Morgunblaðið - 18.05.1978, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR, 18. MAÍ 1978
Islands-
meistara-
mót í kraft-
lyftingum
á morgun
ÞANN 19. maí n.k. verður
haldið íslandsmeistaramót í
kraftlyftingum í anddyri
Laugardalshallarinnar.
Mótið hefst kl. 19 og verður
fyrst keppt í léttari flokkun-
um, en síðan í þeim þyngri.
HEItceMltATH
L/tTUH 'i
pdicAvavJ P'rTtlR.
SlCÖULUtJDi
CreSK). oa
HAMR.iV)
Sigursælir lögregluþjónar
.. og Flug-
KÖRFUKNATTLEIKSDEILD Vals gekksl um páskana fyrír
fyrirtækjakeppni í körfuknattleik og fór keppnin fram í
Valsheimílinu. 12 lið tóku pátt í keppninni og sigurvegari varð
b-lið Flugleiöa, sem sigraði Skýrsluvélar ríkisins í úrslitaleik meö
22 stigum gegn 21. í priðja sæti varð a-lið Ftugleiða og Coca-Cola
varð í fjórða sæti. Myndin sýnir sigurvegarana, lið Flugleiða. Aftari
röð f.v.: Magnús Jónatansson pjálfari, Örvar Sigurðsson, John
Spencer, Rúnar Vernharðsson, Gunnar Jóakimsson og Gunnar
Olsen. Fremri röð f.v.: Óskar Óskarsson, Ólafur Finnsson og
Kolbeinn Pálsson.
T revino
sigrar
LEE Trevino varð sigurvegari á
miklu golfmóti sem fram fór í
Texas síðastliðna helgi. Sigur þessi
færði Trevino alls 40,000 þúsund
dollara, og hefur hann nú þénað
134,000 þúsund dollara í ár á
golfmótum. Trevino hefur ekki
gengið sem best að undanförnu og
lent í öðru sæti á síðustu tveimur
mótum, en lék nú á 12 undir pari
og sigraði með fjórum höggum.
ÚRSLIT URÐU SEM HÉR SEGIR,
Dollarar
Lee Trevino 10.000 60-08-68-60-268
Jerry Heard 18.500 67-66-71-68-272
Jerry Pate 18.500 6007-71-65- 272
Tom Watsson 8.800 6008-68-68-273
óesÚTAueucjJit
IMvJ OVA Rncnvfc-
IHW VteYDA
CreSTCDAFAevJie.
óv/iAte oci
BEASlÚOVASVJtJ.
menn þessara þriggja liða
sjást á meðfylgjandi mynd
Friðþjófs, lögregluþjón-
arnir aftast ásamt Pétri
Bjarnarsyni þjálfara,
Skýrsluvélamenn í miðröð-
inni og leikmenn Barkar í
fremstu röð. Eins og sjá
má á myndinni voru marg-
ir kunnir handknattleiks-
menn í þessum liðum.
Morgunblaðið, Sláturfé-
lagið og Rafmagnsveitur
Reykjavíkur komust einn-
ig í úrslitakeppnina.
leiðamenn
Handknattleiksmenn
lögreglunnar voru sigur-
sælir í firmakeppni, sem
HSÍ gekkst fyrir og lauk í
síðustu viku. Fyrst var
leikið í 2 riðlum, en sex lið
komust úr þeim í úrslita-
keppnina. í úrslitunum
tapaði lögreglan ekki leik,
en þrisvar sinnum unnu
þeir með aðeins eins
marks mun, þannig að
keppnin var jöfn og spenn-
andi. Lögreglan varð því
örugglega í efsta sæti
keppninnar, en lið
Skýrsluvéla ríkisins og
Reykjavíkur varð í 2. sæti.
Númer þrjú urðu leik-
menn Barkar hf. Leik-
Walker
að né sér
NÝSJÁLENZKI hlauparinn John
Walker, sigurvegari í 1500 metrunum
á Ólympíuleikunum í Montreal gekkst
nýverið undir uppskurð og hermt er
að vel hafi til tekist og er hann
byrjaöur æfingar á ný.
Walker er vinsæll í heimalandi sínu
og eftirsóttur til að auglýsa ýmsan
varning í sjónvarpi og blöðum, og eru
auglýsingarnar á einn eða annan hátt
tengdar íþróttaafrekum hans.
Nýsjálendingar eiga fleiri góða
hlaupara en Walker og hefur frjáls-
íþróttasamband landsins lagt hart aö
þeim að tala máli nýsjálenzkra
landbúnaöarafurða á keppnisferöa-
lögum sínum erlendis, en Nýsjálend-
ingar eru eins og kunnugt er einna
stærstu útflytjendur á kjöti og öðrum
land búnaðaraf urðum.
í þessu sambandi er haft í
flimtingum að ef John setur heims-
met í hlaupum hér eftir þá muni hann
segja árangur sinn fyrst og fremst að
þakka nýsjálenzku lambakjöti, nýsjá-
lenzkum osti, nýsjálenzku smjöri. ..
o.s.frv.
—ágás
Nýjung í
gotfkennslu
IIINN kunni golfkennari Þor-
valdur Ásgeirsson hefur tekið
upp nýjung í golfkennslu sinni.
Nýjung þessi er fólgin í því, að
kennslugögn þau. er Þorvaldur
hefur notað, eru nú afhent
hvcrjum nemenda. Er um að ræða
lítið kver með myndum og fylgja
greinargóðar leiðbeiningar. Eru
myndirnar þær sömu og notaðar
hafa verið við kennsluna en nú
getur nemandinn kynnt sér þær
betur og haldið áfram eins konar
heimanámi. í kverinu eru staðlað-
ar myndir sem hannaðar hafa
verið af Golfkennarasambandi
Bandaríkjanna og þykja frábær-
ar kennslumyndir.
Þorvaldur tjáði Morgunblaðinu,
að kverið gæti verið til sölu í
golfklúbbunum, en allir nýir nem-
endur fengju kverið í sínum fyrsta
golftíma. Þorvaldur, sem nýverið
hefur dvalið á .Isafirði við golf-
kennslu, kennir á Nesvellinúm og
á Golfvelli Keilis. Hægt er að
panta tíma með því að hringja í
klúbbana. Þá kvaðst Þorvaldur
reiðubúinn að taka að sér kennslu
úti á landi ef óskað yrði. þr.
1 A»>/ \
A r\ X 1
l//
0—
i í \ n o , ¥ 1
• Sýnishorn aí kennslumynd og
leiðbeiningum.
Cryuff kveður
HOLLENSKA knattspyrnustjarnan
Johan Cryuff tilkynnti nýlega að hann
heföi nú ákveðið að hætta með öllu
aö leika knattspyrnu. Cryuff er nú 31
árs og hefur verið atvinnumaöur í
knattspyrnu í 14 ár, á ferli sínum
hefur nánast hlotið alla þá meistara-
titla, sem knattspyrnan hefur upp á
að bjóða.
Frá því í ágústmánuöi 1973 hefur
Cryuff leikið með Barcelona á Spáni,
alls 238 leiki með liöinu, en áður lék
hann meö Ajax í 9 ár og liðið var þá
meöal annars þrisvar sinnum Evr-
ópumeistari í knattspyrnu. í ár varð
Barcelona bikarmeistari á Spáni og
endaöi í öðru sæti í 1. deildinni,
þremur stigum á eftir Real Madrid. Er
Cryuff var seldur frá Ajax til Barce-
lona þurfti spánska liöið aö greiöa
fyrir hann tæplega eina milljón
sterlingspunda og er þar um metfé
ræða.
Myndin er tekin eftir aö Cryuff
hafði leikið sinn síöasta knattspyrnu-
leik sunnudaginn 7. maí. Sést Cryuff
veifa til áhorfenda á velli Barcelona.