Að sumu leyti var
hér um rétta stefnu að ræða,
hárrétta í upphafi, en e.t.v.
vafasamari til frambúðar þótt
líkast til sé varasamt að dreifa
þeim kröftum um of er vinna að
listuppeldi meðal fámennrar þjóð-
ar. Kennaradeild var og fljótlega
stofnuð við skólann, enda var það
brennandi vilji stofnandans að
miðla og útbreiða sem víðtækast
gildri fræðslu á þessum sviðum.
Ekki má gleyma námsskeiðum
sem hafa verið mörg og marg-
vísleg og dregið að sér fjölmennan
í kennslutíma hjá Sigurði Sig-
urðssyni listmálara fyrir ca.
áratug — á myndinni má þckkja
ýmsa kunna og athafnasama
þjóðfélagsþega á lista-, listiðn-
aðar og kennslusviði. (ljósm.
Halldór Einarsson).
„Accademia di San Luca“, sem
stofnuð var í Róm í lok 15. aldar,
hafi verið fyrsta tilraunin til að
koma á fót virkari listfræðslu í þá
veru, sem menn greina listahá-
skóla í dag (stofnun sem hefur
myndlistarfræðslu í grundvallar-
atriðum að meginmarkmiði). —
Aður en listaskólar voru formlega
settir á laggirnar fór öll mynd-
listarkennsla fram á vettvangi
verkstæða starfandi meistara, og
var hér eðlilega náið samband
milli lærisveina og meistara, því
að hver meistari gat að sjálfsögðu
aðeins haldið takmarkaða tölu
Ljósm. Gunnar Orn
Bragi Asgeirsson
lærisveina. Lærisveinarnir höfðu
margvíslegu hlutverki að gegna á
vinnustofu meistara sinna og í
þeirra hlut féllu sífellt ábyrgðar-
meiri störf eftir því sem þeim
jókst þroski, — þeir lengst komnu
aðstoðuðu meistarana í útfærslu
verka þeirra og eru ósjaldan áhöld
um hvort verk meistaranna séu
þeirra eigin eða lærisveinanna.
Hér var um mjög góða skólun á
handverkinu að ræða, — vafalítið
þá beztu er sagan getur um, og til
verður því afmörkuð kerfisbundin
kennsla einnig fyrir margt að
teljast til afturfarar.
Listaháskólar hafa að jafnaði
verið mjög umdeildar stofnanir,
allt frá því að hinir nafntoguðu
bræður Carracci stofnuðu
„Accademia degli Incamminati"
(Listaháskóli í framsókn) í
Bologna á 17. öld. Hefur verið sagt,
að þessi skóli hafi hjálpað listinni
á fætur aftur, svo víðtæk voru
áhrif hans, — hér var þróaður nýr
málunarmáti er boðaði fráhvarf
frá „manerismanum“ (eins konar
ávanabragur á listaverkum),— og
ir þróun sjálfstæðrar listrænnar
menningar, sem svo af sjálfu sér
leiddi hærra ris viðkomandi þjóða
á þeim sviðum á alþjóðavettvangi.
— Listiðnaðarskólar eru af
yngri gerð, en hinir fyrstu þeirra
munu vera frá miðri 19. öld, — en
hins vegar voru þeir frá upphafi
reknir á breiðari grundvelli — og
hafa haft víðtækari og almennari
þjóðfélagsleg áhrif, enda þýðing
þeirra ómæld í upphafi iðnbylting-
ar, en hlutverk þeirra var öðru
fremur að mennta fólk í hagnýtu
listrænu handverki, en sjálfstæði
og vandvirkni á því sviði er
eigin framlög og gefið viðkomandi
héraðsstjórnum, enda má segja að
þeir hafi séð sér hag af sem
gildastr menntum á þeim sviðum.
Má slá því föstu að listaskólar á
öllum stigum hafi risið af hugsjón
og þörf.
íslenskar
_________aðstæður___________
Segja má að myndlistarmennt-
um hérlendis hafi þróast á líkan
veg og í Evrópu að öðru leyti en
því, að Myndlista- og handíðaskóli
teikningu og hafði víðtæk áhrif, né
heldur stofnunar Iðnskólans, sem
varð til að auka til muna kennslu
í fríhendisteikningu.
Þetta var sem sagt sviðið og
bakgrunnurinn þegar Myndlista-
og handíðaskólinn var stofnaður
árið 1939, og hefðu ekki komið til
þær sérstöku aðstæður sem sköp-
uðust er tengslin við meginlandið
rofnuðu er styrjöldin skall á, og
jafnframt harðfylgi stofnandans,
er eins víst að sú tilraun hefði
mistekist. Sú var líka raunin á, að
skólinn átti sín erfiðu ár er öll
sund virtust vera að lokast, —
menaðarmál hverrar þjóðar er
fram sækir.
Þótt verkstæða- eða vettvangs-
kennsla á þessum sviðum hafi að
mestu færst yfir á listaskólasviðið
er hún enn fyrir hendi og margur
gagnmenntaður myndlistarmaður-
inn —, jafnvel próffessorar við
listaháskóla, hafa aldrei inn fyrir
slíkar dyr komið sem nemar, en
hér er um einstök atvik að ræða,
og það má vera ljóst að þörfin
fyrir slíka skóla er ótvíræð og
hefur mjög aukist á síðari tímum
við gjörbreyttar þjóðfélagsaðstæð-
ur. Eins og að líkum lætur hafa
hugsjónamenn staðið fyrir
byggingum listaháskóla og suma
hinna fyrstu þeirra hafa ríkir
borgarar og aðalsmenn reist fyrir
íslands var stofnaður jafn síðla
sem á árinu 1939, og allt smærra
í sniðum. Áður og miklu fyrr höfðu
ýmsir lagt fyrir sig kennslu í
dráttlist, og fyrsta tilraun til
stofnunar eignlegs listaskóla var
gerð árið 1921 að frumkvæði
Guðmundar Thorsteinssonar
(Muggs). Þrátt fyrir að sú tilraun
muni ekki hafa staðið nema einn
vetur, bar hún ríkulegan ávöxt.
Seinna voru stofnaðir tveir kvöld-
skólar, annars vegar skóli þeirra
Björns Björnssonar gullsmiðs og
Marteins Guðmundssonar mynd-
höggvara, og hins vegar skóli
Finns Jonssonar og Jóhanns
Briem. Ekki má gleyma framtaki
Stefáns Eiríkssonar myndskera,
sem hélt fyrstur kvöldskóla í
skilningsvant hjá fræðsluyfirvöld-
um, peningaleysi og húsnæðis-
skortur. Er litið er til báka virðist
nær óskiljanlegt að Lúðvíki Guð-
mundssyni skyldi takast að halda
skólanum gangandi gegnum þykkt
og þunnt, og skila honum síðar af
sér í örum vexti, — en hér lá að
baki mikill manndómur ásamt trú
á málefnið og hið unga fólk, er
hazlaði hér framtíð sinni völl.
Lúðvík mun hafa gert sér ljóst, að
slík stofnun væri ein hinna
mikilvægustu í menntakerfi
þjóðarinnar. Að efla þyrfti hvers
konar listrænt handverk, — enda
var skólinn nefndur „Handíðaskól-
inn“ í upphafi, — en jafnframt
skyldi leggja áherzlu á frumgrein-
ar myndlistar, þ.e. málverk —
FYRRI GREIN
_____ BRAGI
ÁSGEIRSSON:
UM HIXJTVERK
MYNDLISTARSKÓLA
þekkingu hans á eðli listnáms.
Lengi var það mjög áberandi að
margir nemenda komu að skólan-
um með alrangar hugmyndir um
listnám og my ndlistarkennslu
yfirleitt og aðrir sem þangað áttu
ekki erindi. Forskólinn átti einnig
að auka þekkingu og sjálfstæði
nemendans í þá veru, að hann yrði
færari um að velja sér námsbraut
er lægi að þeim hæfileikum, sem
ósjálfrátt og rökrétt hlytu að
koma fram í gegnum vinnu hans
— væru þeir fyrir hendi. Ætla má
að hér hafi tekist allvel, þótt
jafnan komi til undantekningar,
og óhætt er að fullyrða að í
flestum tilvikum hafi þeir nem-
endur borið af í sérdeildum, sem
stunduðu nám sitt af áhuga og
þrótti í forskóla. Það ætti að vera
algjör óþarfi að taka það fram hér,
að stefnan var frá fyrstu stund að
kennsla yrði hér á hlutlægum
grundvelli — og byggðist fyrst og
fremst á þekkingar- og reynslu-
miðlun á sem breiðustum grunni,
— nemandinn áttí sjálfur að
uppgötva og upplifa sem mest
gegnum vinnu sína, auka á þann
hátt þroska sinn og draga af því
lærdóm. Ljóst er að nemandi sem
sest á skólabekk íf fyrsta skipti er
óskrifað blað, og vilji menn ýta að
honum ákveðnum kenningum á
hann erfitt með að koma við
vörnum — nemur hlutina vafalítið
hráa, því að hann hefur ekki
nauðsynlega reynslu, yfirsýn né
dómgreind til að gera hér upp á
milli né mynda sér marktækar
skoðanir. Þetta er engin ný
uppgötvun, heldur ævagömul
sannindi, sem fáar stofnanir hafa
jafn oft rekið sig á og einmitt
listaskólar — fyrrum vegna þrá-
látrar vanafestu og íhaldsemi, en
á síðari árum sökum of mikils og
misskilins frelsis og eru hvoru-
tveggja skaðlegt, en heilbrigðan og
traustan milliveg mætti hér finna
sem hollast væri að stefna að
Viðamikil
ábyrgð
Meðal lítillar þjóðar, þar sem
vart mun verða að ræða um mikla
breidd á vettvangi listaskóla, sem
jafnan munu verða fáír, smáir og
takmarkaðir miðað við þá stóru og
fjölþættu skóla hinna ríku stór-
þjóða — hefur skóli á borð við
Myndlista- og handíðaskóla ís-
lands ekki einungis viðamiklu
uppeldislegu hlutverki að gegna,
heldur er hér ábyrgð fyrirsvars-
manna hans og kennara margföld.
Nemendur hér eiga þess engan
kost að gera samanburð né kynn-
ast heimslistinni augliti til auglit-
is á söfnum, líkt og í erlendum
stórborgum, — og mennta sig og
þroska á þann hátt. Listaverka-
baékur bæta aldrei upp slíkar
safnaferðir og rannsóknir, sem
geta reynst á við bestu mennta-
stofnanir ef rétt er á haldið. Mun
ég fjalía sérstaklega um þessi
atriði síðar ásamt því, að ég rita
þá um þróun listaskólakennslu á
síðari tímum.
Eg
trúi
því
kenni*
setningar eftir
Maleolm
Muggeridge
á 75 ára
afmæli hans
GUÐLEYSINGJAR EINIR EFAST EKKI...
Brezki rithöfundurinn og þjóð-
félagsrýnirinn Malcolm Muggeridge
átti nýlega sjötíubg fimm ára afmæli.
Á þeim tfmamótum er ekki úr vegi að
forvitnast um það sem manni eins og
Muggeridge finnst mestu varða í
lífinu og hér birtast tuttugu og fimm
kennisetningar hans en fyrir þá sem
hafa áhuga á að kynna sér lífspeki
hans betur má benda á ævisögu hans
sem er í tveimur hindum og heitin
„Chronicles of Wasted Tirne".
1. Dauðlegir menn sem reyna að
lifa lífinu án trúar á Guð verða
auðveld bráð mikilmennsku og kyn-
óra eða hvors tveggja. Steyttur hnefi
eða stífur limur! Nietzsche eða D. II.
Lawrence. Pascal sagði svo, og
mannlífið nú á dögum sýnir það
glögglcga.
2. Lífið er harmleikur, ekki þróun.
Pína Krists, — sá mikli harmleikur
— hefur á stórkostlcgan hátt auðgaó
vestræna menningu, í andlegum
cfnum og í listum, þegar þróunar-
kenningin, sem gcrir ráð fyrir
ákveðnum ferli, hefur aftur á móti
gleypt með húð og hári allan mannleg-
an sköpunarmátt í leit að þekkingu og
efnislegum velfarnaði.
3. Fróðleiksþorsti er ein tegund
ágirndár og er eiginlega önnur útgáfa
af sögunni um Midas. Að þessu sinni
um mann. sem er svo sólginn í
þekkingu að allt sem hann snertir
verður að staðreyndum. Trú hans
verður að guðfra'ði, ást hans verður
að ólifnaði. vísdómur hans verður að
vísinduim í leit sinni að tilgangi gefur
hann engan gaum að sannleikanum.
4. Sá Guð er ákvað að koma íram
með snilling færan um að semja Missa
Solemnis eða Dómkirkju Chartres.
mundi vissulega aldrei vilja takmarka
skiipunarmátt sinn við svo flatneskju-
lega og vélræna athiifn scm náttúru-
legt val. Það væri svipað og að Lér
Konungur hefði orðið til á færihandi
eða Paradísarmissir verið búinn til í
tölvu.
5. Aldrei hef ég kynnst ríkum
manni sem var hamingjusamur og
aðeins örsjaldan hef ég rckist á
fátækan mann, sem ekki hefur langað
til að verða ríkur.
6. Blaðamanni, sem verður að
fylgjast með framvindu mála og fólki,
verður stöðugt ljósari sá sannleikur
er felst í orðum Actons lávarðar. að
valdið spilli og að algert vald tortími.
Blake sagði það sama en á ólíkt
skáldlegri hátt. Kraftamesta eitur
sem kunnugt er — kom úr lárviðar-
sveig Sesars.
7. Af þessu leiðir. að ríkisstjórn er
aldrei góð, aðeins hetri en einhver
önnur. Leitin að góðri ríkisstjórn
endar óhjákvæmilcga með stjórnleysi
eða Gulag eyjaklasanum.
8. Þrjár hræðilegustu uppgötvanir
okkar tíma cru getnaðarvarnarpillan,
ljósmyndavélin og kjarnorkuvopnin.
Sú fyrsta býður upp á kynlíf í mynd
ófrjósemi, önnur upp á raunveruleik-
ann í mynd fantasíunnar og þriðja
uppgötvunin á að tryggja öryggi í
mynd eyðileggingarinnar.
9. Fjölmiðlunin er nú ópíum fólk-
sins.
10. Leyndardómsfull sæla og hlátur
eru tveir gleðigjafar lífsins, dýrlíngar
og trúðar, fulltrúar þeirra, eru einu
mennirnir. sem hægt cr að treysta til
að segja sannleikann. Tvö hreinlynd
líkneski hlið við hlið í dómkirkjunum
miklu.
11. Heilagur Fransiskus og brabur
hans voru alltaf hlæjandi og Móðir
Theresa heldur því fram að hlátur sé
nauðsynlegur þáttur trúarlífsins.
Starf Alþjóðabankans og Alþjóða
gjaldeyrissjóðsins er aftur á móti
grafalvarlegt mál og svo virðist sem
bankastjórinn, Robert S. McNamara,
kætist yfir fáu.
12. Drottni er ólíkt farið en
McNamara, hann er gamansamur.
Ilvernig er til dæmis hægt að túlka
fa.ll mannsins á annan hátt en með
gamla bananahýðisbrandaranum?
Þegar hlið himnarfkis opnast. eins og
þau gera stundum. og himnesk tónlist
hljómar. má einnig heyra óminn af
himneskum hlátri.
13. Merkilegustu atburðir. sem nú
eiga sér stað í heimi hér, eru
endurvakning kristinnar trúar í
Sovétríkjunum, sem sýna glöggt að
sextíu ára barátta við að heilaþvo
Rússa og gera þá að efnishyggju-
mönnum hefur verið til einskis. Állar
ríkisstjórnir.hversu valdamiklar sem
þær eru falla að lokum flatar fyrir
Orðinu. sem fyrir 2000 árum kom til
að húa með oss, þrungið yndisleik og
sannleika. Með öðrum orðum, hið
takmarkalausa vald fellur í duftið
fyrir takmarkalausri ást.
Framhald á bls. 63.
Malcolm Muggeridge
VERÖLD
Þetta gerðist líka ....
Og þá þarf ekkert að borga!
Bólusetning við tannskemmdum kynni að eiga ekki langt í land að
því er rannsóknir breskra vísindamanna gefa ástæðu til að ætla. Fyrsta
bólusetningin færi fram við sex mánaða aldur barnsins og síðar fylgdu
aðrar í kjölfarið til frekara öryggis. Thomas Lehner prófessor, sem er
einn að læknum við Gauays sjúkrahúsið í London, skýrir frá þessu í
grein í tímaritinu New Scientist. Hann og starfsbræður hans við
sjúkrahúsið hafa þegar reynt bóluefnið á öpum og með þeim árangri
að tannskemmdir í dýrunum minnkuðu um 60—80%
Við sama heygarðshornið
Enn linnir ekki ofsóknum gegn kristnum mönnum í Uganda. Hin
óverulegasta „óhlýðni" þessa fólks við boð og bönn stjórnvalda getur
haft hinar hörmulegustu afleiðingar.
Nýlegt dæmi sem Observer segir frá:
Þegar menn úr hinum illræmdu
öryggissveitum Idi Amins umkringdu
kirkju eina í Makarere þar sem
guðsþjónusta fór fram í trássi við
yfirvöld, neituðu hinir 170 kirkjugest-
ir að hætta bænagjörð sinni. Öryggis-
liðarnir hófu þá skothríð inn í
kirkjuna og féllu nokkrir af söfnuðin-
um en aðrir særöust. Hinir voru
fluttir í herbílum til Nakasero-fang-
elsis og sungu sálma á þeirri leið eins og sannir píslarvottar. Síðan hefur
ekkert spurst til þeirra.
Leiðinleg veizla
Nágrannarnir sögðu eftirá að hávaðinn í drykkjuveislunni hefði verið
svo óskaplegur að jafnvel dauður maður hefði tekið til fótanna. Veislan
fór fram í einu af úthverfum Santiago og varaði í þrjá daga. Pin
maðurinn sem húkti úti í einu horni stofunnar kippti sér ekkert upp
við þetta. Lögreglan hefur nú upplýst að Jose Luis Huenchupan hafi
verið vel við skál þegar hann mætti til veislunnar helgina fyrir 1. maí
og hneig niður ósjálfbjarga í einn stólinn. Og það var ekki fyrr en
þremur dögum seinna sem félagar hans uppgötvuðu að hann hafði
raunar gefið upp öndina.
Klippt og skorið
Vegir sovésku leiðtoganna eru sannarlega órannsakanlegir að ekki sé
fastar að orði kveðið. Dagbókarhöfundur The Guardian nefnir nýlegt
dæmi í sambandi við síðust heimsókn Cyrus Vance, bandaríska
utanríkisráðherrans, til Moskvu. Við brottförina ræddi hann að vanda
við blaðamenn og birti þeim þá
skriflega yfirlýsingu, sem nokkrum
kvöldum síðar var lesin í Moskvuút-
varpið. En einn hluti yfirlýsingarinn-
ar var þó felldur úr sovésku útgáf-
unni. I þeirri óbrengluðu lét Vance í
ljós „djúpa virðingu" fyrir Gromyko,
hinum sovéska starfsbróður sínum.
Hann lýsti ráðherranum sem „þaul-
reyndum fagmanni á diplómatiska
sviðinu", manni „sem á sér fáa
jafningja í veröldinni í dag“ og sem
„er gæddur miklum hæfileikum og
óvenjulegum gáfurn." Manni sýnist í
fljótu bragði (segir dagbókarhöfund-
ur The Guardian) að sovézkum
stjórnvöldum hefði mátt vera það
fagnaðarefni að geta flutt borgurun-
um þvílíkt lof um landa þeirra og borið ekki ómerkari mann fyrir því
en utanríkisráðherra Bandaríkjanna. En aldeilis ekki! Einmitt þessi
kafli var felldur úr þegar yfirlýsing Vance var lesin í Moskvuútvarpið!
Oðruvísi mér áður brá
Það er til marks um síversnandi sambúð Kínverja og Víetnama að
fjöldi Kínverja, sem búsettir hafa verið í Víetnam, hafa orðið að yfirgefa
landið í skyndi, að sögn embættismanns í Peking. Maðurinn upplýsti
ennfremur að kínversk stjórnvöld hefðu þungar áhyggjur af „þróuninni“
í Víetnam og „fylgdust náið“ með „framkvæmd mála“. Kínverjarnir sem
hér um ræðir eru samkvæmt öðrum heimildum einkanlega
smákaupmenn frá Saigon og öðrum borgum í Suður-Víetnam, sem hafa
verið „endurhæfðir" og sviptir verslunarleyfi.
Sitt lítið af hverju
Fjögra karata demantshringur, sem stolið var fyrir rúmu ári, fannst
fyrir skemmstu í maganum á gæsluvarðhaldsfanga, sem beið þess að
mál hans yrði tekið fyrir, þegar líkskoðun fór fram á manninum sem
orði hafði bráðkvaddur. Hringurinn, sem er virtur á nær níu
milljónir króna, er nú kominn.í hendur eigandans...Allir skólar, sem
reistir verða í Róm frá 1979—81, verða hitaðir með sólarorku, að því
er borgaryfirvöld tilkynntu á dögunum.. .Talsmenn pólskra andófs-
manna upplýsa að þrír verkamenn í Danzig hafi að undanförnu verið
að reyna að beita sér fyrir stofnun verkalýðssamtaka á þeirri forsendu
að „verkalýðsfélög" stjórnvalda hafi með öllu brugðist hagsmunum
verkafólks... Þrjár örustuþotur af óþckktu þjóðerni sem flugu í svosem
15 metra hæð yfir Rain am Lech í Vestur-Þýzkalandi, ollu yfir hundrað
milljón króna tjóni, að því er yfirvöld á staðnum tilkynntu í vikunni
sem leið. F'lugvélarnar rufu hljóðmúrinn og sprengdu rúður, veltu um
húsgögnum og ollu sprungum í veggjum og loftum.