Morgunblaðið - 18.05.1978, Page 1

Morgunblaðið - 18.05.1978, Page 1
64 SÍÐUR 100. tbl. 65 árg. FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 1978 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Carter Bandaríkjaforseti og Kenneth Kaunda forseti Zambíu stinga saman nefjum í Washington í gær, en þar er Kaunda nú í opinberri heimsókn. (Símamynd AP) Þyngstu refsingar krafizt yfir Orlov Moskvu. 17. maí. AP. Rcutcr. SAKSÓKNARINN í réttarhöld unum yfir Yuri Orlov krafðist þess í dag, að Orlov hlyti þyngstu refsingu sem lög leyfa. þ.e. 7 ára I þrælkunarvinnu og 5 ára útlegð.l Síðasti dagur réttarhaldanna var í dag en dómur verður kveðinn upp á morgun. Talið er víst að þegar sé ákveðið, að Orlov verði da rndur sekur. en kona hans lýsti því yfir við vestræna fréttamenn að loknum yfirheyrslum í málinu f dag. að réttarhöldin væru ekki annað en fáránlegur sirkus þar sem manni hennar væri meinað að verja sig með eðlilegum hætti Framhald á bls 18. Her Zairestjómar að ná yfírhöndiraii Kinshasa. I’arís. Hriisscl. 17. maí. Rcutcr. AP. STJÓRN Zaire tilkynnti í kvöld að hermenn hennar hefðu náð á sitt vald að nýju flugvellinum í Kolwezi úr höndum uppreisnar- manna. sem réðust inn í Shaba-hérað. áður Katanga. fyrir nokkrum dögum. Sveitir fallhlíf- arhermanna þjálfaðra í Frakk- landi. en þessar sveitir eru taldar eini heraflinn sem Mobutu Sese Seko forseti getur fullkomlega treyst. voru sendar á vettvang og þa>r náðu flugvellinum eftir mjög snarpa bardaga. að því er hin opinbera fréttastofa Zaire til- kynnti Stjórn Belgíu sagði í dag að erlendir borgarar í Shaba-héraöi væru í bráðri hættu og væru Frakkar sérstaklega lagðir í ein- elti í Kolwezi. Zaire var nýlenda Belgíumanna áður en landið fékk sjálfstæði og hét þá Belgíska Kongó. Utanríkisráðherra Belgíu, Henri Simonet, sagði í dag í ræðu í belgíska þinginu, að um 3000 Evrópubúar væru lokaðir inni vegna bardaganna i Shaba-héraði, flestir af belgísku bergi brotnir. Belgíska utanríkisráðuneytið hef- ur skýrt frá því að því sé kunnugt um að fimm til tíu Evrópumenn Herinn stöðvar talningu Santo Domingo, 17. maí. AP. Reuter. HERINN í Dóminíkanska lýð- veldinu tók í dag í taumana þegar verið var að telja atkvæði í forsetakosningunum í landinu þegar svo var komið, að mótfram- bjóðandi núverandi forseta hafði mikið forskot yfir forsetann. Engin skýring hefur fengizt á atferli yfirmanna hersins sem fullyrða að þeir ætli sér ekki að steypa stjórn landsins og taka hana í eigin hendur. Loft var lævi blandið í höfuð- borginni í dag og mikil óvissa ríkti um hver væru raunveruleg áform hersins. hafi verið drepnir af uppreisnar- mönnum. Bandarískt verktakafyrirtæki sem haft hefur marga starfsmenn i héraðinu flutti þá á brott í nótt og var bílalestin sem flutti fólkið látin óáreitt og fólkinu komið á óhultan stað. Belgískir fallhlífar- hermenn eru sagðir til reiðu til að sækja þá belgíska borgara sem á svæðinu eru. Fulltrúar uppreisnarmannanna sögðu í dag í Brússel, en þar hafa þeir skrifstofu, að uppreisnarliðið hefði stráfellt 300 franska fallhlíf- arhermenn sem komið hafi stjórn- arhernum til aðstoðar, en franska stjórnin hefur sagt þetta upp- spuna einn þar sem engir fránskir hermenn séu í landinu. Stjórnir Frakklands, Bandaríkj- anna og annarra vestrænna ríkja kanna nú möguleika á að veita stjórn Zaire stuöning í baráttunni við uppreisnarliðið og er banda- ríska þingið nú m.a. sagt hafa til athugunar hvernig megi koma við slíkri aðstoð. Sameinuðu þjóðirnar hafa ákveðið að reyna að beita áhrifum Framhald á bls. 18 Eritrea: Harðar sprengju- árásir Eþíópíuhers Róm, Damaskus, 17. maí. Reuter, AP. Her Eþíópiu hélt í dag áfram hörðum sprengjuárásum á landi og úr lofti á stöðvar uppreisnar- manna í Eritreu. að því er fréttastofa Eritreumanna f Damaskus skýrði frá. Einn af foringjum Eritreumanna skoraði í dag á alþjóðastofnanir og friðelskandi þjóðir að láta hern- aðinn í Eritrcu til sín taka og stöðva það „þjóðarmorð“ sem stjórnin í Addis Abeba undir- byggi nú. Uppreisnarmenn hafa á undan- förnum 16 árum náð á sitt vald stærstum hluta Eritreu, en það hérað er nyrzt í landinu og þar eru einu hafnir landsins. Búizt hefur verið við stórsókn Eþíópíumanna á svæðinu í nokkurn tíma eftir að þeir báru sigurorð af Sómalíu- 14 Rússar drepnir Victianc. Bangkok. 17. maí. AP. FJÓRTÁN rússneskir ráðgjafar stjórnarinnar í Laos og einn N-Víetnami voru drepnir í fyrir sát sl. þriðjudag, að því cr dagblað í Bangkok skýrir frá í dag. Blaðið segir, að hægri sinnaðir andstæðingar kommúnistastjórn- arinnar í landinu hafi gert mönn- unum fyrirsát um 19 kílómetra Framhald á bls 18. mönnum í Ogaden-eyðimörkinni. Ekki hefur verið staðfest að Sovétmenn og Kúbumenn aðstoði stjórnarherinn í hernaðinum í Eritreu en ljóst þykir að Eþíópíu- menn sjálfir geti ekki flogið hinum fullkomnu sovézku herþotum sem notaðar eru til loftárásanna. Fregnir frá skrifstofum Eritreu- manna í Róm hermdu í dag að her Eþíópíustjórnar hefði í dag gert tilraun til að brjótast úr umsátr- inu sem hann hefur búið við um skeið í stærstu borg héraðsins, Asmara, og harðar árásir hafi verið gerðar á hafnarborgirnar á svæðinu sem eru undir stjórn uppreisnarmanna. Ilussein Jórdaníukonungur og væntanleg drottning hans, Elizabeth Halaby frá Bandaríkjunum, taka á móti Hassan krónprins Jórdaníu á flugvellinum í Amman í gær. Þetta var í fyrsta sinn sem konungur og ungfrú Halaby sjást saman Opinberlega. Símamynd AP Lík Chaplins fannst í gær: Fengu hugmyndina um að ræna Chaplin af fréttum Lausanne, 17. maí. AP. Reuter. LÍK Charlie Chaplins, leikarans ástsæla. kom í leitirnar í dag, en því var rænt úr gröf þess í þorpinu Vevey í byrjun marzmánaðar sl. Kista Chaplins fannst grafin í akri um 20 kflómetra frá kirkjugaröinum í Vevey og hafði ekki verið hróflað við líkinu. Chaplin lézt 25. desember sl. Tveir austur-evrópskir flótta- menn, annar frá Póllandi en hinn frá Búlgaríu, hafa játað á sig Iíkránið og hafa þeir verið ákærðir fyrir að raska ró látinna og fyrir tilraun til fjárkúgunar. Að því er svissneska lögreglan upplýsti í dag var kistan grafin í landareign bónda nokkurs sem ekki var við málið riðinn og gerðu ræningjarnir tilraun til að fá fjölskyldu og lögfræðinga Chapl- ins heitins til að reiða af hendi háar upphæðir fyrir líkið. Líkið var flutt á þann stað, er það fannst á, nóttina sem því var rænt og þegar annar ræninginn kom með lögreglunni á staðinn gat hann ekki komið því ná- kvæmlega fyrir sig hvar líkinu hefði verið komið fyrir. Varð lögreglan að notast við tæki sem gerð eru til jarðsprengjuleitar til að finna kistuna. Flóttamennirnir tveir sem rændu líki Chaplins hafa starfað að bílaviðgerðum í Sviss um Framhald á bls. 18 Kista Charlie Chaplins eftir að hún kom í leitirnar í dag. Kistan hafði verið grafin skammt þar frá sem Chaplin hafði verið lagður til hinztu hvíldar í desember sl. (Símamynd AP)

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.