Morgunblaðið - 30.09.1978, Qupperneq 13
MÖRGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 1978
13
Ásprestakall 15 ára
Þann 22. september árið 1963
var Ásprestakall í Reykjavíkur-
prófastsdæmi sett á stofn, og er nú
orðið 15 ára.
Á morgun, sunnudaginn 1. októ-
ber, verður minnst safnaðarstarfs-
ins á þessum árum við guðsþjón-
ustu kl. 2 síðd. að Norðurbrún 1.
Að lokinni guðsþjónustu verður
borið fram veizlukaffi, sem selt
verður til ágóða fyrir kirkjubygg-
inguna. Safnaðarfélag Áspresta-
kalls mun annast veitingarnar,
karlar og konur, og þarf enginn að
kvíða því að hann verði fyrir
vonbrigðum.
Settur verður fundur í safnaðar-
félaginu og mun borgarstjórinn í
Reykjavík, Egill Skúli Ingibergs-
son, flytja ávarp í tilefni þessara
tmamóta. Þá mun kirkjukór Ás-
prestakalls syngja undir stjórn
organistans, Kristjáns Sigtryggs-
sonar, með einsöng Hönnu Bjarna-
dóttur. Ennfremur mun safnaðar-
fulltrúinn, Þórður Kristjánsson,
greina frá því, sem á döfinni er hjá
Fjáröflunarnefnd safnaðarins til
styrktar kirkjubyggingunni.
Nú er mikill og almennur áhugi
innan safnaðarins um kirkjusmíð-
ina, enda senn lokið stóráfanga
með því, sem unnið hefur verið í
sumar og allt fram til þessa, með
því að sjálft krikjuhúsið er nú nær
að fullu risið.
Það er og sérstaklega ánægju-
legt hve margir, yngri og eldri,
fylgjast af miklum ahuga með því,
sem verið er að vinna að kirkjunni
á hverjum tíma og hve mikið er
spurt um framvinduna.
Hvenær verður kirkjan tekin í
notkun? Hvenær verður hún vígð?
Þannig er spurt. En því er erfitt að
svara nema á einn veg.
„Það er undir söfnuðinum kom-
ið, — hverjum einasta einum í
söfnuðinum, — hvað hann eða hún
treystir sér til að leggja af
mörkum."
Þeir, sem hvorki eiga né ráða
yfir fjármunum, geta gefið kirkj-
unni af góðvild sinni og hlýhug,
því að það er ómetanlegur bakhjal
fyrir lyftistöngina. Aðrir geta
gefið af fátækt sinni eða auðfæum
eftir atvikum. En aðal atriðið er
það, að allir leggi hönd að verki á
einhvern veg.
Spyrjið ekki um gildi kirkjunnar
í þjóðfélaginu, þann ótvíræða
ávinning, sem starf hennar er og
verið hefur um ár og aldir. Hver
hugsandi maður gerir sér fyllilega
grein fyrir því. Miskunnar- og
líknarstörf eru stórlega þakkar-
verð hvar sem unnin eru og
hvenær sem er. En því má enginn
gleyma, að í kirkjunni bærist
hjarta hins lifandi Krists og þaðan
renna uppsprettur hins lifandi
vatns, sem vökvar og frjóvgar,
gefur lífið og vöxtinn, — sem er
manndómur hins frjálsa og trúa
þegns, er virðir, skapara sinn, lifir
og starfar í samfélagi við guðdóm-
inn sjálfum sér og samfélagi sínu
til blessunar.
Hittumst heil á morgun að
Norðurbrún eitt.
„Vakið, standið stöðugir í
trúnni, verið karlmannlegir, verið
styrkir. Allt hjá yður sé í kærleika
gjört."
Grímur Grímsson.
Ný plata með
Dúmbó og Steina
KOMIN er út ný hljómplata frá
hljómsveitinni Dúmbó og Steina, en
þetta er önnur breiðskífa þeirra. Alls
hafa þeir leikið inn á fjórar plötur. í
fréttatilkynningu, sem Morgunblað-
inu barst vegna útkomu plötunnar
frá Steinari h.f., segir að tónlist
Dúmbó og Steina sé létt og líflegt
popp af beztu gerð.
Á plötunni eru 12 lög og er
helmingur þeirra af erlendum toga,
en hinn helmingurinn íslenzk lög úr
ýmsum áttum, gamlir slagarar og ný
og fersk stuðlög. Hljómsveitin er nú
um þessar mundir á ferð um landið
og leikur fyrir dansi. Um helgina
verður hljómsveitin með skemmtun í
Borgarnesbíói. Helgina 13. og 14.
október verða þeir í Stapa, fyrra
kvöldið, og að Borg í Grímsnesi hið
Plötuumslagið um Dömufrí.
síðara. Þá mun í ráði að hljómsveitin
leiki víðar, en hún mun aðeins starfa
til loka októbermánaðar. Platan,
sem komin er út með hljómsveitinni,
heitir „Dömufrí".
Stórkostlegt Sterio útvarp- og segulbandstæki í algerum sérflokki
Plötur sr
Kassettur
Heyrnartæki
Töskur
undir Cassettur
Kaaio
ARMULA 38 (Selmúla megin) 105 REYKJAVIK - SIMAR: 31133 - 83177 - POSTHÓLF 1366
ALLT TIL HLJÓMFLUTNINGS FYRIR: HEIMILIÐ ★ BÍLINN ★ DISKÓTEK
Reykjavík
Brautarholti 4 laugardaginn 30. september og sunnudaginn 1. okt. kl.
1 — 7 báöa dagana.
Drafnarfell 4 laugardaginn 30. september og sunnudaginn 1. okt. kl. 1—7
báöa dagana.
Félagsheimili Fylkis þriöjudaginn 3. okt. kl. 4—7.
Kópavogur
Hamraborg 1 mánudaginn 2. okt. kl. 4—7.
Seltjarnarnes
Félagsheimilið mánudaginn 2. okt. kl. 4—7.
Keflavík
Tjarnarlundi mánudaginn 2. okt. kl. 4—7.
Selfoss
Tryggvaskála þriöjudaginn 3. okt. kl. 4—7.
Akranes
Röst þriöjudaginn 3. okt. kl. 3—7.
NJARÐVÍK, GRINDAVÍK OG MOSFELLSSVEIT verða látin vita.
HAFNARFJÖRÐUR afhending skírteina hefur fariö fram. Þeim, sem vantar
tíma, hafa samband viö skólann. ú