Morgunblaðið - 18.05.1978, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 18.05.1978, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR, 18. MAI 1978 55 VIÐSKIPTI VIÐSKIPTI — EFNAHAGSMAL — ATHAFNALlF. Framboðslisti óháðra í Reykjaneskjördæmi: 5 grundvallaratriði í kosn- ingabaráttu til Alþingis rekinna fyrirtækja. Um leið hefur vexti þeirra atvinnuvega, sem ekki eru hefðbundnir, iðnaðar, verzlun- ar og þjónustustarfsemi, verið haldið niðri, og sömuleiðis tilkomu nýrra fyrirtækja og nýrrar starf- semi á vegum eldri fyrirtækja. Á síðari árum hafa viðskipta- bankarnir og sumir fjárfestingar- sjóðanna vissulega reynt að beita heilbrigðu útlánamati. Vaxandi verðbólga og minnkandi hlutdeild bankanna í útlánum hefur þó mjög dregið úr gildi þessarar viðleitni. Áhrif á eigin- fjárstöðu banka Sem betur fór var eiginfjárstaða íslenzku bankanna mjög traust í kringum 1950. Síðan hefur hún smátt og smátt látið undan síga. í hlutfalli við innlán var eigið fé bankanna að meðaltali 18% 1953, en hafði lækkað í 7% 1976. Að því er ríkisbankana snertir, er þess enginn kostur að auka eigið fé þeirra með framlagi frá eigandan- um, ríkinu, nema því aðeins að til vandræða horfi. Eini kosturinn er þá að halda uppi nægilegum tekjuafgangi. Þetta hefur hins vegar reynst erfitt vegna skatta, sem lagðir hafa verið á tekjur af gjaldeyrisviðskiptum, og vegna strangra vaxta- og gjaldeyris- ákvæða. Á árunum 1975 og 1976 tókst eigi að síður, á grundvelli aukins vaxtamunar, að halda eiginfjárstöðunni að mestu leyti óbreyttri. Á þessu ári, 1977, verður þó ekki unnt að komast hjá versnandi stöðu sökum þess að mjög aukið hlutfall innlána, sem bera háa vexti, hefur dregið úr muninum á innlána- og útlána- vöxtum. Einkabankarnir eiga þess aftur á móti kost að auka eigið fé sitt með útboði hlutafjár. Öflug tengsl þeirra við sérstakar at- vinnugreinar eða þjóðfélagshópa hafa gert þetta auðveldara. Vextir og verðtrygging Miklar umræður hafa verið á íslandi um vexti og verðtryggingu undanfarna áratugi. Stjórnmála- leg tillit hafa mjög stuðlað að lágum vöxtum. Auk þess átti lágvaxtastefnan, sem yfirleitt var fylgt erlendis fyrst eftir styrjöld- ina, sína hlutdeild í því að móta stefnuna á Islandi, hversu lítið sem hún þó gat átt við íslenzkar aðstæður. Að vísu voru fram- kvæmdar nokkrar vaxtahækkanir upp úr 1950 og aftur upp úr 1960, og skuldabréfavextir voru gerðir hreyfanlegir. Almenn sala skulda- bréfa, sem áður hafði átt sér stað í nokkrum mæli, var þó útilokuð. Athuganir á verðtryggingu skuldabréfa og almennra innlána voru framkvæmdar þegar á árun- um milli 1950 og 1960. Það yar þó ekki fyrr en um miðjan áratuginn þar á eftir, sem farið var að selja verðtryggð ríkisskpldabréf. Upp- haflega var ætlunin sú, að þetta yrði fyrsta skrefið til almennari verðtryggingar sparifjár og lána. Úr þessu varð þó ekki, að nokkru leyti vegna áhrifa þess, að Finnar hættu við verðtryggingu sína árið 1967. Á næstu árum þar á eftir, þegar vaxtabreytingar hefðu getað verið mjög öflugt tæki í stjórn efnahagsmála, voru vextir algjör- lega óhreyfanlegir vegna tillits til stjórnmálaaðstæðna og afstöðu verkalýðsfélaga. Samtímis var sala vísitölutryggðra ríkisskulda- bréfa aukin æ meir, og átti þetta sinn þátt í samdrætti spariinnlána eftir 1970. Bréf þessi má innleysa eftir fimm ár. Afrakstur þeirra, áður 6 nú 3‘/2% árlegir vextir auk fullra vísitölubóta, er hærri en nokkurrar annarrar fjárbindingar. Veruleg breyting á vaxtastefn- unni hefur átt sér stað síðan 1974. Vextir hafa orðið miklu hreyfan- legri en áður, hækkanir og til- færslur hafa verið framkvæmdar hvað eftir annað og dregið hefur verið úr vaxtamismuni á milli atvinnugreina. Þetta á ekki aðeins við um bankana heldur einnig um fjárfestingarlánasjóðina, þar sem í stað lána með lágum nafnvöxtum og þaðan af lægri raunvöxtum hafa komið verðtryggð og gengis- tryggð lán. Það, sem að baki þessarar nýju vaxtastefnu liggur, er sú nauðvörn, sem ört minnkandi ráðstöfunarfé banka og sjóða hefur kallað á, jafnframt því sem gætt hefur aukins skilnings á mikilvægi vaxta. Almenn verðtrygging sparifjár hefur aftur komist á dagskrá og nýjar athuganir á þessu hafa verið framkvæmdar. Niðurstaða þeirra athugana er sú, að verðtrygging innlána og útlána sé mjög erfið í framkvæmd, nema þegar um skuldabréf er að ræða, og hafi í för með sér mikla áhættu fyrir útlánastofnanir. Það sem á þarf að halda, eru hreyfanlegir vextir, sem breytast eftir stigi þeirrar verð- bólgu, sem vænta má, frekar en eftir verðbólgu liðins tíma. Á hinn bóginn virðist svo sem mönnum veitist auðveldara að skilja tilgang hreyfanlegra vaxta, ef þeir með einum eða öðrum hætti eru tengdir ferli verðbólgunnar. Sé þetta gert, virðast menn einnig eiga auðveldara með að sætta sig við háa vexti. Það hefur því orðið ofan á að koma á nýju vaxtafyrir- komulagi, sem gekk í gildi í ágúst 1977, þar sem vöxtum er skipt í grunnþátt og verðbótaþátt. Grunnþáttinn ákveða stjórnendur peningamála að eigin mati eins og áður, og er gert ráð fyrir því, að hann breytist lítið. Verðbótaþátt- inn á hins vegar að endurskoða á þriggja mánaða fresti með tilliti til þróunar verðlags. Þessi endur- skoðun á að byggjast á því, að 60% af aukningu verðbólgunnar leiði til samsvarandi hækkunar vaxta. Þetta nýja fyrirkomulag hefur nú leitt til þess, að vextir á sparifé, sem bundið er til eins árs, eru orðnir 29%. og hæstu útlánavextir 30% . Þetta er vissulega lægra en sú verðbólga, sem vænta má á næsta ári, sem er um 35%, en dregur þó úr neikvæðum raunvöxt- um og veitir sparifjáreigendum nokkra tryggingu um framtíðina. Enda þótt enn sé of snemmt að fullyrða nokkuð í þessu efni, er þó ýmislegt sem bendir 'til, að hreyf- anleg vaxtastefna yfirleitt og nýja fyrirkomulagið sér í lagi hafi örvað sparifjármyndun í bönkum og dregið úr eftirspurn eftir útlánum. Verði þetta reyndin, hefur hin nýja stefna einnig bætt skilyrðin fyrir almennu viðnámi gegn verðbólgunni. Nokkrar ályktanir Mikilvægustu ályktanir, sem unnt virðist að draga af reynsl- unni á Islandi, eru þessar: 1. Sé verðbólga ekki mikið yfir 10% og komi ekki til sögunnar eftirvænting um áframhaldandi aukningu verðbólgu, eru áhrif hennar á innlánaþróun tiltölu- lega lítil. Þetta á einnig við, enda þótt raunvextir séu nei- kvæðir. Hreyfanleg vaxtastefna og skattaívilnanir til sparifjár- eigenda, sem þó hafa alvarlega annmarka að öðru leyti, eru áhrifarík tæki við þessar aðstæður. 2. Örari verðbólga en þetta, eink- um samfara eftirvæntingu um áframhaldandi vöxt verðbóigu, hefur mikil áhrif á innlánaþró- un. Ráðstöfunarfé banka getur þá stórlega rýrnað á fáum árum, nema öflugar gagnráð- stafanir komi til framkvæmda. Framhald á bls. 62. MORGUNBLAÐINU hefur borizt eftirfarandi kosningaávarp frá framboðslista óháðra í Reykja- neskjördæmii 1. Við viljum efla, treysta og í heiðri hafa í hvívetna reglur lýðræðisins, sem að okkar mati á að vera meginmarkmið í stjórnun landsins. Við munum standa þéttan vörð um sjálfstæði og frelsi íslands. Að þessum markmiðum munum við vinna á grundvelli þjóðlegrar umbótastefnu, sem byggist á fornum dyggðum og kristnum grundvelli. 2. Við leggjum áherslu á heil- brigðan og traustan atvinnurekst- ur og viljum því vara þjóðina við ískyggilegum efnahagshorfum og óðaverðbólgu. Verði eigi fljótlega spyrnt við fótum með sameigin- legu átaki, þá er efnahagslegt sjálfstæði okkar í stórhættu. Áhrifa þróunar verðlagsmála um nokkurra ára skeið, gætir á fjölmörgum sviðum til hins verra og skal aðeins þrennt talið. Dregið hefur úr siðferðislegu þreki þjóð- arinnar og heilbrigt verðmæta- skyn er horfið og komið hefur í ljós, að raunverulegur kaupmáttur fólks vex ekkert við þessar aðstæð- ur. Lífsnauðsyn er því, að sem fyrst verði gjörbreyting á þessum málum. Hér þarf ríkið sjálft að ganga undan með ábyrgri og aðhaldssamri fjármálastjórn. Forystumenn þjóðarinnar verða að sýna í verki, að þeir eigi frumkvæðið og allir landsmenn verða að taka höndum saman að axla byrðarnar í viðnáminu gegn verðbólgunni. Lögð er áhersla á það, að aðilar vinnumarkaðarins móti launastefnu, sem heldur í heiðri hagsmuni allra stétta, en vinni gegn kjarakapphlaupi ein- stakra hópa. 3. Við viljum leggja áherslu á að atvinnuvegir þjóðarinnar standi á traustum eigin fótum, án þess ríkið þurfi að hlaupa undir bagga með rekstrinum. Hin síðari ár hefur átt sér stað mjög jákvæð þróun í tónlistar- starfi innan skólanna. Ber þar bæði að hafa í huga beina tónmenntafræðslu í grunnskólun- um en ekki síður í hinum ýmsu tónlistarskólum, sem stofnsettir hafa verið víðsvegar úti um landið og einnig í höfuðborginni og nágrenni hennar. Hefur þar ekki sízt borið á ört vaxandi starfi barna- og unglingalúðrasveita, sem hvarvetna setja hátíðarblæ á mannfagnaði heimabyggða sinna, jafnframt því að hafa ótvírætt Undirstöðuatvinnugrein lands- manna er sjávarútvegur og vinnsla sjávarafurða. Á heimsmarkaðin- um eru tíðar verðsveiflur á þessum afurðum, sem hafa haft skaðleg efnahagsáhrif og leitt til tíðra gengisfellinga. Til þess að mæta aflabresti og verðlækkun afurða, þá þarf að leggja í varasjóð er betur árar hluta af afurðaverðinu svo að við getum mætt áföllunum. Jafnframt verði markvisst unnið að því að tryggja samkeppnisaðstöðu ís- lensks iðnaðar og stuðla að fjöl- breyttum iðnaði og koma á fót nýjum atvinnugreinum. Við telj- um að frjálst markaðskerfi muni leiða til hagkvæmustu viðskipta- kjara fyrir þjóðina. En vörum jafnframt við þeirri þróun, sem stöðugt fer í vöxt, að viðskiptin færist á fáa aðila á kostnað smáfyrirtækja. Hér verður því sem fyrst að setja löggjöf, sem vinnur gegn hverskonar einokun og hringa- myndun. Sérstaklega verður að taka fyrir hvernig stjórnmála- flokkarnir tryggja nokkrum fyrir- tækjum verkefni og fyrirgreiðslu gegn stórfelldum aflátsgjöfum til starfssemi flokkanna. Slík viðskipti hafa leitt til stjórnmálaspillingar og eru sjálf- stæði okkar hættuleg. 4. Við viljum breyta núverandi kosningafyrirkomulagi, sem í raun stuðlar að stórauknu flokksræði. Kjósendur eiga að ráða með atkvæði sínu, hverjir kosningu hljóta og veita þannig stjórnmála- mönnunum nauðsynlegt aðhald. I Reykjaneskjördæmi gildir atkvæð- isréttur kjósenda að einum fimmta hluta miðað við fámenn- ustu kjördæmin og ekkert kjör- dæmi er eins illa statt í þessum efnum, enda fólksflutningur mest- ur þangað. Hér er raunverulega um mann- réttindamál að ræða og gegnir það furðu og mun vera einsdæmi meðal annarra þjóða, að jafn uppeldisgildi fyrir þátttakendur í því starfi. Fyrir nokkrum árum gekkst Mýrarhúsaskólinn á Seltjarnar- nesi fyrir þeirri skemmtilegu nýbreytni að bjóða til hátíðar að loknu vel unnu vetrarstarfi. Komu þá saman lúðrasveitir barna frá höfuðborgarsvæðinu og léku fyrst einar sér og síðan allar í samein- ingu í íþróttahúsi Seltirninga. Nú hefur Tónlistarskólinn í Görðum ákveðið að taka upp augljós réttindaskerðing sé ekki leiðrétt. En þrátt fyrir ítrekuð fyrirheit forystumanna allra stjórnmálaflokkanna um leiðrétt- ingar á framangreindum málum, þá er ekkert samkomulag um raunhæfar tillögur til úrbóta. Ástæðan mun vera valdabarátta innan flokkanna og samtrygging þeirra. Lítil von er til úrbóta. nema að kjósendur sýni fyrirlitn- ingu sína á þessum vinnubrögð- um í verki. Sérstaklega viljum við styðja þá hugmynd er fram hefur komið, að stjórnmálaflokkar, er fengið hafa 5% fylgi eða meira meðal þjóðar- innar í kosningu eigi rétt á að fá fulltrúa á Alþingi með hliðsjón af fylgi sínu. 5. Við stefnum að því, að sérhver einstaklingur geti notið til svo að hann geti orðið hamingju- samur og nýtur þjóðfélagsþegn. Þróa skal skólastarfssemi að aðstæðum og sérþörfum íslensks þjóðfélags og gefa íbúum skóla- hverfa möguleika á að hafa meiri og ábyrgari áhrif á hana. Einnig er nauðsynlegt að marka gleggri skil en nú eru á milli fjármögnunarskyldu ríkis annars vegar og sveitarfélaga hins vegar. Við viljum einnig tryggja öllum landsmönnum félagslegt öryggi. Það er aðalhlutverk almanna- trygginga og lífeyrissjóðanna að tryggja og standa þéttan vörð um hagsmuni aldraðs fólks, öryrkja, einstæðra mæðra og barnmargra fjölskyldna. Hér þarf heildarendurskoðunar við og samræma þarf starfsemi þessara aðila og stefnt verði að því, að einn lífeyrissjóður verði fyrir alla landsmenn. Við viljum stuðla að því að sem flestar fjölskyldur eignist eigið húsnæði. Það er þó aðeins hægt með sameiginlegu átaki og stór- bættu skipulagi. Jafnframt verði með löggjöf enn betur tryggður réttur þeirra, sem búa í leiguhúsnæði. þráðinn að nýju og bjóða til slíks fagnaðar laugardaginn 20. maí kl. 15.15. Hafa fjölmargar lúðra- sveitir barna og unglinga þekkst boðið og munu að öllum líkindum aldrei fyrr svo margar sveitir verða saman komnar á einum stað. Standa vonir til að áheyrendum gefist kostur á að hlýða á stærstu lúðrasveit, sem nokkru sinni hefur leikið á Islandi, þegar um 450 ungmenni þeyta lúðra sína í kröftugum samhljómi í iþrótta- húsinu í Görðum næstkomandi laugardag. Fjölmargar barna- og unglinga- lúðrasveitir á móti í Görðum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.