Morgunblaðið - 29.06.1978, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 29.06.1978, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. JUNI 1978 Þrngflokkur Alþýðuflokks kom saman í Alþingishúsinu kl. 17 í gær og er myndin tekin áður en fundurinn hófst. Ljósm. Ól.K.M. Engin loðnuveiði við Nýfundnaland — Bát- amir em á heimleið LOÐNUVEIÐI íslenzku bátanna þriggja, sem fóru til loðnuveiða við Nýfundnaland í vor, brást algjörlega og héldu bátarnir heimleiðis í gær og í fyrradag. Samtals nam afli bátanna þann tíma sem þeir voru við Nýfundna- land 420 lestum. Jens Eysteinsson, sem starfar hjá Fishery Products í St. Johns á Nýfundnalandi, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að íslenzku bátarnir, sem verið hefðu við Nýfundnaland, hefðu verið þrír að þessu sinni, Grindvíking- ur, Hákon og Harpa. Það hefði verið nánast sama hvar bátarnir hefðu leitað fyrir sér, hvergi hefði verið neitt að fá. Sömu sögu hefði verið að segja af 8 norskum bátum, sem fylgt hefðu verk- smiðjuskipinu Ocean Harvesting (Norglobal). „VIÐ komum að Ilval 9 í nótt og var báturinn þá búinn að fá einn hval. Okkur tókst að koma í veg fyrir að báturinn gæti skotið fíeiri hvali, og fór hann áleiðis til lands með þennan eina hval, sem var víst langrcyður. Þá erum við núna að elta einn hvalbátanna, en ekki vitum við um hvaða bát er að ræða," sagð IIill skipstjóri á Rainbow Warrior þegar Morgun- blaðið ræddi við hann í gær. Aðspurður sagði Hill, að ekki væri enn ákveðið hvenær Rainbow Warrior hætti aðgerðum hér við land, en sagði að verið gæti að skipið kæmi inn til Reykjavíkur bráðlega. Kolmunnabát- arnir ekki teknir á leigu ÞESS skal getið að eigendur Arnar KE og Alberts GK taka verulega áhættu nú þegar bátarnir halda til kolmunnaveiða, þar sem þeir eru ekki teknir á leigu af sjávarútvegs- ráðuneytinu heldur voru bátarnir fengnir til þessara veiða, en ráðu- neytið leggur hins vegar til allan útbúnað o.fl. Þegar Hill var spurður um árangur af aðgerðum Rainbow Warrior hér við land, sagði hann árangurinn vera töluverðan. Þeim hefði tvisvar sinnum tekizt að koma í veg fyrir að Hvalur 9 veiddi hval. Morgunblaðinu var tjáð á skrif- stofu Hvals h.f. í Hvalfirði, að hvalveiði hefði sjaldan eða aldrei gengið betur. Búið væri að veiða 116 hvali, 99 langreyður og 17 búrhveli. Ástæðan fyrir þessari góðu veiði mætti m.a. rekja til þess að mikið af hvar virtist nú vera um allan sjó. Fjárstyrkur til Alþýðuflokks og Alþýðublaðs 12—13 milljónir kr. BENEDIKT Gröndal, formaður Alþýðuflokksins. sagði í gær, er Morgunblaðið spurði hann um fjárframlög, sem farið hefðu frá Norðurlöndum 1 norræna styrktarsjóðinn, sem stofnaður var vegna Alþýðuflokksins, að hann hefði ekki nákvæma tölu um fjárstreymi í sjóðinn, „en ég hygg að það sé einhvers staðar nálægt 5 til 6 milljónum króna." Benedikt kvaðst ekki hafa nákvæmar tölur á reiðum höndum, þar sem nú væri m.a. verið að fjalla um fjárhagslegt uppgjör kosninganna og sitthvað fleira viðkomandi þeim. Utan við þessar fjárgreiðslur til sjóðsins, sem notaðar voru til starfsemi flokks- ins, eru svo þær 150.000 norsku krónur, sem getið var um í Morgunblaðinu í gær er runnu til Alþýðublaðsins, til greiðslu á pappírsskuldum. Eru það 7,2 milljónir króna. Morgunblaðið ræddi í gær við Ivar Leveros, framkvæmdastjóra norska Verkamannaflokksins, og spurðist fyrir um þessa styrki. Ivar sagði að sú fjárhæð, sem 14 íslendingar á skákmót í Bandaríkjunum: Benóný teflir í fyrsta INNLENT Verkamannaflokkurinn hefði greitt í norræna styrktarsjóðinn hafi verið 20.000 norskar krónur, eða rúmlega 960.000 krónur íslenzkar. Hins vegar hefðu 150.000 krónur verið greiddar vegna pappírsskulda Alþýðu- blaðsins. Aðspurður um þá tölu, sem Aftenposten hefði birt, 575.000 norskar eða um 27,7 milljónir íslenzkra króna, kvaðst Ivar ekkert vita um hana. Þessa tölu hafi hann hvergi heyrt nefnda eða séð nema í Aftenposten. Þess ber að geta að í viðtali við Benedikt Gröndal í Mbl. í gær segir hann að hlutur norska Verkamannaflokksins hafi verið gerður allt of stór í þessu máli, hér sé um norræna styrki að ræða og fjárframlög frá fleiri verka- mannaflokkum en hinum norska. Hvalveiðarnar hafa aldrei gengið betur Jens sagði, að menn væru vissir um að loðnustofninn væri ofveidd- ur við Nýfundnaland og rætt væri um 2—3 ára algjöra friðun. Fram til þessa hafa Rússar veitt mest af loðnu á þessum slóðum og í vor segjast Rússar vera búnir að veiða 16 þúsund lestir. inu World Open, sem fer fram dagana 30. júní til 4. júlí n.k. Meðal keppenda er gamla kempan Benóný Benediktsson, sem nú tek- ur í fyrsta skipti þátt í skákmóti erlendis, sextug- ur að aldri. Aðrir skákmenn eru Margeir Pétursson, Helgi Ólafsson, Jón L. Árnason, Ásgeir Þ. Árnason, Þórir Ólafsson, Ingvar Ásmundsson, Guðni Sigurbjarnarson, Jóhannes Gíslason, Jóhann Þórir Jónsson, Guðmundur Ágústsson, Leifur Jósteinsson, Sævar Bjarnason og Bragi Halldórsson. Teflt verður á Sheraton-hótelinu. Dagana 8.—18. júlí fer fram mót í New York, G.H.I. Open, og þar verða fimm íslendingar meðal þátttakenda, þeir Margreir, Jón, Sævar, Ásgeir og Bragi. „Trufluðum veiðar Hvals 9,” segja skipverjar á Rainbow Warrior 14 íslenzkir skákmenn halda 1 dag til Philadelphia í Bandaríkjunum, þar sem þeir taka þátt í skákmót- Benóný Bendiktsson. Hér má sjá nokkra af þingmönnum Framsóknarflokksins er ræddu saman í gærdag skipti á móti erlendis Sótt um 8^J% hækkun raf- magns frá 1. ágúst nk. Á Fundi borgarráðs í fyrradag var samþykkt að sækja um til ríkisstjórnarinnar að Raf- magnsveitur Reykjavíkur fengju að hækka útselda kíló- wattstund rafmagns um 8.3% frá 1. ágúst n.k. að telja að viðbættri þeirri hækkun, sem kynni að verða á heildsöluverði Landsvirkjunar. Hiti í Grjóta- gjá 60 gráður LANDRIS heldur áfram við Mývatn, en það hefur þó heldur hægt á sér síðustu dagana. Hins vegar hefur orðið sú breyting í Grjótagjá, að vatnshiti þar er nú kominn í 60 gráður, en var í vetur kringum 40.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.