Morgunblaðið - 29.06.1978, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 29.06.1978, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 1978 5 Samvinnutryggingar: Hagnaður s.l. árs 79,9 millj. Hreppsnefnd Gnúp ver j ahrepps Á síðasta ári varð hagnaður af Samvinnutryggingum 79,7 milljónir kr. og iðgjaldagreiðsl- ur til félagsins jukust um 32% á árinu. Kom þetta fram á aðalíundi tryggingafélaga Sam- bandsins, sem haldinn var f Bifröst í Borgarfirði þann 1. júní s.1. Tryggingafélög Sambandsins íþróttakennara- skóla íslands slitið: eru Samvinnutryggingar h.f., Líf- tryggingafélagið Andvaka og Eneurtryggingafélag Samvinnu- trygginga. A fundinum kom fram, að heildariðgjöld ársins hjá öllum félögunum námu alls 3.026,3 millj. kr. Heildartjón ársins námu hins vegar 2.250.9 millj. kr. I reikningum Samvinnutrygg- inga kom fram, að iðgjöld ársins hjá félaginu námu 2.259,2 millj. kr. og höfðu aukizt um 548,1 millj. kr. eða 32% frá árinu áður. Tjóna- greiðslur námu hins vegar 1.647,8 millj. kr. og höfðu þær aukizt um 357,2 millj. kr. eða 27,7% Nettó bóta- og iðgjaldasjóður félagsins var í árslok 1977 1.528 millj. kr., en var 1100 millj. kr. 1976. I sambandsfréttum segir, að frumtryggingadeildir hafi skilað samtals afgangi að upphæð 82,7 millj. kr og tekjur af óreglulegri starfsemi námu 17,6 millj. kr. Hins vegar hafi orðið nokkurt tap á endurtryggingum eða samtals 20,5 millj. kr. en hafi verið 60,1 millj. kr. árið áður. Hagnaður á árinu varð því 79,7 millj. kr. Iðgjöld líftryggingafélagsins Andvöku námu 126.8 millj. kr. á s.l. ári á móti 84,1 millj. kr. árið áður og var aukningin 50,8% Rekstrarafgangur félagsins nam 15.8 millj. kr. VIÐ hreppsnefndarkosningar í Gnúpverjahreppi á sunnudaginn var kjörsókn hreppsbúa 93,4 prósent. Á kjörskrá voru 199 og 186 kusu. Tveir hreppsnefndar- manna gáfu ekki kost á sér til endurkjörs, en það eru þeir Ásólfur Pálsson á Ásólfsstöðum og Erlingur Loftsson á Sandlæk. Ilafa þcir um árabil átt sæti í hreppsnefndinni. Nú voru kosnir: Steinþór Ingvarsson á Þrándarlundi, Páll Magnússon Búrfelli, Sveinn Eiríksson Steinsholti, Haraldur Bjarnason Stóru-Mástungu og Jón Ólafsson Eystra-Geldingaholti. Eru þeir Haraldur og Jón nýir menn í hreppsnefndinni. Vara- menn voru kjörnir: Bjarnheiður Guðmundsdóttir Tröð, fyrsti vara- maður, Finnbogi Jóhannsson Stóra-Núpi, annar varamaður, þriðji varamður er Benedikt Sigurðsson Búrfelli, þá Erlendur Jóhannsson Hamarsheiði og fimmti varamaður er Sigurður Páll Ásólfsson á Ásólfsstöðum. Steinþór Gestsson á Hæli, sem verið hefur sýslunefndarmaður Gnúpverja um árabil, gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Kosinn var Bjarni Einarsson Hæli og til vara Erlendur Jóhannsson Hamars- heiði. Ekki er hægt að anna eft- irspurn eft- ir skólavist ÍÞRÓTTAKENNARASKÓLA íslands var slitið 15. júní s.l. oftir tveggja ðra starf. Brautskráðir voru 34 íÞrótta- kennarar, 17 stúlkur og 17 piltar, og hafa aldrei fyrr verið brautskráðir jafnmargir ípróttakennarar samtím- is frá skólanum. Hæstu einkunnir hlutu Rósa Þóris- dóttir, Laugavatni, Jón Júlíusson, Noröurhjálegu, Álftaveri og Jóhanna Þorgilsdóttir, Hafnarfiröi. Annars voru nemendur úr öllum kjördæmum landsins. Auk hins almenna náms lögöu nemendur sérstaka áherzlu á nám í einni valgrein í íþróttum og má þar nefna fimleika, sund, knattleik- ina, frjálsar íþróttir, gamla dansa og glímu. Nokkur námskeið voru haldin viö skólann á námstímanum, t.d. var fariö báöa veturna á skíöi noröur í Hlíöarfjall viö Akureyri. Samtals hafa nú verið brautskráöir 525 íþróttakennarar frá íþróttaskóla Björns Jakobssonar og íþrótta- kennaraskóla íslands á 46 ára starfstíma skólanna. Margir gestir voru viöstaddir skólaslitin. Meöal þeirra voru fulltrúar eldri íþróttakennara, fulltrúi stjórnar íþróttakennarafélags íslands, for- maöur og framkvæmdastjóri Ung- mennafélags íslands, formaöur Fim- leikasambands íslands og fulltrúi Handknattleikssambands íslands. Ávörpuöu þessir gestir samkomuna og fulltrúar fimleikasambandsins og handknattleikssambandsins færöu gjafir þeim nemendum, sem sköruöu framúr í valgreinum tengdum sér- samböndunum. Skólastjóri, Árni Guðmundsson, gat þess í skólaslitaræöu, aö aösókn að námi í IÞróttakennaraskóla ís- lands væri nú mjög mikil, svo hvergi nærri væri hægt að anna eftirspurn eftir skólavist og yröi að vísa frá stórum hópi umsækjenda en skólinn tekur nemendur inn í skólann annað hvert ár. Segir í frétt frá skóianum aö ekki hafi fengist nægilegt fé til fram- kvæmda og þrengt sé aö honum fjárhagslega, aö íþróttahúsiö og sundlaug séu of lítil og vanbúin tækjum til þeirrar starfsemi sem ætlast sé til aö þar fari fram og aö tilfinnanlega vanti húsnæöi fyrir bóklega kennslu. Einnig alls konar fatnaður annar svo sem: □ Stutterma og langerma sportskyrtur □ Bullitt canvas buxur, rifflaðir flauelsbuxur og bolir □ Kjólar □ Stuttjakkar úr geysi fjölmörgum eftirgerðum á bæöi dömur og herra □ Bolir og aftur bolir □ Blússur □ Leöurkápur □ Leðurstuttjakkar □ Föt í sumarlitum □ Stakir jakkar úr riffluðu flaueli o.m.fl. o.m.fl. Opiö til kl. 7 föstudaga Lokað laugardaga. TÍZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS >yl WKARNABÆi Laugaveg 20 Laugaveg 66 Austurstræti 22 Glæsibæ Simi 28155

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.