Morgunblaðið - 30.08.1978, Page 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. ÁGÚST 1978
Styrkið og fegríð líkamann
Ný fjögra vikna námskeid hefjast 4. sept.
FRÚARLEIKFIMI — mýkjaq^i og styrkjandi.
MEGRUNARLEIKFIMI — vigtun — mæling — holl ráö.
SÉRTÍMAR fyrir konur sem vilja léttast um 15 kg eöa meira.
Innritun og upplýsingar alla virka daga kl.
13—22 í síma 83295.
Sturtur — Ijós — gufuböð — kaffi
Júdódeild Armanns
Ármúla 32.
Skrifstofuhúsnæði
í steinhúsi viö Hafnarstræti til leigu nú
þegar. Upplýsingar í síma 14824 og
12105.
mannaland
Eyjólfur Guðmundsson:
Noregur
sem ferða-
íslendingar þeir sem fara utan
leggja frekar leið sína til U.S.A.
eða Miðjarðarhafslandanna, en
skoða Noreg, sem þó er eftirsótt
ferðamannaland og tekjur Norð-
manna af erlendum ferðamönnum
skipta milljörðum. En fari svo að
Islendingar komi til Noregs, ferð-
ast þeir sjaldan nema um Vestur-
og Suður-Noreg, og sjá því ekki
miðnætursól, né sérstætt náttúru-
líf norðurslóðanna.
Hugsum okkur að ekið sé með
bifreið frá Bergen til Kirkenes í
Finmörk. Akstur fram og til baka
um 5300 km, og fara því um 10
dagar í akstur, eða meira, eftir því
hve mikið þarf að skoða á leiðinni.
í Bergen er fiskasafnið,
Nordness Fiskeakvarium, merki-
legt og vel þess virði að 2—3
tímum sé varið í að skoða það. Frá
Bergen má aka um Nordheims-
sund til Voss (Vorsabær), sem er
sveitaþorp með talsverðum iðnaði
og ferðamannaþjónustu. Frá Voss
er hægt að aka norður að Sognsæ
(Sognefjorden) eftir ýmsum veg-
um, en skemmtileg leið er yfir
Víkurfjallið niður til Vik og
Vangsness. Á Vangsnesi stendur
nú 12 metra há stytta af Friðþjófi
hinum frækna, sem sagt er frá í
íslenskum fornritunj. Frá Vangs-
nesi yfir til Hellu, gengur bílferja,
en þar er oft „þröngt á þingi",
einkum yfir sumarmánuðina. Frá
Hellu til Sogndals er góður vegur.
Á þeirri leið má sjá til Fimreiti,
þar sem mannskæðasta sjóorusta
Noregssögunnar fyrr á öldum var
háð. Bar Sverrir konungur þar
sigurorð af Magnúsi, sem þá
taldist einnig konungur.
Um 15 mín. akstur er frá
Sogndal til Amla Musseum í
Kaupanger, en það er meðal
fullkomnari fornminjasafna á
Norðurlöndum. Leiðsögumaður er
þar, og leiðbeinir og svarar
spurningum.
Frá Sogndal liggur leiðin eftir
þjóðvegi nr. 55 til Lom í Guð-
brandsdal. Ekið er þá yfir Sogne-
fjell, en af veginum má sjá til
hæstu fjalla Noregs og jökultunga
ekki fjarri.
Frá Lom, sem er meðalstórt
þorp, liggur vegurinn til Otta, en
þar mætast margar leiðir, og segja
má að „vegir liggi til allra átta“.
Fyrir þá sem vilja fara norður
eftir landinu, er rétt að aka inná
Evrópuveg 6 (E 6) og má fylgja
þeim vegi yfir Dofrafjöll, um
Þrændalög, Namskóga, Mo í Rana,
Narvík, Alta og alla leið til
Kirkeness. Þegar svo langt er
komið er skammt til rússnesku
landamæranna, sem stranglega er
gætt og því óráðlegt að freista þess
að fara yfir þá markalínu.
A leiðinni frá Otta til Narvíkur,
er ekið um þrjá fjallvegi, sem allir
eru greiðfærir yfir sumarmánuð-
ina, en það eru Dofrafjöll, Nam-
skógar og Saltfjallið. Á Dofrafjöll-
um er veitingahúsið Dovregubbens
hall (Höll Dofra), og fyrir þá sem
hafa áhuga á frumlegum húsbygg-
ingum er rétt að staldra við og líta
inn.
Akvegur er nú til Nord Kapp,
nyrzta anness Noregs, sem liggur
á 71. gráðu norðlægrar breiddar,
en vegalengd þaðan til norður-
heimskauts um 2100 km. Mið-
nætursólar nýtur þar frá 14. maí
til 30. júlí.
Mikill fjöldi erlendra ferða-
manna leggur leið sína til Nord
Kapp, en ekki eru allir svo
lánsamir að sjá miðnætursól, en
slíkt ákvarðast eðlilega af veður-
fari.
Namskógarnir fyrir norðan
Þrændalög eru geisi víðáttumiklir
skógar og fjallendi. Nokkrar
Lappafjölskyldur hafast þarna við
með hreindýr sín, en selja einnig
skinn, horn og handunna muni.
Verðlag á þessu er mjög mismun-
andi, en yfirleitt lægra norður í
landinu.
Á Saltfjallinu er ekið yfir
Sauðnaut voru flutt frá Grænlandi, til Noregs fyrir nokkrum
áratugum. Þau lifa m.a. vilt á Dovrafjöllum, og eru friðuð.
Fyrir þá sem hugsanlega vilja
aka um Noreg og skoða land og
kynnast þjóð er rétt að afla sér
upplýsinga fyrirfram. Haldgóðar
upplýsingar um gististaði, vega-
lengdir, ferjusambönd, söfn o.fl. er
að finna í N.A.F.s VEIBOK, sem
Norges autobil forbond, Oslo,
gefur út árlega.
Ferjustaður í Vestur-Noregi. Djúpir firðir og há fjöll einkenna
landslagið.
heimskautsbauginn, en gróður er
þar svipaður og á íslenskum
heiðalöndum. Margir ferðamenn
staldra þarna við, og sumir aka
inná hliðarveg inní svokallaðan
Junkerdal, en þar vaxa margar
norrænar plöntutegundir, sem
sumar hverjar eru sjaldgæfar.
Gróður þarna er friðaður.
Þegar komið er norður fyrir
Narvík, verður skógurinn lágvaxn-
ari og við tekur lágvaxið birki og
veðurbarin furutré. Fjöllin eru
þarna lægri og víðsýni meira yfir
heiðar og kjarrskóga. Vetrarríki er
þarna mikið og árið 1966 mældist
50 stiga frost við Karasjokk á
Finnmörk. Sumarhiti er þarna
mjög misjafn, og hafa skipst á
köld sumur með 10—15 stiga hita
eða hlý sumur, eins og það sumar
sem nú er að líða, með 20—30 stiga
hita dögum saman.
Tilbúið undir
tréverk
Spóahólar
3ja herb. íbúð á annarri hæð.
5 herb. íbúð á þriöju hæð.
íbúðirnar afhendast 1. apríl
1979. Beðið eftir húsnæðis-
málastjórnarláni.
Svavar Örn Höskuldsson,
múrarameistari,
símar 75374 og 73732 á kvöld-
in.
Þetta hús
er til sölu
Húsið er á eignarlóð og er um
60 fm með tveimur íbúðum,
ásamt 4—5 herbergjum í risi.
Danfoss hiti. Verð 18 millj. og
útborgun ca. 12 millj.
Upplýsingar gefur fasteignasal-
an Hús & Eignir Bankastræti 6,
sími 28611.
26200
Ávallt mikiö
úrval
fasteigna
á söluskrá.
.FASTEIGNASALMl
ÍMMBLABSHtall
Oskar Kristjánsson
! MÁLFLl TM.\GSSKRIFSTOFA)
Guðmundur Pétursson
Axel Einarsson
hæstaréttarlögmenn
FASTEIGN ER FRAMTÍD
2-88-88
Til sölu m.a.
Viö Skipasund 2ja og 5 herb.
íbúöir.
Viö Grettisgötu 4ra herb.
íbúöir.
Viö Æsufell 4ra herb. íbúö.
Viö Torfufell raðhús, rúmlega
tilbúiö undir tréverk.
Viö Skipholt skrifstofu- og
iðnaðarhúsnæði.
í Kópavogi
100 ferm. verzlunarhúsnæði og
170 ferm. iðnaðarhúsnæði.
Á Álftanesi
Fokhelt einbýlishús.
Góð fjárjörö á Austurlandi.
Erum með fasteignir víöa um
land á söluskrá.
Vantar fasteignir af ýmsum
stæröum og gerðum til sölu-
meöferðar.
AÐALFASTEIGNASALAN
Vesturgötu 17, 3. hæð,
Birgir Ásgeirsson. lögm.
Haraldur Gíslason.
heimas. 51119.