Morgunblaðið - 30.09.1978, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 1978
Of lág daggjöld undirrót erfiðleikanna segja forráðamenn spítalans
LANDAKOTSSPÍTALI á við töluverða fjárhagsörðugleika að etja um þessar mundir,
og að sögn Loga Guðbrandssonar, framkvæmdastjóra spítalans, er ástæðurnar fyrir
þessum erfiðleikum að rekja til vanefna ríkisins á loforðum sem gefin voru á sínum
tíma. Felst þetta í því að daggjöldum sjúkrahúsa er haldið langt fyrir neðan það sem
þyrfti að vera og sagði Logi að engin úrlausn hefði fengizt þrátt fyrir að forsvarsmenn
Landakotsspítala hefðu ítrekað tekið upp málið bæði við fyrrverandi heilbrigðisráð-
herra og núverandi, svo og fjármálaráðherra fráfarandi ríkisstjórnar.
Nunnurnar á Landakoti ráku
sem kunnugt er Landakotsspítala
lengst af, en fyrir fáeinum
misserum varð sú breyting á, að
ríkið keypti eignirnar sem þarna
voru og jafnframt var sett á
laggirnar sjálfseignarstofnun,
sem afhentar voru þessar eignir
og fyrirtæki. Landakotsspítali
hefur síðan verið rekinn sem
einkafyrirtæki og nánast sem
leígjandj þeirra eigna, sem þarna
er um að ræða, þótt engin
eiginleg leiga sé greidd fyrir þau.
í samningi milli ríkisins og
spítalans er einnig kveðið á um
að ríkið skuli sjá spítaianum
fyrir rekstarfjármagni en það
hefur brugðist að sögn Loga
Guðbrandssonar. Rekstur
spítalans byggist því einvörðungu
á daggjöldunum en þar sem þau
hrökkva hvergi fyrir útgjöldum
hafa skuldir hrannast upp.
Logi Guðbrandsson sagði, að
fyrstu sex mánuði ársins hefði
hallinn á rekstri spítalans verið
um 150 milljónir króna, en
rekstrarleg staða spítalans hefði
síðan ekki breytzt, hvorki til hins
betra né verra. Spítalinn hefði að
vísu fengið nokkra fjárhæð til
eigin nota, þ.e. fyrirframgreiðslu
á daggjöldum, sem yrði búið að
greiða upp um næstu mánaða-
mót. Nú væri svo komið að byrjað
væri að loka símum hjá spítalan-
um og tilkynning hefði borizt um
það frá rafmagnsveitunni að
spítalinn væri kominn á lokunar-
lista hjá henni.
ogi tók fram, að af hálfu
forsvarsmanna Landakotsspítala
Að sögn fróðra manna á fundinum
er girðingunni mjög illa við haldið og
á köflum sé hún frekar hugsuð
girðing en raunveruleg.
Tvær tillögur komu fram á fundin-
um og voru þær samþykktar sam-
hljóða. Þær fara hér á eftir:
„Almennur fundur bænda og fjár-
gigenda úr Reykhóla-, Geirdals- og
Hólmavíkurhreppi, haldinn að
Bjarkarlundi 28. september 1978,
beinir þeirri eindregnu áskorun til
Skákhátíð í
Munaðarnesi
NOKKURS konar skákhátíð er
fyrirhuguð í Munaðarnesi dagana
6.-8. október n.k. Þangað munu
koma 14—16 skáksveitir og tefla 3
umferðir í deildakeppninni í skák.
Þarna verða samankomnir á annan
hundrað skákmenn og verða þarna
allir beztu skákmenn landsins.
Skáksamband íslands gengst fyrir
skákhátíðinni.
Loðnuveiði
að glæðast
Siglufirði, 29. sept.
GOTT veður er komið á loðnumiðun-
um djúpt útaf Horni eftir frátafir í
tæpa viku vegna brælu. Ég heyri í
talstöðinni að karlarnir tala um að
þeir hafi ekki fyrr í sumar orðið
varir við jafn mikla loðnu. Búist er
við mikilli veiði í nótt. Bátarnir hafa
verið að kasta og fengið þetta 2—300
tonn í kasti. Oskar Magnússon er
búinn að fylla sig og sömuleiðis Fífill
og Skarðsvík og Eldborg var komin
með 400 tonn og var að kasta aftur.
Kyndill kemur til Siglufjarðar í
kvöld með olíu fyrir SR en olíuskort-
ur var hjá verksmiðjunni.
- m.j.
nú væri ekki litið svo á að rekstur
fyrirtækisins hefði versnað við þá
breytingu sem áður er getið, því
að hlutfallslega væru útgjöld
spítalans í samanburði við hlið-
stæðar stofnanir ríkis og borgar
áþekk því sem áður var, en
rekstur Landakotsspítala hefði
jafnan verið nokkru ódýrari en
þessara stofnana.
Krefjast lögbanns
á sauðfjárslátrun
Mióhúsum. 29. september.
FIMMTUDAGINN 28. september komu fjáreigendur úr Reykhóla-,
Geiradals- og Hólmavíkurhreppi saman til fjölmenns fundar að Hótel
Bjarkarlundi. Aðalmál fundarins var ákvörðun sauðfjárveikivarna um að
slátra öllu fé er farið hafði yfir varnargirðingu þá, sem liggur úr Þorskafirði
í Steingrímsf jörð.
Samkvæmt upplýsingum, sem komu fram á fundinum, var réttað f
Staðarrétt en hún er í Hróbergshreppi í Standasýslu mánudaginn 18.
september og komu þá um 80 kindur, sem eftir úrskurði Sauðfjárveikivarna
átti að slátra á Ilólmavfk án þess að láta eigendur neitt um það vita. Þegar
féð hafði verið í réttinni f þrjá daga var þvf loks slátrað á Hólmavík og höfðu
þá horfið úr hópnum einar 15 kindur. Þess má geta að féð hafði aðgang að
vatni í sveltinu.
landbúnaðarráðherra að hann stöðvi
nú þegar slátrun sauðfjár, sem farið
hefur yfir svokallaða varnarlínu, er
liggur úr Steingrímsfirði í Þorska-
fjörð og heimili fjáreigendum að
flytja það fé heim, sem fyrir kann að
koma í þeim leitum, sem nú eru eftir.“
Hin tillagan hljóðar svo:
„Fundurinn ákveður að krefja
lögbanns á slátrun á hverri þeirri
kind, sem farið hefur yfir svokallaða
varnarlínu, sem liggur úr Steingríms-
firði í Þorskafjörð, það sem eftir er
hausts."
Fimm menn voru tilnefndir til þess
að fylgja þessu máli eftir.
— Sveinn.
Salaá
slátri
hafin
SALA á slátri er nú hafin og
mun það vera á boðstólum hjá
nær öllum sláturleyfishöfum
úti um land en í Reykjavík eru
það Sláturfélag Suðurlands og
Afurðasala Sfe, sem annast
söluna. Eftir þeim upplýsing-
um, sem blaðið fékk í gær,
hefur slátursala fram að þessu
verið heldur dræm en undan-
farin ár hefur hún yfirleitt
glæðst upp úr mánaðamótum
september — október.
Verð á heilslátri með sviðn-
um haus og 1 kílói af mör er nú
í smásölu 1227. Hjá Afurðasölu
SÍS eru seld 5 fryst slátur í
kassa á kr. 7.650. Sláturfélag
Suðurlands selur ófryst slátur í
afgreiðslu sinni á Skúlagötu og
Sparimarkaðnum við Háaleitis-
braut, en þar er blóðið selt
fryst. Verðið <hjá SS er 1340
krónur hvert slátur. Vömb er
hreinsuð og haus sagaður.
Afurðasala SÍS hefur gefið út
bækling um sláturgerð og er
hægt að fá hann ókeypis. I frétt
frá Upplýsingaþjónustu land-
búnaðarins segir að kaup á
slátri séu trúlega bestu matar-
kaupin á íslandi nú.
Fáninn var dreginn í hálfa stöng við Landakotsspítalann í gær. Páfinn
var látinn. Ljósm. Mbl. Ól.K.M.
Þorvarður Elíasson:
Þar var annar sterk-
ari vilji á bak við
MORGUNBLAÐIÐ spurði
Þorvarð Elíasson framkvæmda-
stjóra Verzlunarráðs íslands,
hvort ráðið væri á einhvern hátt
með frekari kannanir í gangi á
verðlagi hérlendis. Þorvarður
kvað mál þessi öll í athugun.
Þorvarður kvaðst vilja taka
fram í tilefni af því, að frétta-
maður sjónvarps hafi á dögunum,
er sjónvarpsþátturinn var sýndur,
viðhaft þau orð, að hann hafi
falsað niðurstöður verðlagsstjóra.
Það kvaðst Þorvarður aldrei hafa
sagt og þegar hann hafi í Morgun-
blaðinu sagt, að verðlagsstjóri hafi
búið tillögurnar til, þá hafi hann
einfaldlega átt við, að hann hafi
fengið þær reiknaðar út fyrir sig,
en ekki fengið þær sem niðurstöðu
af norrænu könnuninni.
Þorvarður kvaðst aldrei hafa
dregið heiðarleika verðlagsstjóra i
efa, né einlægan ásetning hans að
vinna vel í starfi sínu. „Ég vil
jafnframt taka fram,“ sagði
Þorvarður, „að þótt ég hafi sagt
oftar en einu sinni, að ég teldi
embætti verðlagsstjóra ekki með
þeim hætti að það hafi verið landi
og þjóð til mikils gagns, þá get ég
jafnframt látið það koma fram, að
ef einhver embættismaður á eftir
að hafa þau áhrif eða fá því
framgengt að embætti verðlags-
stjóra leiði gott af sér og verði sem
því ber, þá treysti ég Georg
Ólafssyni betur til þess en nokkr-
um öðrum, sem nú starfar í
verðlagseftirlitinu. Veit ég raunar
að hann hefur margt viljað gera
þar betur en hann hefur fengið. Ég
álít að þau miklu mistök, sem átt
hafa sér stað með birtingu þessara
talna og fleira, sem fylgt hafi á
eftir, hafi átt sér stað gegn vilja
verðlagsstjóra. Þar hafi annar
sterkari vilji verið á bak við.“
í gærkvöldi voru sýndar í Neskirkju samkomur, sem bandaríski predikarinn Billy Graham heldur um
þessar mundir í Stokkhólmi. Eru samkomurnar sýndar á myndsegulbandi og þýddar jafnharðan. Þessar
sýningar munu standa yfir á kvöldin fram til þriðjudags. í gærkvöldi voru 5—600 manns í Neskirkju og
hlýddu á bandaríska predikarann og var þá þessi mynd tekin. — Ljósm.i Kristján.
Samkomu-
lag við
sjúkraliða
SAMKOMULAG hefur tekizt milli
fjármálaráðuneytisins og samn-
inganefndir sjúkraliða á rikisspit-
ölunum en eins og kunnugt er var
ágreiningur milli aðilanna um
útfærslu á úrskurði kjaranefndar.
Þorsteinn Geirsson, skrifstofu-
stjóri í fjármálaráðuneytinu, tjáði
Mbl. í gaer að samninganefnd
sjúkraliða hefði lagt fram tillögú til
lausnar á málinu. Ráðuneytið kom
með gagntillögu og var hún sam-
þykkt á fundi sjúkraliðanna. Er
samkomulagið í því fólgið að sjúkra-
liðum er skipt í 2 hópa eftir því hvort
þeir vinna á almennum deildum eða
sérdeildum. Geta sjúkraliðar unnið
sig upp milli launaflokka eftir
ákveðnum reglum, en sjúkraliðar eru
í launaflokkum 6—8 samkvæmt
taxta BSRB.
LandakotsspítaJi 1
fjárhagskröggum