Morgunblaðið - 18.05.1978, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 18.05.1978, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR, 18. MAÍ 1978 43 skólanefnd og heimild til að ráða sér skólafulltrúa, — fyrir eigin reikning. En það er reginmunur á valdsviði skólanefndar og fræðslu- ráðs, skólafulltrúa og fræðslu- stjóra. Verksvið skólanefndar er að sjá um að skólaskyld börn njóti lögboðinnar fræðslu og hún skal sjá um að jafnan sé fyrir hendi fullnægjandi skólahúsnæði. Ef bæjarstjórn telur þörf á byggingu nýs skólahúss eða stækkun eldra húsnæðis, þá nægir henni ekki að gera tillögur þar um til mennta- málaráðuneytisins í samráði við skólanefnd sína og skólafulltrúa, heldur yrði bæjarstjórnin að leita til fræðslustjórans í Reykjanes- umdæmi, sem staðsettur er í Garðabæ, og hann kæmi síðan hugmyndum bæjarstjórnar áfram til ráðuneytisins. Ef fræðslustjór- inn í Reykjanesumdæmi, sem staðsettur er í Garðabæ, og bæjaryfirvöld Hafnarfjarðar verða ekki sammála um staðsetn- ingu hins nýja skólahúss í Hafnar- firði, sker ráðuneytið úr að fenginni umsögn, — og umsagnar- aðilinn er fræðsluráð Reykjanes- umdæmis, sem Hafnarfjörður á engan fulltrúa í. Þannig er valdið flutt frá þeim aðila, sem nýta á skólann og kostar byggingu hans á móti ríkinu, til umsagnaraðila allsóviðkomandi Hafnarfirði. Það má halda þessari skólasögu áfram, því bæjarstjórn Hafnar- fjarðar skal líta eftir að þessi umræddi skóli hafi allan nauðsyn- legan búnað, húsnæði, skólalóð, leikvelli, kennslutæki og innan- stokksmuni og bæjarstjórn er skylt að annast viðhald húss og húsgagna, kaup og endurnýjun tækja, og allt skal vera á full- nægjandi hátt að mati skólastjór- ans og — ekki skólanefndar eða skólafulltrúans í Hafnarfirði — heldur fræðslustjórans, sem situr í Garðabæ. Verði ágreiningur milli bæjaryfirvalda í Hafnarfirði og þessara aðila sker ráðuneytið úr. Allir sjá, að hér eru ráðin tekin af bæjaryfirvöldum og fjármál bæjarins flytjast úr höndum rétt Oliver Steinn Jóhannesson kjörinna fulltrúa bæjarbúa til embættismanna, sem sitja ýmist í Reykjavík eða í Garðabæ, en starfsmaður bæjaryfirvalda, skólafulltrúinn, sem launaður er af Hafnfirðingum og er í eðlilegum tengslum við bæjaryfirvöld, þeirra fær engu um ráðið. Hið sama verður uppi á teningnum ef ágreiningsmál koma upp í skólan- um, t.d. milli kennara og skóla- stjóra. Þar hefur skólanefnd og skólafulltrúi ekkert vald, en fræðslustjóri Reykjanesumdæmis, staðsettur í Garðabæ, fellir úr- skurð um málið. Þetta hét í hinni frægu þingræðu ráðherrans „sam- starf ríkis og sveitarfélaga" og að ..byggðin fengi beina aðild að stjórnun og framkvæmdum". Undir þetta ok hefur verið reynt að beygja Hafnfirðinga. Allir sveitarstjórnarmenn skilja hvaða þýðingu svona lög geta haft fyrir bæjarfélag eins og Hafnar- fjörð. Val á framkvæmdum og röðun framkvæmda í samræmi við fjárhag og tekjur hverfur úr höndum kjörinna bæjarfulltrúa, að hluta til a.m.k., lendir ekki einu sinni í höndum einhverra íbúa bæjarins, því endanlega valdið er í höndum ráðuneytisstjóra sem býr í Reykjavík og fræðslustjóra Reykjanesumdæmis, sem grunn- skólalögunum samkvæmt skal hafa aðsetur í Garðabæ. Þetta eru höfuðástæður þess að bæjarstjórn Hafnarfjarðar vildi fá fram þá breytingu, sem nú hefur verið gerð á grunnskólalögunum, þ.e. að ráðherra yrði heimilað „að stofna sérstakt fræðsluumdæmi í sveitarfélagi með 10 þúsund íbúum eða fleiri, ef sveitarstjórn óskar þess og fjárveiting er fyrir hendi“, eins og stendur í 1. gr. frum- varpsins. Samþykkt þessarar breytingartillögu við grunnskóla- lögin opnar því Hafnarfirði og öðrum hliðstæðum byggðalögum möguleika á auknu sjálfræði í fræðslumálum, sem aðeins getur talizt sanngjarnt og rétt þegar haft er í huga að bærinn er stærri en sum fræðsluumdæmin og kjör- dæmin eru nú. Hafnfirðingar gerðu sér þess fulla grein að róðurinn að þessu marki yrði þungur, því guðfaðir grunnskólalaganna var þessari breytingu meira en heilshugar mótfallinn. Svo var einnig um bæði núverandi og fyrrverandi menntamálaráðherra. Var því ekki nema eðlilegt, að góður hugur fylgdi málinu heiman úr héraði og inn fyrir dyr Alþingishússins. Frumvarp um þessa breytingu var fyrst flutt í lok þings 1977, en komst ekki á dagskrá. Það var enn flutt á síðasta þingi og fljótlega varð vart andstöðu menntamála- ráðuneytisins, þótt þar ríkti til- töluleg ró framundir þinglokin, enda töldu þeir sig hafa líf frumvarpsins nánast í höndum sér. A leið frumvarpsins gegnum deildir.þingsins mátti að minnsta kosti reikna með þrem tiltölulega öruggum dauðagildrum. Yfir fyrstu dauðagildrunni réð for- maður menntamálanefndar neðri deildar og þar mátti sem bezt svæfa þetta óþægilega réttinda- mál Hafnfirðinganna. Þetta var eina mál nefndarinnar og ekki talin ástæða til að hlaupa upp til handa og fóta eða flýta afgreiðslu þess úr nefndinni. Þrýstingur heiman úr héraði og drengilegur stuðningur varaformanns nefndarinnar varð hér til bjargar, þrjár umræður fóru fram um málið, það var samþykkt og því var vísað til efri deildar. Þar beið önnur dauðagildran. Hún var undir stjórn formanns mennta- málanefndar efri deildar. Þrek hans var minna en þrýstingur úr héraði og auk þess var meirihluti nefndarinnar honum andsnúinn í skoðunum um málið, það var afgreitt frá nefndinni og umræður hófust, — þar með hin fræga ræða ráðherrans. Þriðja dauðagildran og hálfgerð þrautalending, var tillaga þriggja þingmanna um að vísa málinu til ríkisstjórnarinnar, en samþykkt slíkrar tillögu er að jafnaði talinn dauðadómur máls. Þessi tillaga var felld, og einnig tillaga menntamálaráðherra, sem hann flutti við þessar umræður, en frumvarpið síðan samþykkt með 12 atkv. gegn 7. Þar með á að vera lokið þessari sjálfstæðisbaráttu Hafnfirðinga, því vafalaust verður ráðherra við ósk bæjaryfirvalda í Hafnarfirði þegar er hún berst ráðuneyti hans. Hafi flutningsmenn, þeir Ólafur G. Einarsson, Gils Guðmundsson, Jón Skaftason og Benedikt Gröndal, heila þökk fyrir flutning þessa réttlætismáls og öðrum ágætum þingmönnum vil ég þakka stuðning við málið, stuðning þeirra við frjálsa hugsun og frjálst samstarf sveitarfélaga, gegn mið- stýringarvaldi embættismanna- kerfis og ríkisbákns. Rall á Húsavík í juh Ýmislegt er á döfinni hjá Bifreiðaííjróttaklúbbi Reykjavíkur í sumar og er nú unnið að því að ljúka frágangi á svonefndri rally-cross braut þar sem efnt verður til keppni nokkrum sinnum í sumar. Ólafur Guðmundsson sem á sæti í stjórn klúbbsins sagði að brautin væri nokk- urn veginn tilbúin og yrði senn farið að keppa á henni, hún væri 900 metra löng og yrðu 4 bílar í henni í einu og mætti búast þar við spennandi keppni en í þess konar keppni eru einkum notaðir gamlir bílar sem ekki eru lengur á skrá. Þá gat Ólafur þess að næsta rall af stærri tegund- inni yrði haldið í nágrenni Húsavíkur og stæði að því Bifreiðaíþróttaklúbbur Húsavíkur. Yrði það haldið helgina 8. og 9. júlí. Ekin verður 400 km löng leið og myndu félagar Bifreiða- íþróttaklúbbs Reykjavíkur væntanlega fjölmenna norður bæði til keppni svo og til að aðstoða við fram- kvæmd keppninnar. Næsta rall BÍKR verður 19.—20. ágúst og er um 1000 km langt og í nóvember er síðan ráðgert annað rall. Skákmótið í Lone Pine EINS og komiö hefur fram í frétfum er hinu geysisterka alpjóðlega skákmóti í Lone Pine í Bandaríkjunum nú lokið. Góökunningi íslendinga, danski harðjaxlinn Bent Lar- sen, varð sigurvegari á mótinu sem kunnugt er og skaut hann pekktum stórmeisturum eins og Petrosjan, Polugaevsky, Portisch, Browne, Miles og Timman ref fyrir rass. Larsen tapaði í fyrstu umferð og fékk við pað mikinn Monrad með- vind og hlaut 7'h vinning úr síöustu átta skákunum. Sovézki stórmeistarinn Lev Polugaevsky varð að bíta í pað súra epli aö horfa á bak Larsens, eftir að hafa haft forustu allt mótiö. Hann hafnaði pó í öðru sæti með sjö vinn- inga. íslendingar áttu fimm fulltrúa á mótinu og stóðu þeir sig vonum framar. Haukur Angantýsson og Margeir Pétursson hlutu báðir fimm vinninga og fyrri áfanga að titli alþjóðlegs meistara og Helgi Ólafsson hlaut 4'h vinning og seinni áfanga alþjóðlegs titils. Helgi er því fjórði titilhafi okkar íslendinga í skák. Hinum tveimur íslendingunum á mótinu gekk ekki eins vel, Ásgeir Þ. Árnason hlaut 2 vinninga og Jónas P. Erlingsson einn vinning. Það breytir þó engu um aö þetta er einhver bezt heppnaöa utanför íslenzkra skákmanna á síöari árum. Eftirfarandi staða kom upp í fyrstu umferð. Skákin leiðir vel í Ijós áhættu þá sem svartur tekur með því að skilja kóngsvæng sinn eftir óvarinn í Skileyjarvörn. Svart: Odendahl, Bandaríkjun- um Hvítt: Mestrovic, Júgóslavíu. 18. Bxh7+I! — Kxh7, 19. Dh5+ — Kg8, 20. f5 (Hugmynd hvíts með fórninni er nú komin í Ijós. Hún byggist á því að peðið á f7 er aðeins valdað af svarta kóngnum.) exf5, 21. Rxf5 — Bxg2+ (Örvænting. Svartur er glataöur eftir 21 .. .Dc7, 22. Rh6+! — gxh6, 23. Dxf7+ — Kh8, 24. Dg6) 22. Kxg2 — Db7+, 23. Rd5 — Hd7, 24. Kg1 — Bf8, 25. exd6 — g6, 26. Dg4 — Re6, 27. Be5 — Hc8, 28. Dh3 — f6, 29. Rfe7+, 30. Dxe6+ — Kg7, 31. dxe7 og svartur gafst upp. Það þykja ætíð mikil tíöindi þegar þeir Petrosjan og Portisch leiöa saman hesta sína við skákboröiö. Fyrir einvígi þeirra 1973 haföi Portisch mjög gott vinningshlutfall gegn Petrosjan, en tapaði síðan einvíginu naum- lega. Við skulum líta á viðureign þeirra í Lone Pine, en þar tefldu þeir mjög lærdómsríka skák. Hvítt: Lajos Portisch Svart: Tigran Petrosjan Nimzoindversk vörn 1. d4 — Rf6, 2. c4 — e6, 3. Rc3 — Bb4, 4. e3 — 0-0, 5. Bd3 — d5, 6. Rf3 — b6, 7. 0-0 — Bb7, 8. a3 — Bd6, 9. b4 — dxc4, 10. Bxc4 — a5, 11. b5 — Rbd7, 12. Bb2 — e5, 13. He1 (Betra er hér sennilega að leika 13. a4. Framhaldiö í skák þeirra Spasskys og Tals í Moskvu 1975 varð 13 . . . De7, 14. h3 — Had8, 15. De3 — Hfe8, 16. Had1 og hvítur stendur örlítiö betur) e4, 14. Rd2 (Þessi staða kom einnig upp í skák Portisch við Bolbochan á millisvæðamótinu í Stokkhólmi 1962. Bolbochan lék 14 . . . He8 og lenti ekki í erfiöleikum. Leikur Petrosjans er þó nákvæmari) De7, 15. Be2 — Had8 16. Dc2 (Portisch hefur taliö 16. f3 þarfnast meiri undirbúnings. Þeim leik gæti svartur nefnilega svarað með 16 . . . Rc5! og 17. dxc5 gengur ekki vegna 17 ... Bxc5 og hvítur er varnarlaus. T.d. 18. Bf 1 — Bxe3+, 19. Kg2 — Rh5 eða 18. Kf2 — Bxe3+! Eftir 16. f3 — Rc5! yröi hvítur því að leika 17. Dc2 og staðan er mjög óljós) Hfe8 (Undirbýr Rd7-f8-g6. Peðið á e4 þrengir töluvert að kóngsvæng hvíts og hann reyndir nú að bæta úr því) 17. f3!7 — exf3, 18. Bxf3 — Bxf3, 19. Rxf3 — Re4! (Svartur stendur nú greinilega betur. 20. Rd5 gengur t.d. ekki vegna 20 ... De6, 21. Rxc7? — Hc8 og svartur vinnur mann) 20. Rxe4 — Dxe4, 21. Dxe4 — Hxe4, 22. Rd2 — He6, 23. e4? (Tapleikurinn. Hvítur hefur aö vísu slæman veikleika á e3, en ef hann heföi leikið hér 23. Rc4 á svartur samt enn langt í land með að innbyrða vinninginn) Skák eftir MARGEIR PÉTURSSON Rc5! (Skyndilega kemst hvítur ekki hjá liðstapi. Svartur hótar nú einfaldlega 24 ... Rd3) 24. Rc4 — Rxe4 (Svartur hefur nú unnið peð og afgangur skákarinnar er aðeins tæknilegt atriði) 25. Hac1 — Bf8, 26. Re5 — Rd6, 27. a4 — f6, 28. Rf3 — He1, 29. Re1 — Hd7, 30. Rf3 — Rf5, 31. Kf2 — h5, 32. Hc2 — g5, 33. Hc4 — Bd6, 34. g3 — Kf7, 35. Rg1 — Re7, 36. Re2 — Rd5, 37. Bc1 — Ke6, 38. Hc2 — Kf5, 39. Kf3 — g4, 40. Kf2 — Hh7! (Framrásin h5-h4-h3 reynist nú allþung á metunum) 41. Hd2 — h4, 42. Kg2 — Ke4, 43. Hd1 — Re3, 44. Be3 — Ke3, 45. Rc3 — h3. Hér átti skákin aö fara í bið, en Portisch kaus fremur að gefast upp, enda staðan von- laus.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.