Morgunblaðið - 18.05.1978, Side 22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR, 18. MAÍ 1978
22
ÁRNI Grétar Finnsson, einn af
helstu forystumönnum Sjálf-
stæðisflokksins í Hafnarfirði, hef-
ur haldið því ítrekað fram á
opinberum vettvangi, að við sem
stóðum að meirihluta bæjarstjórn-
ar Hafnarfjarðar á árunum 1970
til 1974, þ.e. bæjarfulltrúar
Alþýðuflokks, Félags óháðra borg-
ara og Framsóknarflokks, hefðum
torveldað að hitaveitu yrði komið
í Hafnarfjörð. Alveg sérstaklega
hefur hann tekið fyrir bæjarfull-
trúa Alþýðuflokksins í þessu
sambandi.
Þar sem ég var bæjarfulltrúi
Alþýðuflokksins á þessum árum og
fulltrúi hans í nefnd þeirri, sem
annaðist samningagerð við
Reykjavíkurborg varðandi þetta
mál á lokastigi þess, get ég ekki
lengur látið hjá líða að mótmæla
slíkum rakalausum fullyrðingum,
enda þótt ég sé nú ekki lengur
framarlega í flokki til framboðs.
En síðasta framlag Árna Grétars
um þetta var í Morgunblaðinu 13.
maí s.l. svohljóðandi:
„Langstærsta málið sem hrint
hefur verið í framkvæmd á kjör-
tímabilinu, segir Árni Grétar, er
lagning hitaveitu í Hafnarfirði.
Framkvæmdir tókust mjög vel og
voru heilu ári á undan áætlun. Um
þetta mál stóð mikill styr allt
síðasta kjörtímabil. Bæjarfulltrú-
ar Alþýðuffokksins, sem þá mynd-
uðu meirihluta ásamt Fram-
sóknarflokknum og óháðum
borgurum voru mjög andvígir
samningum Hafnfirðinga við
Reykjavíkurborg um hitaveitu.
Þessi afstaða Alþýðuflokksins
tafði málið nær í tvö ár.“
Til þess að hnekkja þessum
alvarlega áburði, tel ég þarflaust
að rekja nákvæmlega í einstökum
atriðum hvernig aðdragandi og
undirbúningur þess máls gekk
fyrir sig, en vil þó segja það, að
þótt bæjarfulltrúar allir hafi verið
sammála um nauðsyn þess að fá
Stefán
Gunnlaugsson;
hitaveitu í Hafnarfjörð, var
metnaður þeirra fyrir hönd bæjar-
félagsins og áhugi fyrir að standa
vörð um hagsmuni þess varðandi
einstök atriði málsins ekki ævin-
lega sá hinn sami. Sem dæmi skal
nefnt, að sumir töldu að orðalaust
ætti að ganga að kröfu viðsemj-
enda okkur um afsal á hitaréttind-
um Hafnarfjarðar í Krýsuvík til
Reykjavíkur.
Á tímabili á þessum árum átti
ég sæti á Alþingi, og þar sem
okkur bæjarfulltrúum meirihluta
bæjarstjórnar fannst svo ákaflega
hægt ganga til lausnar og fram-
kvæmda hitaveitumálsins, tók ég
mér fyrir hendur að hreyfa málinu
á Alþingi í von um, að það flýtti
fyrir farsælli lausn þess í þágu
Hafnfirðinga.
Þær umræður, sem þar fóru
fram um þetta mál, liggja fyrir
orði til orðs í Alþingistíðindum.
Svo er aftur á móti ekki um
umræður frá fundum í bæjar-
stjórn Hafnarfjarðar. Ég hefi því
tekið þann kostinn að taka hér upp
úr Alþingistíðindum nokkur atriði
um þetta efni, sem sýna ættu
öllum sannsýnum mönnum, svo
ekki verði um villst, hvert mitt
viðhorf og Alþýðuflokksins var til
hitaveitumálsins, og að ég hygg að
verulegu leyti einnig samstarfs-
manna minna í meirihluta bæjar-
stjórnar Hafnarfjarðar á um-
ræddum árum:
1. Hinn 20. nóv. 1973 svaraði
iðnaðarráðherra svohljóðandi fyr-
irspurn minni í sameinuðu þingi:
„Hver er afstaða ríkisstjórnar-
innar til óska Hitaveitu Reykja-
víkur um gjaldskrárhækkanir?"
Til skýringar þessari fyrirspurn
sagði ég við þaö tækifæri m.a.
þetta:
„Tilefni fyrirspurnar minnar er
það, að borgarstjórinn í Reykjavík
hefur gefið í skyn á opinberum
vettvangi, þ.e. á fundi Sambands
sveitarfélagá í Reykjaneskjör-
dæmi 10. þ.m. og í blaðaviðtali 14.
þ.m., að framkvæmdir við lagn-
ingu á vegum Hitaveitu Reykja-
víkur muni frestast vegna þess að
ríkisstjórnin hafi synjað Hitaveitu
Reykjavíkur muni frestast vegna
þess að ríkisstjórnin hafi synjað
Hitaveitu Reykjavíkur um leyfi til
gjaldskrárhækkunar, en ákvæði
eru í samningum, sem Hafnar-
fjörður og Kópavogur hafa gert til
Hitaveitu Reykjavíkur um lagn-
ingu hitaveitu í þessi sveitarfélög,
að Hitaveita Reykjavíkur geti
endurskoðað framkvæmdahraða,
ef ekki er tryggt, að árlegur
rekstrararður Hitaveitu Reykja-
víkur verði a.m.k. 7% af endur-
metnum eignum Hitaveitunnar, en
það ákvæði mun byggt á lánaskil-
málum Alþjóðabankans.
Hér er á ferðinni ákaflega
alvarlegt mál fyrir íbúa þeirra
sveitarfélaga, sem hlut eiga að
máli og eru nú samtals nálægt 27
þús. talsins. Þeir hafa lengi gert
sér vonir um að geta hitað
húsakynni sín með jarðvarma og
trygRt sér með því húsahitun á
svipuðu eða sama verði og Reyk-
víkingar. Þegar við blasir, að sá
draumur ætti að geta orðið að
veruleika á næstu 3—4 árum, þá
virðist sem deilan milli ríkisvalds-
ins og Reykjavíkurborgar geti
orðið til þess að tefja eða koma í
veg fyrir, að þetta stórkostlega
hagsmunamál um 27 þús. íbúa á
Reykjanessvæðinu nái fram að
ganga. Þegar svo bætast við
gífurlegar hækkanir á olíuverði
þessa dagana og óvissa um öflun
hennar á komandi árum og um leið
fyrirsjáanleg enn stóraukið mis-
rétti milli þeirra, sem búa við
hitaveitu og hinna, sem þurfa að
nota olíu til upphitunar húsa,
getur engum blandast hugur um,
að þetta deilumál verði að leysa
tafarlaust og þannig, að hitaveita
verði lögð í umrædd byggðarlög
með ekki minni hraða en um hefur
verið talað og samningar gera ráð
fyrir."
2. Hinn 18. apríl 1974 ræddi ég
aftur um vandamálin, sem við var
að etja vegna hitaveitu fyrir
Hafnarfjörð og þau ljón, sem þar
væru í veginum. Var það í
sameinuðu þingi í sambandi við
þingsályktunartillögu iðnaðarráð-
herra um nýtingu innlendra orku-
gjafa. Fórust mér þá orð á þessa
leið m.a., um samningamál
Reykjavíkur og Hafnarfjarðar um
hitaveitu fyrir Hafnarfjörð: „En
svo var komið þessum samninga-
málum í des. 1972, sem embættis-
menn viðkomandi sveitarfélaga
unnu að, að bæjarstjórn Hafnar-
fjarðar taldi samkvæmt fyrirliggj-
andi upplýsingum, að Hafnar-
fjörður ætti kost á sams konar
samningi við Reykjavíkurborg um
byggingu og rekstur jarðvarma-
veitu og gerður hafði verið við
Kópavogskaupstað. Endanlega var
þó ekki gengið frá samningum, þar
sem forráðamenn Reykjavíkur-
borgar töldu ekki nægilega tryggt
að því skilyrði, sem þeir settu um
7% rekstrararð, að endurmetnum
fjárfestingum Hitaveitu Reykja-
víkur yrði fullnægt, eins og málum
væri þá háttað, nema Hitaveita
Reykjavíkur fengi gjaldskrá sína
hækkaða. En til þess að þessum
þröskuldi í vegi fyrir hitaveitu-
samningum við Reykjavíkurborg
yrði rutt úr végi fóru fulltrúar
Hafnarfjarðar, Kópavogs og
Garðahrepþs á fund hæstvirts
iðnaðarráðherra og hæstvirts for-
sætisráðherra út af því máli og í
framhaldi af því var Hitaveitu
Reykjavíkur síðan heimilað að
hækka gjaldskrá sína um 20%.
Eftir að gjaldskrárhækkun
hafði verið samþykkt, taldi bæjar-
stjórn Hafnarfjarðar með hliðsjón
af þeim upplýsingum sem fyrir
lágu í málinu að nú væri Reykja-
víkurborg ekkert að vanbúnaði
lengur að ganga frá samningi og
það eitt væri nú eftir að undirrita
lokasamninga. Þar sem því atriði,
sem staðið hafði í veginum fyrir
því hafði verið rutt í burtu. En það
óvænta skeður, að svo reynist ekki
vera.
í bæjarráði Hafnarfjarðar er
frá því skýrt 21. mars 1973, að
Reykjavíkurborg væri enn ekki
reiðubúin til þess að staðfesta
umræddan samning. Þegar málum
var þannig komið samþykkti
bæjarstjórnin samkvæmt tillögu
bæjarfulltrúa meirihluta bæjar-
stjórnar að fá sameiginlegan fund
með borgarstjóra Reykjavíkur og
hæstvirtum iðnaðarráðherra til
þess að komast til botns í þessu
máli. Sá fundur var haldinn. Þar
lýsti hæstvirtur iðnaðarráðherra
því yfir, að heimild til hækkunar
á gjaldskrá Hitaveitu Reykjavíkur
um 20%, 12. mars 1973, hefði m.a.
verið veitt með hliðsjón af því, að
með þeirri afgreiðslu væri verið að
greiða fyrir, að samningar tækjust
um lagningu hitaveitu í nágranna-
byggöir Reykjavíkur. í framhaldi
af þessum fundi eru svo settar á
laggirnar nýjar samninganefndir
aðila, skipaðar bæjarfulltrúum og
borgarfulltrúum og frá samningi
síðan gengið í okt. s.l.“.
Síðar segir svo orðrétt í þessari
sömu ræðu minni:
„Hinn 19. sept s.l. samþykkti
bæjarstjórn Hafnarfjarðar tillögu,
sem flutt var að frumkvæði
meirihluta bæjarstjórnar og er
svohljóðandi, með leyfi hæstvirts
forseta:
„Þar sem nú er enn mikilvægara
Framhald á bls. 25.
Um hitaveitu-
mál Hafnarfjarðar
Vinsældalistar og fréttir ér poppheiminum....
Vinsœldalistar
Þau undur og stórmerki gerðust í vikunni að Bee Gees féllu úr 1. sætinu á bandaríska
vinsældalistanum, en þar hafa þeir trónað undanfarna tvo mánuði. Við sæti þeirra tók
söngkonan Yvonne Ellman, en hún hafði verið í 2. sæti. Að öðru leyti er bandaríski
listinn svo til óbreyttur, aðeins tvö ný lög eru á honum.
í Bretlandi eru Bee Gees eftir sem áður í efsta sæti vinsældalistans, en Boney M. stíga
æ hærra upp listann.
Annars staðar eru listarnir að mestu óbreyttir, sömu lögin eru þar og hafa verið
undanfarnar vikur.
9. (10) Count on me — Jefferson Starship
10. (16) Disco inferno — Tramps
Tvö lög jöfn í sjötta sæti.
Amsterdam
1. (1) Rivers of Babylon — Boney M.
2. ' (2) Agentina — Conquistador
3. (5) Suvstitute — Colout
4. (4) Only a fool — Mighty Sparrow and Byron Lee
5. (16) Night fever — Bee Gees
6. (17) Lady McCorey — Band Zonder Naam
(3) U o me — Luv
8. (12) Ca plane pour moi — Plastic Betrand
9. (10) Oh, heideroosje — Havenzangers
10. (11) Everyone's a winner — Hot Chocolate
Tvö lög jöfn í sjötta sæti.
Tíu vinsælustu lögin í London.
1. (1) Night fever — Bee Gees
2. (3) Rivers of Babylon — Boney M.
3. (2) Too much, too little, too late — Johnny Mathis/
Deniece Williams
4. (5) Never let her slip away — Andrew Gold
5. (4) Automatic lover — Dee D. Jackson
6. (11) Let‘s all chant — Michael Zager band
7. (9) Matchstalk men and marchstalk cats and dogs
— Brian og Michael
8. (7) I wonder why — Showaddywaddy
9. (14) Because the night — Patti Smith
10. (8) If you can‘t give me love — Suzi Quatro
New York
1. (2) If I can‘t have you — Yvonne Elliman
2. (4) With a little luck — Wings
3. (3) The closer I get to you — Roberta Flack, Donny
Hathaway
4. (1) Night fever — Bee Gees
5. (6) You‘re the one that I want — Olivia
Newton-John/John Travolta.
6. (8) Too much, too little, too late — Johnny Mathis/
Deniece Williams.
□ (5) Can‘t smile without you — Barry Manilow
8. (15) Shadow dancing — Andy Gibb
Andrew Gold — í 4. sæti í brezka vinsældalistanum.
Bonn
1. (1) Take a chance on me — ABBA
2. (4) For a few dollars more — Smokie
3. (2) Mull of Kintyre — Wings
4. (7) Runaround Sue — Leif Garrett
5. (3) Love is like oxygen — Sweet
6. (10) If Paradise is half as nice — Rosetta Stone
(5) Don‘t stop the music — Bay City Rollers
8. (6) Love is in the air — John Paul Young
9. (9) Rockin' all over the world — Status Quo
10. (15) Hey Deanie — Shaun Cassídy
Tvö lög jöfn í sjötta sæti.
Hong Kong
1. (2) Emotion — Samantha Sang
2. (7) Dust in the wind — Kansas
3. (8) Night fever — Bee Gees
4. (10) Love is thicker than water — Bee Gees
5. (11) Dantasy — Earth, Wind and Fire
6. (1) Staying alive — Bee Gees
(4) Love is like oxygen — Sweet
8. (3) Before my heart finds out — Gene Cotton
9. (5) Can‘t smile without you — Barry Manilow
10. (9) It amazes me — John Denver
Tvö lög jöfn í sjötta sæti.