Morgunblaðið - 20.09.1978, Blaðsíða 32
Mikill mannfjöldi í
jafnréttisgöngunni
Jafnréttistíanxa SjálfsbjarRar
fór fram í ga'r og tók þátt í hrnni
mikill fjiildi bæói fatlaðra
ófatlaóra.
Lötírenlan vilcli ekki Kefa upp
neina tölu um mannfjöldann en
sukóí aö Könjíumenn hefðu skipt
þúsundum ok þeir kv&ðu Könnuna
þá ánæjijuleKUStu kröfuKönKu-sem
þeir hefðu fylpst með.
Genfíið var frá Sjómannaskólan-
um, lafit af stað kl. 3 e.h., Of; fíenfíið
til Kjarvalsstaða þar sem horfjar-
stjórn ofí borfjarstjóri tóku á móti
fötluðum. A Kjarvalsstöðum voru
síðan flutt ávörp bæði af hálfu
borfíarstjórnar ok fatlaðra og lauk
fundinunt kl. ti.
Sjá nánar. „Erum bjart-
sýnir á að aðgerðirnar veki
horKarstjórn og almenninft
til umhutjsunar" á hls. 16.
JAFNRÉTTI — Fatlaðir gengu í gær fylktu liði til Kjarvalsstaða á fund
borgarstjórnar. Þrátt fyrir rigningu tóku margir þátt í göngunni en
myndin er af hluta göngumanna.
Ljósm. Emiiía
STJÓRN Flugleiða fjallaði á fundi si'num í gær um kauptilboð DC-10
breiðþotu, en vélin er tilbúin til afhendingar á næstu mánuðum og eru
skilmálar með svipuðu fyrirkomulagi og á DC-8 þotum félagsins.
Engin ákvörðun var tekin í málinu á fundi Flugleiða í gær, en það
verður rætt við innlenda og erlenda aðila.
Fiskverðið þarf að
hækkaum 13% miðað
við sama aflamagn
N/ERRI lætur að fiskverð þuríi
að hækka um það bil um 13% til
þess að sjómenn njóti sömu
kaupgjaldsþróunar og verkafólk
í landi. Frá því í októbcr í fyrra
hefur kaupgjald verkamanna
hækkað um það bil um 45% og
nærri lætur að það sé einnig
meðaltalshækkun fyrir alla laun-
þega landsins. en á sama tíma
hafa kjör sjómanna hækkað um
28.3%. A vantar 13.1% til þess að
sama hlutfallshækkun verði á
kaupgjaldi sjómanna og land-
verkafólks.
Fiskverð á að hækka nú 1.
október og er nú verið að fjalla um
hækkun þess í Verðlagsráði
sjávarútvegsins og yfirnefnd. Síð-
asta hækkun fiskverðs var 13,5%
og varð sú hækkun 1. júií. Þar áður
hækkaði fiskverð 1. janúar um
13%. Sé gert ráð fyrir óbreyttu
aflamagni hækka kjör sjómanna
um sömu hlutfallstölu, þar sem
eru hlutaskipti svo sem er á öllum
bátaflotanum.
I þessu sambandi má geta þess,
að við samanburð á launum
sjómanna og verkamanna, sem
fram kemur í verðbólguskýrslunni,
sem verðbólgunefndin svokallaða
gaf út í febrúar 1978, var í október
1977 talsverður munur. Þá var
samkvæmt áæltunartölum kaup-
gjald sjómanna 41% hærra en
kaupgjald verkamanna. I desem-
ber hafði þessi munur mjókkað í
22%. Þá hefur hann aftur breikkað
hinn 1. janúar, er fiskverð hækk-
aði.
DC-10 breiðþota í búningi Loftleiða
Alfreð Elíasson forstjóri Flug-
leiða sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gær að hér væri um að
ræða tilboð frá Seaboard-félaginu
bandaríska sem hefði haft milli-
göngu um DC-8 þotur Flugleiða og
væri þessi breiðþota gerð fyrir allt
að 380 sæti, alveg ný og m.a.
sérstaklega styrkt þannig að hún
gæti sinnt vöruflutningum.
„Ef saman gengur í þessum
samningum, þá getur vélin orðið
tilbúin mjög fljótlega, en hins
vegar væri ugglaust heppilegra að
taka slíka vél í notkun að vorlagi
þegar farþegafjöldi félagsins er
mestur. Þetta er þó allt mjög laust
í reipunum ennþá og það á eftir að
ræða málið betur, bæði við erlenda
aðila og íslenzk stjórnvöld, en
kaupleigusamningurinn getur ver-
ið breytilegur, t.d. 7 ár eða 15 ár.
Ýmsa aðra þætti málsins á eftir að
athuga nánar.“
Þá hefur Morgunblaðið aflað sér
upplýsinga um það að tilboð
Seaboard miði við það að það
fyrirtæki sjái áfram um viðhald
véla Flugleiða, en hins vegar munu
Flugleiðir hafa hug á að flytja þá
framkvæmd til Cargolux í Luxem-
burg sem hefur mjög fullkomna
aðstöðu til vélaviðhalds og eftirlits
þar.
Þetta mun vera fyrsta breiðþot-
an sem Flugleiðum er boðin með
eins hagstæðum kjörum og gilt
hafa um fyrri vélar félagsins, en af
og til koma sölutilboð um flugvél-
ar til Flugleiða. M.a. mun félagið
nú hafa undir höndum tvö tilboð
um B-747 breiðþotu eins og
Cargolux hefur samið um, en bæði
747 og DC-10 geta notað breiðþot-
ur af gerðinni DC-10 eins og stjórn
Flugleiða fjallaði um á löngum
fundi í gær, en sú vél getur tekið
380 farþega. DC-8 þotur Flugleiða
taka 249 farþega.
Dregið úr kaup-
um olíu frá Sovét
SAMNINGAlí um kaup á
brennsluolíum og bensíni fyrir
na'sta ár hafa verið gerðir milli
viðskiptaráðuneytisins og Sojuz-
nefteexport og voru þeir undirrit-
aðir í Moskvu hinn 8. september
Flugleiðir segja upp starfs-
mönnum 67 ára og eldri
STJÓRN Flugleiða ákvað fyrir nokkru að segja upp störfum þeim starfsmönnum Flugleiða sem
orðnir eru 67 ára og eldri og tckur ákvörðunin gildi frá og með 1.- janúar n.k. og hefur þeim
starfsmönnum, sem hér eiga hlut að máli verið sent bréf um þetta efni. Eftir þeim upplýsingum. sem
blaðið fékk hjá Flugleiðum í gær er hér um að ræða nær 20 starfsmenn, sem náð hafa þessu
aldursmarki og fram kom hjá Svcini Sæmundssyni, blaðafulltrúa Flugleiða. að hluti þess hóps væri
kominn á áttræðisaldur.
Karl Steinar Guðnason, formað-
ur Verkalýðs- og sjómannafélags
Keflavíkur og nágrennis, sagði í
samtali við blaðið í gær, að
nokkrir þeirra starfsmanna Flug-
leiða, sem þarna ættu hlut að máli
væru félagar verkalýðsfélagsins í
Keflavík. rr ... ,, ... .
Hefði felagið akveðið að
bregðast hart við þessum upp-
sögnum. Gert var ráð fyrir að
stjórn félagsins kæmi saman til
fundar til að fjalla um þetta mál í
gærkvöldi. Karl Steinar sagði að
unpsagnir á starfsmönnum 67 ára
tíðkuðust hvergi annars stað-
ar á Suðurnesjum og þá teldi
hann ekki síst óeðlilegt að miða
við 67 ára aldur í þessu tilfeili, þar
sem eftirlaunagreiðslur úr lífeyr-
issjóðum verkalýðsfélaganna hæf-
ust ekki fyrr en viðkomandi væri
70 ára.
Sveinn Sæmundsson, blaðafull-
trúi Flugleiða, sagði að nokkuð
væri frá því að stjórn Flugleiða
hefði samþykkt þetta og væri í því
efni fylgt fordæmi frá öðrum
flugfélögum. I bréfum til þeirra
starfsmanna, sem þarna ættu hlut
að máli hefði verið tekið fram að
ef um sérstakar aðstæður væri að
ræða þá væri unnt að breyta út af
þessari reglu. Þá kom fram hjá
Sveini að nú væri unnið að
samningu reglugerðar um að
flugmenn hættu störfum þegar
þeir næðu tilteknum aldri en
samningu hennar væri ekki lokið.
Gert væri ráð fyrir að aldurs-
markið yrði 60 til 65 ára. í
Brétlandi væru flugmenn látnir
hætta vegna aldurs fyrr eða 55 ára
og í Bandaríkjunum 60 ára.
sl. Er samkvæmt þessum samn-
ingum gert ráð fyrir að Islend-
ingar kaupi nokkru minna magn
af gasolíu og bensíni frá Sovet-
rikjunum en samningur þessa árs
gerir ráð fyrir og sagði Þórhallur
Asgeirsson. ráðuneytisstjóri í
viðskiptaráðuneytinu. að megin-
ástæða þess að dregið væri úr
kaupum frá Sovétmönnum væri
sú að á næsta ári yrði væntanlega
keypt meira af gasolíu og bensíni
frá Portúgal en gert hefði verið í
ár.
I samningnum er samið um
kaup á olíum og bensíni fyrir
14.700 milljónir króna miðað við
núgildandi verðlag og gengF en
samið var um kaup á 184.000
tonnum af gasolíu, 130.000 tonnum
af fuelolíu og 82.000 af bensíni.
Gasolíumagnið er 16.000 tonnum
minna en þessa árs samningur
gerir ráð fyrir og bensínmagnið
8000 tonnum minna. Hins vegar er
umsamið fuelolíumagn óbreytt frá
því, sem það er í ár.
Að því er segir í frétt frá
viðskiptaráðuneytinu hefur ráðu-
neytið framselt samninginn ís-
lensku olíufélögunum, sem hafa
annast olíuviðskiptin við Sovétrík-
in frá því að þau hófust 1953.
Flugleiðum boðin
DC-10 breiðþota með
kaupleiguskilmálum