Morgunblaðið - 30.06.1978, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 30.06.1978, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. JÚNÍ 1978 15 krafta eins og Frank Sinatra, Ava Gardner og Gary Grant. Brúðurin ber nú nafnið Caroline Marguerite Louise Grimaldi Junot prinsessa. Philippe Junot fær engan titil og hefur ekkert tilkall til hásætis Rainiers fursta. Bróðir Karólínu, Albert, er ríkisarfi. Þegr þúsundir ferðamanna og Mónakóbúa höfðu hyllt brúðhjónin á götunum bauð furstafjölskyldan til garðveizlu þar sem prinsessan og eigin- maður hennar skáru brúðkaups- tertuna sem var tveggja metra stór. Hljómsveit lék „Sweet Caroline", „Get Me to the Church on Time" og „I Love Paris in the Springtime": Brúð- hjónin ætla að búa í París og eiga hús í Mónakó. Ungar stúlkur klæddar þjódbúningum frá Mónakó bukka sigfyrir brúðhjónunum, Karólínu prinsessu og Philippe Junot, að aflokinni hinni kirkjulegu hjónavígslu i gœrdag. (Símamynd AP) Útför Krags gerð í dag Kaupmannahöfn, 28. júní. Reuter FYRRVERANDI kanzlari Vestur-Þýzkalands, Willy Brandt. er efstur á lista yfir erlenda forystumenn úr röðum jafnaðarmanna, er viðstaddir munu verða útför Jens Otto Krags, fyrrverandi forsætisráð- herra Danmerkur, á föstudag, en Krag lézt af hjartaslagi á fimmtudag í síðustu viku. Af öðrum erlendum jafnaðar- mönnum, sem koma munu til að vera við útförina, má nefna austurríska kanzlarann, Bruno Kreisky, fyrrverandi forsætisráð- herra Noregs, Trygve Bratteli, og fyrrverandi utanríkisráðherra Svíþjóðar, Sven Anderson. Kom þetta fram hjá fréttaþjónustu danska jafnaðarmannaflokksins í dag. Krag var forystumaður danska jafnaðarmannaflokksins lengst af á árunum eftir stríð. Svíar þyngja6 samsær- isdóma Stokkhólmi 29. júní AP SÆNSKUR áfrýjunarréttur þyngdi í dag dóma yfir sex manns sem áður hafa verið dæmd fyrir þátttöku í samsæri um að ræna- Anna-Greta Lejon fyrrverandi ráðherra í apríl í fyrra. Tvær konur, 20 og 32 ára gamlar, sem höfðu verið Iátnar lausar skilorðsbundið, voru dæmd- ar í tveggja ára fangelsi, Þær voru dæmdar vegna náins sambands við * Norbert Kröcher, vestur-þýzkan hryðjuverkamann, sem lögreglan taldi höfuðpaur samsærisins og . var framseldur til Vestur-Þýzka- lands. Fjórir dómar voru þyngdir, þar á meðal yfir 34 ára karlmanni sem fékk fjögurra ára og sex mánaða fangelsi í stað fjögurra ára áður. Tuttugu og eins árs gömul kona var dæmd í þriggja ára fangelsi í stað tveggja og hálfs árs og 22 ára gamall karlmaður fékk tveggja ára í stað eins og hálfs árs fangelsi og skilorðsbundnum dómi yfir 32 ára karlmanni var breytt í þriggja mánaða fangelsi. Áfrýjunarrétturinn sýknaði hins vegar sjöunda sakborninginn 30 ára gamla konu, og staðfesti dóm undirréttar. Skæruliðar fella 8 Rhódesiumenn Lusaka 29. júní AP ATTA rhódesískir hermenn féllu þegar þeir réðust á bækistöð skæruliða í Zambíu á sunnudag að sögn skæruliðaleiðtogans Joshua Nkomo í dag. Hann sagði að skæruliðar hefðu náð 10 rifflum og mikilvægum skjölum af skæruliðunum og að skæruliðaforinginn Alfred Nikita Mangena hefði beðið bana þegar hann hefði reynt að fjarlægja ásamt öðrum jarðsprengju sem rhódesísku hermennirnir komu fyrir. Jafnframt var í dag gerð útför tólf brezkra trúboða og barna sem skæruliðar myrtu á dögunum nálægt þeim stað þar sem morðin voru framin. Við útförina mættu ættingjar, kirkjunnar menn, vinir og syrgjendur frá Rhódesíu og Bret- landi og útförina einkenndi andi fyrirgefningar. Helmut Schmidt kanzlari sagði í dag að loknum viðræðum við Kenneth Kaunda forseta Sambíu í Lusaka að Vestur-Þjóðverjar mundu ekki senda hergögn eða hermenn til Afríku en varaði við alvarlegum afleiðingum sem það gæti haft fyrir heiminn ef friðsamleg lausn fyndist ekki í Rhódesíu. Níu sinnum reynt að vega Mengistu Nairobi 29. júní. AP EÞÍÓPÍUSTJORN segir að níu tilraunir hafi verið gerðar til að ráða þjóðhöfðingjann Mengistu Haile Mariam af dögum á undan- förnum 10 mánuðum og að hann hafi einu sinni særzt. Útvarpið í Nairobi segir að þessum tilræðum hafi staðið „gagnbyltingasinnar undir stjórn leiðsögn innlendra flugumanna" sem hafi laumazt til áhrifa í herbyltingarráðinu sem fer með stjórnina í landinu og að tilræðis- mennirnir hafi beitt eldvörpum, vélbyssum og sprengiefni. Fyrsta atlagan var gerð í september í fyrra þegar aðaland- stöðuhópur stjórnarinnar, Alþýðu- byltingarflokkur Eþíópíu (ERPR), hóf hryðjuverkaherferð gegn her- byltingarstjórninni að sögn út- varpsins. Fyrstu fjórar tilraunirnar voru gerðar þegar Mengistu var á leið heim út vinnu að sögn útvarpsins. Þátttakendurnir í þessum tilraun- um voru 16 „leigumorðingjar", þar af þrír sem Frelsisfylking Erítreu færði til Addis Ababa á laun að sögn útvarpsins. Mengistu særðist í fjórðu til- rauninni, sem var gerð til að ráða hann af dögum í febrúar, þegar hann reyndi að komast í jeppa sínum inn í aðalstöðvar fjórða herfylkisins en var hliðið lokað og lífvörður hans varð að brjóta það upp. Fjórða herfylkið var undir- staða valda varaformanns herbylt- ingarráðsins, Atnafu Abatem ofursta, sem var tekinn af lífi í nóvember fyrir meinta glæpi. Útvarpið sagði að þeir, sem væru í haldi vegna banatilræð- anna, yrðu leiddir fyrir herrétt. 10 ástæður fýrir kaupum á PHILCO þvottavélum .?‘ ® Tekur inn heitt og kalt vatn. sem þýðir \ iðurkennt ullarþvottakerfi. tíma og rafmagnsspamað. n Vinduhraði sem er allt að 850 snún/- nún, flvtir þurrkun ótrúlega. 3. Stór þvottabelgur, sem tekur 5 kg. og stórar dyr er auðvelda hleðslu. 8. Fjöldi kerfa, sem henta þörfum og þoli 4 hitastig (32/45/60/90°C), sem lienta alls þvottar. öllum þvotti. Q \ **• Fullkomin viðgerðarþjónusta er ykkar Spamaðarstilling fyrir vatn og raf- hagur. - magn. JQ. Verðið er mun lægra en á sambærileg- 3 mismunandi hraðar í þvotti og tveir í uin vélum. vindu, tryggja rétta meðfcrð þvottar- heimilistæki sf HAFNARSTRÆTI 3 - 20455 — SÆTÚN 8 — 1 5655 PHILCO og fallegur þvottur fara saman.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.