Morgunblaðið - 30.08.1978, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 30.08.1978, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. ÁGÚST 1978 Sigrún Jóns- dóttir heldur sýningu í Stokkhólmi SÍRrún Jónsdóttir listakona opnar sýningu á verkum sínum í Helandsgalleríinu í Stokkhólmi hinn 2. september næstkomandi. Sýningin er á vegum mcnningarsambands sænsku kirkjunnar og mun hún standa í þrjár vikur. Sigrún sagði það vera mikinn heiður fyrir sig að sýna í þessu virta galleríi en Erró er eini Islendingurinn sem hefur sýnt þar til þessa. Fyrir tveimur árum var Sigrún með sýningar í Svíþjóð, þar á meðal í Stokkhólmi. I sambandi við þær sýningar fékk hún pöntun frá forráða- mönnum Skandinavíska bankans í Svíþjóð þess efnis að vefa fyrir þá veggteppi. Af tíu uppdráttum sem hún sendi þeim völdu þeir mynd af Skaftafelli. Sigrún útfærði teppið í tólf mótív áður en hún ákvað endanlega gerð þess. Teppið, sem nú er tilbúið, er ofið á mjög nýstárlegan hátt og sagði Sigrún að hún notaði fjórar nýjar aðferðir við góbi- línvefnaðinn sem hún notaði er hún óf teppið. „Það hefur tekið huga minn algjörlega í tvö ár,“ sagði Sigrún. „Ég er lærð vefnaðarlistakona frá Svíþjóð en sem Islendingur er það tilfinningamál fyrir mig að sýna einhver tilþrif, eitthvað annað en það sem ég lærði á Svíþjóð. Þess vegna fór ég út á þessar nýju brautir," sagði hún. Sigrún óf myndina austur í Vík í Mýrdal og smíðaði sér til þess lítinn steinaldarvefstól og part úr teppinu óf hún með óunninni sauðaull. A sýninguna í Svíþjóð fer Sigrún með glerglugga, batik- muni, hökla og altaristöflur. Einnig ætlar hún að reyna að hafa teppið sem hún óf fyrir Skandinavíska bankann á sýn- ingunni en hún á að afhenda það í september. SÍKrún Jónsdóttir fyrir framan myndina sem hún óf fvrir Skandi- navíska bankann. Ljósm. Krislján. jr a óperuna Atli Heimir Svéinsson hlær mikið þegar hann talar. Og talar mikið þegar hann hlær. „Ég held að tónlistarmenn séu yfirleitt geysilega kátir,“ sagði hann. „Þetta eru menn sem eru oft mikið einir, og þeir eru lífsglaðir þegar þeir hittast. Þeir hafa allir hver sína skemmtilegu sérvizku og áhugamál. Ég hef aldrei haft neitt hobbí, — nema það hvað ég les mikið. Ég held ég hafi jafnvel meira gaman af bókmenntum en tónlist." Tónsmíðar Atla Heimis upp á siðkastið tengjast einmitt meira og minna bókmenntum. Hann var til dæmis að ljúka við fáein sönglög sem hann gerði við japanskar ljóðaþýðingar Helga Háifdanarsonar. „Nei, ég var ekkert að elta einhvern japanskan blæ í lögun- um, enda er Helgi slíkur ljóðaþýð- andi að þetta gæti allt eins verið íslenzkur kveðskapur. Ég held það sé ekki hægt að stæla japanska músík. Ég hlusta einmitt mikið á japanska músík. En það er annað við þetta: Þessi ljóð eru ákaflega áreynslulaus, á svipaðan hátt og gömul japönsk myndlist, með fíngerðum, léttum dráttum. Og ég held að þessi músík mín sé líka svona áreynslulaus. Ég reyndi að slétta svolítið út mun á tali og söng er ég samdi hana, svo að það væri voðaiega lítill munur á þvi hvort maður syngi ljóðin eða mælti þau fram.“ Auk þess hefur Atli Heimir nýverið samið rúmlega 70 mínútna tónverk við ljóð Ólafs Jóhanns Sigurðssonar, tónlist við ljóð sænska skáldsins Edith Södergran og lítinn sönglagaflokk við ljóð fyrir börn eftir Matthías Johannessen. Og nú ætlar hann að taka upp þráðinn við óperu, sem fór að skríða út úr flyglinum fyrir hálfu ári. „Það að gera svona óperu er eins og svolítil úthafssigl- ing,“ sagði Atli Heimir. „Ég er ekki farinn að sjá til lands, en myndin er að skýrast." „Það er mjög gaman að ganga í gegnum þetta bókmenntalega tímabil. Ef ég iít um öxl, þá skrifaði ég á sínum tíma stór og fyrirferðarmikil hljómsveitarverk. Það var í 4—5 ár sem mér fannst ég verða að gera það. Að því loknu tók við kammermúsíktímabil, og eftir það hafa þessi söngverk verið að koma. Ég get ekki neitað því, að ég brenn á skinninu. Ég er ekki búinn með þetta söngtímabil. Og ef ég lýk við óperuna, verður hún örugglega ekki sú síðasta." Leikstjórn í músík Það kom á daginn, að efniviður óperunnar er líka sóttur til Japans; í gamla sögn, sem varð eiginlega af tilviljun samferða Atla Heimi í flugvél yfir Banda- ríkjunum. Nú hyggst hann reyna að fullgera hana á þessu ári. „Kollegar mínir tala margir um að óperuformið sé úrelt og staðn- að. Én þó elska þeir það allir á laun. Og þegar við setjumst niður og tölum saman undir fjögur augu, kemur yfirleitt í ljós að þeir eru að leita að óperutexta." Óperan er unnin í samráði við Örnólf Árnason, sem gerði text- ann. „Öll mannanna verk eru í sjálfu sér forgengileg.“ „Stamstarfið hefur að vísu þann ókost, að Örnólfur getur ekki fengið að heyra tónlistina. Það hefur þó komið fyrir, að ég hef setzt við píanóið og æpt fullum hálsi. I raun og veru er gerð óperu eins konar leikstjórn í músík. Það verður að skrifa músíkina tilbúna til að ná réttum atburðahraða og áherzlu á innihaldið, útmálun á því sem er að gerast á sviðinu. Þannig verð ég að notast við viss orð og áherslur svo að útkoman hljómi sem tiltölulega eðlilegur leikur, — og textinn komist til skila. Slíkt er auðvitað eilíft vandamál í óperunni. Hugsaðu þér hvað óperusöngvari nú á dögum þarf að geta. Kröfurnar hafa breytzt svo að það gengur ekki lengur að standa á sviðinu eins og illa gerður hlutur og syngja eitthvað sem varla skilst með gullfallegri rödd. Nú þarf söngvar- inn að vera fullkominn leikari auk söngsins. Ég lít alls ekki á óperuna sem músík fyrst og fremst,“ sagði Atli Heimir. „Hún er í raun og veru þetta dásamlega sjónarspil, þar sem allir þættir leikhússins flétt- ast saman. Hún , á ekki að vera bara röð af fallegum aríum, mér leiðist sú ópera, heldur samofnir allir þessir þættir leikhússins með músík. Hún er þá aðeins einn þátturinn. — Ég hef alltaf verið mjög veikur fyrir leikhúsinu. Þegar maður vinnur fyrir leikhús þarf maður að geta brugðið sér í aiira kvikinda líki.“ Atli Heimir kvaðst vera alæta á Myndir: Emilía. músík, og við ræddum um gamla og nýja, góða og slæma músík, sem svo er stundum skilgreind. „Ég hlusta svolítið á pop, og þá á nákvæmlega sama hátt og aðra músík. Manni finnst sumt gott og annað ekki, og það hefur alltaf verið samin bæði góð og slæm músík. Á tímum þessara klassísku meistara var samið mikið af lélegri músík. Mikið af þessu poppi finnst manni náttúrulega óskap- lega ómerkilegur iðnaður, en þar er líka ýmislegt sem er alveg frábært. — En þetta með gamla og nýja músík. Ég sé ekkert gamalt við beztu verk Beethovens og Mozarts. Öll mannanna verk eru í sjálfu sér forgengileg, og auðvitað kemur sá tími að verk þessara gömlu manna verða forgengileg. Poppið líka. Ég held það sé ekki hægt að halda uppi einhverri list sem er hætt að höfða til fólks. Og auðvitað er það mótsögn að segja að eitthvað sé sígilt. En það er mín trú að þessi gömlu verk eigi eftir að höfða til fólks í töluvert langan tíma.“ Eyjan á bak við heiminn Atli Heimir á skrautlegt bóka- safn og hann játti því að hann hefði stundum óskað sér að hann legðist í veikindi svo að hann gæti gefið sér tíma til að lesa meira. „Ég hef einmitt verið að hugsa hvað við eigum mikið af góðum ljóðskáldum," sagði hann. „Það er ótrúlegt hvað hér er margt vel ort, og alveg sérstaklega hvað menn eru ólíkir í stíl og sýn á lifið. — Ég hef búið mikið í útlöndum, og þegar ég lifi hér á þessari eyju svo voðalega langt frá öðrum löndum finnst mér stundum sem hún liggi á bak við heiminn. Þetta er anzi skemmtilegt, því að við liggjum á milli tveggja meginlanda og getum tekið við straumum úr öllum áttum. En það er alltaf svolítið erfitt að sigla og halda sér í gegnum þennan heim, þar sem stóru þjóðirnar gera það sem þær vilja. Og þar sem við höfum valið að stofna lýðveldi hér úti í hafinu verður að athuga, að eitt af því sem réttlætir slíkt fyrir sjálfum okkur og öðrum er sjálfstæð listsköpun. Þetta er viss krafa um persónulega tjáningu og sýn á lífið, ákveðinn frumleika. Það er slæmt að einangra sig um of, en erlendir straumar geta verið slæmir ef við erum farnir að stæla þá í sífellu. Við verðum að sigla bil beggja." — HHH. „Þegar unnið er fyrir leikhús þarf maður að geta brugðið sér í allra kvikinda líki."

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.