Morgunblaðið - 29.09.1978, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FOSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 1978
r
Stundakennarar við HI:
Vikuverkfall
í nóvember
STUNDAKENNARAR við Há-
skóla íslands hafa ákveðið að
fara í einnar viku vcrkfall í
byrjun nóvember til að fylgja
eftir kröfum sínum í launadeilu.
sem þeir eiga nú í við íjármála-
ráðuneytið. Björn Teitsson. einn
stundakennara við Háskólann.
sagði í samtali við Morgunbiaðið
í gær. að þessi ákvörðun um
boðun verkfalls stæði nema eitt-
hvað yrði komið til móts við
kröfur þeirra fyrir þann tíma.
sem verkfallið væri áætlað en
daBsetninjí þess hefði ekki verið
ákveðin að öðru leyti en það yrði
fyrst í nóvember.
Björn sagði að stundakennarar
við Háskólann teldu launakjör sín
til muna lakari en fastra kennara
ok þar væri á óeðlilegur munur.
Benti Björn á að stundakennarar
kenndu meira en helming allrar
kennslu við Háskóla Islands en
fyrir það fengju stundakennarar
6 skip með
1650 lestir
LÍTIL loðnuveiöi hefur verið síðustu
daga, en þó tilkynntu sex skip um
afla í gær samtals 1650 lestir. Aflann
fengu flest skipin undan Scoresbys-
undi í fyrrakvöld, en í gærmorgun
gerði brælu á miðunum. Þá fékk Jón
Finnsson GK loðnu um 120 mílur
norður af Horni, en þar hefur ekki
fengist loðna í langan tíma. Mörg
loðnuskipanna eru nú komin á þau
mið, en þar var komin bræla í gær.
Skipin sem tilkynntu um afla í
gær eru þessi: Jón Finnsson GK 310
lestir, Helga 2, RE 280, Albert GK
400, Keflvíkingur KE 360, Gígja RE
360 og Bergur 2. VE 50 lestir.
að þeirra eigin mati meir en
helmingi lægra kaup en fastir
kennarar, sem kenndu jafn mikið.
„Við teljum þetta óréttlátt en
hins vegar er okkur ljóst hvernig
þetta er reiknað. Að hluta byggist
þetta á rannsóknarþætti fastra
kennara en það er þó ekki öll
skýringin. Við fengum þau svör
hjá samninganefndarmönnum rík-
isins á síðasta samningafundi í
fjármálaráðuneytinu að tilboð
þeirra þá væri lokatilboð, þannig
að við erum ekki allt of bjartsýnir
eins og stendur," sagði Björn.
17340 tunnur
af síld komnar
á land á Höfn
Höfn, 28. september.
SÍLDARAFLINN, sem borist
hefur á land á þessari vertíð
hér á Ilöfn. er nú orðinn 17310
tunnur og þar af var aflinn í
gær 1200 tunnur.
Fram að þessu hafa bátarnir
aðallega fengið síldina úti af
Stokksnesi en í fyrrinótt var
aðalveiðin við Hrollaugseyjar
og virðist síldin vera að ganga
vestur með landinu. Síldin, sem
veiðst hefur síðustu daga, er
feitari og átumeiri en sú, sem
veiðst hefur fram að þessu.
Aflahæstu bátarnir sem
landað hafa á Höfn eru nú Bára
með 1232 tunnur, Æskan með
1986 tunnur, Þórir með 1018
tunnur, Hvanne-y með 951
tunnu, Freyr með 891 tunnu,
Steinunn með 867 tunnur og
Skógey með 824 tunnur. Allir
eru þessir bátar frá Höfn.
— Elías.
Ragnar H. Ragnar skólastjóri Tónlistarskóla fsafjarðar og hciðursborgari ísaf jarðar varð áttræður í gær og er
þessi mynd tekin í afmælishófinu, en á henni eru talið frá vinstrii Ragnar H. Ragnar, Anna Áslaug, dóttir hans,
þá Sigríður Jónsdóttir kona Ragnars, síðan tvö börn hans, Sigriður og Hjálmar Helgi og loks Jónas Tómasson
tengdasonur Ragnars. Ljósm. Árni.
Samband ísl. bankamanna um vísitölunefndina:
Ríkisstjórnin úti-
lokar bankamenn
BANKASTARFSMENN eru mjög óánægðir með að þeir skuli hafa verið sniðgengnir þegar
vísitölunefndin var skipuð af ríkisstjórninni. Hefur stjórn Sambands íslenskra bankamanna
sent ríkisstjórninni bréf, þar sem því er harðlega mótmælt að í nefndinni eigi sæti fulltrúar
allra heildarsamtaka launþega í landinu nema Sambands íslenskra bankamanna. Segir stjórnin
að fámennari samtök en samtök bankamanna eigi þar hins vegar sæti.
samkomulagi um nýtt vísitölu-
kerfi sem gildi fyrir alla laun-
þega í landinu, þar á meðal
bankamenn. Samtök banka-
manna séu hins vegar útilokuð
frá því að hafa áhrif á gang mála
og niðurstöðu nefndarinnar.
Stjórn Sambands banka-
manna segir þá ákvörðun að
útiloka ein heildarsamtök frá
því að eiga fulltrúa í nefndinni
óskiljanlega. Ekki verði annað
séð, en nefndinni sé ætlað það
hlutverk að freista þess að ná
Bæjarstjórn Garðabæjar hafnar
breikkun Hafnarfjarðarvegarins
B/EJARSTJÓRN Garðabæjar hefur samþykkt aö hafna þeirri skipulagstillögu að breikka Hafnarfjarðarveginn á
milli Arnarneslækjar og Engidals og var sú ályktun samþykkt samhljóða á fundi bæjarstjórnar fyrr í þessum
mánuði. Er í ályktuninni bcnt á, að skipulagstillögur þær, sem hér um ræðir, hafi verið bæjarbúum til sýnis og
hafi komið fram tvær athugasemdir. Önnur undirrituð af 1057 íbúum þar sem breikkun Hafnarfjarðarvegarins er
mótmælt og hin frá 2 íbúum um fleiri atriði. í ályktun sinni hvetur bæjarstjórnin vegagerðina til að auka öryggi
gangandi og akandi vegfarenda um þann hluta Ilafnarfjarðarvegarins, sem liggur um bæinn. Einnig samþykkti
bæjarstjórn Garðabæjar að óska eftir því að skipulagsstjóri efndl til fundar með fuUtrúum Vegagerðarinnar og
fulltrúum bæjarstjórna Garðabæjar og Hafnarfjarðar en í kvöld verður sameiginlegur fundur bæjarfulltrúa í
Garðabæ og Hafnarfirði um málið, en gert er ráð fyrir að sameiginlegur fundur bæjarstjórnanna, skipulagsstjóra
og Vegagerðarinnar verði síðar.
Garðar Sigurgeirsson, bæjarstjóri
í Garðabæ, sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að bæjarstjórn
Garðabæjar vildi með þessum við-
ræðum við Hafnarfjarðarbæ og aðra
aðila leita eftir samstöðu um þjóð-
vegagerð á þeim svæðum sem snerti
þessi tvö bæjarfélög öðrum fremur.
Um það hvaða leið yrði valin til
lausnar þessum vanda sagði Garðar,
að á þessu stigi væri ekki hægt að
fullyrða neitt um það en af hálfu
Garðbæinga væri spurningin hvort
næsta vegaframkvæmd á þessum
slóðum yrði lagning Reykjanes-
brautar frá Kaplakrika og fyrir ofan
Garðabæ yfir að Breiðholtshverfi
eða Sjávarbrautar vestan Hafnar-
fjarðar.
í ályktun bæjarstjórnar Garða-
bæjar er þeim tilmælum beint til
Vegagerðarinnar að gerðar verði
þegar í stað sérstakar ráðstafanir
vegna gangandi vegfarenda, annars
99
Stóðum ekki í vegi
fyrir einu né neinu
— segir Karl Steinar Guðnason
99
„MÉR ER ekki kunnugt um annað
en fulltrúar Bandalags starfs-
manna rfkis og bæja hafi fallist á
þessar ráðstafanir í viðræðum við
þá stjórnmálaflokka. sem mynda
ríkisstjórnina,“ sagði Karl Steinar
Guðnason, varaformaður Verka-
mannasambands íslands og alþing-
ismaður er hann var spurður álits á
þeim ummælum Kristjáns Thorla-
ciusar, formanns BSRB, að forusta
Verkamannasambandsins og hópur
stjórnmálamanna vilji ekki að
kjarasamningarnir taki gildi nema
gagnvart hluta launafólks.
Karl Steinar sagðist verða sam-
mála Kristjáni um að launasamtökin
þyrftu að móta heildarstefnu í
launamálunum og einnig að allt
krukk í samningana í þá veru að
skekkja þá og skæla ætti ekki að
viðgangast. „Við hjá Verkamanna-
sambandinu stóðum ekki í vegi fyrir
einu né neinu í þessu efni en lögðum
á það áherslu að þegar þrehgdi að í
þjóðarbúinu ætti hlutur hinna lægst
launuðu að vera í fyrirrúmi," sagði
Karl Steinar.
vegar við fyrirhugaðan Arnarnesveg
og hins vegar öðru hvorum megin
Arnarneslækjar og fyrri samþykkt
bæjarstjórnarinnar um legu vegar-
ins milli Kópavogs og Arnarneslækj-
ar er staðfest. Þá segir um Hafnar-
fjarðarveginn:
„Slysatíðni á veginum er slík, að
aðgerðir til úrbóta þola enga bið. Átt
er við uppsetningu umferðarljósa við
Vífilsstaðaveg og Lyngás, afmörkun
vegarins á milli Vífilsstaðavegar og
Hraunholtslækjar og lokun inn- og
útaksturs á veginn á þessum kafla,
og ráðstafanir vegna gangandi
vegfarenda. Væntir bæjarstjórnin
þess, að fullt samráð verði haft við
hana um útfærslu þessara aðgerða."
Bæjarstjórnin mun að því er segir
í ályktuninni leita stuðnings ríkiá-
valdsins (framlags úr 25% þéttbýlis-
‘ vegasjóði) til þess að ljúka Bæjar-
braut frá Vífilsstaðavegi að fyrir-
huguðum Arnarnesvegi. Jafnframt
mun hún mælast til þess að vega-
gerðin leggi þann stutta kafla
Arnarnesvegar, sem verður á milli
Hafnarfjarðarvegar og Bæjarbraut-
ar. Tilkoma þessarar vegatengingar
mun létta talsvert umferð af mótum
Vífilsstaðavegar og Hafnarfjarðar-
vegar og greiða fyrir umferð um þau
gatnamót. Tekið er fram, að lega
Árnarnesvegar sé þegar samþykkt
sem skipulag og enginn ágreiningur
sé um legu Bæjarbrautar.
Krefst stjórn SÍB þess að fá
fulltrúa í nefndina, þrátt fyrir
að viðskiptaráðherra hafi lýst
því yfir hinn 22. þessa mánaðar,
að skipan nefndarinnar verði
ekki breytt.
„Verði ekki fallist á þessa
sjálfsögðu kröfu stjórnar Sam-
bands íslenskra bankamanna
verður að líta á vinnubrögð
ríkisstjórnarinnar í þessu máli
sem lítilsvirðingu við stéttar-
samtök bankamanna," segir í
yfirlýsingu stjórnar SÍB. Jafn-
framt lýsir stjórn SIB yfir því,
að verði ekki breyting á afstöðu
ríkisstjórnarinnar geti það leitt
til þess að endurskoðuð verði
afstaða samtakanna til þátttöku
í öðrum nefndum um kjaramál,
sem ríkisstjórnin hefur boðið
bankamönnum þátttöku í.
Aukaþing
SUS um
helgina
AUKAÞING Sambands ungra
sjálfstæðismanna verður haldið nú
um helgina að Valhöll, Þingvöllum
og hefsí kl. 10i00 f.h. á laugardag.
Ráðgert er að því ljúki um
kvöldmatarleytið á sunnudag. Eitt
hundrað og fimmtíu fulltrúar,
víðsvegar að af landinu, hafa nú
þegar boðað komu sína á þingið og
er því búizt við fjölmenni. Aðal
umræðuefni þingsins verða: Kjör-
dæmamálið, Verðbólgan, Starf
Sambands ungra sjálfstæðismanna
og Starf og skipulag Sjálfstæðis-
flokksins í stjórnarandstöðu. Undir-
búningsnefndir hafa starfað að
þessum málaflokkum og skilað áliti.
Þingfulltrúum skal bent á, að
notfæra sér ferð frá Valhöll,
Háaleitisbraut 1, kl. 09:00 f.h. á
laugardag.
Félag ísl. fiskmjölsframleiðenda:
Rætt verði við Norð-
menn um verndun ís-
lenzka loðnustofnsins
AÐALFUNDUR Félags íslenskra
fiskmjölsframleiðenda, sem hald-
inn var sl. mánudag, samþykkti
ályktun þar sem látnar eru í Ijós
miklar áhyggjur af ofveiði á
fslenska loðnustofninum vegna
veiði Norðmanna við Jan Mayen
nú í sumar og segir í ályktuninni
að hér sé um að ræða 150.000
tonn, sem séu fyrir utan heildar-
veiðikvótann, sem Norðmenn
höfðu sett sér að veiða á seinni
hluta ársins.
Benda fiskimjölsframleiðendur
á að nú hafi komið í ljós að loðna
merkt her við land hafi komið úr
þessum afla, þar sem merki hafi
fundist í verksmiðju í Noregi. Megi
því telja öruggt, að loðnan sem
veidd hefur verið við Jan Mayen sé
af íslenskum stofni. Þá segir í
ályktuninni:
„Vegna þessa skorum
við á stjórnvöld að taka upp
viðræður við Norðmenn um sam-
eiginlegar aðgerðir til verndunar
íslenska loðnustofninum, þar sem
hann er veiddur af báðum þjóðum
eins og veiðarnar við Jan Mayen
sýna glögglega."