Morgunblaðið - 29.06.1978, Page 1
40 SIÐUR
136. tbl. 65. árg. FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 1978 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Kirkjuleg vígslu-
athöfn í Mónakó
Monte Carlo —
28. júní — AP
VEIKT bros lék um varir Karó-
línu Mónakóprinsessu er hún hét
brúðguma sínum auðsveipni. ást
og virðingu við borgaralega
hjónavígslu í föðurgarði í dag.
Karólína var kiædd ljósbláum
„chiffon“kjól frá Dior-tízkuhús-
inu í París við athöfnina, en
brúðguminn Philippe Junot var í
dökkbláum jakkafötum. Ekki
ganga brúðhjónin í eina sæng
fyrr en að aflokinni kirkjulegri
vígsiu, sem fram fer í fyrramálið.
Allt bendir til þess að fursta-
hjónin, foreldrar brúðarinnar, hafi
fullkomlega sætt sig við tengda-
soninn, en þau voru ráðahagnum
andvíg í fyrstu, þar sem Juno't er
17 árum eldri en furstadóttirin
auk þess sem hann er ekki af
aðalsættum. Er talið að Rainer
fursti og Grace prinsessa, fyrrum
kvikmyndaleikkona, hafi gert sér
vonir um að fá Karl Bretaprins
fyrir tengdason.
Vígsluathöfnin fór fram í há-
sætissal furstahallarinnar þar
sem Grace og furstinn voru gefin
saman fyrir 22 árum. Þá var sýnu
meira um dýrðir en í dag, en
aðeins 40 nánir vinir og ættingjar
voru viðstaddir vígsluna. Blaða-
menn fengu ekki að vera viðstadd-
ir, en sjónvarpsstöðin í fursta-
dæminu fékk þó leyfi til að festa
atburðinn á filmu. Að athöfninni
lokinni var öllum íbúum fursta-
dæmisins boðið í móttöku í hallar-
garðinum, en þeir eru aðeins um
3 þúsund talsins. Var til þess tekið
hvað Karólína og brúðguminn
voru alþýðleg í framkomu við
gestina.
Grace furstafrú var klædd
perlugráum silkikjól við athöfnina
og að sögn kunnugra var hann ekki
saumaður sérstaklega í tilefni
brúðkaupsins. Þær mæðgur eru
afar hrifnar af fötum frá Dior og
skarta helzt ekki öðru þegar mikið
liggur við, enda eru allir kjólar,
Framhald á bls. 22
Karólína furstadóttir og Philippe Junot á brúðarbekk í furstahöllinni í Mónakó í gær.
(AP-símamynd)
22 óbreyttir borgar-
ar myrtir í Líbanon
Beirút, 28. júní — Reuter.
Reuter
AÐ MINNSTA kosti 22
óbreyttir borgarar voru
myrtir í Baalbek í
Austur-Líbanon í dag, og
Bandaríska utanríkisráðuneytið:
Fregnir um innrás
í Kambódíu óná-
kvæmar og villandi
Washington — Bangkok
28. júní — AP.
BANDARÍSKA utanrikisráðu-
neytið gagnrýnði í dag harðlega
fréttaflutning um innrás allt að
80 þúsund manna víetnamsks
hcrliðs inn í Kambódíu, um leið
og fram kom að ekki hefði tekizt
að afla áreiðanlegra upplýsinga
um bardaga á landamærum Víet-
nams og Kambódíu. Það var
fréttamaður bandarísku útvarps-
stöðvarinnar Voice of America,
sem hafði frétt þessa eftir áreið-
anlegum heimildum í utanríkis-
ráðuneytinu, en opinber talsmað-
ur þess segir, að hún sé bæði
ónákvæm og villandi. Engar
áreiðanlegar heimildir liggi fyrir
um fjölda hermanna, sem þátt
taki í bardögunum, né heldur um
það hversu alvarleg átökin á
íandamærunum séu, enda þótt
ljóst sé að bardagar á umræddu
svæði hafi færzt í aukana að
undanförnu.
Haft er eftir háttsettum mönn-
um innan thailenzka hersins, að
innrás Víetnama hafi átt sér stað
um helgina og megi ætla að um 60
þúsund manna lið sé nú í Páfa-
gauksnefi og Svay Rieng í Kambó-
díu. Fregnir af bardögum eru mjög
óljósar, og vestrænir heimildar-
menn í Bangkok, sem venjulega
fylgjast náið með hernaðarumsvif-
um á landamærum Víetnams og
Kambódíu hafa ekki viljað stað-
festa að um innrás eða meirihátt-
ar átök sé að ræða, og af hálfu
hvorugs aðilans hefur því verið
haldið fram að til mikilla bardaga
hafi komið. Framhald á bls. 22
hefur atburður þessi valdið
miklum óróa og ótta við að
ofbeldi aukist enn í þessu
stríðshrjáða landi á næst-
unni. Árásir voru gerðar á
fjögur þorp í dag og fólk
numið á brott, en líkin
fundust síðan sundurskotin
í nærliggjandi skógi. í yfir-
lýsingu gæzluliðs Araba um
mál þetta í kvöld kom ekki
fram hverjir hefðu verið
valdir að ódæðisverkum
þessum, en haft er eftir
heimildarmönnum í hópi
hægri manna, að hinir
myrtu hafi allir verið félag-
ar í Falangistaflokknum eða
Frjálslynda þjóðarflokkn-
um.
í yfirlýsingu friðargæzlu-
liðsins, sem að yfirgnæfandi
meirihluta er skipað Sýrlend-
ingum, kemur fram að árás-
armenn hafi ekki verið ein-
kennisklæddir, en ýmsir telja
að hér sé um að ræða hefnd
vegna morðsins á syni hægri
sinnaða forseta, sem eitt sinn
var, Suleiman Franjiehs, og
fjölskyldu hans, auk 30 ann-
arra stuðningsmanna hans,
um miðjan júní. Höfðu stuðn-
ingsmenn Franjiehs heitið
því að koma fram hefndum,
en enda þótt falangistar og
fylgjendur Franjiehs hafi
verið bandamenn í borgara-
styrjöldinni í landinu, hefur
verið grunnt á því góða með
þeim að undanförnu, einkum
vegna mála er snerta sýr-
lenzka gæzluliðið.
Enn eitt mord-
ið í Baskalandi
Bilbao — 28. júní — AP
IIÁVÆRAR kröíur um raunhæf-
ar aögerðir stjórnvalda í því
skvni að binda enda á nn.rð-
ofbeldisölduna í Baskalandi
Bakke var beittur
kynþáttamisrétti
— úrskurdar Hæstaréttar Bandaríkjanna
Washington — 28. júní — AP
HÆSTIRETTUR Bandaríkj-
anna úrskurðaði í dag, að
Allan Bakke hefði verið beittur
kynþáttamisrétti er honum var
í tvígang meinað að hefja nám
í læknadeild Kali-
forniu-háskóla um leið og 16
nemendur úr svokölluðum
minnihlutahópum fengu
aðgang að deildinni enda þótt
þeir væru mcð lakari einkunnir
en Bakke, sem er ljós á hörund.
Er þar með lokið fjögurra
ára baráttu Bakkes fyrir mál-
stað sinum, og ætlar hann að
hefja læknanám við skólann í
september næstkomandi.
í dómsorði- kemur fram að
áfram skuli tekið tillit til
kynþáttamála við innritun í
skóla í því skyni að stuðla að
jafnvægi en jafnfram,t að í máli
Bakkes hafi verið tekið of mikið
tillit til slíkra sjónarmiða.
Fimm hæstaréttardómarar voru
fylgjandi þessari niðurstöðu
málsins, sem vakið hefur mikla
athygli, en fjórir voru á móti.
Hér er um að ræða sögulegsta
dómsúrskurð, sem varðar kyn-
þáttamál í Bandaríkjunum, allt
frá því að aðskilnaður kynþátta
í skólum var bannaður með
lögum fyrir 24 árum.
Bakke hefur haldið því fram
að hann væri beittur „öfugu
kynþáttamisrétti", en í sam-
ræmi við ráðstafanir stjórn-
valda til að tryggja aðgang
blökkumanna og annarra minni-
hlutahópa að skólum landsins er
það regla að af 100 nemendum,
sem aðgang fá að læknadeild
Kaliforníu-háskóla ár hvert,
skuli að minnsta kosti 16 af
öðrum kynþáttum en hinum
hvíta hafa forgang.
Talið r að dómsúrskurður
þessi eigi eftir að hafa mikil
áhrif, en eini hæstaréttadómar-
inn, sem er blökkumaður,
Thurgood Marshall, var í flest-
um atriðum hlynntur málstað
Bakkes. Marshall greiddi þó
atkvæði gegn því að reglan um
forgang minnihlutahópa væri
brot á stjórnarskránni, en eftir
að dómsorðið var birt í dag
kvaðst Marshall ekki geta gert
sér í hugarlund hvað það mundi
snerta hag margra einstaklinga
eða stofnana, en ljóst væri að
áhrif þess yrðu mjög víðtæk.
komu í kjölfar morðsins á einum
virtasta hlaðamanni Spánar í
dag. Þetta er fimmta morðið. sem
hryðjuverkamenn á þessum slóð-
um frcmja á fjórum dögum. og er
fullvíst talið að öfgamenn innan
ETA-hreyíingarinnar hafi verið
hér að verki.
Fórnarlambið að þessu sinni var
ritstjórinn José Maria Portell, en
hann hefur haldið tengslum við
hófsama félaga í ETA og hefur
beitt sér fyrir því að hreyfingin
gerði samkomulag við ríkisstjórn
Framhald á bls. 22
Sovézk sendi-
ráðsfjöl-
skylda flýr
Lundúnum — 28. júní — AP
ÞRIÐJI sendiráðsritari Sovétríkj-
anna í Genf hefur fengið hæli í
Bretlandi sem pólitískur flótta-
maður, ásarat konu sinni og
tveimur ungura börnum. Þetta
kom fram í frétt í Daily Tele-
graph í dag og var fregnin
staðfest í brezka innanríkisráðu-
neytinu. Ekki er vitað um ástæð-
una fyrir flótta fjölskyldunnar.
en hún kom til Bretlands fyrir
hálfum raánuði og hafði þá við
illan leik tekizt að komast undan
sovézkum sendiráðsmönnum.
Að sögn Daily Telegraph leitaði
flóttamaðurinn, Vladimir Rezun,
Framhald á bls. 23