Morgunblaðið - 30.09.1978, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 30.09.1978, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 1978 31 Halldóra Björnsdótt- — Minningarorð émáv&itin ir í dag fer fram frá Ólafsfjarðar- kirkju útför frú Halldóru Björns- dóttur, en hún andaðist að Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur- eyri 22. september s.l. Halldóra var fædd í Ólafsfirði 18. nóvember 1917, dóttir hjón- anna Þorbjargar Björnsdóttur og Björns Sigurðssonar í Miðhúsum. Þar ólst Halldóra upp og átti sitt heimili þar til hún giftist eftirlifandi manni sínum Halldóri Bjarnasyni frá Siglufirði. Þau áttu sitt heimili í Ólafsfirði. Halldóra og Halldór eignuðust 3 börn, Björn sem kvæntur er Kristínu Trampe frá Akureyri, Guðmundu Ólöfu sem er gift Jóni Jóhannssyni frá Ólafsfirði og Þorbjörgu sem er gift Önundi Haraldssyni frá Grindavík. Barnabörnin eru orðin 7. Allt frá barnæsku var Dóra föðursystir mín og fjölskylda hennar stór þáttur í lífi mínu. Það var stutt á milli heimila okkar og mikill samgangur. Ég minnist þess hve oft var glatt á hjalla í Miðhúsum hjá afa og ömmu þegar allar fjölskyldurnar voru saman komnar þar. Dóra átti við heilsu- leysi að stríða mestan hluta ævinnar en hún var kjarkmikil og dugleg og létta lundin hennar hjálpaði henni án efa mikið. En þrátt fyrir fötlun og oft mikil veikindi tel ég þó Dóru hafa verið lánsmanneskju. Hún átti góðan eiginmann sem allt vildi fyrir Noregur: „Benny” á bak við lás og slá Osló 28. september. Frá Jan Erik Laure, fréttaritara Mbl. SÁ MAÐUR, sem mest hefur verið um rætt í Noregi að undanförnu, Jan Petter „Benny“ Askevold, var fluttur leynilega til Noregs á miðvikudag. Hann var í fylgd svissnesku lögreglunnar sem handtók Benny á hóteli í Sviss 13. september. Þann 13. marz sl. rændi Benny 139 bankahólf í banka í Osló og stakk af til útlanda með ránsfeng sinn sem talinn var vera milljónir króna. Benny var úrskurðaður í varðhald í dag og var honum gefið að sök að hafa rænt 1,3 milljónum norskra króna, eða um 78 milljón- um íslenzkra króna. Lögreglan telur líklegt að upphæðin eigi eftir að hækka. Benny-málið hefur nú fengið á sig nýja mynd. Á mánudaginn knúði 24 ára brasilísk stúlka, Maria Fernandes, dyra hjá foreldrum Bennys og var henni tekið með opnum örmum. Hún sagðist vera ástmey Bennys og þar sem þau ættu von á barni hefðu þau í hyggju að ganga í hjónaband. Benny hitti Mariu í Rio De Janeiro en þar hefur hann að mestu haldið til frá því hann rændi bankahólfin. hana gera og börnin hennar og tengdabörnin reyndust henni allt- af eins og best verður á kostið. Það var gott að njóta gestrisni Dóru og Dóra, þar sameinaðist hlýja og gott viðmót þeirra og notalegt ándrúmsloft fallegs heimilis. Dóra var myndarhúsmóðir og vel að sér til allra verka, hvort sem það voru húsmóðurstörfin, saumar eða hannyrðir. Hún var ákaflega barngóð, þess nutu börnin mín í ríkum mæli þegar við vorum í heimsókn fyrir norðan. Á kveðjustund er alltaf margs að minnast og margt að þakka. Mér er efst í huga innilegt þakklæti til frænku minnar fyrir allt það góða sem hún gerði mér og minu fólki. Ég er þakklát fyrir litlu stundina sem við systurnar og dóttir mín áttum með Dóru á sjúkrahúsinu fyrir mánuði síðan, þeirrar stundar mun ég alltaf minnast. Við hjónin og börnin okkar vottum Dóra, börnunum, tengda- börnum, barnabörnum og systkin- um Dóru okkar dýpstu samúð. Blessuð sé minning Halldóru Björnsdóttur. Kristín B. Sigurbjörnsdóttir. EF ÞAÐ ER FRÉTTNÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í MORGUNBLAÐINU vn;LVSi\(t \. símiw r.K: 22480 Gjafavörur i urvali Lancome snyrtivörur, barnavörur í úrvali. Opiö til kl. 10 í kvöld. Álftamýri 1, sími 81251. Kvenstúdentafélag íslands og félag íslenskra háskólakvenna heldur aöalfund laugardaginn 7. október 1978 í átthagasal Hótel Sögu og hefst fundurinn kl. 12.30 með hádegisveröi. Fundarefni: Aöalfundarstörf, stjórnar- og nefndarkosningar. Önnur mál. Stjórnin. Hveragerói JÁ, AUÐVITAÐ ER ÞETTA VAÐ annað Geimsteinn leikur i kvöld beint frá U.S.A. Rúnar Hrólfur Sætaferðir frá Torgi og B.S.Í. Munið nafnskírteinin. Festi Grindavík. Stórhlutavelta Stórhlutavelta veröur haldin í lönaöarmannahúsinu viö Hallveigarstíg í dag og á morgun klukkan 2—5. Meöal vinninga eru sólarlandaferö, ferö eftir eigin vali meö Flugleiöum auk fjölda annarra góöra vinninga svo sem páskaegg, fatnaöur, sælgæti, bækur og margt fleira. Engin núll. Hkd. Víkings.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.