Morgunblaðið - 30.09.1978, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER' 1978
29
Umsjón: Tryggvi Gunnarsson
og Anders Hansen.
Aukaþing S.U.S. um helgina:
Mjög mikil þátttaka víðs
vegar að af landinu
Rætt við Stefán Stefánsson, framkvæmdastjóra S.U.S.
AUKAÞING Sambands
ungra sjálfstæðismanna
verður sett í dag í Hótel
Valhöll á Þingvöllum. Mun
þingið starfa í dag og á
morgun, og verða þingslit
væntanlega síðdegis á morg-
un, sunnudag.
„Nú þegar hafa um 90
manns boðað þátttöku sína,“
sagði Stefán H. Stefánsson,
framkvæmdastjóri S.U.S., er
Umhorfssíðan ræddi við
hann í gær. „Þingfulltrúar
eru alls staðar að af landinu,
og miðað við þann áhuga sem
við höfum orðið varir við
gerum við ráð fyrir að alls
muni sækja þingið um 150
manns, en þingfulltrúar eru
nú sem óðast að láta skrá
sig,“ sagði Stefán ennfremur.
Sagði Stefán að gistirými
væri fyrir um 120 manns í
Valhöll á Þingvöllum, og þar
sem vitað væri að margir
hygðust fara á milli á einka-
bílum og gista heima að-
fararnótt sunnudagsins yrðu
ekki vandkvæði á að finna
gistirými fyrir þingfulltrúa
þó þátttaka væri svo mikil
sem raun bæri vitni.
„Þinggjald verður 1500
krónur á hvern þingfulltrúa,"
sagði Stefán, „og svo kostar
14.900 krónur að gista í
hótelinu og snæða allar þær
máltíðir sem boðið er upp á
meðan þingið stendur. Þing-
fulltrúar ráða því hins vegar
alveg sjálfir hve mikið af
þessum „pakka“ þeir kaupa,
engum ber skylda til að
kaupa gistingu eða máltíðir
þó hann komi á þingið."
Þá sagði Stefán að fólki
utan næsta nágrennis við
Þingvelli yrði séð fyrir bíl-
ferð til og frá þingstað. Mun
hópferðabifreið fara frá
Sjálfstæðishúsinu Valhöll
við Háaleitisbraut í Reykja-
vík klukkan 9 í dag, og til
baka að þingi loknu á morg-
un.
Varðandi aðstöðuna í
Hótel Valhöll sagði Stefán að
hún væri mjög góð fyrir þing
eða ráðstefnu af þessu tagi.
Þar væru sex til átta smærri
salir og fundarherbergi fyrir
nefndarstörf og starfshópa,
og svo væri stór fundarsalur
fyrir aðalstörf þingsins.
Stjórn S.U.S. mun svo
verða með fjögurra manna
starfslið auk framkvæmda-
stjórans á Þingvöllum, til að
auðvelda þingstörfin og ann-
ast ýmsa vinnu á meðan
þingið starfar.
Auk hinna eiginlegu þing-
starfa verður svo sameigin-
legt borðhald á laugardags-
kvöld þar sem Ellert B.
Schram, alþm. mun flytja
ræðu, og að því loknu gengst
stjórn S.U.S. fyrir kvöldvöku
í Hótel Valhöll. Þinginu
lýkur svo sem fyrr segir á
sunnudag með því að formað-
ur Sjálfstæðisflokksins, Geir
Hallgrímsson, flytur ávarp.
Að lokum sagði Stefán, að
stjórn S.U.S. væri mjög
ánægð með þá miklu þátt-
töku sem virtist ætla að
verða á þinginu, hún sýndi að
ungt sjálfstæðisfólk ætlaði
sér að ganga fram og hefja
Sjálfstæðisflokkinn til vegs
og virðingar á ný, þrátt fyrir
áföll þau sem hann hefur
orðið fyrir síðustu mánuði.
Enda væri full þörf á því að
efla Sjálfstæðisflokkinn, nú
þegar hann væri einn í
stjórnarandstöðu, á móti
vinstri stjórn sem þegar
hefur komið meiru illu til
leiðar en góðu, þrátt fyrir
skamma setu á valdastólum.
Að lokum má svo geta
þess, að stjórn S.U.S. er
þegar komin austur á Þing-
völl, og var haldinn stjórnar-
fundur í Hótel Valhöll í
gærkvöldi.
Formaður og varaformaður
SUS verði kosnir sameiginlega
Leiðréttingar á kjördæmaskipan
og kosningareglum þola ekki bið
„VIÐ LÍTUM fyrst og fremst á
niðurstöður nefndarinnar sem
umræðupunkta, varpað fram til
að koma af stað umhugsun og
uraræðum um starf SUS almennt
en ekki sem endanlega fastmót-
aða ályktun, enda er þetta
aukaþing en samkvæmt lögum
SUS verða aðeins gerðar laga-
breytingar á reglulegum þingum
sambandsins," sagði Fríða
Proppé en hún hefur verið
formaður nefndar, sem undirbúið
hefur álit um endúrskoðun
skipulags og starfshátta SUS
fyrir þingið nú.
í umræðupunktunum eru
skipulag og starfshættir SUS
teknir til meðferðar á breiðum
grundvelli og bendir nefndin á
ýmis atriði, sem betur mættu
fara, og eins það sem vel hefur
verið gert. Helstu atriði, sem
fjallað er um í niðurstöðunum,
eru hugmyndir um breytingar á
kosningum til stjórnar SUS svo
sem um fjölda stjórnarmanna og
sett er fram tillaga um að
frambjóðandi til formannsem-
bættisins velji sér mann til
framboðs í varaformannsem-
bættið og þeir verði kosnir
sameiginlega á þingi SUS.
Fjallað er um kjördæmasam-
tökin, hvort þau eigi rétt á sér,
starfsemi aðildarfélaganna og
einnig félagsmannanna og er þar
sérstaklega bent á, hvort ekki sé
Tillögur um breytta skipan
á forystumynztri flokksins
„í ÞVÍ nefndaráliti, sem við
leggjum fyrir þingið, er fjallað
vítt og breitt um starfsemi og
skipulag Sjálfstæðisflokksins og
ýmsar tillögur um breytingar
þar á. Við setjum þessar tillögur
fram sem umræðugrundvöll og
vonum að þingfulltrúar skiptist
opinskátt á skoðunum um þessi
mál og á þinginu verði tekin
afstaða til þeirra hugmynda, sem
fram koma í nefndarálitinu,"
sagði Inga Jóna Þórðardóttir,
sem var formaður nefndar er
undirbjó álitsgerð um starfsemi
og skipulag Sjálfstæðisflokksins
fyrir þingið.
í nefndarálitinu er fjallað um
stefnu Sjálfstæðisflokksins, mót-
un hennar og framkvæmd, út-
breiðslumál og lagt til að komið
verði á fót sérstakri nefnd til að
sjá um þennan málaflokk innan
flokksins. Þá er lagt til að sú
breyting verði gerð á forystu-
mynztri flokksins að tekin verði
upp svokölluð þrískipting þ.e.a.s.
formaður og varaformaður
flokksins, formaður og varafor-
maður þingflokksins, formaður
og varaformaður miðstjórnar
flokksins eða alls sex persónur.
Lagt er til að framkvæmdastjóri
þingflokks verði ekki jafnframt
þingmaður flokksins. Fjallað er
um starfsemi sérsambanda
flokksins, lagt er til að sett verði
ákvæði um prófkjör í skipulags-
reglur flokksins og teknir verði
upp nýir starfshættir á skrif-
stofu flokksins með því að koma
upp deildaskiptingu, sem annars
vegar verði í formi Rekstrar- og
skipulagsdeildar og hins vegar
Fræðslu- og útbreiðsludeildar.
„Þetta nefndarálit er eins og
ég sagði hér fyrr umræðugrund-
völlur, sem hefur inni að halda
ákveðnar tillögur, sem ættu að
verða grundvöllur skoðanaskipta
um skipulag og starfsemi Sjálf-
stæðisflokksins á þinginu og að
með þessu megi móta í tillögur
þær umræður, sem orðið hafa á
síðustu mánuðum um þessi mál
meöal sjálfstæðismanna,“ sagði
Inga Jóna.
tímabært að endurskoða aldurs-
mörkin innan SUS, sem í dag eru
16 til 35 ára. „Það er staðreýnd
að með hverju árinu sem líður
stækkar hópur áhugasamra
unglinga, sem æskja inngöngu í
flokkinn og um leið. breikkar
aldursbilið milli þeirra elstu og
yngstu," sagði Fríða og gat þess
að í álitinu væri einnig fjallað
um stefnumótun SUS, útgáfu-
mál, erlend samskipti, áhuga
fólks á flokksstarfinu og viðhorf
eldri sjálfstæðismanna til þeirra
sem yngri eru.
„Ég tel að í umræðum um
starfsemi SUS megi ekki um of
einblína á skipulag „yfirbygging-
arinnar", því mikilvægast er að
minnstu einingarnar í flokks-
starfinu séu virkar og ég þar við
aðildarfélögin og hvern einstak-
an félagsmann. Flokksstarfið má
ekki byggjast einhliða á miðstýr-
ingu heldur verður frumkvæðið
einnig aö koma frá hinum
almenna félagsmanni og aðildar-
félögunum," sagði Fríða.
„VIO teljum að kosningarétt-
urinn sé mannréttindi og því sé
það grundvallaratriði að þessi
réttur sé jafn öllum lands-
mönnum til -handa. í ályktun-
ardrögum okkar leggjum við á
það áherslu að með öllu sé
óviðunandi að löggjafarvaldið
leiði það enn hjá sér að taka til
meðferðar breytingar á kjör-
dæmaskipan og kosningaregl-
um til Alþingis. Við bendum á
að núverandi kosningafyrir-
komulag bjóði upp á mjög
takmarkaða valkosti fyrir kjós-
endur og einnig verði þegar að
leiðrétta það misvægi, sem nú
er í atkvæðisrétti landsmanna,
eftir því hvar á iandinu þeir
eru búsettir. Hér er um að
ræða mál, sem ekki þolir bið og
við leggjum á það áherslu að
þingmenn Sjálfstæðisflokksins
taki forustu í þessu máli,“ sagði
Tryggvi Gunnarsson, aem verið
hefur formaður undirbúnings-
nefndar um kjördæmamál fyrir
þingið.
Tryggvi benti á að þing SUS
síðustu ár hefðu nær öll fjallað
um þetta mál og legði nefndin
til að þingið nú ítrekaði þá
afstöðu fyrri þinga að valfrelsi
kjósenda yrði aukið með því að
taka upp persónukjör en um-
fram allt þyrfti að jafna
konsingarétt landsmanna,
þannig að einn kjósandi hefði
ekki margfaldan kosningarétt
á við annan, eins og nú er.
„Við höfum valið þann kost-
inn að gera ekki i einstökum
atriðum grein fyrir tillögum
okkar um breytingar á fyrir-
komulagi kosninga og kjör-
dæmaskipunar til Alþingis
heldur vísa til fyrri samþykkta
þar um, og við viljum leggja á
það áherslu að Sjálfstæðis-
flokkurinn taki forustu um
mótun stefnu í þessum málum
og leggi tillögur þar um fram á
Alþingi," sagði Tryggvi.
„í ÞESSUM drögum okkar að
áliti um verðbólguna og
meðfylgjandi greinargerð
eru engin ný sannindi, því
verðbólgan er gamall þáttur í
okkar þjóðlífi en það sem
þarf hins vegar að gera er að
viðurkenna þær aðgerðir,
sem nauðsynlegar eru til að
ráðast gegn henni og hætta
að vefja um sig blekkingar-
vef eins og nú er ríkjandi
jafnt í umræðum sem að-
gerðum manna í þessum
málum," sagði Kjartan Jóns-
son, sem verið hefur for--
maður nefndar, sem undir-
búið hefur ályktun þingsins
um verðbóiguna.
Kjartan sagði að nefndin
legði í drögum sínum áherzlu
á að taka þyrfti upp sam-
ræmda efnahagsstefnu til að
ná hraða verðbólgunnar
niður á það stig, sem þekkist
í helstu viðskiptalöndum
okkar. Slíkt væri nauðsyn-
legt ef tryggja ætti sam-
keppnisaðstöðu íslenskra
vara bæði heima fyrir og
erlendis en það væri grund-
vallaratriði, ef tryggja ætti
atvinnuöryggi. Auk þessa er í
dj-ögum að ályktuninni lögð á
Verða að viðurkenna takmarkað svigrúm
til aukinnar neyzlu og fjárfestingar
það áherzla að aðilar vinnu-
markaðarins verði að viður-
kenna það takmarkaöa svig-
rúm sem er til aukinnar
neyzlu og fjárfestinga, lögð
er áherzla á endurskoðun
vísitölukerfisins, verðgildi
sparifjár haldist nægilega
hátt tií að örva frjálsa
sparifjármyndun; stuðlað
verði að aukinni samkeppni
og þar með lægra vöruverði,
ríkisbúskapurinn og hin
opinbera forsjá minnki en
kjörorð ályktunardraganna
er frelsi í stað forsjár —
niður með verðbólguna.