Morgunblaðið - 30.09.1978, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 30.09.1978, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 1978 11 Eflum öryggi æskunnar vera. Viö ökum á ógnar hraða bæinn á enda eftir dauðum hlut á „gamla" verðinu. Við gefum okkur varla tíma til að athuga hvort akbrautin sé auð, eða akstursskil- yrði séu góð. Mörg okkar opna ekki augun fyrr en umferðarslysin höggva í raðir eigin fjölskyldu. Allar bifreiðar eru nú búnar bílbeltum og geta því bifreiða- stjórar og farþegar, sem þau nota, tryggt nokkuð eigið öryggi. En hvað með gangandi vegfarendur? Hvernig tryggjum við best öryggi þeirra? Hve öruggt er barnið mitt á leið úr og í skóla? Öryggi þess er að miklu leyti í höndum bifreiða- stjórans. Foreldrar og Umferðaskólinn kenna börnum umferðarreglurnar strax um 3ja ára aldurinn, og er þar litlu við að baeta. En hvað með bifreiðastjórana? Geta þeir ekki bætt sig? Þeir vita mæta vel að barnið gleymir sér gjarnan í leik, og er full ástæða að hafa gát, þegar barn leikur sér nálægt umferðargötu. J.C. félagar um allt land eru nú að hefja fyrstu herferð sína á þessu starfsári, undir kjörorðinu „EFLUM ÖRYGGI ÆSKUNNAR". Þetta kjörorð var valið, sem landsverkefni á Lands- þingi Junior Chamber Island, sem haldið var í Hveragerði í maí s.l, Heimsverkefni Junior Chamber hrevfingarinnar er „TÆKIFÆRI FYRIR BÖRN“. Það kjörorð er í samræmi við „ÁR BARNSINS" hjá Sameinuðu þjóðunum. En hvað er Junior Chamber, eða J.C. eins og það er oftast nefnt? J.C. er alþjóðlegur félagsskapur ungs fólks á aldrinum 18—40 ára, án tillits til stjórnmálaskoðana, trúarbragða, litarháttar eða kyn- ferðis. Tilgangur félagsins er að auka félagslegan þroska einstaklings- ins. J.C. hreyfingin var stofnuð 1915 í St. Louis, Missouri/USA. Fyrsta J.C. félagið á íslandi var stofnað 5. sept. 1960. Landssamtökin voru stofnuð 1967. Nú eru alls starfandi 24 félög víða um land, og eru yfir 900 félagar í hreyfingunni á Islandi. J.C. starfi má skipta í þrennt. Vettvang einstaklingsins: Þar veitist tækifæri til aukins þroska og kunnáttu með þátttöku í námskeiðum og fundum, svo og starfi í nefndum og stjórn. Vettvang félagsins: Félagið er eflt með margþættri uppb.vggingu, svo sem skipulegri stjórnun, fjölg- un og fréttamiðlun. Vettvang byggðalagsins: Félagið starfar að ýmsum framfaramálum síns byggðarlags með hagnýtum verkefnum og kynningu þjóðþrifa- mála. Eins og áður sagði tileinkar alþjóðahreyfingin æskunni næstu tvö árin. Landssamtökin hafa skipt kjörorðinu „EFLUM ÖRYGGI ÆSKUNNAR" í þrjá megin flokka, þ.e. „Barnið og umferðin", „Barnið og hætturnar heima fyrir“ og „Barnið og um- hverfið". Síðan má hvert J.C. félag á landinu velja sér eitthvert verkefni.sem getur fallið undir ofangreinda þætti. J.C. VÍK, Reykjavík valdi að vinna að þættinum „Barnið og umferðin". Það byggðarlagsverk- efni hefur verið nefnt „Á EFTIR BOLTA KEMUR BARN". Þetta slagorð er letrað á límmiða, sem ætlað er að líma á afturrúður bifreiða. J.C. félög um allt land ætla að aðstoða J.C. VÍK við dreifingu á þessum límmiðum. Þessi límmiði „Á EFTIR BOLTA KEMUR BARN“, getur minnt okkur á að taka tillit til barna í umferðinni. Hann getur minnt okkur á að vera ávallt vakandi þar sem börn eru að leik eða starfi nálægt umferðagötu. Hann minnir okkur á að viðbrögð barna eru óútreiknanleg. Það er eindregin ósk okkar í J.C. VÍK, að sem flestir taki við límmiðanum „Á EFTIR BOLTA KEMUR BARN“, aki með hann á bílrúðunni og minni með því sjálfan sig og aðra á herferðina, sem nú fer í hönd til EFLINGAR ÖRYGGIS ÆSKUNNAR. Sjúkrahúsdvöl barna er ill nauðsyn og barninu oft ofraun andlega. Ef þessi herferð J.C. félaga gæti forðað einu barni frá slíkri dvöl, er tilganginum náð. Tökum höndum saman „EFLUM ÖRYGGI ÆSKUNNAR". Þórhildur Gunnarsdóttir. forseti J.C. VÍKUR. Reykjavík. starfsárið 1978—1979. 'A EFTIR B0LTA KENUR BARN • • • JUNIOR CHAMBER EFLUM ÖRYGGI ÆSKUNNAR No. 46, Þök frá Varna, eftir A.A. Popov. Myndllst eftir VALTÝ PÉTURSSON Allt er hnitmiðað við myndgerð fígúrutíva, en sára lítil pólitík í hlutunum, ef mér hefur ekki skjátl- ast. En hinan pólitíski áróður í myndlist Sovétmanna hefur okkur löngum þótt hér á vesturlöndum bæði leiðigjarn og hlægilegur, að ég ekki nefni þjóðarrembing þann, sem svo einkennt hefur list þessara þjóða. Hér eru hlutirnir á allt öðru sviði, jafnvel mætti halda, að þeir þarna fyrir austan væru að nálgast skoðun Frakka, er þeir halda fram „láot pour l’art“. Eitt sinn þótti það jaðra við morð að hafa slíkar skoðanir í ríki Stalins sáluga. Við skulum ekki tala meira um það, en vona, að það sé algerlega liðin tíð og komi ekki aftur. Samt er ég nú ekki viss um, að listamenn séu eins frjálsir í sælunni og látið er vera. Ég verð að játa, að þessi sýning, sem nú er á Kjarvalsstöðum, kom mér í gott skap. Ég nefni sem dæmi um ágæta myndlist no. 15, 17, 41, 42 og 46. Allt eru þetta ágæt verk og upptalning annarra listmuna sem ég er mjög hrifinn af, yrði of löng runa í þessum fáu línum. Það verður ekki annað sagt en að þessi þáttur Sovéskra daga MIR, standi fyrir sínu, og að mínum dómi var fengur í þessum verkum. Þrátt fyrir það hól, sem ég hef borið á þessa sýningu hér að framan, má ekki skilja orð mín þannig, að um stórbrotna myndlist sé hér að ræða. Það vantar mikið á, að svo sé, en það er nokkur afturbati í hlutunum að þessu sinni, og því má vel hæla þeim, er að þessari sýningu standa, fyrir að sýna okkur einu sinni annað en traktora, leiðtoga og vegsamaðan verkalýð. Þetta var eitt sinn kallað SÓSÍ AL-REALISMI og fór ekki vel í okkur hér í spillingunni á Vestur- löndum. Ef til vill fylgir það stórveldi og heimsgræðgi að slaka til á listasviðinu? Spyr sá, er ekki veit. Eða er spillingin úr vestrinu að stinga niður rótum í því víðáttu- mikla Sovétveldi? Valtýr Pétursson. □ Kalmar innréttingar bjóda eitt fjölbreyttasta úrval staölaöra innréttinga í eldhús, böö og herbergi, sem völ er á. □ Fjölbreytt úrval huröa í alls 12 veröflokkum auöveldar bér valið. □ Nýja bókin okkar er 132 litprentaöar síöur, fullar af nýjungum frá Kalmar. Fáiö senda bók. □ Viö maslum, skipuleggjum og teiknum, allt yöur aö kostnaöarlausu. □ Okkar pjónusta er yöar hagur. VALIÐ ER AUÐVELT —VERIÐ VELKOMIN OPIÐ í DAG LAUGARDAG FRÁ KL. 10—16 Kalmar-innréttingar hf. ■SKEIFUNNI8 REYKJAVIK SIMI82645-*

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.