Morgunblaðið - 29.06.1978, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 1978
Bridgesamband Austurlands
Firmakeppni B.S.A. var haldin í aprflmánuði sl. 84 firmu,
víðsvegar frá Austurlandi tóku þátt í keppninni og þakkar
stjórn B.S.A. þeim fyrir stuðning þeirra og þátttöku.
Firmakeppnin var jafnframt Austurlandsmót í einmenningi.
Sigurvegari varð Vélaverkstæðið Víkingur, á Egilsstöðum.
Spilari fyrir Víking var Sigfús Gunnlaugsson (B.F.), en hann
varð einnig sigurvegari í einmenningskeppninni.
Röð efstu firmanna varð þessi:
1. Vélaverkst. Víkingur, Egilsst.
2. Grafan s/f, Borgarfirði
3. Kaupfél. Héraðsbúa, Reyðarf.
4. Rafverkt. Sveinn Guðm. Egilsst.
5. Bókh.skrifst. Magn. Þórars. Eg.
6. Haukur Runólfsson, Höfn
7. dHótel Höfn, Höfn
8. Dagblaðið, umboð á Vopnafirði
9. Flugleiðir, umboð á Borgarf.
10. Tangi h/f, Vopnafirði
Einmenningskeppni B.S.A.
var haldin í aprfl s.l. 5 félög
innan sambandsins tóku þátt í
kcppninni. eða samtals 119
sþilarar. Spilaðar voru tvær
umferðir, 60 spil og var alls-
staðar spilað á sömu spilin.
Keppnin var jafnframt firma-
keppni B.S.A.
Hér á eftir fer röð efstu
stig spilari
1065 Sigfús Gunnlaugss.
1033 Jón Björnss.
1026 Einar Þorvarðars.
1016 Þórunn Sigurðard.
1014 Magnús Þórðars.
992 Gunnh. Gunnarsd.
990 Björn Júlíuss.
988 Hermann Guðm.s.
978 Páll Sveinss.
965 Þórður Pálss.
Bridge
Umsjón ARNÓR
RAGNARSSON
manna, þeirra, sem náðu yfir Magnús Þórðars. B.F. 1831
meðalskor. Eiríkur Guðmundss. B.H. 1830
stig. Víðir Péturss. B.R. 1821
Sigfús Gunnlaugsson B.F. 1967 Kristján Kristjánss. B.R. 1816
Einmenningsmeist- Einar Þorvarðars. B.R. 1814
ari B.S.A. 1978 Svava Gunnarsd. B:H. 1811
Páll Sveinsson B.B. 1938 Kristján Ragnarss. B.H. 1806
Hafsteinn Larsen B.R. 1895 Þórður Pálss, B.V. 1797
Sigurður Ágústss. B.F. 1882 Steinþór Magnúss. B.F. 1785
Jón Björnsson B.B. 1852 Garðar Jónss. B.R. 1787
Þórunn Sigurðard. B.F. 1860 Guðrún Hjaltadóttir B.F. 1780
Jósef Þorgeirss. B.V. 1832 Jón J. Sigurðss. B.H. 1780
Mótmælti með-
ferðinni á Orlov
— er nú sjálfur fyrir rétti
Moskvu, 28. júní — AP.
JOSEPH Begun, baráttumaður
fyrir málefnum Gyðinga í Sovét-
rikjunum, kom fyrir rétt í
Moskvu á miðvikudag ákærður
fyrir brot gegn lögum um vega-
hréf að sögn ættingja hans.
Begun var mjög veiklulegur í
réttarhöldunum, en hann hefur
verið í hungurverkfalli samtals í
40 daga. Ef hann verður fundinn
sekur á hann yfir höfði sér allt að
1 árs veru í þrælkunarbúðum.
Hann var handtekinn 17. maí s.l.
fyrir framan dómshúsið í Moskvu
þegar Jury Orlov var fyrir réttin-
um, en yfirvöld hafa sagt að hann
hafi verið í óleyfi í borginni en
hann var að afplána 1 árs dvöl í
Siberíu frá 1. júní 1977 fyrir
sníkjulifnað. Begun hefur barist
fyrir því að fá leyfi til að flytjast
til Israels s.l. sjö ár og hefur þess
vegna misst starf sitt sem raf-
eindafræðingur.
Trésmið-
ir á Akra-
nesi kaupa
sumarhús
Á FUNDI hjá Trésmíðafélagi
Akraness í vetur var ákveðið að
ráðast í kaup á nýju sumarhúsi að
Svignaskarði í Borgarfirði. Húsið
er hið vandaðasta að allri gerð og
smíðað af Trésmiðju Sigurjóns &
Þorbergs h.f. Akranesi. Verður það
tilbúið í júlíbyrjun og hefur þegar
verið úthlutað nokkrum vikum til
félagsmanna.
Trésmíðafélag Akraness hefur
ákveðið að efna til samkeppni um
merki félagsins. 20 þús. kr. verð-
laun verða veitt fyrir bezta
merkið. Einkennsistafir félagsins
eru T.F.A.
Tillögum um merki má skila til
Elíasar Jóhannessonar, Esjubraut
33, Akranesi, fyrir 15. júlí 1978.
(Frá. T.F.A.)
Afmælis- og
minningar-
greinar
ATIIYGLI skal vakin á því, að
afmælis- og minningargreinar
verða að berast blaðinu með
góðum fyrirvara. Þanntg verð-
ur grein, sem birtast á í
miðvikudagsblaði, að berast í
síðasta lagi fyrir hádegi á
mánudag og hliðstætt með
greinar aðra daga. Greinar
mcga ekki vera í sendibréís-
formi eða bundnu máli. Þær
þurfa að vera vélritaðar og
með góðu lfnubili.
Leiðrétting
MEINLEG villa varð í frétt í
Morgunblaðinu á þriðjudag þegar
sagt var frá þeim, er eiga sæti í
hreppsnefnd Skútustaðahrepps
fyrir næsta kjörtímabil, en þeir
eru: frá H-lista Jón Illugason og
Hallgrímur Pálsson, frá I-lista
Kristján Ingvarsson og Sigurður
Þórisson og frá S-lista Hermann
Kristjánsson.
SVAR MITT
EFTIR BILLY GRAHAM
Við vorum óheppin með nágranna. Satt að segja fluttumst
við búferlum, af því að þeir voru þrasgjarnir og ósáttfúsir.
Nýju nágrannarnir cru þó sýnu verri. Þeir fleipra um
náungann, auk þess sem erfitt er að skipta við þá. Hvað
getum við gert?
Hvernig gátu nágrannarnir yðar þrasað, nema þér
þrösuðuð við þá. Hvernig vitið þér, að nýju nágrannarnir
yðar tala illa um náungann, nema vegna þess, að þér
leggið eyrun við tali þeirra?
Lífið er eins og spegill. Þegar við erum þrasgjörn,
endurspegla aðrir þá hegðun. Fleipur fæðir af sér
fleipur. Og á líkan hátt, vinsemd gerir aðra
vingjarnlega. Ljúfmennska kallar á Ijúfmennsku, og
kærleikur vekur kærleika.
í mörgu sambýli er fólk, sem kvartar undan kulda
manna á milli, en á sama stað kunna að vera margir,
sem segja, að þetta sé bezti staðurinn, sem þeir hafi lifað
á. Mismunurinn er oft andrúmsloftið, sem við látum
sjálf af okkur leiða.
Ef ég væri þar kominn, sem mér fyndist þumbarahátt-
ur og ósáttfýsi ráða ríkjum, mundi ég byrja á því að
líta í eigin barm, því að í hverju samfélagi er bæði gott
fólk og slæmt. Biblían segir:
„Það, sem maður sáir, það mun hann og uppskera..
sá, sem sáir í hold sjálfs sín, mun af holdinu uppskera
glötun; en sá, sem sáir í andann, mun af andanum
uppskera eilíft líf.“ (Gal. 6,7—8).
Sáið góðu sæði, og uppskeran verður góð.
— Kirkjuleg...
Framhald af bls. 1
sem þær koma fram í þessa
dagana, frá þessu fræga tízkuhúsi,
þar með talinn hvíti brúðarkjóll-
inn, sem Karólína klæðist á
morgun. Það hefur vakið athygli
að mæðgurnar hafa báðar verið í
velheppnaðri megrun að undan-
förnu.
Brúðargjöf Mónakó-manna til
Karólínu eru eyrnahringir alsettir
demöntum og silfurborðbúnaður
að auki.
— Kambódía
Framhald af bls. 1
Ástandið á landamærum ríkj-
anna hefur verið ótryggt allt frá
sigri kommúnista í Indókína fyrir
þremur árum, en upp úr sauð fyrir
síðustu áramót, og er þá talið að
um 60 þúsund víetnamskir her-
menn hafi gert innrás í Kambódíu.
Skömmu eftir innrásina drógu
Víetnamar sig í hlé, án þess að
viðhlýtandi skýring fengist á
þeirri ákvörðun, en ýmsir telja að
Kínverjar hafi beitt áhrifum
sínum i því máli. Kínverjar hafa
stutt Kambódíumenn í deilum
þeirra við Víetnama, en samkomu-
lag Kínverja og Víetnama hefur
verið með versta móti að undan-
förnu.
— Enn eitt
Framhald af bls. 1
Spánar þannig að ofbeldisaðgerð-
um af völdum ETA linnti eftir níu
ára stanzlausar ýfingar og voða-
verk.
Þrír vopnaðir menn réðust að
Portell þegar hann var á leið til
vinnu sinnar í morgun. Vanfær
kona hans og fimm börn heyrðu
skothríðina en tilræðið átti sér
stað fyrir utan fjölbýlishúsið þar
sem fjölskyldan býr. Talið er að
opið bréf 42 menntamanna, sem
Portell birti í blaði sínu, hafi orðið
til þess að egna hryðjuverkamenn-
ina, en í bréfinu var því meðal
annars haldið fram að varlegt
væri að treysta því að ETA-menn
stæðu við orð sín og því væri til
lítils að ganga til samninga við þá.
— Vá er
fyrir dyrum
Framhald af bls. 21
fá í sinn hlut 6000 tonn síldar
við vesturströndina árlega,
kunna vel að endurskoða samn-
inga, er þær hafa þegar gert við
Breta. Og hversu skilningsríkar
sem hinar bandalagsþjóðirnar
kunna að vera gagnvart síld-
veiðibanninu er hætta á að sú
pólitíska freisting að líta á
bannið sem vott um sérplægni
Breta í fiskimálum verði samúð-
inni yfirsterkari.
Talið er að Skotar muni því
aðeins fallast á bann gegn
sínum fiskimönnum að öllum
útlendingum verði vísað frá
einnig og að brezka stjórnin
leggi eitthvað af mörkum við þá
á móti. Aðalframkvæmdastjóri
Skozka fiskimannasambands-
ins, James Lovie, sagði í síðustu
viku: „Ef við erum að vernda
síldina fyrir komandi kynslóðir
fiskimanna Efnahagsbandalags-
landanna, munum við vænta
stuðnings og leyfis til að verða
fyrstir til að fá að veiða allan
hámarkskvótann þegar stofninn
hefur rétt við aftur.“
Um þessar mundir munu vera
um 24 skip að síldveiðum úti af
Stornoway, Ullapool og Mallaig.
Þótt Bretum hafi verið leyft að
veiða 39000 tonn hafa þeir sett
sjálfum sér mörk sem nema 300
tonna hámarksveiði á viku með
það fyrir augum að stuðla að
verndun fiskstofna. En jafnvel
þetta magn, sem talið er alger-
lega skaðlaust fyrir stofninn,
mun einnig hverfa úr sögunni.
Þrátt fyrir að gæftir á síld
hafi ekki verið eins slæmar um
20 ára skeið hefur verðlag verið
fiskimönnum hagstætt. Af þess-
um sökum hefur afkoma fiski-
manna verið góð og það orðið til
þess að fiskvinnslustöðvum hef-
ur borizt nóg til að skrimta.
Sá grunur manna að Bretar
myndu leggja sig í framkróka
um að'fá sérsamning til handa
skozkum veiðimönnum reyndist
ekki á rökum reistur. Er því
raunveruleg vá fyrir dyrum í
skozka síldariðnaðinum. Ein
síldvinnslustöð í Fraserburg
neyddist tl að loka fyrr á þessu
ári og öðrum á austurströndinni
er haldið í gangi með því einu
móti að taka einnig við bolfiski,
flytja inn frysta síld frá Kanada
og að sfjórnin greiði um 20£
framlag með hverjum verka-
manni. Um 1800 manns vinna
samtals í þessum stöðvum.
Ríkisstjórnin mun þurfa að
vinda bráðan bug að því að leysa
þann vanda, sem hér er á ferð,
ef það hefur ekki verið gert nú
þegar lifibrauð fjölda manns er
í veði og afkoma samfélaga, sem
algerlega eru háð fiskiðnaði.
Verða Skotar e.t.v vitni að því
að þessi hefðbundni atvinnuveg-
ur þeirra, að reykja og salta síld,
fyrnist í þjóðarminningunni?
— Járnblendi-
félagið...
Framhald af bls. 29.
félaginu þá jafnframt settar nýjar
samþykktir. Þann dag gekk aðal-
samningurinn einnig formlega í
gildi.
I aðalsamningnum er svo ákveð-
ið, að íslenzka járnblendifélagið
skuli starfrækt með beztu hags-
muni hluthafa þess, starfsmanna
og hina íslenzka þjóðfélags fyrir
augum. „Standa vonir til þess, að
sögn forráðamannafélagsins, að
fyrirtækið verði traustur hlekkur
í hagþróun á Islandi og lyftistöng
í atvinnumálum í heimahéraði
sínu.“
— Skák
Framhald af bls. 15
geröi sjö jafntefli og tapaöi sex
skákum. Vinningshlutfall hans var því
tæp nítíu af hundraöi, sem veröur aö
teijast allgott, því aö auövitað var
ekki hverjum sem er leyft aö etja
kappi viö stórmeistarann. Skák
þáttarins í dag er einmitt frá einu af
þessum fjölteflum. Þegar við förum
yfir slíkar skákir frá hinum góöu
gömlu dögum sjáum viö oftast
Aljekín eöa álíka jöfur fórna öllu
liöinu gegn einhverjum N.N. og máta
hann síöan. Svo er þó ekki í þetta
skipti, hér er þaö óbreyttur Norö-
maöur sem tekur heimsmeistara-
kandídatinn illilega í karphúsiö:
Hvítt: Viktor Korchnoi, Sviss
Svart: Tryggve Nalum, Noregi
Sikileyjarvörn
1. 64 — c5, 2. Rf3 — Rc6, 3. d4 —
cxd4, 4. Rxd4 — Rf6, 5. Rc3 — e5
(Lasker afbrigöiö, sem viröist alls
staöar vera efst á vinsældarlistanum
um þessar mundir)
6. Rdb5 — d6, 7. Rd5l?
(Þessi leikur öölast sífellt meiri
vinsældir. Áöur var hér ætíö leikið 7.
Bg5 eöa 7. a4)
Rcd5, 8. exd5 — Re7, 9. c4 — Rg6
(En alls ekki 9. .. ,a6, 10. Da4!)
10. Da4 — Bd7,11. Db4 — Bxb5, 12.
Dxb5+ — Dd7, 13. Db3?
(í hernaöi eru þaö alltaf mistök aö
hörfa og svo er einnig hér. Eftif 13.
a4 — a6, 14. Dxd7+ — Kxd7 hefur
hvítur betra endatafl vegna biskupa-
pars síns)
Be7 14. Be2 — 0-0, 15. 0-0 — b6
(Svartur ber greinilega mikla viröingu
fyrir andstæöing sinum og byrjar á
því að verjast framrásinni c4 — c5
áöur en hann blæs til sóknar).
16. Be3 — 15, 17. f3 — Dd8, 18. Kh1
— Bg5
(Svarta staöan er nú þegar þægi-
legri. Svartur hefur góöa sóknar-
möguleika á kóngsvæng á meöan
hvítur kemst lítiö áfram hinum megin
á boröinu)
19. Bg1 — Rf4, 20. Bd1?
(Hvítur skilur menn sína eftir í
reiöileysi. Mun betra var aö freista
þess aö byggja upp varnarstööu meö
20. Hfe1 og síöan 21. Bf 1)
Hc8 21. Da4 — Hc7, 22. b3 — DI6,
23. Da3 — Dh6, 24. Db2 — Rh5l
(Hótar máti)
25. Bf2 — Bf4, 26. Kg1?
(Hvíta staöan var að vísu mjög erfiö,
en nauösyniegt var 26. h3)
Bxh2+U
(Upphafiö á skemmtilegri fléttu sem
heföi átt að leiöa tafarlaust til máts)
27. Kxh2 — Rg3+I, 28. Kxg3 — f4+?
(Eftir 28. .. ,g5! er hvítur óverjandi
mát. T.d. 29. f4 — gxf4+, 30. Kf3 —
Dh5 mát. Hinn geröi leikur nægir þó
einnig)
29. Kg4 — Hf5l, 30. Bh4 — Hh5, 31.
Df2 — g5, 32. Hh1 — Hg7, 33. Be2
— gxh4+, 34. Kh3 — Hg3+I
(Hvítur er gjörsamlega varnarlaus)
35. jkh2 — h3, 36. Kg1 — Hxg2+, 37.
Dxg2 — hxg2, 38. Hxh5 — Dxh5, 39,
Kxg2 — Df5, 40. Hc1 — Kf7, 41. jkf2
— Dh3, 42. Hg1 — e4l
og hvítur gafst upp.