Morgunblaðið - 19.07.1978, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. JÚLÍ 1978
5
Nær 2500 millj. króna í gjöld
hjá Vestfirðingum — Hæstu
meðalgjöldin á Bolungarvík
SKATTSKRAR allra sveitarfól- Á móti koma til hagsbóta fyrir einstaklinK hæst að meðaltali:
aga í Vestíjarðaumdæmi lÍKKja
frammA skattstofunni. ísafirði.
ok hjá viðkomandi umboðsmanni
18.7 — 31.7 n.k. að báðum dögum
meðtöldum. Kærufrestur er til og
með 31.7 n.k.
Álögð Kjöld í skattskrám 1978
nema alls kr. 2.431.374.001.- á
5278 einstaklingum og kr.
666.374.289.- á 496 félög.
einstaklinKa bainabætur kr.
278.351.500,- Auk þess kr.
37.296.691.- í ónýttum persónuaf-
slætti upp í útsvör í þeim 18
sveitarfélösum þar sem skattstof-
an lagði á útsvar. (14 hrepps-
nefndir sjá sjálfar um álagningu
útsvara).
í sveitarfélögum, þar sem skatt-
stofan leggur á útsvar, eru gjöld á
í Bolungarvík kr. 643.459.-
á ísafirði kr. 611.806.-
á Tálknafirði kr. 509.145.-
á Þingeyri kr. 482.113.U
Þar sem skattstofan lagði ekki á
útsvar eru hæst gjöld að meðaltali
á einstakling:
í Ketildalahreppi kr. 349.283.-
á Hólmavík kr. 213.296.-
í Ósnaksevrarhr. kr. 196.646.-
Ilæstu gjaldendur einstaklinga í umda minu eru: Útsv.
Alls Tsk. Annað
Jón Fr. Einarsson. atvinnurekandi. Bol.vík. 14.822.646- 6.262.303- 2.071.100- 6.489.243.-
Hrafnkell Stefánsson. lyfsali. ísaf. 7.275.647- 3.940.474- 1.317.100- 2.018.073-
Hörður Þorsteinsson. atvinnurekandi. ísaf. 6.570.038- 3.221.031 - 1.143.700- 2.205.307-
Óli J. Sigmundsson. atvinnurekandi. ísaf. 5.988.275- 2.696.518- 885.800- 2.405.957-
Ásgeir Guðbjartsson. skipstjóri. Isaf. Guðbjartur Ásgeirsson. skipstjóri. ísaf. 4.826.578- 2.804.790,- 1.119.600- 902.188-
4.821.264,- 2.762.814- 1.150.000- 908.450-
Guðfinnur Einarsson. forstjóri. Bol.vík. 4.696.058- 2.657.451 - 928.100- 1.110.507-
Grétar Kristjánsson. skipstjóri. Súðavík. 4.595.024- 2.726.737- 968.700- 899.587-
Jóhann Símonarson. skipstjóri. ísaf. 4.493.331 - 2.392.912- 1.144.200- 956.219-
Hermann Skúlason. skipstjóri. ísaf. 4.461.046- 2.524.454- 1.082.100,- 854.492-
Ila-stu gjaldendur félaga erui Alls Tsk. Aðstj.gj. Annað
íshúsfélag ísfirðinga h.L. ísaf. 48.438.384- 22.524.139- 10.714.600- 15.199.645-
Ilraðfrystihúsið h.f.. Ilnifsdal 43.340.862- 26.157.327- 5.355.600- 11.827.935-
Ilrönn h.L. (útgerð). ísaf. 39.023.359- 28.585.662- 1.233.900,- 9.203.797-
Ilraðfrystihúsið Norðurtangi h.f.. ísaf. 28.776.445- 4.059.608- 10.155.700- 14.561.137-
Ishúsfélag Bolungarv. h.L. Bol.v. 22.790.915- 2.312.817- 9.119.100- 11.358.998-
Miðfell h.f.. (útgerð). Hnífsdal 20.957.313- 15.257.120- 1.009.900- 4.690.293-
Gunnvör h.f.. (útgerð). ísaf. .19.728.028- 13.784.992- 1.053.300- 4.889.736-
Ilæst sölugjald vegna reksturs 1977 greiddi Kaupfélag ísfirðinga kr. 6 5.438.201 -
VeriA að taka „Tycho Brahe“ upp til vetursetu inn við Sund, eftir
Grænlandsleiðangurinn í fyrra sumar.
Farid í 30. Græn-
landsleiðangurinn
SKIP dönsku landmælinganna,
Tycho Brahe, sem var látið hafa
vetursetu hér í Reykjavík á síöasta
vetri, eftir leiðangur sínn til Græn-
lands lagöi af stað til Grænlands í
gærmorgun.
Mun þetta verða síöasta ferð
skipsins tii Grænlands, þar sem það
hefur verið fljótandi aðalbækistöð
fyrir vísindalega leiðangra í 30 sumur,
að þessu meðtöldu, meðfram vestur-
strönd Grænlands í 25 sumur, nú
síðustu 5 sumrin hafa leiðangrarnir
verið geröir að austurströndinni.
Þangað fór skipið í gærmorgun,
undir skipstjórn 26 ára gamals Dana,
Knud Sörensen að nafni. Kvaðst
hann gera ráð fyrir að vera tvo og
hálfan til þrjá sólarhringa að ísrönd-
inni fyrir utan Angmagssalik, sem er
stærsti bærinn á austurströnd Græn-
lands. Hann kvaðst eiga að vera
mættur með skipið við Kulusuk, þar
sem flugvöllurinn er, 26. þessa
mánaðar, en þá koma þangaö
flugleiðis 6—8 menn, sem starfa eiga
á vegum dönsku landmælinganna
fram í septemberbyrjun, meðfram
austurströndinni.
Skipstjórinn sagöi skip sitt hafa
verið hið mesta happaskip. Það hefur
aldrei orðið fyrir teljandi áfalli í
Grænlandsferðum, né heldur nokkur
maður í áhöfn þess. — En nú verður
þetta gamla góöa skip (byggt 1946)
sennilega selt á uppboöi, þegar við
komum heim til Danmerkur með það
með haustinu. Næsta sumar, ef
ákveöiö veröur að senda leiöangur til
Grænlands — fer eftir fjárveitingum,
verður farið á nýlegu skipi, sem líka
verður eikarskip, með ísbrynju, eins
og þetta.
— Ég hef þá trú, sagði Knud
skipstjóri, að fari „Tycho Brahe'' á
uppboö í haust eða vetur, muni
margir verða um boðið. — Það er
kojupláss fyrir rúmlega 20 manns, og
skipiö gott sjóskip og í góöu ástandi.
Þegar skipið lét úr höfn var búið
aö mála þaö allt hátt og lágt ofanúr
ístunnunni í formastrinu og niður í
vélarrúm.
G-lán Húsnæðismálastjórnar:
Hækkuðíl,8
miUjónir kr.
Félagsmálaráðuneytið hefur að
fenginni umsögn Ilúsnæðismála-
stjórnar ákveðið að hámark
G-lána skuii nú þegar hækkað úr
einni milljón króna í 1.8 milljónir
króna og jaínframt að hækkunin
gildi um þær umsóknir, sem
bárust eftir 1. aprfl síðastliðinn.
Þá hefur ráðuneytið ákveðið. að
hækkunin nái fyrst og fremst til
þeirra. sem engar íbúðir eiga og
eru að kaupa ibúð í fyrsta sinn.
Frá árinu 1974 hefur heildarfjár-
hæð lána til kaupa á eldri fbúðum
hækkað úr 80 milljónum króna í
720 milljónir króna í ár. Miðað
við hækkun byggingavísitölu á
þessu tímabiii hefur raungildi
upphaAarinnar aukizt um 175%.
Morgunblaðinu barst í gær
fréttatilkynning frá félagsmála-
ráðuneytinu, þar sem fjallað er um
þessa ákvörðun. Þar segir:
„í bréfi til húsnæðismálastjórn-
ar, dags. 19. maí s.l., varðandi lán
til kaupa á eldri íbúðum, taldi
ráðuneytið rétt að hámark hinna
einstöku G-lána væri nú hækkað
úr 1 millj. króna í 1,8 millj. króna,
þannig að þau næmu allt að
helmingi lánsupphæðar tii nýrra
íbúða. Jafnframt óskaði ráðuneyt-
ið eftir nánari tillögum húsnæðis-
málastjórnar um framkvæmd
þeirrar hækkunar.
I sama bréfi óskaði ráðuneytið
ennframur eftir umsögn hús-
næðismálastjórnar um það hvort
ekki væri æskilegt að rýmka
gildandi lagaákvæði um lán til
endurbóta á eldra húsnæöi, þannig
að heimildin sé ekki takmörkuð við
húsnæði öryrkja og éllilífeyris-
þega.
Ráðuneytið birti frettatilkynn-
ingu í fjölmiðlum hinn 25. maí s.l.,
þar sem skýrt var frá innihaldi
framangreinds bréfs ráðuneytisins
til húsnæðismálastjórnar.
Að undanförnu hafa birst um-
mæli í dagblöðum, þar sem látið er
að því liggja að margir lántakend-
ur, sem hér eiga hlut að máli, hafi
gengið út frá því sem gefnu að
umrædd hækkun G-iána úr 1 millj.
kr. í 1,8 millj. kr. kæmi til
framkvæmda mjög bráðlega og
undrist þann seinagang sem sé á
því, að hækkunin komi til fram-
kvæmda.
Eins og bréfið frá 19. maí ber
með sér, var það vilji ráðuneytis-
ins, að hin umrædda hækkun í 1,8
milljón kr. kæmi sem fyrst til
framkvæmda og telur miður farið,
hve langan tíma það hefur tekið
húsnæðismálastjórn að afgreiða
málið frá sér.
Nú hefur ráðuneytinu í dag
borist bréf húsnæðismálastjórnar
dags. 13. júlí. Með hliðsjón af því,
er þar greinir, ákveður ráðuneytið
hér með, að hámark G-lána skuli
nú þegar hækkað úr 1 millj. í 1,8
millj. kr., að hækkunin gildi um
þær umsóknir, er bárust eftir 1.
apríl s.l. og að hækkunin hái fyrst
og fremst til þeirra, sem engar
íbúðir eiga og eru að kaupa íbúð
í fyrsta sinn.
Ráðuneytið vill að gefnu tilefni
taka það fram, að heildarfjárhæð
til lána til kaupa á eldri íbúðum
hefur verið hækkuð úr 80 millj.
krónum árið 1974 í 720 millj. króna
í ár. Hefur upphæðin því nífaldast
að krónutali á þessu tímabili, en
aukizt að raungildi um 175%,
miðað við vísitölu bygginga-
kostnaðar."
Rétt spor í rétta átt,
sporiníTorgið!