Morgunblaðið - 29.06.1978, Síða 25

Morgunblaðið - 29.06.1978, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 1978 25 Árni Björnsson: Um „milljóna- félag stúdenta” r Oska eftir viðræðum um loftferðasamning í grein Margrétar Hermanns- dóttur í Morgunblaðinu 22. júní s.l. standa m.a. þessi orð: „Aftur á móti hefur Þjóðminja- safn stutt fjálglega „Þjóðhátta- söfnun stúdenta" þrátt fyrir þá staðreynd, að flestir þeir er að söfnuninni hafa staðið hafa enga fræðilega kunnáttu til að bera. Hér gildir enn sem fyrr í afstöðu Þjóðminjasafns, að þeim mun minni kunnátta, því dyggari er stuðningur þjóðminjavarðar. Eins og fram hefur komið í þessum skrifum hér hefur þjóð- minjavörður beint, sem óbeint unnið gegn mér við fornleifarann- sóknina í Herjólfsdal. Sömu sögu er að segja um þátttöku mína og annarra við könnun á byggðasögu sveita sunnan Skarðsheiðar. Þar hefur þjóðminjavörður hreinlega reynt að hindra fjármögnun rann- sóknarinnar og borið við fjárskorti á sama tíma og milljónum hefur verið ausið í „Þjóðháttasöfnun stúdenta". I grein Margrétar allri er einkum veist að þjóðminjaverði og mun hann sjálfsagt svara því. En vegna tilvitnaðrar klausu hafa ýmsir hlutaðeigendur komið að máli við mig, og varð niðurstaðan sú, að ég skyldi gera ofurlitla grein fyrir fjármálum „Þjóðháttasöfn- unar stúdenta“ árið 1976. Sú greinargerð hefur reyndar þegar birst í Arbók hins íslenzka fornleifafélags 1977, en var auk þess send öllum alþingismönnum vegna þingsályktunar, sem sam- þykkt var mótatkvæðalaust í maí 1977. En meginatriði hennar eru þau, að „fyrirtækið" kostaði um 9 milljónir ísl. króna. Það fjármagn fékkst með styrkjum og framlög- um frá hundruðum aðila um land allt, hreppsnefnda, sýslunefnda, sparisjóða ungmennafélaga, kven- félaga, og öðrum, sem vart tjáir að nefna í svo stuttri athugasemd. Eru þessum aðilum hér með færðar bestu þakkir. Hitann og þungann af þessari fjársöfnun báru stúdentarnir sjálfir. Og það var jafnvel átakanlegt, hversu mikill hluti af vinnutíma sumra fór í þá innheimtu. Reikningar fyrir öllu þessu liggja hér á safninu öllum opnir. Beint framlag Þjóðminjasafns- ins til þessarar söfnunar var því miður mjög lítið, eða 200.000 krónur. Safnið greiddi starfsmanni á þjóðháttadeild hálf laun þetta sumar, í tvo mánuði, en hann annaðist m.a. fyrirgreiðslu fyrir umrædda safnendur. Hinn helm- inginn greiddi sjóður söfnunarinn- ar. Illreiknanleg er hins vegar sú aðstaða, sem þjóðminjasafnið veitti varðandi síma, póstþjónustu og „prestige“ o.s.frv. En slíkum athöfnum er því lögum samkvæmt skylt að gegna. Þess má ennfremur geta, að áðurnefnd fjárupphæð var veitt, þegar ljóst var, að gróskumikið undirbúningsstarf var hafið að söfnuninni. I „könnun á byggða- sögu sunnan Skarðsheiðar" hefur Þjóðminjasafnið veitt þessa sömu upphæð og rúmlega það. Einnig ákváðu aðstandendur „Þjóðhátta- söfnunar stúdenta" að leita ekki til aðila á þessu svæði um fjárstyrk, þar sem vænta mætti, að Margrét og hennar samverkamenn gerðu það. Ekki þarf lengur að fara í grafgötur með það, að tal Margrét- ar um milljónaaustur í „Þjóð- háttasöfnun stúdenta“ úr sjóðum Þjóðminjasafnsins, er á engum rökum byggt. Um kunnáttuleysi nenni ég vart að ræða hér og nú. Samkvæmt prófhroka Margrétar hefði Jónas gamli frá Hrafnagili ekki haft hundsvit á íslenskum þjóðháttum, hvað þá vesalingur minn. Það gæti orðið skemmtileg endurminninga- bók að segja frá kynnum sínum af skandínavískum og örðum evrópskum og jafnvel norðurame- rískum „þjóðháttafræðingum" og þeirra vitsmunum gegnum árin. En það verður víst að bíða. Það gæti verið full ástæða til að gagnrýna bæði núverandi og fyrr- verandi þjóðminjavörð, ekki fyrir kunnáttuleysi, heldur fyrir skort á frekju. Þeir hafa ekki farið illa með fé. Aftur á móti hafa þeir ekki verið nógu ýtnir og kröfuharðir á peninga frá yfirvöldum, til þess að hafa úr meiru að spila. 28. júní 1978 Árni Björnsson. MORGUNblaðinu barst I gær- kvöldi fréttatilkynning, þar sem segir að ríkisstjórn Bretlands hafi óskað eftir viðræðum um núgild- andi loftferðasamning milli ts- lands og Bretlands, og muni við- r Ohapp í flugtaki Toronto 27. júní. — AP. FARÞEGAÞOTA Flugfélagsins Air Canada með 107 manns innanforðs rann út af flugbraut í flugtaki í Toronto í morgun og hrapaði niður í gjá með þeim afleiðingum að tveir biðu bana og flestir sem voru í flugvélinni slösuðust, fæstir þó alvarlega. Flugvélin var tveggja hreyfla af gerðinni DC-9 og var að fara frá Toronto til Winnipeg og Vancouc- er þegar flugstjórinn reyndi að hætta við flugtakið. Flugvélin hóf sig aldrei til flugs. í fyrstu var talið að annar hreyfill flugvélarinnar hefði bilað en sumum farþegum heyrðist hjólbarði springa í flugtakinu. Talsmaður flugfélagsins sagði að stél flugvélarinnar hefði bortn- að af og að vængirnir hefðu laskazt. Engin sprenging varð og enginn eldur kom upp í flugvél- inni. ræðurnar hefjast I Reykjavlk þann 4. júlí n.k. Bæði Flugfélag íslands og Loft- leiðir hafa flogið til Bretlands um margra ára skeið, og nú svo til eingöngu Flugfélagið slðan félög- in voru sameinuð. Þá hefur Flug- félag islands verið með ferðir milli Glasgow og Kaupmanna- hafnar um árabil, en f fréttum að undanförnu hefur það komið fram, að British Airways sæki nú fast að hefja flug á þessari leið. BEA flaug einnig til Íslands um hrlð, en þær ferðir voru lagðar niður fyrir nokkrum árum. — Svona stór Framhald af bls. 27 þeir hefðu ekki haft neitt að gera með dreifingu slíkra flugmiða. Þetta er satt. En textar af þessari gerð sýna að þeir leita ekki fylgjenda hvar sem vera skal. Það er ekki hægt annað en óttast að skammt verði þess að bíða, að skrefið frá skóla fyrir ofvita og yfir í skóla fyrir foringja verði smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar Keflavík — Suöurnes Til sölu m.a. I Keflavík einbýlishús og íbúöir 2ja—6 herb. Skipti möguleg. 2ja—4ra herb. íbúöir í smíöum, ennframur grunnur aö glæsilegu raöhúsi. Njarðvík 2ja og 3ja herb. íbúöir í smíöum 2ja, 3ja og 4ra herb. í eldra húsnæði Grindavík Gott einbýlishús, hæö og ris. Bílskúr. Sem nýtt næstum full- gert einbýlishús ein og hálf hæö. Innbyggöur bílskúr. Höfum ennfremur tll sölu, nýjan sumarbústaö í fögru skógivöxnu umhverfi. Elgna- og veröbréfasalan, Hringbraut 90, Keflavík. Sími: 92-3222. 3ja herb. íbúö á jaröhæö til leigu. Sér hiti og rafmagn. Tilboö um fyrirframgreiöslu og fjölskyldustærö sendist Mbl. merkt: „Austurbær — „0987“ fyrir 10. júlí. Keflavík Til sölu m.a. rúmgóö 3ja herb. íbúö meö sér inngangi ásamt stórum bílskúr. Verkstæðisskúr meö tilheyrandi lóöarréttindum. 2ja og 3ja herb. íbúðir. Öll sameign fullfrágengin. íbúöirnar veröa tll afhendingar á árinu 1979. Fasteignasalan, Hafnargötu 27, Keflavík, sími 1420. Ég hef hugsaö mér aö heim- sækja ísland í sumar, og vlli gjarna hitta íslenska stúlku sem gæti verið leiösögumaöur minn til aö skoöa landiö og kynnast íbúum þess. Skrifiö til: Mr. L.A. Grier, box 5139, Spartanburg, S.C. 29304, U.S.A. Munið sérverzlunina meö ódýran fatnaö. Verölistinn, Laugarnesvegi 82, S. 31330. Körfuhúsgögn Teborö, stólar og borö. Kaupið íslenskan iönað. Körfugeröin, Ingólfsstr. 16. Föstudagur 30. júní kl. 20.00. 1. Þórsmörk. Gönguferöir viö allra hæfi. Gist í húsi. 2. Landmannalaugar. Gist í húsi. 3. Hagavatn — Jarlhettur — Leynifossgljúfur. Gist í húsi. Ath: Miövikudagsferöir f Þórsmörk hefjast frá og meö 5. júlí. Síöustu gönguferöirnar á Vífils- fell um helgina. Næturferð á Skarösheiöi á Laugardags- kvöld. Nánar auglýst síöar. Sunnudagur 2. júlí kl. 09.00 Ferö á sögustaói í Borgarfiröi. Komiö m.a. aö Reykholti og aö Borg. Leiösögumaöur: Óskar Halldórsson, lektor. Sumarleyfisferöir: 3.—«. júlí. Esjufjöll — Breiða- merkurjökull. Gengið eftir jöklinum til Esjufjalla og dvalið þar í tvo daga. Gist í húsi. Óvenjuleg og áhugaverö ferö. Fararstjóri: Guöjón Halldórs- son. 8,—16. júlí. Hornstrandir. Gönguferöir viö allra hæfi. Gist í tjöldum. a) Dvöl í Aóalvik. Fararstjóri: Bjarnl Veturliöason. b) Dvöl í Homvfk. Fararstjóri: Tryggvi Halldórsson. c) Gönguferö frá Furufiröi tll Hornvfkur Með allan útbúnaö. Fararstjóri: Páll Steinþórsson. Siglt veröur fyrir Horn til Furu- fjaröar í fyrri feröinni. Verö kr. 23.000.-. Ferö meö skipinu frá og til ísafjaröar kostar 5000 kr. Nánari upplýsingar á skrifstof- unni. Feröafélag íslands. Föstud. 30/6 kl. 20.00. 1. Eiríksjökull, Stefánshellir, Surtshellir o.fl. Fararstj.: Erling- ur Thoroddsen. 2. Þórsmörk, tjaldaö í skjólgóö- um skógi í Stóraenda. Göngu- feröir viö allra hæfi. Noröurpólsflug 14. júlí. Bráöum uppselt. Sumarleyfisferöir Hornstrandir, 7.—15. júlí og 14.—22. júlí. Dvaliö í Hornvík. Gönguferöir viö allra hæfi m.a. á Hornbjarg og Hælavíkurbjarg. Fararstj: Jón I. Bjarnason. Grænland í júlf og ágúst. Færeyjar í ágúst. Noregur í ágúst. Uppl. og farseölar á skrifst. Lækjarg. 6a sími 14606. Útivist. Grensáskirkja Almenn samkoma veröur f safnaöarheimilinu í kvöld kl. 20.30. Robin Baker frá Englandi talar. Allir hjartanlega velkomnir. Séra Halldór S. Gröndal. Nýtt líf Almenn samkoma í kvöld kl. 20.30. Hamraborg 11. Ungt fólk talar, syngur og biöur fyrir sjúkum. Allir velkomnir. Sumarferð Nessóknar verður farin n.k. sunnudag 2. júlí. Lagt af staö frá Neskirkju kl. 9 árdegis. Ekiö um söguslóö- ir Njálu. Bræðrafélag Neskirkju býöur eldra safnaöarfólki til feröarinnar eins og undanfarin ár. Nánari uppl. og tilkynning um þátttöku hjá kirkjuveröi í síma 16783 til fimmtudagskvölds. 30. júni til 2. júlí ferö á Heklu. Allar nánari upplýsingar á skrif- stofunni Laufásvegi 41, sími 24950. raðauglýsingar — raöauglýsingar — raðauglýsingar Útboö Umbúðamiðstööin h.f. óskar eftir tilboöum í byggingu iönaöarhúss aö Héöinsgötu 2, Reykjavík. Útboösgögn veröa afhent á verkfræöistofu Stefáns Ólafssonar h.f., Suöurlandsbraut 4, Reykjavík, gegn 20 þús. kr. skilatryggingu. Tilboö veröa opnuö á sama staö þriöjudag- inn 11. júlí kl. 11.00. Tilboð Tilboö óskast í aö skipta um járn og mála glugga aö utan á fjölbýlishúsinu Meistara- vellir 31—35. Tilboöið tilgreini: 1. Verö á efni og hvaöa efni. 2. Verö á vinnu. 3. Nákvæma vinnulýsingu og hvaöa ábyrgö tekin er á efni og vinnu. Réttur áskilinn til aö taka hvaöa tilboöi sem er eöa hafna öllum. Tilboö skilist til Sonju Egilsdóttur Meistaravöllum 35 fyrir 8. júlí. húsnæöi f boöi Húsnæði til leigu fyrir skrifstofu eöa aöra álíka starfsemi, á 2. hæö í Ármúla 27, 150 fm. PALL ÞORGEIRSSON & CO. Ármúla 27 — Sími 86100

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.