Morgunblaðið - 13.05.1978, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. MAÍ 1978
63
— Guðleysingjar
einir...
Framhald af bls. 48
14. Myrkur er ekki til. aöeins
það að sjá ekki.
15. Gamansemi Guðs er ætluð
okkur til upplýsingar, hún flettir
hulunni af hégómaskapnum með
því að sýna hann í ljósi fáránleik-
ans. Ágirndina í ljósi verðbólgunn-
ar, holdlegleikann í ljósi klámsins.
frægðina í ljósi hverfullar lýðhylli,
þekkinguna í Ijósi þjóðfélagsvfs-
inda, samstöðu og samþykki f ljósi
slagorðaglamurs — þetta sá
Kierkegaard fyrir þegar hann
sagði að tíu þúsund manns, sem
hrópuðu sömu setningu, gerðu hana
ósanna jafnvel þótt hún væri sönn.
16. Tvær hugmyndir vorra tíma,
um framfarir og um jafnrétti, hafa
reynst sérlega skaðlegar. Sú fyrri
telur breytingar í sjálfu sér eftir
sóknarverðar, sem eins og Euclid
segir, er fáránlegt. og sú síðari er
álíka gölluð. Mennirnir eru ekki
jafnir en þeir eru bræður og systur,
sem tilheyra sömu fjölskyldu og öll
sköpuð í mynd skapara sfns.
Hnignun hins vestræna manns
liggur í breytingunni úr Bróður í
Félaga.
17. Önnur skaðleg hugmynd er
hamingjuleitin. sem skotið var inn
í handarísku frelsisyfirlýsinguna í
stað ákvæðis um verndun cignarétt-
arins. Það er ekki hægt að öðlast
hamingju með því að elta hana. ef
það væri hægt, væri það ekki
hamingjan.
18. Við lifum á tímum trúgirn-
innar. Sjónvarpsauglýsingar auka
til da^mis svo trúgirni fólks að hún
verður meiri en svívirðilegasta
hjátrú eða nokkur yfirnáttúruleg
trú. Sá er trúir engu trúir í raun
öllu.
19. Guðleysingjar eru þeir einu
sem efast ekki. um leið og maður
trúir fyllist maður einnig efa, efinn
er ómissandi þáttur trúarinnar.
Þegar allt kemur til alls getum við
aðeins vonast eftir því að sjá ímynd
sannleikans, en ekki sannleikann
sjálfan. Það eru til sannar og
ósannar ímyndir. Jesús cr sönn
ímynd.
20. Alexander I. Solzhenitsyn
segir að það finnist vart marxistar
í kommúnistarfkjunum, sem ég geri
ráð fyrir að sé rétt. Á hinn bóginn
fjölgar þeim óðfluga f svokölluðum
kapftalistalöndum. sérstaklega á
háskólaheimavistum og f æðri
stofnunum, á meðal presta og
jesúfta, meðal leikra og lærðra og
meðal sprenglærðra fjölmiðlunar-
manna. Það væri táknrænt ef á
sama degi og Marx væri loks kastað
út um Kremlgluggann gæfu
Vatfkanið og páfi út umburðarbréf
um „De Necessitate Marxismi“, um
nauðsyn marxisma.
21. Að verða gamall er í raun að
þreytast. Bráðlega dett ég út af og
sofna. Dásamlegt að geta teygt úr
sér!
22. Aldrei hef ég efast um að
tilvera okkar hér á jörðu eigi sér
framhald. Mér finnst fráleitt að
álykta að alheimurinn sé eingöngu
leiksvið hinnar óendanlegu sápu-
ópera sögunnar, með sömu persón-
ur og kringumstæður, sem sífellt
endurtaka sig.
23. Hversu hræðileg er ekki sú
ómennska er mannskepnan býr
yfir. Heródes lét lífláta saklausa en
það er lftilf jörlegt miðað við
barnamorð nútfmans, fólgin í lög-
legri fóstureyðingu næstum alls
staðar. Nú þegar hreyfingunni
fyrir löglegum líknarmorðum vex
ásmcgin verða aðgcrðir nasista
aðeins svipur hjá sjón. Við réttar
höldin í Niirnberg voru „líknar
morð“ nazista dæmd sem stríðs-
glæpir. Þannig tekur það þrjátfu ár
að gera stríðsglæp að góðverki.
24. Virkilega friðsæll dagur frá
morgni til kvölds er fágæti nú á
dögum.
25. Á gamalsaldri fann heilagur
Tómas Aquinas að hann komst ekki
lengra með verk sitt Summa
theologica þegar hann fjallaði um
syndarefsinguna og að því er
æviskrárritari nokkur skráði.
hengdi heilagur Tómas hörpu sína
á pílviðinni við ána vegna þess að
hann hafði séð himnarfki bregða
fyrir. Ég vildi að slíkt hið sama
henti mig.
Myndlistamaðurinn Nonni opnaði myndlistasýningu 5. maí s.I.
á Laugavegi 25 og lýkur henni 26. maí n.k. Sýningin er opin
daglega kl. 14.00—20.30.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 55., 56. og 57. tölublaöi Lögbirtingablaös-
ins 1976 á Reynihvammi 3, þinglýstri eign Péturs
Andréssonar, fer fram á eigninni sjálfri föstudaginn 19. maí
1978 kl. 10.
Bæjarfógetinn í Kópavogi
Nýtt Nýtt
Sumarvörurnar eru komnar
Glæsilegt úrval af pilsum og blússum.
Glugginn Laugavegi 49.
Orð krossins
Fagnaðarerindið verður boðað frá Trans World
Radio, Monte Carlo, á hverjum laugardags-
morgni kl. 10.00—10.15.
Sent verður á stuttbylgju 31 metra, (9.5 MHZ.)
Orð krossins, pósh. 4187, REYKJAVÍK.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 24., 26. og 29. tölublaði Lögbirtingablaðs-
ins 1977 á Ásbraut 5 — hluta, þinglýstri eign Gauts
Stefánssonar, fer fram á eigninni sjálfri, föstudaginn 19. maí
1978 kl. 10.45.
Bæjarfógetinn í Kópavogi
Gerið ykkxir
dagamun
aAski
t
Opið alla helgina
til hálf tólf á kvöldin
eins og venjulega.
ftSKUR
Suðurlandsbraut 14 Laugavegi 28
Smd 38550