Morgunblaðið - 25.06.1978, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 25.06.1978, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. JÚNÍ 1978 Styrkveitingar Vísindasjóðs: Veittir 76 styrkir að upp- hæð rúmum 50 milljónum Lokið er úthlutun úr Vísinda- sjóði og er það 21. úthlutun úr sjóðnum. Samtals voru veittir 77 styrkir að upphæð 50,96 m.kr., 34,91 m.kr. veitt aí Raunvísinda- deild og 16,05 m.kr. af Hugvís- indadeild. Alls bárust umsóknir um yfir 120 milljónir og segir í frétt frá Vísindasjóði að nauðsyn- legt hafi reynzt að synja mjög mörgum umsækjendum og hafi það helzt bitnað á námsmönnum i' doktorsnámi er eiga aðgang að lánum úr LÍN. Árið 1977 voru styrkir Vísinda- sjóðs 81 og námu samtals rúmlega 35 milljónum króna. Af 44 styrkj- um, erRaunvísindadeild veitti í ár, eru 33 rannsóknarstyrkir, en 11 flokkast undir dvalarstyrki, og þar eru einnig taldir þeir sem eru í doktorsnámi, en oft er um rann- sóknarkostnað að ræða þar einnig. Hugvísindadeild bárust að þessu sinni 60 umsóknir, en 2 drógu umsókn sína til baka. Veittir voru 32 styrkir í ár en 37 á síðasta ári. Flestir styrkir Hugvísindadeildar námu hálfri milljón króna, sjö styrkir kr. 600 þús. þrir 800 þúsund og einn 1 milljón króna. Aðrir styrkir voru frá 200—450 þúsund kr. Styrkir Raunvísinda- deildar voru flestir milli hálf og ein milljón eða 28, 12 milli ein og tvær milljónir, 2 yfir tveim milljónum og 2 undir hálfri milljón kr. Hér fer á eftir skrá fyrir styrki Vísindasjóðs árið 1978, fyrst eru taldir styrkir Raunvísindadeildar og síðan Hugvísindadeildar: RAUNVÍSINDADEILD. 1. Aðalsteinn Sigurðsson fiski- fræðingur 500 þús. kr. Til rann- sókna á dýrasamfélögum við Surtsey. 2. Arnþór Garðarsson fugla- fræðingur og Gísli M. Gislason 1.000 m.kr. Til framhaldsrann- sókna á lífsferlum, framleiðslu og fæðukeðjum botndýra í Laxá, Suður-Þingeyjarsýslu. 3. Atli Dagbjartsson læknir 800 þús. kr. Til rannsókna á afleiðing- um súrefnisskorts í heila og hjarta barna við fæðingu. Verkefnið er unnið við háskólann í Gautaborg. 4. Björn Jóhannesson jarðvegs- fræðingur, Ingimar Jóhannsson, liffræðingur og Jónas Bjarnason cfnafræðingur 700 þús. kr. Til líffræðilegra rannsókna á stöðu- vatninu Lóni í Kelduhverfi, með hliðsjón af fiskeldi. 5. Björn Oddsson jarðfræðing- ur 500 þús. kr. Til rannsókna á jarðtæknilegum eiginleikum mó- bergs. 6. Bændaskólinn á Hvanneyri og tilraunastöð Háskólans í meinafræði, Keldum 950 þús. kr. Til rannsókna á ormasmiti og áhrifum beitarskipta á þrif og heilsu búfjár. 7. Eggert Lárusson jarðfræð- ingur 140 þús kr. Til rannsókna á sjávarstöðubreytingum og jökul- menjum á Vestfjörðum. 8. Einar Valur Ingimundarson verkfræðingur 500 þús. kr. Til rannsókna á áhrifum úrgangs frá málmblendiverksmiðjum á um- hverfi. Unnið við háskólann í Oxford. 9. Guðmundur Guðmundsson stærðfræðingur og Kristján Sæmundsson jarðfræðingur 200 þús. kr. Til rannsókna á sambandi eldgosa og stórra eldgosa á ís- landi. 10. Guðni Alfreðsson líffræðingur 1.130 þús kr..Til rannsókna á Salmónella-sýklum í villtum fuglum á íslandi. 11. Gunnar Guðmundsson bú- fræðikandidat 400 þús. kr. Til rannsókna á áhrifum þroskastigs grasa á næringargildi votheys. Unnið við landbúnaðarháskólann í Ási, Noregi. 12. Gunnar Sigurðsson læknir 1.080 þús. kr. Framhaldsstyrkur til rannsókna á fituefnaskiptum sjúk- linga með of háa blóðfitu. 13. Göngudejld sykursjúkra og Blóðbankinn Ábyrgðarmenn. Al- freð Árnason líffræðingur, Ólaf- ur Jensson og bórir Helgason læknar 1 millj. kr. Til rannsókna á tengslum HLA mótefnavaka og insúiínháðrar sykursýki á íslandi. 14. Helga Margrét Ögmunds- dóttir læknir 450 þús. kr. Fram- haldsstyrkur til rannsókna á örvun átfruma og tengiháttum þeirra. Unnið við háskólann í Edinborg. 15. Helgi Björnsson jarðeðlis- fræðingur 2.1 millj. kr. Fram- haldsstyrkur til endurbóta á íssjá og þykktarmælinga á jöklum. 16. Ilelgi Torfason jarðfræð- ingur 350 þús. kr. Til rannsókna á jarðfræði svæðisins umhverfis Kálfafellsdal. 17. Hreinn Haraldsson jarð- fræðingur 300 þús. kr. Til set- fræðilegra rannsókna á aurum Markarfljóts. 18. Hörður Kristinsson grasa- fræðingur 700 þús. kr. Til rann- sókna á flóru Norður-Þingeyja- sýslu. 19. Ingvar Árnason og Sigur- jón ólafsson efnafræðingur 1 millj. kr. Til tækjakaupa vegna rannsókna á lífrænum málmasam- böndum. 20. Jarðvisindastofa Raunvís- indastofnunar HÍ. Ábyrgðar- maðuri borleifur Enarsson jarð- fræðingur. Til að ljúka við rann- sókn á fornu vatnsstæði í Fnjóska- dal og athugun á jökulmenjum í Fnjóskadal og Flateyjardal. 21. Jarðvísindastofa Raunvísinda- stofnunar HI. Ábyrgðarmenni borleifur Einars- son jarðfræðingur og Helgi Björnsson jarðeðlisfræðingur 540 þús. kr. Til rannsókna á Vatns- dalsvatni við Heinabergsjökul og hlaupum úr Kolgrímu. 22. Jón Bragi Bjarnason efna- fræðingur 500 þús. kr. Vegna tækjakaupa til efnavinnslu úr innyflum fiska og sláturdýra. 23. Jón Eiríksson jarðfræðing- ur 950 þús. kr. Til rannsókna á setlögum frá ísöld á Suðaustur- og Vesturlandi. 24. Jón Jónsson jarðfræðingur 200 þús. kr. Vegna kostnaðar við aldursákvarðanir á hraunum á Reykjanesskaga. 25. Kári Stefánsson læknir 1.5 millj. kr. Til rannsókna á myndun myelíns í miðtaugakerfi. Unnið við háskólann í Chicago. 26. Kristinn J. Albertsson jarð- fræðingur 1.4 m. kr. Til fram- haldsrannsókna á aldri berglaga með K/Ar aðferð. 27. Kristján Sig. Kristjánsson efnafræðingur 650 þús. kr. Til kaupa á litrófsgreini vegna rann- sókna á joði og joðsamböndum. 28. Leó Kristjánsson jarðeðlis- fræðingur 200 þús. kr. Til úr- vinnslu segulmælinga á bergi frá Vestfjörðum og Norðurlandi. 29. Líffræðistofnun HÍ 900 þús. kr. Til framhaldsrannsókna á lífríki fitjatjarna á Melabökkum í Hnappadalssýslu. Ábyrðarmaður: Agnar Ingólfsson vistfræðingur. 30. Náttúrugripasafnið í Nes- kaupstað 700 þús. kr. Til kaupa á smásjá vegna líffræðirannsókna á Austurlandi. 31. ólafur Grímur Björnsson læknir 1 m. kr. Til rannsókna á starfsemi gallblöðru í dýrum og mönnum. Unnið við Hammer- smith spítala í London. 32. Ólafur Dýrmundsson búfjár- fræðingur 300 þús. kr. Til rann- sókna á fengitíma sauðfjár. 33. Páll Hersteinsson líffræðing- ur 1.2 m. kr. Til rannsókna á vistfræði íslenskrar tófu og villi- minks. 34. Pétur M. Jónasson líffræðing- ur 750 þús. kr. Til framhaldsrann- sókna á líffræði Þingvallavatns. 35. Rannsóknastofa f lyfjafræði l. 8 m. kr. Til tækjakaupa vegna könnunar á mengun af völdum skordýraeiturs í íslensku lífríki. Ábyrgðarmaður: Jóhannes Skafta- son lyfjafræðingur. 36. Rannsóknastofa Norðurlands 1 m. kr. Til framhaldstilrauna með selen- og kóboltköggla handa sauðfé. Ábyrgðarmenni Jóhannes Sigvaldason líffræðingur og bór- arinn Lárusson fóðurfræðingur. 37. Rannsóknastofnun land- búnaðarins 1.2 m. kr. Til framhaldsrannsókna á vaxtarlagi sauðfjár. Ábyrgðarmaður: Sigur- geir Þorgeirsson búfjárfræðingur. 38. Rannsóknastofnun landbún- aðarins 950 þús. kr. Til rannsókn- ar á áhrifum ljóss á vöxt plantna. Samnorrænt verkefni, unnið í samvinnu við Veðurstofu íslands. Ábyrgðarmaður: Þorsteinn Tómasson grasafræðingur. 39. Steindór Steindórsson grasa- fræðingur 450 þús. kr. Til gróðrar- rannsókna á Suðvestur-Græn- landi. 40. Tilraunastöðin Möðruvellir 250 þús. kr. Til rannsókna á tegundum og útbreiðslu blað- blettasveppa á Islandi. 41. Unnsteinn Stefánsson haf- fræðingur og Björn Jóhannesson jarðvegsfræðingur 500 þús kr. Til rannsókna á efnabúskap og lífs- skilyrðum í ólafsfjarðarvatni. 42. Valgarður Egilsson læknir 2 m. kr. Til rannsókna á áhrifum krabbameinsvaldandi efna á orku- korn (mitochondriur). Unnið er að verkefninu í London. 43. bórður Jónsson eðlisfræðing- ur 700 þús kr. Til rannsókna í skammtasviðsfræði. Unnið er að verkefninu við Harvard-háskóla. Víkingaskip í Blóma- sal Hótels Loftleiða Hótel Loftleiðir hefur tekið upp þá nýbreytni að kalda þorðið, sem hefir staðið gestum til boða á hverjum degi síðan 1. maí 1966, breytti um svip og sækja matargestir hina ýmsu rétti nú um borð í Vikingaskip. Víkingaskipið, sem sett hefur verið upp í Blómasal Hótels Loftleiða, hefur innanborðs milli 70 og 80 rétti, fisk og kjötrétti ásamt grænmeti, ostum, skyri og hákarli eða svipað úrval og verið hefur frá upphafi. Forráðamenn Hótel Loftleiða kynntu þessa nýskipan fréttamönnum fyrir nokkru og sagði Sveinn Sæ- mundsson blaðafulltrúi við það tækifæri að þeir hefðu fengið valinkunnan smið, Óskar K. Júlíusson til að takast þessa skipasmíði á hendur. Óskar hefur kynnt sér gerð og smíði víkinga- skipanna sérstaklega og var aðalfyrirmyndin „Gokstaðaskip- ið“ er fannst við Gokstað á Vestfold í Noregi árið 1880. 44. Þorsteinn Guðmundsson jarð- vegsfræðingur 700 þús. kr. Til rannsókna á losun næringarefna úr jarðvegi við veðrun. Unnið er að verkefninu við háskólann í Freiburg. 18. Dr. Kristján Árnason mál- fræðingur 600 þús. kr. Til að vinna að útgáfu doktorsritgerðar sinnar um hljóðdvalarbreytinguna í íslenzku í ritröðinni Cambridge Studies in Linguistics. 19. Kristján Arnason mennta- skólakennari 500 þús. kr. Til að ljúka doktorsritgerð um heimspeki Sorens Kierkegaard. 20. Ólafur Ásgeirsson skóla- meistari 500 þús. kr. Vegna kostnaðar við rannsókn á sögu Neshrepps innan Ennis (síðar Fróðarhrepps). 21. Ólafur R. Einarsson 500 þús kr. Til að rannsaka dönsk áhrif á starfshætti og stefnu íslenzkra verkalýðsamtaka 1887—1930. 22. Páll Skúlason lögfræðingur 800 þús. kr. Til að rannsaka íslenzkan fjármunarétt (félaga- rétt). 23. Ragnar Árnason M.Sc. 800 þús. kr. Til að rannsaka nýtingu endurnýjanlegra náttúruauðlinda. 24. Rannsóknastofnun í bók- menntafræði 500 þús kr. kr. Til að láta semja bókmenntafræðilegt aflfræðirit. 25. Sagnfræðistofnun Iláskóla íslands 1 millj. kr. Til rannsóknar á Móðurharðindum 1783—1785 og afleiðingum þeirra. 26. Sigfús Jónsson M.A. 300 þús kr. Tij að rannsaka áhrif sjávarút- vegs á byggðaþróun á íslandi frá 1940. 27. Dr. Sigríður Þ. Valgeirsdóttir prófessor 600 þús. kr. Til að ljúka vinnu við gerð og stöðlun hóphæfi- leikaprófa fyrir aldursflokkana 5—18 ára. 28. Sigurður Örn Steingrfmsson cand, theol. 250 þús. kr. Vegna kostnaðar við útgáfu doktorsrit- gerðar sinnar um ritskýringu á texta II. Mósebókar um plágurnar í Egyptalandi. 29. Silja Aðalsteinsdóttir 300 þús. kr. Til að semja sögulegt yfirlit um íslenzkar barnabækur 1795-1977. 30. Dr. Sveinbjörn Rafnsson, dr. Sigurður Þórarinsson og dr. Stefán Aðalsteinsson 450 þús. kr. (í sameiningu). Vegna kostnaðar við könnun fornleifa á slóðum Hrafnkels sögu. 31. Svæðisrannsóknir sunnan Skarðsheiðar 500 þús. kr. Til rannsókna á menningu sveitanna sunnan Skarðsheiðar (umsjá hefur Þorlákur H. Helgason fil.kand.) 32. ögmundur Jónasson M.A. 600 þús. kr. Til að rannsaka frjálslyndisstefnu, einkum eins og hún birtist á íslandi á 19. öld. 1. Ásgeir S. Björnsson lektor 500 þús. kr. Til að kanna og búa til prentunar höfundarverk Bene- dikts Gröndal eldra. 2. Bjarni Reynarsson M.A. 400 þúsund krónur. Til að rannsaka búferlaflutninga á höfuðborgar- svæði íslands á árunum 1974-1975. 3. Dóra S. Bjarnason M.A. 500 þús. kr. Til að rannsaka hlutverk íslenzkra athafnamanna og þátt þeirra í félagslegum breytingum. 4. Gísli Gunnarsson M.A. 800 þús. kr. Til að rannsaka hagsögu Islands á 18. öld með sérstöku tilliti til einokunarverzlunarinnar. 5. Gísli Pálsson M.A. 400 þús. kr. Til að semja rit um sambú manns og sjávar: fiskveiðasamfé- lög við Norður-Atlantshaf. 6. Guðlaugur R. Guðmundsson 500 þús. kr. Til að rannsaka sögu latínuskólanna á Islandi frá siða- skiptum. 7. Guðmundur Sæmundsson cand. mag. 500 þús. kr. Til að kanna beygingu nafnorða meðal skólabarna og unglinga í Reykja- vík (á aldrinum 11, 14 og 17 ára). 8. Guðrún Kvaran cand. mag. 300 þús. kr. Vegna kostnaðar við vörn doktorsritgerðar við háskól- ann í Göttingen um fljóta- og vatnanöfn á Jótlandi og í Slés- vík-Holstein. 9. Séra Gunnar Kristjánsson 500 þús. kr. Til guðfræðilegrar rannsóknar á skáldsögunni Heimsljósi eftir Halldór Laxness. 10. Gunnlaugur S.E. Briem M.A. 600 þús. kr. Til að rannsaka uppruna og þróun höfðaleturs. 11. Dr. Hallgn'mur Helgason tónskáld 400 þús. kr. Til að semja ritskrá um íslenzkar tónmenntir. 12. Haraldur Hannesson hag- fræðingur 200 þús. kr. Vegna kostnaðar við söfnun heimilda um séra Jón Sveinsson (Nonna) í Austurríki og Ameríku. 13. Dr. Haraldur Matthiasson 500 þús. kr. Til að rannsaka staðfræði Landnámabókar og semja lýsingu á öllum þeim landnámum, sem nefnd eru í ritinu. 14. Heimspekikennarar við Há- skóla íslands 200 þús. kr. Vegna kostnaðar við heimspekiþing með þátttöku hjónanna Elísabetar Anscombe, prófessors í Cam- bridge, og Peters Geach, prófess- ors í Leeds. 15. Helgi Þorláksson cand. mag. 600 þús. kr. Til að kanna umfang og mikilvægi íslenzkrar utanríkisverzlunar á miðöldum fram til um 1430. 16. Jón Jónsson jarðfræðingur 250 þús. kr. Til að rannsaka aldur byggðar í Landbroti í Vest- ur-Skaftafellssýslu (kostnaðar- styrkur). 17. Jörgen Leonhard Pind M.Sc. 600 þús. kr. Til að rannsaka skynjun íslenzkra málhljóða, eink- um skynjun tímanlegra afstæðna í hljóðbylgjum málsins. Starfsfólk eldhúss og þjónustulið við hið nýja Víkingaskip sem sett hefur verið upp í Blómasalnum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.