Morgunblaðið - 18.05.1978, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR, 18. MAÍ 1978
25
hræruna í hvolfþakið aðeins örfá-
um dögum áður en Halldór veikt-
ist og dó, en undirstöður kórsins
voru reistar fyrir þriðjungi aldar
og var það hið fyrsta í smíði
þessarar kirkju. Halldóri auðnað-
ist að reisa turninn, sem hæst ber,
og kórinn, helgasta hluta kirkj-
unnar.
Lengst af þessum aidarþriðjungi
hefur Halldór Guðmundsson bygg-
ingameistari verið yfirsmiður
Hallgrímskirkju. Á herðum hans
hafa hvílt framkvæmdir þessa
mikla verks. Með óþreytandi elju,
dugnaði og hagsýni hefur hann
leitt verkið og alltaf átt til lausn
á hverjum vanda. Þau eru mörg
vandamálin, sem upp hafa komið
í áratuga smíði slíkrar byggingar.
Stundum hefur mönnum sýnzt sitt
hvað, hvað gera ætti og hvað hægt
væri að gera. En jafnan átti
Halldór ráð. Hann sagði að vísu
ekki margt, en það sem hann
sagði, það stóð hann við.
Hann var samhentur þessi litli
hópur, sem Halldór leiddi og stóð
að smíði kirkjunnar. Já, þeir voru
traustir og trúir smiðirnir okkar,
yfirlætislausir og hógværir, eins
og sendir og kallaðir til þess að
framkvæma þetta veglega hlut-
verk.
Skarð kirkjusmiðanna okkar
tveggja verður vandfyllt. Svo
árvakra, hæfa og útsjónarsama
öðlinga verður erfitt að finna, og
auk þess að vera frábærir starfs-
menn voru þeir kærir vinir okkar.
Það var alltaf jafn gott að leita
til Halldórs. Ef eitthvað fór aflögu
eða mátti betur fara, kom hann
með sínar högu hendur til að laga,
fegra og prýða.
Þegar Halldór varð sjötugur
heimsóttu nokkrir vinir úr Hall-
grímskirkju hann til að samfagna
honum og fjölskyldu hans. Einn
þeirra líkti honum í afmælisræðu
við kirkjusmiðinn fræga á Reyni,
sem þjóðsagan segir frá, en sá
þótti fljótur við kirkjusmíðina, svo
fljótur að undrum sætti. En það
væri Halldór einnig, sagði ræðu-
maður, þrátt fyrir margvíslegan
seinagang á verkinu, ef miðað væri
við aðstæður, fjármagn, mannafla
og annað, þá væri hér um afrek að
ræða. Ræðumaður sagðist óska
þess, að eins og kirkjusmiðurinn á
Reyni fékk að telgja til síðustu
fjölina yfir altarinu og líta yfir
verk sitt lokið, svo fengi og
Halldór og líta yfir sína kirkju
fullbúna. Sú ósk hefur að vísu ekki
rætzt, en hann sá þó fyrir endann
á vandasömustu þáttum bygging-
arinnar og honum auðnaðist að
steypa síðustu hræruna í hvolfþaki
kórsins. Það er vitnað til þekktra
orða úr Davíðssálmum í upphafi.
Við þykjumst þess fullvissir,
Hallgrímskirkjumenn, að í ljósi
þessara orða hafi verk þeirra
Halldórs og Gunnars eigi verið til
ónýtis unnið. Við trúum því að
Drottinn byggi þetta hús. Það er
reist honum til dýrðar.
Til er helgisögn, spakleg og forn.
Ferðamaður kom þar að sem
steinhöggvarar voru að verki við
að reisa mikla byggingu. Hann
gekk til eins þeirra og spurði hann:
Hvað ert þú að gera, maður minn?
Hann svaraði: Ég er.að höggva
grjót, eins og þú sérð! Hann gekk
til annars og spurði sömu spurn-
ingar. Sá svaraði, án þess að líta
upp: Ég er að vinna fyrir daglegu
brauði fyrir mig og fjölskyldu
mína. Þá gekk hann til hins þriðja
og spurði enn á sömu leið. Sá leit
upp og ásjóna hans ljómaði er
hann sagði: Ég er að reisa musteri
hinum lifanda Guði!
Sjáum við ekki lífsstarf Hall-
dórs speglast í þessum orðum: Ég
er að reisa musteri hinum lifanda
Guði!
Innilegustu samúðarkveðjur
flytjum við eiginkonu og fölskyldu
Halldórs með bæn um blessun
Guðs.
F.h. sóknarpresta, sóknarnefnd-
ar og annarra samstarfsmanna við
Hallgrímskirkju.
Ragnar Fjalar Lárusson.
Guðrún Jóhannesdótt-
ir — Minningarorð
Fædd 13. jan. 1891
Dáin 9. maí 1978
Hún fæddist að Brekku í Arnar-
neshreppi í Eyjafirði. Foreldrar
hennar voru Jóhannes Þorkelsson
og kona hans, Halldóra Arnfinns-
dóttir frá Dunhaga í sömu sveit.
Barn að aldri flyst Guörún með
foreldfum sínum til Akureyrar.
Systkini hennar voru Katrín, gift
Þórólfi Gíslasyni, þau bjuggu á
Reyðarfirði; Brynjólfur, átti Evu
Magnúsdóttur sem lést ung. Síðari
kona Brynjólfs var Sigrún Ingi-
marsdóttir og er enn á lífi; Þorkell,
dó barn að aldri, og Halldór, sem
dó um tvítugt.
Snemma varð hún að fara að
vinna. Var í sveit á sumrin. Oft
minntist hún sumranna þegar hún
var á Hólsfjöllum og í Sauðanesi
í A-Húnavatnssýslu.
Kornung gekk hún í stúkuna
Isafold nr. 1, sem var fyrsta stúka
á Islandi. Guðrún hafði sérstak-
lega fallega söngrödd, um ferm-
ingu byrjar hún að syngja með
kirkjukór Akureyrar, einnig í
söngfélaginu Gígju.
Seinna var húneftir sótt hjá
Leikfélagi Akureyrar og enn
minnast gamlir Akureyringar
hennar í hlutverki Ástu í Skugga-
sveini.
4. marz 1916 giftist Guðrún
eftirlifandi manni sínum, Jensi
Eyjólfss.vni frá Kirkjubóli í Val-
þjófsdal í Önundarfirði. Við giftin-
arathöfnina sem séra Geir Sæm-
undsson annaðist, bað hann Guð-
rúnu að syngja með sér brúð-
kaupssálminn. Sr. Geir var þekkt-
ur söngmaður og sagði Jens að
hann hefði aldrei hvorki fyrr né
síðar heyrt eins fallegan söng.
Fyrstu hjúskaparár sín búa þau
á Siglufirði, þar sem Jens rak
verzlun og útgerð. Eftir 7 ára dvöl
á Siglufirði flytjast þau aftur til
Akureyrar.
Börn þeirra voru sjö auk Val-
gerðar systurdóttur Guðrúnar,
sem þau ólu upp frá barnæsku en
lést á besta aldri 1962. Þau misstu
þrjú af börnum sínum, andvana
fæddan dreng, Dóru Bryndísi, sem
lést árs gömul, og Halldóru, sem
dó 17 ára 1937.
Börn þeirra, sem upp komust,
eru Valgerður, sem áður er sagt
frá, giftist Björgvini Júníussyni
framkvæmdastjóra á Akureyri;
Unnur, gift Viktor Jakobssyni
sölustjóra; Jóhannes bankamaður,
kvæntur Jóhönnu Heiðdal, og
Margrét, gift Sigfúsi Erni Sigfús-
syni verkfræðing.
Á Akureyri starfaði hún mikið
í Kvenfélaginu Framtíðinni, sem
hafði á stefnuskrá sinni að byggja
elliheimili.
Þar naut hún sín vel og tók
mikinn þátt í þeim félagsskap. Þó
var heimilið látið sitja fyrir öllu.
Umhyggja fyrir börnunum var
hennar aðalsmerki, listræn var
hún og mjög hög. Enda bar
heimilið svipmót smekkvísi henn-
ar og oft lagði hún nótt við dag við
að sauma á börnin sín.
Ég held að hún hafi aldrei
kastað höndum til neins heldur
lagt sig alla fram og vandað sig.
Hún lét sér annt um fólk og að því
liði vel hjá sér. Jafnvel óbrotin
máltíð eins og soðinn fiskur, sem
Framhald á bls. 29.
Á laugardaginn hófst í hin-
um nýju húsakynnum Skák-
sambandsins við Laugaveg ein-
vígið um íslandsmeistaratitil-
inn í skák á milli þeirra Hauks
Angantýssonar og Helga ólafs-
sonar. Fyrsta skákin var síðan
tefld á laugardaginn, en önnur
skákin á annan f hvítasunnu.
Að þessum tveimur skákum
loknum er staðan f einvíginu
einn og hálfur vinningur gegn
háifum Ilelga Ólafssyni í vil.
Helgi, sem hafði svart í fyrstu
skákinni náði undirtökunum í
miðtaflinu eftir mistök Hauks
og innbyrti síðan vinninginn á
sannfærandi hátt. í annarri
skákinni fékk Helgi mun betri
stöðu eftir byrjunina. en missti
þráðinn og á tfmabiii leit út
fyrir að Hauki myndi takast að
knýja fram vinning. Haukur
missti þá af sterkri leið og eftir
það blasti jafnteflið við.
Einvígið hefur fram að þessu
verið fjörlega teflt og báðar
skákirnar einkennst af mikilli
baráttu. Áhorfendur hafa að
vonum kunnað vel að meta þetta
og einvígið verið sæmilega sótt
fram að þessu. Einvígið er
Ha6,16. Db3 - Bc8.17. Rf3 -
Re7. 18. Rh4?
(Furðuleg taflmennska. Staðan
er enn í jafnvægi eftir 18. Bxf6
- gxf6, 19. Rd2)
Rg4! (Mjög vel leikið. 18. Bxe7
— Bxe7, 19. Bxb7 gengur ekki
vegna 19. ... Bxh4, 20. Bxa6 —
Re3! og svartur stendur til
vinnings. Hvítur grípur því til
örþirfaráða:)
19. Bxb7?! - 16, 20. Bxa6 -
Bxa6. 21. Bxaf6 — Hxf6, 22.
Db6 - Dxb6. 23. Rxb6 - Re3
17. a3 - Hb8,18. axb4 - axb4.
19. Rd3 - b3
(Eftir 19... a5, 20. b3 gæti
hvítur einfaldlega sótt að peðinu
á 15 í rólegheitum)
20. Dc3 - Rc5. 21. Rxc5 -
Dxc5, 22. Rcl!
(Hvítur hefur nú greinilega mun
þægilegri stöðu) Dd4!? (Haukur
ákveður að freista gæfunnar í
endatafli, en endatöflin telja
margir vera hans sterkustu
hlið)
23. Dxdl — exd4. 24. f3 — Rd7.
Fjörlega teflt í einviginu
um íslandsmeistaratitilinn
fjórar skákir, nema ef keppend-
ur standa þá uppi jafnir, þá
verður framlengt um tvær skák-
ir. Ef þá verður enn jafnt,
verður dregið um liti að nýju og
sá sem fyrri verður til þess að
vinna skák hlýtur sæmdarheitið
„íslandsmeistari í skák 1978“.
En lítum nú á hvernig tvær
fyrstu skákirnar gengu fyrir sig:
1. skákin
Hvítti Haukur Angantýsson
Svarti Helgi Ólafsson
Enski leikurinn
I. c4 - Rf6, 2. Rc3 - c5, 3. g3
- e6, 4. Bg2 - d5, 5. Rf3 -
d4
(Þennan leik má vafalaust
gagnrýna, en hann kom einnig
fyrir í skák þeirra Hauks og
Weinsteins í Lone Pine fyrr í
vor)
6. Ra4 - Rc6, 7. 0-0 - Be7, 8.
d3 - 0-0, 9. e3 (9. e4!?) e5, 10.
Hel
(10. b4!? — cxb4, 11. a3 kemur
einnig til greina, en Haukur vill
hafa vaðið fyrir neðan sig) Bd6
(Weinstein lék hér 10.... Be6 og
Haukur svaraði með 11. exd4 —
exd4, 12. Bf4 og hvítur hefur
rýmra tafl).
II. a3 — a5, 12. exd4 — exd4,
13. Bg5 - BÍ5,14. Rh4 - Be6,
15. f4?
(Þessi leikur þjónar ekki hags-
munum hvíts. Miklu sterkara
var 15. Db3! og síðan Ra4 — b6
— d5 og svartur á mjög óhægt
um vik)
(Nú reynist f4 veikingin þung á
metunum)
24. Hacl - Bb7, 25. bl
(Örvænting, en svartur hótaði
t.d. einfaldlega h6 og g5)
axbl. 26. axb4 - cxbl. 27. c5
- Bc7, 28. Rcl - R7d5, 29.
RÍ3? - Rxf4!. 30. gxf4 - Bxf3.
Skák
eftir MARGEIR
PÉTURSSON
31. Rxc3 — dxe3, 32. Hxe3 —
Bxf4. 33. He8+ - Kf7. 34. Hcel
- Kg6, 35. d4 - b3. 36. H8e6
- b2. 37. He8 - Bd2, 38. Hbl
- Bc3, 39. Hd8 - Be4 og
hvítur gafst upp.
2. skákin
Ilvítti Helgi ólafsson
Svarti Haukur Angantýsson
Kóngsindversk vörn.
1. c4 - e5, 2. Rc3 - Rf6. 3. Rf3
- d6, 4. d4 - Rbd7, 5. g3 -
g6, 6. Bg2 - Bg7, 7. 0-0 — 0-0,
8. Dc2
(Algengasta framhaldið er hér
8. e4, en leið sú sem Helgi velur
er talin mjög traust)
c6, 9. Hdl - He8, 10. e4 (10.
d5!?) Da5? (Mun öruggara fram-
hald er 10... De7!) 11. d5 - c5
(Galli 10... Da5 er nú kominn
í ljós. Svartur getur nú ekki
leikið 11 ... cxd5, 12. cxd5 —
Rc5, einfaldlega vegna 13. a3! og
lið svarts verður rekið til baka)
12. Rb5!? - Bf8,13. Rel - a6.
14. Rc3 - b5. 15. Bd2 - b4
(15 ... bxc4 hefði vafalaust verið
svarað með 16. Ra4 — Db5?! 17.
Bfl 16. Re2 - Dc7 (16... Db6
var án efa nákvæmari leikur)
25. Rd3 - f5, 26. Ha3 - Rf6.
27. Rf2?
(Með þessum leik linar hvítur
tökin. Eftir 27. Hel! héfur hann
mjög vænlega stöðu)
fxe4 — fxe4. 28. fxe4 — Rgl!.
29. Rxgl — Bxg4. 30. Hel
d3! (Svartur hefur nú skyndi-
lega hrifsað til sín frumkvæðið)
31. Bfl (Helgi hugsaði sig um í
45 mínútur fyrir þennan leik,
sem er vafalaust bezti möguleiki
hans í stöðunni. 31. Hxa6 hefði
verið svarað með Bg7 og ef 32.
Bcl þá Bc3!)
Bg7, 31. Bfl - Bg7. 32. Bxd3
- Bxb2. 33. Hxa6 - Bd4+?
(Eftir bæði 33 ... Ha8! og 33 ...
Hf8! hefur svartur mjög góða
vinningsmöguleika vegna virkr-
ar stöðu manna sinna)
34. Be3 - Bxe3+, 35. Hxe3 -
Bdl. 36. Hel?!
(Nákvæmari vörn var 36. Hal!
- Bc2, 37. Bxc2 - bxc2, 38. Hcl)
Bc2. 37. Bxc2 - bxc2. 38. Haal
(En alls ekki 38. Hcl?? - Hbl,
39. Haal - Hxal, 40. Hxal -
Hb8) Hec8?! (Mun betri vinn-
ingsmöguleiki var 38... Hbc8,
þó að hvítur ætti að halda sínu
eftir 39. Hacl - Hxc4 40. He2
- Hexe4, 41. Hexc2 — Hxc2, 42.
Hxc2 - Hd4, 43. Hc7 - Hxd5,
44. Kg2)
39. Kf2 - Hxc4. 40. Hacl -
Kf7. 41. He2 - Hbc8. 42. e5! -
dxe5. 43. IIxe5 — He7. 44.
Hxe7+ - Kxe7. 45. Ke3 - Hc5.
46. Kdl — Ilc8 jafntefli.