Morgunblaðið - 29.06.1978, Side 36

Morgunblaðið - 29.06.1978, Side 36
36 MORGUNBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 1978 KAFrinu \\ ps: (ö GRANI göslari Þér ættuð að kaupa yður andlitsspegil um næstu mán- aðamót! Ég sagði henni, að þegar að því kæmi að ég ætti að færa henni morgunkaffið í rúmið, myndi verða við það staðið! Því miður er bókin um hjóna- handssæluna uppseld. en við höfum bent fólki á handbók um sjálfsvörn, sem hefur komið að jafnvel meiri notum! Er þetta frelsið ? „Þegar ég opnaði útvarpið kl. rúmlega 7 í morgun, 19. júní, glumdi í eyrum mér kvennaárs- söngurinn „Áfram stelpur" og þulurinn tilkynnti að dagurinn væri helgaður kvenfrelsisbarátt- unni o.s.frv. Eg var dauðsyfjuð og auðvitað í framhaldi af því ekkert í of góðu skapi að flýta mér til vinnu. Þá fór ; ég að velta fyrir mér í hverju þetta . margrómaða frelsi væri fólgið hjá alþýðukonunni í a.m.k. flestum stéttum og niðurstaðan varð: Fara á fætur eldsnemma, vekja syfjuð og vansæl börn og reyna að koma i þau einhverrri lífsnæringu og fara síðan með þau í gæzlu. Reyna síðan að vera eða látast vera í góðu skapi í vinnunni, vegna þess að þjóðfélagið og lífið er nú einu sinni svona að flestir verða að láta sér lynda að vera bara í einhverri vinnu til þess að fá kaup, en ekki vegna þess að það sé svo gaman. Að loknum vinnudegi röltir konan heim dauðþreytt eftir 8—10 stunda útivinnu. Þá tekur heimilið við. Nokkur börn eru búin að bíða á dagvistunarheimilum eftir mömmu. Hún þarf að hlusta og svara, hugga og stilla grát þreyttra barna, hún þarf að þvo, elda mat, taka til, þvo upp, gera við föt, skúra og skrúbba auk óteljandi smávika sem enginn skilur né sér. Mér virðist málið líta þannig út að konan sé meiri þræll en nokkru sinni fyrr. Blessaðir karlmennirn- ir okkar hafa nefnilega alltof margir ekki meira kaup fyrir sína vinnu en það að konumyndin verður að vinna svona til þess að fjölskyldufyrirtækið rúlli. Og nú á ég ekki við að þetta sé sök karlmannanna. Fjölmargir karlmenn fara gjarnan í kvöld- og helgarvinnu til þess að drýgja tekjurnar. Það verður fjarskalega BRIDGE Umsjón: Páll Bergsson í tvímenningskeppni þykir gott að þvinga andstæðinga sina á hátt sagnstig og skapa með því mciri möguleika til að hnekkja samningi þeirra. Þetta reyndist Bandarikjamönnunum Soloway og Goldman vel á yfirstandandi Olympíumóti í New Orleans. Allir utan hættu og suður gaf. Norður S. 8632 H. D T. D6 L. DG8753 Vestur S. D105 H. ÁK10 T. K985 L. 642 Austur S. KG974 H. G98764 T. Á L. 10 Nú, þarna ertu! Ég hef leitað þín um allan bæ. Suður S. Á H. 543 T. G107432 L. ÁK9 Bandaríkjamennirnir, fyrrver- di og núverandi heimsmeistar- , sátu í n-s og sagnirnar urðu legar. Suftur Vestur Norður Austur 1 T pass 1 S 2 H pass 2 S 3 L 3 S 4 L 4 H 5 L 5 H allir pass. Þó norður væri ekki með marga punkta sagði hann þrisvar á spil sín enda hefðu fimm lauf verið mjög góð fórn yfir fjórum hjörtum. En gegn fimm hjörtum austurs tók suður fyrsta slaginn á spaðaás. Og hann var ekki í vafa um hver var innkoman á hendi makkers. I öðrum slag spilaði hann undan ás og kóng í laufi! Jú — Goldman átti drottninguna og hann var ekki lengi að láta spaða á borðið svo suður gæti trompað og fengið þar með þriðja og síðasta slag varnar- innar. Þessi frábæra vörn gaf Banda- ríkjamönnunum 69 stig af 70 mögulegum. En hefði suður ekki spilaö undan tveim hæstu laufun- um og leyft andstæðingunum að vinna sitt spil gat skorin aðeins orðið 20 stig fyrir spilið. MAÐURINN A BEKKNUM Framhaldssaya eftir Georges Simenon Jóhanna Kristjónsdóttir islenzkaói 78 henni. Hún er alveg sjúk í hann. Lapointe kom til þeirra hvar þau sátu hhn róiegustu við borðið. — Hvað má bjóða þér? Lapointe dirfðist naumast að lfta á stúlkuna. en hún aftur á móti fór ekki f launkofa með áhuga sinn á honum og horfði á hann rannsakandi. — Sama og þér. — Nú ferð þú með hana á eitthvcrt rólegt hótel og færð tvö samliggjandi herbergi. Þú sleppir henni ekki fyrr en ég segi til. Strax og þú heíur fundið stað handa ykkur læt- urðu mig vita. Það er engin ástæða tíl að fara mjög langt. Sjálfsagt geturðu fengið her bergi á Hotel Moderne hérna beint á móti. Það er bezt að hún tali ekki við neinn og láti færa sér matinn upp. Þegar hún gekk á braut með Lapointe var engu Ifkara en það væri hún sem ætti að gæta hans. Enn liðu tveir dagar. Ein- hver — ekki var vitað hver, hlaut að hafa varað Felix við, því að hann hvarf og hafði þá leitað skjóls hjá kunningja en fannst þar næsta kvöld. Mestur hluti næturinnar fór í að fá hann til að játa að hann þekkti Marco og fá hann til að gefa upp dvalarstað hans. Marco hafði farið frá Parfs og hafði setzt að í lítilli krá fyrir utan höfuðborgina og stundaði veiðar f Signu. Áður en tókst að yfirhuga hann, heppnaðist honum þó að hleypa af tveimur skotum. Hann hafði undir höndum megnið af þeim peningum sem haíði verið stolið írá Thoret í sérstökum útbúnaði sem Mari- ettc Gibon hafði Ifklega saumað handa honum. — Eruð það þér Maigret? — Já, hr. dómari. — Hvað með Thouretmálið? — Málinu er lokið. Ég sendi morðingjann og vitorðsmann hans inn til yðar eftir andar tak. — Hver er það? Var það svona ógeðsmorð eins og við töluðum um fyrst? / — Já, það má nfr segja. Vertinna í melluhúsi og viðhald hennar, illa artaður kauði og langtum yngri. ættaður frá Marseille. Louis Thouret hafði verið svoddan flón að geyma peningana sfna uppi á klæða- skápnum og... — Hvað segið þér...? — Það reið.á öllu að hann kæmist ekki á snoðir um að peningarnir voru horfnir... Marco sá um það með meiru. Við fundum þann sem hafði selt honum hnffinn. Þér fáið skýrslu mína í kvöld... Það var leiöinlcgast af þessu öllu. Maigret sat með sveittan skallann og lafandi tungu allan eftirmiðdaginn og barðist við að setja saman skýrsluna. Um kvöldið þegar hann hafði snætt kvöldverð mundi hann allt í einu eftir stúlkunni Arlette og fulltrúa sfnum La- pointe. — Fjárakornið! Gleymdi ég því, hrópaði hann upp yfir sig. — Er það nokkuð alvarlegt? spurði kona hans. — Nei. ég hcld ekki. Það er orðið áliðið núna og bezt að bíða til morguns. Við skulum bara koma okkur f háttinn. Sögulok

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.