Morgunblaðið - 30.08.1978, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. ÁGÚST 1978
3
Frá verðlaunaafhendingunni. F.v.i Guðmundur Sigurjónsson,
Helgi Ólafsson, Benedikt Jónasson og Ingvar Ásmundsson.
Teflt í miðbænum:
Guðmundur v ann
2. Lækjartorgs-
mót Mjölnis í gær
„DAGBLAÐIÐ og Skákprent
h.f. gerðu jafntefli, Sænsk—ís-
lenzka verzlunarfélagið vann
Morgunblaðið...“ Slíkum setn-
ingum var dreift úr kallkerfi
yfir miðbæinn í gærdag, og
hafa þær sjálfsagt flækzt fyrir
einhverjum vegfarendum í
stillunni.
Á Lækjartorgi gekkst skákfé-
lagið Mjölnir öðru sinni fyrir
útiskákmóti. Alls tóku 36 kepp-
endur þátt í mótinu, þar af
margir af beztu skákmönnum
landsins, — þó gátu þeir Friðrik
Ólafsson og Jón L. Árnason ekki
sezt við borðið að þessu sinni.
Tefldu skákmennirnir merktir
ýmsum fyrirtækjum, sem
styrktu þetta framtak Mjölnis.
Keppnin hófst upp úr kl. 1. í
upphafi mótsins var öllum
keppendum raðað í einn flokk,
en síðan drógust aðeins saman
þeir sem höfðu hlotið jafnmarga
vinninga, svo að er yfir lauk stóð
einn keppandi uppi sem sigur-
vegari. Voru þátttakendur mis-
kappklæddir til orrustu, en á
milli leikja yljuðu þeir sér á
heitu kaffi upp við Útvegsbank-
ann.
Fjöldi vegfarenda fylgdist
með því, hvernig skákmennirnir
stráfelldu lið hver annars í
nepjunni, en um 6-leytið voru
úrslit mótsins kunn. Þá sigraði
Guðmundur Sigurjónsson Helga
Ólafsson, sem sigraði í mótinu í
fyrra. Efstu menn urðu því: 1.
Guðmundur Sigurjónsson (Dag-
blaðið), 8 vinningar; Helgi Ól-
afsson (Þjóðviljinn) 7 vinningar;
3—4: Benedikt Jónasson (B.M.
Vallá) og Ingvar Ásmundsson
(Vísir) 6 vinningar.
Fyrstu verðlaun í skákmótinu
voru 100 þúsund krónur, en 8
efstu keppendurnir hlutu verð-
laun.
Útiskákmót Mjölnis er öðrum
þræði fjáröflunarleið fyrir fé-
lagið, til styrktar unglingastarfi
þess í Breiðholti.
Margir vegíarendur gerðu hlé á ferð sinni í gær til að fylgjast
með gangi mála á taflborðinu.
F ANNAR tvíbætti
met í 250m skeiði
FANNAR Harðar G. Aibertsson-
ar tvíbætti íslamdsmetið í 250
metra skeiði á hestamóti, sem
haldið var á Lagarfijótsbrú í
gærdag.
Fyrri sprettinn hljóp Fannar á
21.8 sek, og þann síðari á 21.5 sek.
Eldra metið átti Skjóni frá
Móeyrarhvoli, 22.1 sek., og var það
sett fyrir um það bil þremur
vikum.
Veður á Egilsstöðum var mjög
gott í gær, þegar mótið var haldið
og voru margir af frægustu
hestum landsins mættir til leiks,
en mótið var haldið á vegum
hestamannafélagsins Freyfaxa.
í öðru sæti í 250 metra skeiði
var Skjóni Helga Valmundssonar
á 22.5 sek og í þriðja sæti var
gamli methafinn Skjóni frá Mó-
eyrarhvoli á 22.5 sek. Aðalsteinn
Aðalsteinsson var knapi á Fannari
á báðum sprettunum.
Klak þorsks og ýsu
heppnaðist sæmilega
NÚ ER að mestu ljóst að klak
þorsksins hefur heppnazt nokkuð
vel í vetur og sömu sögu er að
segja af klaki ýsunnar. Þá hefur
komið í ljós síðustu daga. að klak
loðnunnar hefur tekizt mun betur
en menn áttu von á og útlitið með
loðnustofninn því betra en áður,
að því er Iljálmar Vilhjálmsson
fiskifræðingur tjáði Morgunblað-
inu í gærkvöldi, en hann er nú
leiðangursstjóri á rannsóknar-
skipinu Árna Friðrikssyni, en
undanfarið hefur skipið verið við
seiðarannsóknir við Vestfirði,
Norður- og Austurland og nefn-
- ast þessar rannsóknir O-grúppu
rannsóknir.
„Eg held að það eigi eftir að
koma betur í ljós, að þorsk- og
ýsuseiðum frá í vor hafi reitt
sæmilega af, og sýnist mér þorsk-
árgangurinn ætla að verða sæmi-
legur, en seiðin eiga harða baráttu
framundan og næsti vetur verður
þá erfiðastur. Þá sýnist mér einnig
að ýsuárgangurinn frá í vetur ætti
að geta orðið góður,“ sagði Hjálm-
ar.
Hann sagði að þorskseiði væri
að finna á öllu svæðinu frá
Isafjarðardjúpi norður og austur
um að Glettinganesi. „Á öllu þessu
svæði er nokkuð af þorskseiðunum
og á einstaka stað verulega mikið.“
„Við höfðum lítið fundið af
loðnuseiðum, þar til í fyrradag, að
við fundum mikið af loðnuseiðum
Björk. Mývatnssveit, 29. ágúst.
LAND hefur risið hratt á
Kröflusvæðinu síðustu
daga og að sögn Hjartar
Tryggvasonar bendir ýmis-
legt til þess að umbrota-
hrina geti hafizt á ný við
Kröflu um miðjan septem-
vestur af Sporðagrunni. Um fram-
tíð þessara seiða veit maður ekki
með vissu,, en það er ljóst að klak
loðnunnar hefur heppnazt betur
en maður átti von á og það kæmi
mér ekki á óvart, að þessi
árgangur teldist sæmilegur þegar
fram í sækir," sagði Hjálmar.
ber ef landrisið hefur þá
ekki hægt á sér.
Nú er verið að reisa borinn
Dofra við holu 11, og er verið að
hefjast handa við fóðrun holunnar.
Tveir japanskir tæknimenn eru
nú við störf í virkjunarhúsinu í
Hlíðardal og eru þeir að setja
saman síðari túrbínu orkuvers-
ins.— Kristján.
Hratt landris
á Kröflusvæði
Nýir ávextir
með hverri skipsferð
ÚR VIÐTALSGREIN VIÐ HUSMOÐUR
í HEIMILISBLAOINU „VIKAN“ 6.7. 1978.
Sparar ekki ávextina „Þar er eitt, sem ég hef aldrei
getaö sparaö, og þaö eru ávextir, enda finnst mér ávextir alls
ekki dýrir hér á landi. Krakkarnir fá alltaf ávexti
á hverjum degi“ sagöi Jytte.
Þaö er mjög athyglisvert, aö Jytte skuli vera á þeirri skoöun,
aö ávextir á íslandi séu á skaplegu veröi, — því innflutningur
á ávöxtum er frjáls“.
BJÓRfiVIN NhBAM
Heildverzlun
Tryggvagötu 8 — Reykjavík
Símar 24340