Morgunblaðið - 29.06.1978, Blaðsíða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 1978
Jafntefli en Island
aldrei verið nær sigri
Island - Danmörk 0:0
Texti> Sigtryggur Sigtryggsson
ViðtöL Þórarinn Ragnarsson
Myndir. Kristinn Ólafsson
ur, missti danskan sóknarmann
framhjá sér. Sá gaf boltann fyrir
markið, Árni markvörður greip en
missti boltann frá sér aftur og
Niels Tune kom á fullri ferð og
skaut naumlega framhjá. Bezta
tækifæri Dana í hálfleiknum. Á
síðustu mínútu hálfleiksins fékk
Pétur laglega sendingu frá
Jóhannesi, drap boltann niður og
lék í áttina að marki D^na. Hann
plataði tvo Dana og skaut síðan
hörkuskoti að markinu, sem Ole
Kjær markvörður varði mjög vel.
Danir meira með
boltann en
sókn íslands beittari
Islenzka liðið iék undan sunnan-
golu í fyrri hálfleik og sótti þá öllu
meira. Átti liðið hættulegri tæki-
færi en Danirnir þrátt fyrir að
þeir væru meira með boltann úti
á vellinum. Sama var uppi á
w
*j V
plF I
M..
IIINN ungi marksækni Akurnesingur I’étur Pétursson missti af gullnu tækifæri til þess að færa íslandi
fyrsta sigurinn yfir Dönum sjö mínútum fyrir leiksiok í gærkvöldi. Ifann fékk holtann í dauðafæri á
markteig og markið blasti við en á einhvern óskiljanlegan hátt tókst honum að koma boltanum framhjá
þegar auðveldara virtist að skora. Tækifærin gerast ekki betri í landslcik og það hcfði sannarlega verið
skemmtilegt fyrir Pétur ef hann hefði skorað þarna, því hann var langbezti framlínumaður íslenzka
liðsins í gærkvöldi og einn alhczti maðurinn á vellinum. Segja má að Islendingar geti verið ánægðir
með það að ná jafntefli gegn Dönum en óneitanlega voru ísiendingarnir nær sigri í þessum slaka leik
en lélegt lið Dana. Þjóðirnar hafa 13 sinnum mætzt á knattspyrnuvellinum. 10 sinnum hafa Danir hrósað
sigri en þrisvar hefur orðið jafntefli. íslendingar verða því að bíða í nokkur ár ennþá eftir hinum
langþráða sigri yfir erkióvininum, Dönum. Biðin hcfði kannski endað í gærkvöldi, ef Ásgeir Sigurvinsson
hefði getað leikið með.
Lélegur leikur M
Það vantaði ekki að veðrið væri
gott í Laugardalnum í gærkvöldi
og hugsuðu menn því gott til
glóðarinnar. Islenzka liðið lék
leikaðferðina 4-3-3 og valdi
þjálfarinn Youri Ilitchev þá Teit
Þórðarson, Pétur Pétursson og
Guðmund Þorbjörnsson í fremstu
víglínuna. íslenzka liðið byrjaði
leikinn af miklum krafti og gerði
harða atlögu að danska markinu á
fyrstu mínútunum en án árangurs.
Næstu mínútur voru ákaflega
rólegar, liðin þreifuðu fyrir sér og
þegar mínúturnar liðu hver af
annarri án þess að nokkuð gerðist
annað en barátta á miðjunni fóru
menn að ókyrrast. Er skemmst frá
því að segja að leikmenn náðu ekki
að sýna nein tilþrif svo heitið gæti
í leiknum og er ekki nokkur vafi
á því að áhorfendur fóru óánægðir
heim af vellinum þrátt fyrir
jafnteflið. Danska liðið var ein-
faldlega ekki það gott að með
góðum leik hefði íslenzka liðið
hæglega átt að geta farið með
sigur af hólmi.
Auðvitað áttu bæði liðin nokkur
marktækifæri og verður nú getið
þeirra beztu. Á 12. mínútu leiksins
fékk Teitur Þórðarson boltann í
dauðafæri eftir slæm mistök í
vörn Dana en Teitur var of seinn
að átta sig og gullið tækifæri gekk
úr greipum. Var þetta ekki eina
skiptið í leiknum sem Teitur var
seinn á sér, því miður. Á 21.
mínútu sofnaði línuvörðurinn
Hreiðar Jónsson illa á verðinum
og Danir, kolrangstæðir, náðu
hættulegri sókn, sem endaði með
því að þeir fengu dæmda auka-
spyrnu á vítateig íslenzka liðsins.
Munaði minnstu að þeim tækist að
skora úr spyrnunni. Á 35. mínútu
náðu íslendingar tveimur hættu-
legum sóknarlotum með stuttu
millibili og björguðu Danir með
naumindum í horn. Á 39. mínútu
kom hættulegasta tækifæri Dana.
Árni Sveinsson, góður sóknarvörð-
ur en afar slakur varnarbakvörð-
teningnum í seinni hálfleik, Dan-
irnir voru mun meira með boltann
en sóknarlotur þeirra voru einhæf-
ar og réð íslenzka vörnin létt við
dönsku framherjana. Hins vegar
voru sóknarlotur íslenzka liðsins
mun hvassari. Einkanlega var
Pétur Pétursson skeinuhættur
fyrir framan mark Dananna og
Atli Eðvaldsson komst nokkrum
sinnum laglega í gegn vinstra
megin. Á 4. mínútu seinni hálf-
leiks komst Atli einu sinni sem
oftar í gegn vinstra megin og upp
að markinu en 1 stað þess að renna
boltanum fyrir markið skaut hann
á markið og Ole Kjær, sem hlaupið
hafði út á móti Atla, varði
auðveldlega. Tvisvar var Pétur
Pétursson í góðum skallafærum en
Karl Þórðarson
anna.
• ;
WHpWli _________
leikur hér laglega á einn dönsku leikmann-
Krankltil
Barcelona
AUSTURRÍSKI leikmaðurinn
Johan Krankl hefur skrifað undir
samning til þriggja ára hjá
Barcelona FC á Spáni.
Eftir að Cryuff hætti að. leika
með liðinu hefur það verið á
höttum eftirgóðum framlínu-
manni og var nú á undan hættu-
legustu keppinautum sínum í
spönsku deildarkeppninni
Valencia enn þeir höfðu einnig
augastað á Krankl. Ekki var gefið
upp hve mikið Barcelona greiddi
fyrir Krankl.
Krankl sem er 25 ára gamall
skoraði fjögur mörk fyrir Austur-
ríki í HM keppninni í Argentínu.
Hann átti og stærstan þátt í að slá
Spánverja út úr forkeppninni.
í bæði skiptin skallaði hann
framhjá markinu. Á 25. mínútu
komst Atli aftur í gegn vinstra
megin og gaf fyrir markið. Teitur
skallaði til baka en hinir framlínu-
mennirnir voru of seinir á sér að
ná boltanum þegar opið markið
blasti við þeim. Danirnir fengu
þrjú hættuleg tækifæri í leiknum.
Sören Lerby skaut rétt yfir af
vítateig eftir hornspyrnu, Henrik
Agerbeck skallaði naumlega fram-
hjá á 22. mínútu seinni hálfleiks
og rétt fyrir leikslok fengu Danir
ágætt tækifæri en Agerbeck skaut
í afturendann á einum samherja
sínum og þar með var hættan liðin
hjá. Langbezta tækifærið fékk
Pétur á 83. mínútu sem fyrr segir
og var sannarlega grátlegt að
hann skyldi ekki skora. Hann fékk
góða sendingu frá vinstri frá
Guðmundi Þorbjörnssyni og
spyrnti með vinstri fæti af mark-
teig en hárnákvæmt framhjá.
Nýliðinn beztur
Islenzka liðið átti ekki góðan
leik að þessu sinni. Að vísu áttu
ýmsir einstaklingar prýðisgóðan
Ieik en aðrir léku undir getu og af
þeim sökum náði liðið aldrei vel
saman. Árni Stefánsson var ör-
uggur í markinu, það litla sem á
hann reyndi. Hann þurfti stundum
að grípa inn í leikinn en ekkert
skot kom á íslenzka markið allan
leikinn, sem kallast getur því
nafni. Vörnin var mjög örugg, með
þá Jóhannes Eðvaldsson, Jón
Pétursson og Gísla Torfason sem
beztu menn. Dönsku framherjarn-
ir höfðu ekkert í þá að gera í
leiknum í gærkvöldi. Árni Sveins-
son var veiki hlekkurinn í vörninni
• Pétur Pétursson sa-kir hér að marki Dana ásamt Jóhannesi Eðvaldssyni. Pétur átti bestan leik íslensku framlinuleikmannanna og Jóhannes
var sterkastur í vörninni.