Morgunblaðið - 30.06.1978, Síða 8

Morgunblaðið - 30.06.1978, Síða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. JÚNÍ 1978 Gengið á Vífilsfell með Ferðafélagi íslands: FERÐAFÉLAG fjall ISLANDS ÁRSINS FERBAFÉlao (SLANDS koni. kftf aftur sezt niður og sumir borðuðu aðra appelsínu, en þær eru góður nestismatur, því þær eru bæði svalandi og nærandi. Bíllinn var ekki væntanlegur næsta klukkutímann og því var gengið í rólegheitum inn í Jósefsdal. Einn úr hópnum lét sér göngu á sléttlendi ekki nægja og gekk frekar á Sauða- dalshnúk sunnan við Vífilsfell. í Jósefsdalnum er mikið slétt- lendi og væri þar tilvalinn tjaldstaður ef vatn væri ein- hversstaðar að finna. Skáli Ármenninga í dalnum er mjög illa farinn og þakið fallið inn. Sama er að segja um aðra skála sem eru þarna í hlíðunum. Eru þeir til mikilla lýta á landslaginu og ættu eigendur þeirra að sjá um að halda skálum sínum við, eða að rífa þá. FERÐAFÉLAG íslands hefur valið Vífilsfell fjall ársins 1978. Skipuleggur það gönguferðir á fjallið og veitir viðurkenning- arskjal þeim sem þátt taka f ferðunum. Siðastliðið sumar á 50 ára afmadi félagsins var fyrsta fjall ársins valið og varð Esjan fyrir valinu. Esjan reyndist vinsælt fjall og gengu um 1700 manns upp á fjalls- brúnina. Nú í ár hafa um 200 manns tekið þátt í ferðunum á fjall ársins. Á björtum degi nú fyrir skömmu slóst blaðamaður Morgunblaösins í för með 15 manna hóp sem Magnús Þórar- .insson var fararstjóri fyrir. I hópnum var bæði vant og óvant fjallgöngufólk, þó vanir væru í meirihluta. Gangan á fjallið tekur minnst hálftíma, en hver og einn getur farið með þeim hraða sem honum hentar bezt. Oft er sagt að þeir Ferðafélags- menn gangi ekki á fjöll, heldur hlaupi þeir, en ekki reyndist það rétt í þetta skipti. Gengið er á fjallið upp skarðið við Jósefsdal. Vífilsfell er 655 metra hátt og liggur suðaustur af Sandskeiði. Það heitir eftir Vífli, leysingja Ingólfs Arnar- sonar, þeim sem bjó að Vífils- stöðum, segir í bókinni Landið þitt, eftir Þorstein Jósepsson. Neðst í hlíðinni þarf að ganga yfir og upp skriður, en þegar ofar dregur tekur mosi við og verður þá ganga mun auðveld- ari. Þegar veörið er gott og bjart yfir er útsýnið mjög fallegt af fjallinu. Á göngunni upp var gaman að líta við og sjá hvernig Hengillinn breytti um mynd eftir því sem ofar dró. Spölurinn upp á efsta tindinn er brattur og hefur Ferðafélagið komið fyrir reipum til að auðvelda klifið. Efst á brúninni kom það upp útsýnisskífu fyrir mörgum árum, sem hjálpar fólki að átta sig á fjallahringnum sem blasir við. Göngumenn tóku upp nesti þegar tindinum var náð og gott þótti sumum að setjast niður og hvíla lúna fætur. Þegar bjart er yfir sést inn á Langjökul, Heklan há og tignarleg blasir við og stundum sést til Vest- mannaeyja. Þennan dag var mjög bjart yfir Snæfellsnesinu og jökullinn sést varla betur en af tindi Vífilsfells. Eftir stutta hvíld afhenti fararstjórinn göngumönnum viðurkenningarskjalið. Kristjana Björg Benediktsdótt- ir, sem er 11 ára, tók hreykin við sínu skjali, en hún fékk einnig viðurkenningu í fyrra, þegar hún gekk á Esju. Hún var í fylgd með föður sínum og gaf honum ekkert eftir á göngunni, þó hann væri vanari en hún. Hún viður- kenndi þó að hann færi anzi hratt og hún væri ekki alveg laus við þreytu. Gengið er á fjallið í skarðinu vinstra megin í hlíðinni. Síðasti spölurinn er brattur. Ekki rétt að allir Ferðafélags- menn hlaupiá fjött... Magnús Þórarinsson setur stafi sína í fjallabók Kristjönu Bjargar og Benedikts Þórmóðssonar. Á leiðinni upp settust nokkrir niður og dáðust að útsýninu. n Magnús setti stafina sína í bók hjá þeim, sem segja má að safni fjöllum. Ferðafélag ís- lands veitir þeim mönnum sem gengið hafa með félaginu á 10 fjöll sem eru hærri en 500 metrar viðurkenningarskjal. Margir í hópnum voru með þessar bækur og sögðust hafa mikið gaman af að halda til þeim fjöllum sem þeir hafa gengið á. Önnnur leið var farin niður en upp. Þar var mikil lausamöl og flýtti hún þó nokkuð fyrir ferðinni, því við hvert spor var runnið aðeins áfram, og göngu- laginu var Hkt við göngulag geimfara sem aðdráttarafl hefur lítið tak á. Þegar niður Alls tók ferðin um 5 tíma. Þeir sem vilja þurfa ekki að binda sig við ferðir Ferðafélags- bílsins en geta hitt göngumenn við fjallsrætur áður en lagt er af stað, og greiða þá að sjálfsögðu lægra gjald. Lagt er af stað frá Umferðarmiðstöðinni og enn eru eftir tvær ferðir á Vífilsfell. Beztur skóbúnaður í ferðir sem þessar eru skór með þykk- um botni og heppilegast er ef þeir eru reimaðir uppá ökklann. Þó er vel hægt að ganga á fjöll í strigaskóm eða öðrum mjúkum skóm, en hætt er þá við, að ökklarnir þreytist fljótt. Bezt er að verá í léttum yfirhöfnum og skjólgóðum því hvassviðri getur verið efst á Vífilsfelli þó lyngt sé niðri.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.