Morgunblaðið - 30.09.1978, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 30.09.1978, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 1978 \ 5 Daníel Þórhallsson; Dýrðlegir dagar á Hornafirði DAGARNIR 16. og 17. septem- ber 1978 verða öllum viðstödd- um ógleymanlegir. Þá vorum við systkinin öll, ættingjar og venslafólk, ásamt mörgum vin- um fjölskyldunnar samankomin á Höfn. Tilgangurinn var, að það átti að afhjúpa minnisvarða foreldra okkar, Ingibjargar Friðgeirsdóttur og Þórhalls Daníelssonar, á Höfn í Horna- firði. Eftirfarandi frásögn tel ég rétt að skrá vegna hinnar frábæru móttöku, sem við urð- um öll aðnjótandi og vegna veðurblíðunnar. Forráðamenn Hafnarhrepps höfðu boðið mörgu fólki að vera viðstatt þessa virðulegu athöfn þann 17. sept. en fyrirhugað var að hafa ættarmót þann 16. eða daginn áður. Þann dag fyrir hádegi, hóf flugvél frá Flugleiðum sig á loft frá Reykjavíkurflugvelli og stefndi til Hornafjarðar. Eftir klukkutíma flug settist hún á rennislétta flugbraut í Árnanes- landi. Sólin skein á fjörðinn og fjallatindana. Þeir farþegar, sem stigu út úr vélinni, voru veizlugestir, sem ætluðu að vera viðstaddir afhjúpunina. Lang- ferðabílar fluttu fólkið að Hótel Höfn, þar sem áformað var að gista. Þegar aliur farangur hafði verið affermdur þar, var mönnum boðið upp á útsýnis- ferð, undir leiðsögn Þorgeirs Kristjánssonar. Ekið var um sveitina fögru, Nesin, og skoðað- ir voru allir helztu staðir sem fróðlegt var að sjá. Að lokinni ökuferðinni var aftur stað- næmst við hið fallega og vist- lega hótel „Hótel Höfn“. Nú urðu miklir fagnaðarfundir. Margir ættingjar sáust þarna í fyrsta sinni. Um kvöldið mættu allir prúðbúnir til veglegrar matarveizlu í matsal hótelsins. Veitendur þessa samkvæmis voru Olöf Sverrisdóttir og þau hjónin Ása Þóra Núpan og Þorgeir Kristjánsson. Ólöf er ekkja Þórhalls Dan Kristjáns- sonar, hótelstjóra, sem var dóttursonur foreldra okkar, hann lézt í blóma lífsins og var öllum harmdauði. Ása Þóra er kjördóttir Þórarins Núpan, sem var einn af frumþyggjum Hafnarþorps og Þorgeir er bróðir Þórhalls Dan og hefir byggt fjölda mörg hús á Höfn, þar á meðal Hótel Höfn. Þessum góðu gestgjöfum var þakkað fyrir hönd veizlugesta af Guðmundi Jóhannssyni, söng- stjóra á Akureyri, sem giftur er systur bræðranna, sem að ofan greinir, hún heitir nafni ömmu sinnar, Ingibjörg Kristjánsdótt- ir. Næsti dagur, þ. 17. sept. rann upp bjartur og fagur. Hinn nafntogaði fjallahringur var aftur baðaður sólskini. Veður guðirnir voru okkur hliðhollir. Um morguninn kl. sex, steig ég út úr rúmi mínu og gekk út að glugganum. Þá tautaði ég fyrir Þórhallur Daníelsson, kaup; maður og útgerðarmaður á Höfn í Hornafirði. og kona hans. Ingibjörg Friðgeirsdótt- ir. Myndin er Ifklega frá árinu 1908. munni mér: „Ja, hvílík dýrðar- sýn“. Ég hélt áfram að tauta: „Blessuð sértu sveitin mín“. Svo sneri ég mér við og sá son minn Þórhall sofa værum blundi. Mér datt í hug hvort hann væri að dreyma alnafna sinn, sem þessi dagur hafði verið helgaður. Klukkan tvö hófst guðsþjón- usta í Hafnarkirkju. Sóknar- presturinn, Gylfi Jónsson predikaði. Kirkjukór söng undir stjórn orgelleikara kirkjunnar, Guðlaugar Hestnes. Við þessa kirkjuathöfn söng Anna, systir min, stólvers. Að messu lokinni gengu kirkjugestir að minnis- varðanum. Þar fór fram afhjúp- un. Athöfnin byrjaði með því að Lúðrasveit Hafnar lék nokkur ættjarðarlög. Því næst tók til máls oddviti Hafnarhrepps, Óskar Helgason. Hann hélt fagra ræðu um foreldra okkar, um komu þeirra til Hafnar og brautryðjendastarf þeirra. Einnig minntist hann okkar systkinanna. Að ræðu hans lokinni lögðu tvö barnabarna- börn foreldra okkar fagra blóm- vendi að fótstalli minnisvarð- ans. Það var Guðrún Erna Þórhallsdóttir og Þórhallur Þorgeirsson. Oddvitinn bað síð- an Önnu systur mína að afjúpa minnisvarðann. Hún bar því næst fram þakkarorð fyrir hönd fjölskyldunnar og minntist myndhöggvaranna, Ríkarðs Jónssonar og Sigrúnar Guðmundsdóttur, sem gerðu brjóstlíkönin og Þorgeirs Kristjánssonar, sem sá um byggingu fótstallsins og um- hverfi hans. Að athöfninni lokinni bauð hreppsnefnd Hafnarhrepps öll- um viðstöddum til kaffidrykkju að Hótel Höfn. Óskar Helgason, oddviti, stjórnaði hófinu. Þar voru ræður haldnar og lesin upp símskeyti, sem borist höfðu. Fyrstur tók til máls hinn mikli orðsnillingur Steinþór Þórðarson, bóndi á Hala í Suðursveit. Hélt hann merka ræðu um foreldra okkar. Steinþór hefir unnið sér það til frægðar að tala á segulband í útvarpið heila bók, blaðalaust, án þess að reka í vörðurnar. Af því afreki dáðist öll þjóðin. Ég vil þekka Steinþóri þau fallegu orð, sem hann sagði í garð foreldra okkar. Næsti ræðumaður var forn- vinur fjölskyldunnar, Gísli Kristjánsson, fyrrum útgerðar- maður og skipstjóri frá Norð- firði, sem nú er 85 ára gamall. Hann rakti merka sögu frá því langa tímabili er hann stundaði útgerð og skipstjórn á litlu vélbátunum frá Höfn í Horna- firði. í marga áratugi sýndi Gísli Kristjánsson ásamt nokkrum öðrum sjómönnum frá Aust- fjörðum mikinn dugnað og áræði við þessa áhættusömu sjósókn. Við systkinin þökkum honum innilega fyrir tryggð og vináttu við okkur og foreldra okkar. Síðast flutti gamall heimilis- vinur fjölskyldunnar, Gunnar Snjólfsson, fyrrverandi hrepp- stjóri Hafnarhrepps, ræðu. Hann rakti starfsferil sinn við verzlun föður míns og lýsti heimilislífi og húsakynnum í Garði, en þar bjó fjölskyldan frá árinu 1920. Hann gat foreldra okkar með vinsemd og þakklæti. Þessum góðvini þökkum við öll systkinin fyrir frábæra tryggð og vináttu í marga áratugi og árnum við honum og fjölskyldu hans, ásamt öllum þeim ræðu- mönnum, sem töluðu við þetta tækifæri, blessunar og heilla um ókomin ár. - Að lokum sleit Óskar Helga- son, oddviti, samkomunni í nafni hreppsnefndar Hafnar- hrepps og þakkaði öllum við- stöddum fyrir góða samveru- stund. Þeir veizlugestir, sem komu til Hornafjarðar til þess að vera við afhjúpun minnisvarðans, róma mjög alla þjónustu á Hótel Höfn“, því er þeim Árna Stefánssyni, hótelstjóra, og konu hans, Svövu Sverrisdóttur, fluttar alúðarþakkir fyrir hið mikla starf, sem fylgdi þessari móttöku. Undanfarinn tíma hefi ég ekki gengið heill til skógar. Ég er því forsjóninni þakklátur fyrir að ég gat tekið þátt í þessum ógleymanlega mannfagnaði og hafa séð Hornafjörð í sínum fegursta skrúða. Að endingu biðjum við Guð að blessa minningu foreldra okkar og Hornfirðingum öllum send- um við hinar beztu árnaðarósk- ir. Reykjavík, 29. september 1978. Daníel Þórhallsson. berklavamadagurinn, sunnudag toktóber Merkja- og blaðasala til ágóða fyrir starf sem styður sjúka til sjálfs- bjargar, starfsemina að Reykjalundi og Múlalundi. Sölubörn óskast kl. 10 árdegis, sunnudag. Góö sölulaun. Foreldrar - hvetjið börnin til að leggja góðu málefni lið. Merkin eru númeruð og gilda sem happdrættismiði. Vinningur er litsjónvarpstæki. Merkin kosta 200 kr. og blaðið Reykjalundur 300 kr. Afgreiðslustaðir í Reykjavík og nágrenni: S.Í.B.S., Suðurgötu 10, s. 22150 Mýrarhúsaskóli, Seltjarnarnesi Melaskóli Grettisgata 26, sími 13665 Hlíðaskóli Hrísateigur 43, sími 32777 Austurbrún 25, sími 32570 Gnoðarvogur 78, sími 32015 Sólheimar 32, sími 34620 Álftamýrarskóli Hvassaleitisskóli Breiðagerðisskóli Langagerði 94, sími 32568 Skriðustekkur 11, sími 74384 Árbæjarskóli Fellaskóli Kópavogur: Langabrekka 10, sími 41034 Hrauntunga 11, sími 40958 Vallargerði 29, sími 41095 Garðabær: Flataskóli Hafnarfjörður: Lækjarkinn 14 Reykjavíkurvegur 34 Þúfubarð 11 /

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.