Morgunblaðið - 25.06.1978, Blaðsíða 12
2B*rjjun{i{aí)iö
^Sl^aiipliækkana-
yiaíoJuhækkajia-wnL'is
h ?***'**»
orstmbUibif glU J««rfitmblabií> BSÍ
Rafmagnsveitur nkis- 'W%/;
ins tapa milíjón á dag
:n^*C
Launakjor sjórnan^
haía rvrnaft una IV
n»mur: Stöðvast olíu-
ala til bátaflotans7
*rembi,
NÝTT VERr
Á LOÐNV’
Alþýðuflokknum
ýýrri vinstri stjó
ÍSss 3Kor0tml>lttí»ií>
HftotSjuw
Stojföánadeiidiandbún-
aðaryantarlOOOmiíö
Í láglaui
ikað irá <3
Aðeins 2900 milljónirl
— 4 vikna innflutningur
UelgiHóseas
30dagava™
^»wl"
\aV.<j>j""u',a "
Gotj verð
á sild i
Oanmörku
SKOLANUM
^kerði,
Aðalfandt
SIF | dag
MORGUNBLAÐIÐ. SUNNUDAGUR 25. JÚNÍ 1978
ivandir
XV\A
Engin at-
vinnuk-yi'
jöttft Ira"1
HVERNIG VAR ástand þjóðmála fyrir fjórum árum, er vinstri stjórnin fór frá eftir sigur
Sjálfstæðisflokksins í alþingiskosningunum? Það væri synd að segja að núverandi ríkisstjórn
hafi tekið við góðu búi. Allir sjóðir voru upp rúnir, galtómir og 1.229 húsbyggjendur fengu
ekki síðari hluta lána á tilsettum tíma, því að Byggðasjóður var tómur. Þó voru lánin aðeins
800 þúsund krónur en hefðu miðað við verðlagshækkanir í tíð vinstri stjórnarinnar átt að
vera 1.400 þúsund krónur.
Rafmagnsveitur ríkisins töpuðu einni milljón króna á dag og olíusala til bátaflotans var
í þann mund að stöðvast. Það sem Alþýðubandalagið hafði kallað okurvexti þremur árum
áður, settu þeir á húsnæðismálastjórnarlán, verðtryggðu lánin og hækkuðu vextina.
Lánsfjárhæð hækkaði þó ekki. Þá vantaði vegasjóð 1.900 milljónir króna og við kosningarnar
var óvissa um vegaframkvæmdir sumarið 1974.
Launakjör sjómanna höfðu þá rýrnað um 19% og greiðsluerfiðleikar Póst og síma urðu
þess valdandi, að algjör óvissa ríkti um, hvort unnt yrði að greiða út orlof í júlí eins og
lög gerðu ráð fyrir. Samtals nam fjárskortur opinberra sjóða 6 milljörðum króna, svo illa
hafði vinstri stjórnin sólundað sameiginlegu fjármagni þjóðarinnar. Stofnlánadeild
landbúnaðarins skorti 1.000 milljónir króna, Fiskveiðasjóð skorti fjármagn, sem var á bilinu
1.200 til 1.400 milljónir króna og Framkvæmdasjóð skorti 1.000 milljónir króna. Alls staðar
skorti fé og kaupmáttur launa láglaunafólks hafði stórlega minnkað frá því í desember. Þá
höfðu mjölútflytjendur orðið fyrir miklum búsifjum af völdum sjávarútvegsráðherra vinstri
stjórnarinnar, sem bannað hafði sölu loðnumjöls í desembermánuði 1973, en síðan féll verðið
um helming.
Manst þú kjósandi góður þessa tíma? Ef ekki þá kynntu þér staðreyndir sögunnar. Með
því að kjósa Sjálfstæðisflokkinn kemur þú í veg fyrir — eða átt a.m.k. ekki þátt í því að
mynduð verði ný vinstri stjórn á íslandi — sem þjóðin hefur tvisvar sinnum haft svo
dýrkeypta reynslu af. Vinstri stjórnin hin síðari tók alla vísitölu úr gildi — jafnt á láglaun
sem hálaun, hún braut allt samkomulag, sem gert hafði verið við verkalýðshreyfinguna. Þetta
eru staðreyndir, sem ekki verður mótmælt.