Morgunblaðið - 18.05.1978, Síða 32
YSINGASÍMINN ER:
22480
2H«r£wtbI«feib
AUGLÝSINGASÍMtNN ER:
22480
2HarguniiI«2iit>
FIMMTUDAGUR 18. MAI 1978
Reykjavíkurborg:
Fyrstu leiguíbúðim-
ar fyrir aldraða við
Furugerði afhentar
í GÆR voru afhentar fyrstu
leiguíbúðirnar, sem Reykja-
vikurborg hefur byggt fyrir
aldraða í Furugerði 1. í
Furugerði 1 eru alls 60
einstaklingsíbúðir og 14
hjónaíbúðir og verður flutt
inn í þær fyrstu næstu daga.
Auk íbúðanna eru í húsinu
salarkynni, sem ætlað er að
nýta fyrir félagsstarf fyrir
fbúa hússins og gamalt fólk
í næsta nágrenni og verður
sú aðstaða tilbúin síðar í
sumar. Þá verður þarna
aðstaða fyrir matsölu til
fbúanna.
Framhald á bls. 18
9 til 10% kaup-
gjaldshækkun um
næstu mánaðamót
Iljónin Felix Pétursson og Ágústa Bjarnadóttir veita viðtöku leigusamningi að einni hjónaibúðinni í
Furugerði 1. Með þeim er Gunnar Þorláksson, húsnæðisfulltrúi Reykjavíkurborgar. Ljósm. Kr. Ól.
ASV hvetur til alls-
her j ar ver kf alls
frá og með 1. júní
SAMKVÆMT upplýsingum. sem
Morgunblaðið afiaði sér í gær.
lætur na'rri að kaupgjaldshækk-
un um næstu mánaðamót verði á
hilinu frá tæplega 9% og upp í um
lfíVf. Er þá meðtalin áfangahækk-
un. sem samið var um síðast-
liðnu sumri og er til ASI-félaga
5.000,- krónur og 3c/c áfanga-
hækkun til BSRIHélaga.
Gert er ráð fyrir að kaupgjalds-
Mini-golf á
Miklatúni?
VERDKÖNNUN á tækjahún-
aði fyrir mini-golf á Miklatúni
hefur farið fram og er áætlað
verð miðað við átta sjálfsta'ðar
brautir 7—8 milljónir króna.
Þetta kemur fram í fram-
kvæmdaáætlun um umhverfi
og útivist, sem lögð var fram í
borgarráði í fyrradag. Fram-
kvæmdaáætlunin nær til
áranna 1978—83 en fram-
kvæmd varðandi mini-golf á
Miklatúni er ekki tímasett, „en
hægt er að taka ákvörðun um
hana við gerð fjárhagsáætlana
hverju sinni og hlýtur að ráðast
af því hvort einhver aðili fæst
til þess að sjá um reksturinn",
segir í framkvæmdaáætluninni.
vísitala hækki um það bil um 11%
um mánaðamótin, en vegna efna-
hagsráðstafana ríkisstjórnarinn-
ar, sem samþykkt voru í febrúar,
kemur í hlut launafólks um 55%
kaupgjaldshækkun vegna þessa.
Þessi hækkun ásamt
BSRB-áfangahækkuninni 3%. ger-
ir 8,7%. kaupgjaldshækkun. Á
láglaun, sem fá um 5.000 krónur,
er hlutfallið hæst eða um 4,3%.,
sem myndar kaupgjaldshækkun-
ina 9,8% eða tæplega 10%.
Nákvæmur utreikningur á verð-
bótavísitölu liggur enn ekki fyrir,
en reiknað er með, að fréttatil-
kynning Hagstofu íslands verði
birt að loknum fundi í Kauplags-
nefnd, sem haldinn verður á
föstudag.
EFNISLEGA vildu samningamenn
ekkert um viðræður aðila vinnu-
markaðarins segja f gær eftir
samningafundi ASÍ og VMSÍ við
vinnuveitendur. Engin tilboð
komu fram á fundinum og engin
gagntilboð, en nýr fundur hefur
verið ákveðinn á morgun. föstu-
dag, klukkan 14. Munu þá bæði
samningancfndir ASÍ og VMSÍ
vera boðaðar á sama tima.
FUNDUR í Fulltrúaráði Al-
þýðusambands Vestíjarða,
sem haldinn var í gær,
samþykkti að beina þeim
og var það yfirleitt. viðkvæði
samningamannanna að þeir vildu
ekki láta neitt hafa eftir sér. Menn
munu hafa velt fyrir sér ýmsum
hugmyndum og einn samninga-
nefndarmanna sagði við Morgun-
jblaðið, að viðræður hefðu verið
efnismeiri en áður“
tilmælum til allra aðildar-
félaga sinna, að þau boðuðu
allsherjarverkfall á Vest-
fjörðum frá og með 1. júní
næstkomandi, hafi samning-
ar ekki tekizt fyrir þann
tíma. Verkfallið þarf að
boða með viku fyrirvara eins
og lög gera ráð fyrir og
þyrfti því boðun þess að fara
fram eigi síðar en 24. maí
næstkomandi.
Þessar upplýsingar fékk
Morgunblaðið í gær hjá Pétri
Sigurðssyni forseta Alþýðusam-
bands Vestfjarða. Samningafund-
ur milli ASV og Vinnuveitenda-
félags Vestfjarða var haldinn
klukkan 11 árdegis í gær og þar
höfnuðu vinnuveitendur þeim 7
umræðupunktum, sem ASV hafði
nokkru áður lagt fram sem grund-
völl. Fóru vinnuveitendur á fund-
inum fram á frestun viðræðna, unz
í ljós kæmi, hverja stefnu
samningamálin í landinu tækju.
Á fundi í Fulltrúaráði ASV var
síðdegis síðan ákveðið að beina
áðurnefndum tilmælum til
aðildarfélaga ASV um boðun
allsherjarverkfalls frá og með 1.
Framhald á bls. 18
Ólíklegt að
undanþága
fáist fyrir
bensínskip
Vidrædur efnis-
meiri en áður
málin eru á mjög viðkvæmu stigi
/
1
Tvær félagsmiðstöðvar
notkun og tvær í byggingu
7 /ER íélagsmiðstöðvar hafa
'ð teknar í notkun í Reykjavík
//• <>orar tvær eru í byggingu.
Fellahellir, félagsmiðstöð fyrir
Fella- og Hólahverfi, var opnuð í
nóvember 1974 og Bústaðir,
félagsmiðstöð fyrir Smáíbúða-
Fossvogs- og Bústaðahverfi. voru
opnaðir tveimur árum síðar. I>á
hefur Æskulýðsráð gert samning
um leigu á efri hæð félagsheimilis
knattspyrnufélagsins Þróttar við
Sæviðarsund og er gert ráð fyrir
að framkvæmdum við húsið ljúki
á næsta ári. f Árbæjarhverfi eru
framkva*mdir hafnar við félags-
miðstöð. scm verður að mestu
hyggð á þessu ári og því næsta.
Til æskulýðsheimila í Reykjavík
var varið 129 milljónum króna
samtals á árunum 1974—77 og er
þá miðað við verðlag hvers árs.
Árið 1974 var 43.2 milljónum
króna varið til æskulýðsheimila,
þar af 31 til Fellahellis. 1975 var
15 milljónum varið til æskulýðs-
heimila og þá mestu, eða 6,1
milljón til framkvæmda í Bústaða-
hverfi og Fossvogi. Til þeirra
framkvæmda var svo varið 12
milljónum króna árið 1976, en
samtals til æskulýðsheimila það
árið 28,7 milljónum króna. Árið
WkWmm
Teikning af fyrirhugaðri félagsmiðstöð
mm ■
í Árbæjarhverfi.
1977 fer svo stærsta framlagið,
11,4 milljónir króna, til fram-
kvæmda í Árbæ, en samtals var
Framhald á bls. 18
SOVÉZKT bensínflutningaskip
er va>ntanlegt til landsins og að
því tilefni hafa olíufélögin skrif-
að verkalýðsfélögunum fjórum,
sem samþykkt hafa olíuinn-
flutningsbann, og óskað eftir
undanþágu til að mega landa
bensíninu úr skipinu. Félögin,
sem samþykkt hafa olíuinn-
flutningsbann, eru Vcrkamanna-
félagið Dagsbrún, Verkamanna-
félagið Hörður í Hvalfirði, Verka-
mannafélagið Hlíf í Hafnarfirði
Framhald á bls. 18
Ættleiðingar barna
frá S-Kóreu stöðvaðar
„ÉG veit ekki betur en að þessi
mál séu að komast í lag og að
ættleiöingar barna frá Suður-
Kóreu geti þá hafizt aftur, cn
mjög margar umsóknir liggja nú
fyrir.“ sagði Ágústa Bárðardóttir
í samtali við Mbl. í gær, en
Ágústa á sæti í stjórn félags
foreldra, sem ættleitt hafa börn
frá Suður-Kóreu. Ágústa kvaðst
að öðru leyti ekkert vilja láta
hafa cftir sér um þetta mál, en
staðfesti að suður-kórcsk stjórn-
völd hefðu tekið fyrir ættleiðing-
ar íslendinga af ástæðum. sem
hún kvaðst ekki vita hverjar
hefðu verið.
Framhald á bls. 18