Morgunblaðið - 25.06.1978, Side 7

Morgunblaðið - 25.06.1978, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. JÚNÍ 1978 í fyrra Pétursbréfi voru hinum fámenna kristna söfn- uði gefnar viturlegar reglur um hegðun og stöðu hans í hafi heiðinna manna. En hvernig var hægt að ætlazt til þess, að kristnir menn væru „undirgefnir mannlegu skipu- lagi“, sem að öllu hvíldi á heiðnum grunni og hlaut að valda daglegum árekstrum við kristna samvizku? í hinu fámenna kristna samfélagi var lífið ævintýri líkast en þegar útfyrir endi- mörk þess var komið biðu dagleg störf í heimi, sem var önnur veröld en sú, sem kristna samfélagið hrærðist í. Brátt kom til árekstra. Frá kristnum mönnum sálarstríð og orðið samvizku þeirra erfið, því að kristin samvizka göf- ugra manna er oft á undan lögum þjóðfélagsins. Tökum tvö dæmi sitt úr hvorri átt. Afi prestsins og lærdóms- mannsins drs. H. E. Fosdicks í New York kvaðst einu sinni á ævinni hafa brotið landslög. Það var í þrælastríðinu vestra að hann leyndi hundeltum svertingja og hjálpaði honum að flýja yfir landamærin. Ekki taldi hann sér fært að fyglja boði Heil. Ritningar að vera „mannlegu skipulagi undirgef- inn“ í þessu tilviki. Samvizka hans var á undan lögum landsins. borgaranna að sækja kjör- fund. Á svo miklu ríður, hverjir veljast til forystu í málum þjóðarinnar allrar. Mikið djúp er staðfest milli fyrstu kynslóða kristninnar, sem lögðu á sig þá byrði fyrir trú sína að reynast hlýðnir borgarar, undirgefnir heiðnu þjóðskipulagi, og þeirrar skefjalausu sjálfshyggju, sem hikar ekki við að troða fótum lög, sem til þess eru sett að tryggja alþjóðarhag og heilL Jafnvel þótt ríkisstjórn reyn- ist misvitur í athöfnum rétt- lætir það ekki, að sérhags- munahópar brjóti löc' sem réttir aðilar setja, brfóti þau sínum hagsmunum til fram- HEIÐRIÐ KONUNGINN HLYÐIÐRÉTTU heiðnum mönnum bárust valdhöfum kvartandir um að hinir kristnu væru óhollir þegnar keisaranum, uppreisn- armenn, sem hættulegir væru hinni rómversku ríkisheild. Rómverjar voru umburðar- lyndir við þegna sína á marga lund, en þoldu ekki, að lögum og rómverskum reglum væri ekki hlýtt að öllu. Hafi Jesús, eins og margt bendir til, einkum nú eftir að farið er að rannsaka hinn merkilega fornleifafund við Qumran, haft eitthvert samband við munkasamfélag Essenanna, var rík ástæða fyrir hina ungu kristni til að gæta varúðar, því Essenar voru yfirlýstir andófsmenn gegn rómverska ríkisvaldinu, hinum erlendu drottnurum í Gyðingalandi. Hér varð að fara varlega og viturlega að, ef ekki ætti að stefna í voðalegar ógöngur hinni fámennu kristni. Því er skipun Péturs postula, sem líklega er höf. 1. Pétursbréfs,: „Virðið alla menn elskið bræðrafélagið, óttist Guð, heibrid konunginn“. Kröfunni um konunginn, Keisarann, var kristnum mönnum í heiðnum heimi engan veginn auðvelt að hlýða. En við skulum færa þetta vandamál sjálfum okkur nær: Eiga kristnir menn skilyrðis- laust að hlýða landslögum, hver sem þau eru? Sú spurn hefur oft vakið Göfugir menn hafa oft háð innri baráttu þegar sitt hvað í landslögum var andstætt æðra lögmáli, sem á hjarta þeirra var skráð. Fyrir fáum áratugum gaf merk kona út minningabók og segir þar fallega sögu af alþýðukonu norður á Ströndum: Umkomu- lausri stúlku hafði verið vísað úr hreppnum, svo að barnið sem hún var að því komin að fæða, skyldi ekki öðlast sveit- festi þar. Þegar stúlkan kom á bæ einn í sveitinni, reis samvizka húsmóðurinnar til andspyrnu. Þrátt fyrir bann hreppstjórans lét hún stúlk- una fæða barnið í bænum sínum, fátæklegum bæ. Þessi kona fylgdi ekki boði Ritning- arinnar um að vera „mannlegu skipulagi undirgefin", en manndómur hennar var sann- kristinn og því fór hún sínu fram, þótt fátæk væri sjálf. Að brjóta ranglát, ómann- úðleg lög á ekkert skylt við það að brjóta landslög vegna eigin hagsmuna. En af því hugar- fari eigum við Islendingar meira en nóg. Skattsvik og misferli, sem varðar við lands- lög, eru daglegt umræðuefni manna á meðal, og svikin kosningaloforð flokkanna munu trúlega gera einhverjum örðugt um vik í kosningaklef- unum í dag þótt allur þorri kjósenda muni væntanlega gegna þeirri sjálfsögðu skyldu dráttar og neyti vægðarlaust aðstöðu sinnar í þjóðfélaginu fram yfir aðra borgara í landinu, „þrýstihópar" sem horfa ekki út fyrir túngarðinn sinn til þeirra, sem þar eiga sinna hagsmuna að gæta. „Heiðrið konunginn" var sagt við söfnuði frumkristn- innar, og til hvers? Til að bægja þeirri hættu frá hinni ungu kristni að hún yrði sökuð um að vera andspyrnuhreyf- ing, skaðsamleg ríkisheildinni, en slík ásökun var stórhættu- leg fámennum flokki innan rómverska ríkisins. En mý- mörg dæmi þess geymir saga kristninnar, að menn höfðu til þess hugrekki að brjóta rang- lát og miskunnarlaus lög þegar kristin samvizka þeirra var á undan samvizku hinna, sem lögin höfðu sett. Þessir menn, sem sagan kann marga að nefna, brutu ekki iögin sjálfum sér í hag, heldur af hollustu við æðri hugsjón, sem þeir gátu ekki brugðizt. En grundvöllinn lagði Kristur þessum mönnum, er hann mælti hinum sígildu orðum: „Gjaldið þá keisaranum það, sem keisarans er, — og Guði það, sem Guðs er“. Slíkir menn eru gersemi hverrar þjóðar og gull, en hinir ekki, sem leika sér að lögbrotum til eigin hagsmuna og horfa ekki á þjóðarhag, hversu mikið sem í veði kann að vera. r Afengisvarnaráð: Kannaðar verðhækk- anir á brennivíni Áfengisvarnaráð hefur borið saman verð á brennivíni og verð á kaffi og ýsu og komist að þeirri niðurstöðu að brennivínið hafi ha“kkað mun minna en verð á þessum vörutegundum. Einnig báru þeir brennivínsverð saman við vinnulaun og varð útkoman sú sama. kostnaður á flösku af brennivíni hefur hækkað minna en vinnulaun. í nóvember 1967 kostaði 1 kg af ýsu 15 kr., 1 kg af kaffi 84 kr. og 1 flaská af brennivíni 315 kr. í júní 1978 var ýsan komin upp í 306 kr. kílóið, kaffið 2.340 og flaskan af brennivíninu í 4.200 krónur. Ef brennivínsverð hefði hækkað jafnmikið og verð á ýsu ætti það að vera komið í 6.405 kr., ef það hefði hækkað jafn mikið og verð á kaffi ætti það að vera 8.775 kr. Árið 1937 var tímakaup í hafnarvinnu 1,45 kr. og flaskan af brennivíni kostaði 8,50 kr. Árið 1978 var tímakaupið komið í 844 kr. en flaskan í 4.200 kr. Ef brennívínsverð hefði hækkað jafnmikið á 40 árum og tímakaup í hafnarvinnu ætti það að vera 4.948 kr. SKYNDIMYNMR Vandaðar litmyndir í öll skírteini. barna&fjölsk/ldu- Ijósmyndir ÁUSTLRSIMH 6 SÍMI12644 Hinar vinsælu „classic^-baöinnréttingar nú fyrirliggjandi. kajmar innréttingar hf. SKEIFAN 8. REYKJAVIK SÍMI 826*5 Viö útvegum til ísetningar dieselvélar og fylgihluti í ýmsar geröir bifreiöa. Frekari upplýsingar gefur HAFRAFELL HF VAGNHÖFÐA 7, SÍMI 85211 DIESEL

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.