Morgunblaðið - 18.05.1978, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 18.05.1978, Blaðsíða 8
40 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR, 18. MAÍ 1978 Þessi var einn af þremur. sem var á naxladckkjum. Páll Garðarsson lögregluþjónn gefur ökumanninum bendingu um að stöðva. bessi Landrover frá Vélamiðstöð borgarinnar var með nagla í öllum dekkjum. Varla verður gatnamálastjóri borgarinnar ánægður þegar hann fréttir það en naglarnir eru taldir slita malbiki fyrir milljónatugi ef ekki hundruð milljóna árlega. Undantekning ef bílar sjást orðið á nagladekkjum Örtröð myndaðist hjá dekkjaverkstæðunum fyrstu dagana í maí. Ljósm. Mbl.i Friðþjófur. LÖGREGLAN í Reykjavík fylgist um þessar mundir nákvæmlega með því hvort bifreiðaeigendur fara eftir rcglum um hjólbarða, en óheimilt er að aka á negldum hjólbörðum eftir 1. maí eins og kunnugt er. Morgunblaðsmenn fóru nýlega með lögreglunni í eftirlitsferð um borgina þar sem sérstaklega var athugað hvort farið væri eftir settum reglum um hjólbarða. Meðal annars stöðvuðu lögreglu- mennirnir um stund á Miklubraut og athuguðu hvern einasta bíl, sem þar fór um. Er skemmst frá því að segja að árangurinn var mjög góður. aðeins 3 bílar af 300, sem þarna óku um, voru kærðir fyrir að vera á nagladekkjum. Páll Garðarsson lögreglu- maður, sem stjórnaði eftir- litinu, sagði greinilegt væri að ástandið væri orðið mjög gott og það væri undantekn- ing ef menn ækju enn á nagladekkjum. Sagði hann að viðvaranir í fjölmiðlum hefðu haft mikið að segja og bifreiðaeigendur hefðu flykkzt á dekkjaverkstæðin þegar þeim varð ljóst að þeir áttu á hættu að vera sektaðir sem næmi einu dekkjarverði ef þeir trössuðu að setja sumarhjólbarðana undir. Bifreiðaeigendur hugsa greinilega mest um sumar- hjólbarðana um þessar mundir. Þessu til sönnunar má nefna að í fyrradag var maður einn stöðvaður við hraðamælingar enda ók hann á 81 km hraða. Maður- inn stöðvaði bílinn, rak hausinn út um gluggann og hrópaði: „Ég er búinn að setja sumardekkin undir," og ók svo rólegur á brott! Auðvitað náðist hann fljótt aftur. Landsþing Junior Chamber: Öryggi bama í umferð- inni næsta verkefnið LANDSÞING Junior Chamber Island fór fram um hvítasunnu- hclf'ina i' Hveragerði. Sóttu það um 300 manns og er það fjöl- mennasta þing samtakanna til þessa. Aðalstörf þingsins utan sjálfs þinghaldsins voru nám- skeiðahald, skipulagt var nefnd- arstarf og var í nefndum starfað að hinum þremur málefnaflokk- um JC-hreyfingarinnari félaginn, félagið og byggðarlagið. Á þinginu fluttu aðildarfélögin skýrslu um starfsemi sína, skipst var á skoðunum, rætt um nýjar hugmyndir og samþykkt verkefni fyrir komandi starfsár. Á liðnu starfsári hefur hreyfingin stækk- að nokkuð og eru nú starfandi 22 aðildarfélög með 849 félögum. Iðnaður var ofarlega á dagskrá undir yfirskriftinni: Iðnaður til framfara, leiðin fram á við og unnu aðildarfélögin að þessu verkefni m.a. með umræðum um íslenzkan iðnað, skoðanakönnun- um og nokkuð var um blaðaútgáfu. Af öðrum verkefnum má nefna brunavarnir, gerður var sjón- varpsþáttur um fundarsköp og fundarstjórn og í haust er væntan- leg handbók um fundarsköp, hin fyrsta sinnar tegundar hérlendis og sögðu forráðamenn JC að hér væri um handhæga uppsláttarbók að ræða. Alþjóðahreyfing JC hefur ný- lega samþykkt verkefnið Tækifæri fyrir börn sem byggðarmálaverk- efni 1978 og nýlega var ákveðin samvinna JC við Rotary, Kiwanis og Lions hreyfingarnar um verk- efnið Umferðarmál Islendinga. Verður JC hreyfingin með í þessari samvinnu undir kjörorðun- um Öryggi barna í umferðinni með tilliti til áðurnefnds alþjóðaverk- efnis um tækifæri fyrir börn. Þá má nefna að Alþjóðahreyfing JC hefur tekið höndum saman við UNICEF, barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, um að næsta ár verði nefnt Alþjóðaár barnsins 1979. Aðildarfélög JC eiga að vinna að þessu verkefni, „Öryggi barna í umferðinni", á því starfsári sem hefst í haust, en nú fer í hönd tími stjórnarskipta í félögunum. Hefur verið gerður bæklingur til að skýra út í hverju verkefnið sé fólgið, en að öðru leyti er hverju aðildarfélagi heimilt að vinna að þessu verkefni eins og það telur að verði bezt gert í sínu byggðarlagi. Fyrrverandi og núverandi landsstjórn JCi Sigjandi eru Bergþór Úlfarsson t.v. og Fylkir Ágústsson. Aftari röð frá vinstrii Magnús Gunnarsson, Björgvin ó. Bjarnason, Magnús Jónsson, Teitur Lárusson og Gunnar Gunnarsson. Ljósm. Kristinn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.