Morgunblaðið - 21.05.1978, Qupperneq 1
64 SÍÐUR
Brzezínski og Huang Hua
ræða ástandið í Zaire
Peking — 20. maí
ZBIGNIEW Brzezinski. öryggis-
málaráðgjafi Bandaríkjaforseta.
er nú í Peking til viðræðna við
kínverska ráðamenn. Ilann átti f
morgun fund með Huang Ilua
utanríkisráðherra og var ástand-
ið í Zaire ofarlega á baugi í þeim
umraeðum. Kínverjar fylgjast
náið með framvindu mála í Zaire
og hafa sakað Sovéta og Kúbu-
menn um að standa að baki
innrás uppreisnarmanna í Shaba-
hérað. auk þess sem kínverski
utanríkisráðherrann hefur lýst
yfir cindregnum stuðningi
Pekingstjórnarinnar við stjórn
Mobútús í Zaire.
Brzezinski verður í Kína í þrjá
daga, en erindi hans er fyrst og
fremst það að ræða horfur í
alþjóðamálum við Pekingstjórn-
ina. Hefur sérstaklega verið tekið
fram að öryggismálaráðgjafinn
muni ekki ræða samskipti Banda-
ríkjanna og Kína í heimsókninni
en Kínverjar hafa margsinnis
ítrekað þá afstöðu sína að sam-
skipti ríkjanna verði ekki aukin
fyrr en Bandaríkjamenn hafi rofið
hernaðarleg og stjórnmálaleg
tengsl við stjórnina á Formósu.
Rauda herdeHdin
við völd í Sovét
- segir Grígorenko
Toronto — 20. maí — AP.
PJOTR Grígorenko, sovézki hers-
höfðinginn, sem nýlega var svipt-
ur sovézkum ríkisborgararétti
vegna stjórnmálaskoðana sinna,
segir í tilefni af dómnum yfir
Yuri Oriov, að enda þótt „Rauða
Barizt um
Narita-
flugvöll
Japan
20. maí
Narita,
Reuter
UM 14 þúsund lögreglumenn
eru nú á verði á Naritaflugvelli
í Japan, sem tekinn var í
notkun í gær, en í morgun
gerðu um 300 vinstri sinnaðir
öfgamenn enn árás á völlinn, og
beittu þar meðal annars
benzínsprengjum. Táragasi og
vatni er beitt gegn árásar-
mönnum, og fjórar lögreglu-
þyrlur eru á sveimi yfir hliðinu
þar sem kömið hefur til mikilla
átaka, en öfgamennirnir hafa
reynt að ná vellinum á sitt vald
með það fyrir augum að vinna
skemmdarverk á tækjabúnaði
og koma þar með í veg fyrir
að umferð hefjist um völlinn.
Þúsundir öfgamanna tóku
þátt í mótmælagöngu vegna
opnunar flugvallarins í gær, og
réðst 40 manna skipulagður
hópur þá að lögreglu við hliðið.
Lagði hópurinn á flótta eftir að
vatnsslöngum hafði verið beint
að honum, en eftir að skyggja
tók lögðu öfgamenn enn til
atlögu og voru þá um 150
talsins.
herdeildin hafi enn ekki náð
undirtökunum á Ítalíu hafi hún
vissulega náð völdum í Sovétríkj-
unum“, og líkir hann frelsissvipt-
ingu Orlovs og dómnum yfir
honum við frelsissviptingu Aldo
Moros og morð Rauðu herdeildar-
innar á honum.
Grígorenko lét þessi ummæli
falla á fjölmennum útifundi, sem
í gær var haldinn í Toronto til að
mótmæla ofsókn sovézkra yfir-
valda á hendur andófsmönnum og
gerviréttarhöldunum og dómnum
yfir Orlov. Grígorenko var harð-
orður í garð stjórna í vestrænum
lýðræðisríkjum og sagði meðal
annars, að það væri ekki nóg að
tala fagurlega um mannréttindi,
það þyrfti einnig að berjast fyrir
þeim, og væri linkind vestrænna
ríkja í garð Sovétstjórnarinnar
vegna vanefnda á samningum um
mannréttindi ein ástæða þess
hvernig málum sovézkra andófs-
manna væri nú komið.
Sólskinsdagur í Reykjavík.
(Ljósm. ól. K. Magn.)
Kolwesi í höndum
franska fallhlíf aliðsins
— brottflutningur útlendinga gengur erfiðlega
^Kinshasa — 20. maí — Reuter
SÍÐUSTU fregnir af bardögum í
borginni Kolwesi herma að í
morgun hafi nýr flokkur
franskra fallhlifarhermanna
komið á vettvang. en franska
varnarmálaráðuneytið skýrir svo
frá að borgin sé nú að mestu á
valdi fallhh'farliðsins. Belgískt
fallhlífarlið náði flugvellinum við
Ný hafréttarráðstefna
í New York í ágúst
Genf — 20. maí — AP
í LOK hafréttarráðstefnunnar í
Genf var samþykkt að kalla
ráðstefnuna saman í áttunda sinn
í New York hinn 21. ágúst
næstkomandi. Gcnfarfundinum
lauk seint í gærkvöld og fór
siðasti dagurinn nánast allur f
deilur um hvar og hvenær ráð-
stefnan skyldi kölluð saman að
nýju.
Enginn áþreifanlegur árangur
hefur orðið af fundum ráð-
stefnunnar nú, en þeir hafa staðið
í átta vikur. Ekki náðist samstaða
um eitt einasta atriði nýs haf-
réttarsáttmála, en eina málið sem
fulltrúar þeirra eitt hundrað
fjörtíu og tveggja þjóða sem þátt
taka í ráðstefnunni, hafa ekki deilt
um er að þær auðlindir hafsins
sem eru utan 200 mílna lögsögu
strandríkja skuli vera sameiginleg
arfleifð mannkynsins og sé í
nýjum hafréttarsáttmála
nauðsynlegt að tryggja réttláta
skiptingu hennar.
Af fréttum af ráðstefnunni má
ráða að óvissa um nýjan hafréttar-
sáttmála sé nú jafnvel meiri en
hún var þegar fundirnir hófust í
marz, en óánægja landluktra og
landfræðilegra afskiptra ríkja er
nú enn meira áberandi en verið
hefur, og hafa þessi ríki látið að
því liggja að þau muni leggjast
gegn 200 mílna reglunni verði
þeim ekki með ákvæðum í sátt-
málanum tryggður aðgangur að
fiskimiðum innan auðlindalögsögu
strandríkja.
Kolwesi á sitt vald í nótt og er
flutningur óbreyttra erlendra
borgara þaðan nú hafinn.
Franska varnarmálaráðuneytið
hefur staðfest þá fregn að fundizt
hafi til viðbótar 60 lík Evrópu-
manna. sem fallið hafi fyrir
innrásarliðinu í Kolwesi, en 44
lík fundust þegar fyrstu fall-
hlífarhermennirnir komu á vett-
vang í gær.
Útlendingar í Kolwesi eru milli
2.500 og 3.000 talsins, og eru þeir
nú sem óðast að yfirgefa heimili
sín. Astandið í borginni er mjög
ótryggt og er enn barizt af hörku
á nokkrum stöðum þar sem á
annað hundrað innrásarmenn
verjast enn frönsku fallhlífasveit-
unum. Segjast Frakkarnir hafa
lagt milli 20 og 30 innrásarmenn
að velli í bardögum í morgun.
Fregnir af fjölda frönsku fallhlíf-
arhermannanna í borginni stang-
ast verulega á en nýjar heimildir
herma að í borginni sjálfri séu nú
um 600 Frakkar.
Hin opinbera fréttastofa Zaire
og franska sjónvarpið hafa flutt
fregnir af því að innrásarmenn
hafi farið herskildi í borginni, og
meðal annars hafi þeir nauðgað
fjölda evrópskra kvenna síðan þeir
náðu borginni á sitt vald fyrir
viku.
Belgíska stjórnin skýrði svo frá
í morgun að brottrflutningur
Evrópumanna frá Kolwesi væri
hafinn en gengi mjög erfiðlega,
meðal annars af þeirri ástæðu hve
dreift fólkið væri um borgina þar
sem heita megi að öngþveiti sé
ríkjandi. Segja Belgar að sam-
vinna Frakka og Belga á bardaga-
svæðinu beinist einungis að brott-
flutningi Evrópumanna af þessum
slóðum. Um sameiginlegar hern-
aðaraðgerðir sé ekki að ræða, en
svo virðist sem þessi samvinna
beinist að því að halda opnum
veginum milli Kolwesi og flugvall-
arins, sem er í 10 kílómetra
fjarlægð frá borginni, þannig að
hægt sé að halda áfram brott-
flutningi útlendinga.