Morgunblaðið - 30.09.1978, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 30.09.1978, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 1978 27 Bláklukkur V (Campanula) Tvíærar klukkur SUMARKLUKKA (C. medium) verður að telj- ast í hópi þeirra stóru glæsilegu. Hún sést þó ekki oft og er þar sömu sögu að segja og um ýmsar aðrar tvíærar plöntutegundir að þær vilja verða útundan og gleymast þó fallegar séu. Þær þarf að ala upp af fræi sumarið áður en þær blómstra. Sumarklukka verður 50—80 sm á hæð með langa klasa af allstórum klukkum allt að 5 sm löngum. Þær eru víðast- ar um miðjuna en mun mjórri við krónuflipana. Svo er til afbrigðileg klukka, „calycanthema" eða bolli og undirskál, með aukakrónu undir þeirri venjulegu. Hún er nærri flöt og óreglulega sepótt. Litir blómanna eru óvenjulega fjölbreyttir, eiginlega af gáleysi að fræi hennar var sáð í Lystigarði Akureyrar vorið 1974 þar sem ég hélt að svona ómerki- legt illgresi gæti ekki orðið neinum til ánægju og auk þess bara tvíær. En þegar hún byrjaði að blómstra sumarið eftir kom annað hljóð í strokkinn. Hún varð svo blómsæl og skrautleg að fólk þyrptist að henni fullt aðdáunar. Hún er 40—50 sm á hæð með greinótta klasa af mjög fallega rauðfjólubláum i k JGtf * ■*. 0» im m Sumarklukka ium (tvíær.) C. med- Campanula Wilsonii (fjölær). hvítur, bleikur og fjólu- blár. Sumarklukkan blómstrar allan seinni hluta sumars og þarf þá að tína af henni visin blóm svo hún haldist jafnfelleg. ENGJAKLUKKA (C. patula) er nefnd í Flóru Islands sem sjaldgæfur slæðingur í Eyjafirði. Hún gæti hafa borist með grasfræi þar sem hún er algengt illgresi á Norðúrlöndum. Það var stjörnulaga blómum. Hún blómstrar afar lengi og þroskar fræ. Svo virðist sem best sé að taka smáplönturnar og geyma þær í reit til þess að fá gróskumiklar plöntur næsta ár. GULLKLUKKA (C. hyrsoides) er eina gula klukkan • sem til er, og nefnd hér mest til gam ans af því að hún er svo sérstæð. Hún vex í Alpafjöllunum. Blómin eru ljósgul í þéttum skúf 20—30 sm á hæð Þetta er skemmtileg tegund fyrir safnara en ekki líkleg til að verða vinsæl hjá alruenningi. Og lýkur hér með bláklukku-spjalli. H.S. Lýst eftir vitnum að slysum Slysarannsóknadeild lögregl- unnar í Reykjavík hefur beðið Mbl. að lýsa eftir vitnum að tveimur slysum. þar sem ekið var á gangandi vegfarendur. í fyrra tilvikinu varð fullorðin kona fyrir bifreið á Skúlagötu, rétt austan Rauðarárstígs. Gerðist þetta 22. júní s.l. rétt fyrir klukkan 8 um morguninn. Gulri Fiatbifreið var ekið af Rauðarárstíg og til hægri austur Skúlagötu í þann mund seYn konan var að ganga áleiðis norður Skúlagötuna. Konan varð fyrir bifreiðinni og féll í götuna. T\'eir karlmenn í blárri bifreið komu til konunnar og kváðust hafa séð atburðinn og náð niður númeri bílsins. Konunni láðist að taka niður nöfn mann- anna. Þarf lögreglan nauðsynlega að ná af þeim tali. í hinu tilvikinu varð lítil stúlka, 5 ára gömul, fyrir bifreið á Lönguhlíð á móts við Háteigsveg. Gerðist þetta fimmtudaginn 21. september s.l. klukkan 12.02 á þann veg að stúlkan gekk vestur yfir gatnamótin norðanmegin. Bifreið kom til suðurs á vinstri akrein og stöðvaði hún fyrir barninu. Barnið hélt áfram og varð fyrir bifreið, sem kom meðfram hinni bifreiðinni hægra megin. Vill lögreglan ná tali af bílstjóranum á fyrrnefndu bifreið- inni, en talið var að það hafi verið bifreið af Austin eða Morris-mini með þriggja stafa Y-númeri. AUGLVSENGASÍMINN ER: 22480 kjSJ 2H«r0unbItibib Tæki sem gerir drykkjumönn- um ókleift að sctja bifreið sína í gang ef áfengismagn í blóði er yfir leyfilegum mörkum bls. 27 Gerir drykkju- mönnum ókleift að setja bifreið í gang HANNAÐ hefur verið í Vest- ur-Þýzkalandi tæki. sem gerir mönnum er neytt hafa áfengis. ókleift að gangsetja bifreiðar. Tækið er og áreiðanlegra og miklu fullkomnara en blöðrur. sem lögreglumenn hafa notað við öndunarmælingar á öku- mönnum. Tækið. sem heitir Alcotron. er tengt við rafkerfi bifreiðar- innar. í tækinu er rafeinda- stýrður vínandagreinir. sem mælir magn vínanda í blóði þegar ökumaðurinn blæs í tækið. Sýni vínandagreinirinn að vínandamagn í blóði við- komandi ökumanns sé yfir leyfilegum mörkum. lokast rafkerfi bifreiðarinnar ekki og ókleift reynist að setja bifreið- ina í gang. Næmni tækisins er slik að nóg er að tala við enda þess. Ökumenn geta því ekki blekkt tækið með sérkennilegum blæstri. Telja framleiðendur tækisins að koma megi alveg í veg fyrir akstur ölvaðra manna með því að leiða notkun þess í bifreiðum í lög. Styrkiöog fegrid líkamann Ný fjögurra vikna námskeiö hefjast 3. okt. Herraleikfimi í hádeginu þriöjudaga og fimmtudaga. *W \ Frúarleikfimi ásamt yogaæfingum þriöjudaga og fimmtudaga kl. 20:30. Hjónatímar þriöjudaga og fimmtudaga kl. 21:30. Innritun og upplýsingar alla virka daga kl. 13—22 í síma 83295. Sturtur — Ijós — gufuböö — kaffi — nudd. Júdódeild Armanns Ármúla 32. yiémcml Sjáið leirkerasmiöinn renna potta og skálar á skífu hjá BLÓMAVALI í Sigtúni milli kl. 14 -18 í dag og á morgun sunnudag. Studiokeramikiö okkar er handrennt. . . U7ITCv_ HÖFOABAKKA 9 SÍMI 85411.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.