Morgunblaðið - 18.05.1978, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR, 18. MAÍ 1978
29
— Minning
Guðrún
Framhald af bls. 25.
er hversdagsmatur á Islandi, varð
að veislumat í hennar höndum.
Enn er þó eitt ótalið í önn
hversdagsins, sem gerði hana svo
ljúfa að mann langaði alltaf til að
vera í návist hennar, það var
söngurinn. Hún var sísyngjandi
við verkin sín og heimilisstörf, ég
held að hún hafi sungið frá sér allt
sem var vont og allt sem var ljótt.
Mér er enn í minni þegar dóttir
hennar, nýgift, var að flytja að
heiman í annan landsfjórðung og
það sótti að henni tregi, þá sagði
Guðrún við dóttur sína: „Stattu
þig Stína mín“, síðan breiddu þær
faðmana brosandi á mót hvor
annarri og kvöddust. Svipað sagði
annar maður á Akureyri, sem lést
fyrir skömmu, þegar við ræddum
saman eitt sinn: „Er ekki misráðið
að vera alltaf að ræða um gáfur og
jafnvel afsaka mistök sín og
annarra með þeim, væri ekki eins
gott að segja hvernig stendur
viðkomandi sig.“
Mér hefur komið í hug hvort hin
svokallaða aldamótakynslóð, sem
nú er óðum að hverfa, hafi
tileinkað sér þessa lífsskoðun og
lagt sig fram þess vegna, minnug
þess að orðstír deyr aldrei, og að
þeim var kennt að láta gott af sér
leiða og að koma sem mestu í verk.
Síðustu 20 árin bjuggu þau
Guðrún og Jens í Reykjavík.
Guðrún var oft veik og varð að
gangast undir miklar læknisað-
gerðir og langar sjúkrahúslegur.
Þess á milli hélt hún heimili fyrir
mann sinn. Síðustu tvö ár, er
kraftar hennar voru að mestu
þrotnir, annaðist Jens hana sjálf-
ur af einstakri alúð og nærfærni.
Heimili þeirra var miðstöð allra
barnanna, og stöðugt stækkaði
hópurinn. Mér fannst hún aldrei
gömul þrátt fyrir háan aldur. Hún
var ung í anda og fylgdist með.
Svipurinn bjartur og lundin létt,
stundum brá hún á leik og raulaði
gömlu lögin sín með fjarrænt blik
í augum.
Far þú í friði
friður Guðs þig blessi
hafðu þökk
fyrir allt og allt.
Arnaldur Þór
— HitaveitumáL.
Framhald af bls. 22.
en nokkru sinni áður, að Hafnar-
fjörður geti hið fyrsta hitað upp
hús sín með jarðvarmaveitu vegna
þeirrar þróunar, sem orðið hefur í
olíumálum, þá samþykkti bæjar-
stjórn að fela nefnd þeirri, sem á
lokastigi undirbjó samninginn við
Reykjavíkurborg um hitaveitu
fyrir Hafnarfjörð að kanna alla
tiltæka möguleika á því, að
framkvæmdum verði flýtt svo sem
frekast er kostur frá því sem
umræddur samningur gerir ráð
fyrir. Verði það gert með viðræð-
um við fulltrúa Reykjavíkurborgar
og eftir atvikum við aðra aðila,
sem mál þetta snertir og haft geta
áhrif á gang þessa máls“.
í framhaldi af þessari samþykkt
var svo haldinn fundur með
fulltrúum Reykjavíkurborgar, sem
tóku málaleitan Hafnfirðinganna
mjög vel. Og í fundargerð af
þessum fundi kemur glöggt fram,
hver þau vandamál eru helst, sem
við er að fást í þessum efnum. En
þar segir m.a. orðrétt með leyfi
forseta:
„Niðurstaðan virðist því vera,“
segir áfram í þessari fundargerð:
„Aðilar eru sammála um að flýta
framkvæmdum eftir megni, þar
sem hagsmunir beggja fara saman
í því. Flýta ber allri hönnun og
öðrum undirbúningi, til að ekki
standi á slíkum atriðum, ef
verktakar, fé og aðrir fram-
kvæmdaþættir reynast vera fyrir
hendi. Hugsanlegt er talið, að flýta
megi framkvæmdum þannig, að
vatn komist á aðalleiðsluna fyrir
mitt árið 1975 og u.þ.b. % hlutar
bæjarins verði komnir í samband
haustið 1975, svo og allur bærinn
haustið 1976“.
3. Af því sem undan er rakið
hlýtur öllum sanngjörnum mönn-
um að vera ljóst að það eru algjör
öfugmæli, að meirihluti bæjar-
stjórnar 1970 — 1974 „hafi verið
andvígir samningum Hafnarfjarð-
ar við Reykjavíkurborg um hita-
veitu“, eða tafið málið í tvö ár.
Þvert á móti var reynt eins og
hægt var að flýta þessu máli og
koma því í höfn þannig að
viðkomandi aðilar mættu við una.
Eg fullyrði, að bæjarfulltrúarnir
allir hafi haft áhuga fyrir að
hitaveita kæmi í Hafnarfjörð svo
fljótt sem frekast væri kostur, þótt
nokkrir þeirra hefðu jafnframt
haft í frammi sérkennilegar til-
tektir í afskiptum sínum af
málinu, augljóslega með það í
huga að hafa af því pólitískan
ávinning á kostnað andstæðinga í
öðrum flokkum.
Stefán Gunnlaugsson.
— Tólf dags-
ferðir . . .
Framhald af bls. 20
við á Bessastöðum og ekið um
Arnarnes. Verð kr. 650.00,-
• 12. ferði
Fimmtudaginn 27. júlí.
Farin verður Reykjavíkurferð.
Skoðað verður Alþingishúsið,
ekið um Árbæ og Breiðholt,
skoðaður fundarstaður borgar-
stjórnar og þar verða kaffiveit-
ingar. Verð kr. 650.00.-
Nánari upplýsingar um þessar
ferðir eru gefnar að Norðurbrún
1, alla virka daga klukkan
9:00-12:00. Sími 8 69 60.
— Það er bara ..
Framhald af bls. 10
einhverjir. Eiga börnin okkar að
borga þetta fyrir okkur. Eins og ég
hefi áður vikið að, þá eru vega-
framkvæmdir arðvænlegar. Vænt-
anlega verða einhver farartæki á
landi notuð um alla framtíð, og
ekki gufa vel gerðir vegir upp.
Enga trú hefi ég á því, að vegagerð
yrði ódýrari fyrir börnin okkar,
sem líklega kæmust ekki hjá því
að Ijúka þessu verkefni, heldur
þvert á móti, að næsta kynslóð
fengi ódýrari vegi en vera mundi,
ef við létum allt reka á reiðanum.
Góður vinur minn, sem látinn er
f.vrir mörgum árum, Ásmundur
Einarsson í Sindra, sem margir
hér könnuðust við, var vanur að
segja, þegar við félagarnir vorum
að bjástra við eitthvert erfitt
verkefni: „Það er bara að gera
það“, og það var þá venjulega gert.
Mig langar að ljúka þessum
fátæklegu orðum mínum hér í
kvöld með því að segja um
vegamálin og þá stórframkvæmd,
sem við öll höfum í huga: „Þetta
er lafhægt, og það er hægt
samkvæmt þeirri stefnu, sem
Alþingi ísndinga markaði með
setningu laganna um Norður- og
Austurveg fyrir 3 árum. Þeim
lögum ber að framfylgja. Vegina
ber að byggja, það er bara að gera
það.“
— Málefni
þroskaheftra
Framhald af bls. 21
því þungt á þeim stofnunum, sem
þeir eru tengdir, en þær eru flestar
reknar á ábyrgö áhugamannafélaga,
sem hafa engan fastan tekjustofn, en
eru háö gjafmildi og stuöningi
almennings. Þaö getur engan veginn
talist eölilegt eöa viðunandi, að
afmarkaður hópur nemenda sé
þannig settur hjá og njóti ekki þeirra
sjálfsögöu réttinda aö fá sótt skóla
sem kostaðir eru af almanna fé, eins
og aörar menntastofnanir.
Fundarmönnum er kunnugt um, að
stjórn Visth. Sólborgar á Akureyri
hefur séð sig tilneydda til aö lýsa því
yfir, aö ekki veröi lengur rekinn skóli
á Sólborg á hennar ábyrgö ef ekki
veröi breyting á rekstrargrundvelli
hans. Þessi ákvörðun var tilkynnt
menntamálaráöuneytinu í lok síðasta
árs og þá óskaö eftir viöræöum um
framtíö skólans. Þeirri ósk hefur ekki
veriö sinnt og allt á huldu um
fyrirætlanir ráöuneytisins.
Fundurinn skorar á menntamála-
ráðuneytið að taka þegar upp
viðræður við stjórn Visth. Sólborgar
um mál þetta og tryggja þeim
nemendum, sem hér um ræðir
eölilega skólavist.
Morgunblaðið óskar
laftir blaðburðarfólki
Austurbær:
Snorrabraut frá 61,
Sóleyjargata,
Ingólfsstræti.
Kópavogur:
Skólageröi.
Upplýsingar í síma 35408
á kjördag
D-listann vantar fjölda bifreiöa til aksturs frá
hinum ýmsu bifreiöastöðvum D-listans á
kjördag.
Frambjóöendur heita á stuöningsmenn listans
aö breögast vel viö og leggja listanum liö m.a.
meö því aö skrá sig til aksturs á kjördag 28.
maí næstkomandi.
Vinsamlegast hringiö í síma: 86216—82900.
Skráning bifreiöa og sjálfboöaliöa fer einnig
fram á skrifstofum hverfafélaganna.
4HAV0RS
Braffðteffundir: —
Súkkulaði, karamellu, vanillu,
jarðarberja og sítrónu.
aaunaotnar og kletar tyrir heimahús og
félagsheimili ávallt fyrirliggjandi.
Finnsk gæöavara.
Verö á klefa meö ofni frá
330 þúsund.
Benco
Bolholti 4.
S. 91-21945.
Helo Sauna