Morgunblaðið - 30.09.1978, Síða 40
An.LYSIMiASIMINN ER:
22480
LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 1978
Útvegsmenn og sió-
menn vilja 11—16%
hækkun fiskverðsins
Sjávarútvegsráðherra ræðir um 7-8%
ENN mun vera langt í land meö að
almennt fiskverð verði ákveðið, en
nýtt fiskverð á að taka gildi frá og
með 1. október. Morgunblaðið hefur
fregnað að sjómenn og útvegsmenn
hafi farið fram á 11 — 16% meðal-
talshækkun á fiskverði, en kaup-
endur hafa hins vegar sagt að
miðað við núverandi rekstrarskil-
yrði vinnslunnar sé enginn grund-
völlur fyrir fiskverðshækkun.
Samkvæmt þeim upplýsingum sem
Morgunblaðið aflaði sér í gær, mun
Kjartan Jóhannsson sjávárútvegs-
ráðherra hafa rætt um 7—8%
hækkun fiskverðs sem mögulegan
kost. Mun ráðherrann hafa boðað þá
Óskar Vigfússon; formann Sjó-
mannasambands Islands, og Ingólf
S. Ingólfsson, forseta Farmanna- og
fiskimannasambands íslands, á sinn
fund og óskaó eftir meðbyr, en þeir
Óskar og Ingólfur munu hafa staðið
fastir á sínu, og sagt að sjómenn
þurfi 13% fiskverðshækkun til að
halda í við aðrar stéttir. Þá munu
Slæmt ástand í gær:
26 árekstrar
REYKVÍKINGAR voru ekki til fyrirmyndar í umferðinni í
gær. Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar urðu 24
árékstrar frá miðnætti í fyrrinótt til klukkan 23 í gærkvöldi
en sem betur fer urðu engin slys á mönnum.
Að sögn lögreglunnar var geysimikil umferð í Reykjavík í
gær enda fjölgaði árekstrum um 10 frá deginum áður, úr 14
í 24. í Hafnarfirði urðu árekstrarnir tveir í gær, einum fleiri
en deginum á undan en Kópavogsbúar fá sérstakt hrós fyrir
frammistöðuna í gær, þar varð enginn árekstur á móti
fjórum daginn áður.
Það er huggun harmi gegn
að í þessum 26 árekstrum á
höfuðborgarsvæðinu í gær
skuli ekkert slys hafa orðið.
En menn geta ímyndað sér þá
fjármuni, sem fuku út í veður
og vind hjá mörgum borgar-
anum í gær því að milli 50 og
60 bílar hafa skemmst meira
og minna
um.
í þessum árekstr-
Vegfarendum hefur tekizt
að halda slysunum í lágmarki
undanfarna daga. Nú er tak-
markið að draga einnig úr
árekstrunum og þar með
slysahættunni.
útvegsmenn einnig vera harðir á því
að almenn fiskverðshækkun verði
ekki undir þessu marki, þar sem
kostnaðarliðir flotans hafi hækkað
gífurlega að undanförnu.
Ekki er vitað rpeð vissu um
afstöðu annarra ráðherra en sjávar-
útvegsráðherra til fiskverðshækkun-
ar, en heyrst hefur að Alþýðubanda-
lagsmenn vilji ekki meiri en 6%
fiskverðshækkun og Framsóknar-
menn jafnvel enn minni hækkun.
Síðasti fundur í yfirnefnd Verð-
lagsráðs sjávarútvegsins um fisk-
verðið var í fyrradag, en sá fundur
var stuttur. Ekki er gert ráð fyrir
öðrum fundi fyrr en eftir helgi og
almennt munu menn ekki eiga von á
að fiskverðsákvörðunin komi fyrr en
um 10. október.
Reknetabátar á leið inn til Hornaf jarðar.
Ljósm.i Snorri Snorrason.
Sfldveiðin orðin um 20 þús. tunnur
SÍLDVEIÐI hjá reknetabátum var sáratreg í gær, og var sama
hvort bátar létu reka við Hrollaugseyjar eða í Lónsbugt. í fyrradag
var veiðin hins vegar mun betri og fengust þá upp í 200 tunnur á
bát. Heildarsíldveiðin, það sem af er þessu hausti mun nú vera
orðin um 20 þúsund tunnur, sem er mun minna en á sama tíma í
fyrra. Langmestum hluta síldarinnar hefur verið landað á Höfn í
Hornafirði eða á milli 17 og 18 þúsund tunnum.
„Tel ósennilegt að
EFTA og EBE beiti
okkur þvingunum”
segir Haukur Björnsson framkvæmdastjóri
Ný fíkniefnamál:
menn í gæzlu-
varðhald í gærkvöldi
ÞRÍR ungir menn, um og yfir
tvítugt voru í gærkvöldi úrskurðað-
ir í gæzluvarðhald vegna rannsókn-
ar fíkniefnamála.
Tvi-ir mannanna voru úrskurðað-
ir í <JIt að 30 daga gæzluvarðhald
en einn í allt að 15 daga gæzluvarð-
hald. Daginn áður hafði maður á
svipuðum aldri verið úrskurðaður í
ailt að 20 daga gæzluvarðhald.
Fíkniefnadeild lögreglunnar ann-
ast rannsóknina. Guðmundur Gígja
lögreglufulltrúi sagði í samtali við
Mbl. í gærkvöldi að rannsóknin væri
á byrjunarstigi og því væri ekkert
hægt að segja um umfang þessara
fíkniefnamála.
„ÞAÐ AÐ EBE og Efta muni beita
okkur þvingunum ef tolialækkun-
um verður frestað hér á fslandi er
staðhæfing, sem engin staðfesting
hefur fengist á,“ sagði Haukur
Björnsson framkvæmdastjóri
Félags íslenzkra iðnrekenda í
samtali við Morgunblaðið í gær.
„Eg tel sjálfur afar ósennilegt,"
sagði Haukur, „að þessi bandalög
muni beita okkur þvingunum t.d. í
því formi að Efnahagsbandalagið
grípi til bókunar sex og setji þar með
tolla á innflutning íslenzkra sjáfar-
afurða ef fulltrúar íslenzkra stjórn-
valda leggja málið hreint fyrir og
skýri bandalögunum frá þeim ástæð-
um, sem liggja að baki frestun
tollalækkunarinnar. Það liggur í
hlutarins eðli að bandalögin muni
mótmæla frestun tollalækkunarinn-
ar en eins og ég sagði áður tel ég
líkurnar á því að þau beiti okkur
þvingunaraðgerðum hverfandi ef við
skýrum mál okkar rækilega. Hins
vegar höfum við tekið fram, að ef við
verðum beittir þvingunaraðgerðum
verði að meta það þegar þar að
kemur hvorir hagsmunirnir vegi
meira. Við höfum aldrei haldið því
fram að þetta ætti að gera hvað svo
sem gerðist. Ég vil svo ítreka það, að
hér innanlands virðast menn ganga
út frá því sem gefnu að EBE muni
beita þvingunaraðgerðum í því formi
að hækka tolla á sjávarafurðum
héðan án þess að á það hafi reynt.“
„Við höfum margsinnis lagt fram
ósk við stjórnvöld að tollalækkunum
í samningum við Fríverzlunarbanda-
lagið og Efnahagsbandalagið verði
frestað," sagði Haukur, aðspurður
um óskir iðnrekenda í þessu máli.
„Við höfum jafnframt óskað eftir
því að sá tími sem þannig ynnist yrði
notaður til þess að koma á marg-
háttuðum umbótum í iðnrekstri hér
á landi þannig að við nýtum þar
svipaðra kjara og keppinautar okkar
erlendis."
Eeilbrigðisráðherra bannar
i eykingar í leigubifreiðum
< BRIGÐIS- og tryggingaráðherra hefur frá og með morgundeginum. 1. október bannað reykingar í
it "hifreiðum í leiguakstri. Bann þetta cr sett, að því er segir í fréttatilkynningu frá heilbrigðis- og
t ggingamálaráðuneytinu, samkvæmt beiðni og að höfðu samráði við Bandalag íslenzkra bifreiðastjóra. Bannið
e ; með skírskotun tii laga frá því á síðasta ári um ráðstafanir til að draga úr töbaksreykingum. í 7. gr.
laganna segir að brot gegn þeim varði allt að 5000 þúsund króna sekt, nema þyngri refsing liggi við að öðrum
lögum.
I lógunum segir að heimilt sé að
banna reykingar í bifreiðum sem
reknar séu með sérleyfum og er því
með þessu bætt við ákveðnu skilyrði
fyrir því að menn fái leyfi til
reksturs og aksturs leigubifreiða.
Guðmundur Valdimarsson, varafor-
maður Frama og stjórnarmaður í
Bandalagi íslenzkra bifreiðastjóra,
sagði í samtali við Morgunblaðið í
gær, að stjórn Bandalagsins hefði
farið fram á þetta við ráðuneytið.
Forsaga málsins væri sú að á árinu
1976 hafi á fundi í Bifreiðastjóra-
félaginu Frama verið samþykkt
tillaga, þar sem þess var farið á leit,
við stjórnina að hún beitti sér fyrir
því að banninu yrði komið á. Engin
mótatkvæði voru við tillögunnií
Síðan var á landsþingi Sambands
íslenzkra bifreiðastjóra síðar á árinu
1976 samþykkt að banna reykingar í
bílunum og hefur síðan verið uppi
merki um bannið í fjölmörgum
bílum. Þó var hverjum heimilt að
ákveða umgengni í sínu ökutæki.
Guðmundur kvað málið erfitt að
því leyti að sumir bílstjórar reyktu
sjálfir. Hann kvað bílstjóra ekki
mega láta standa sig að slíku og ef
þeir t.d. á nóttunni eftir bið eftir
akstri hefðu verið að reykja, yrðu
þeir að lofta vel út úr bílnum áður en
viðskiptavinurinn kæmi inn í bílinn.
Ökukennar-
inn próflaus
NÝLEGA uppgötvaðist að einn kunnasti ökukennari llafnfirðinga
hafði kennt á bíl í 18 ár án þess að hafa til þess tilskilin réttindi og
það sem meira er, maðurinn hefur ekki haft gilt ökuskírteini síðan
1971 eða í 7 ár. Allan þennan tíma hefur maðurinn útskrifað
nemendur án þess að nokkur athugasemd væri gerð í Bifreiðaeftirliti
ríkisins. Ekki er vitað um nákvæman fjölda nemendanna en þeir
skipta væntanlega hundruðum. því að síðustu fjögur árin hefur hann
útskrifað milli 60 og 70 nemendur.
Það var glöggur lögreglumaður
hjá Rannsóknarlögreglu ríkisins
sem uppgötvaði þetta í sumar,
þegar umræddur maður kom
þangað í yfirheyrslu. Þar sem um
var að ræða umferðarlagabrot,
var rannsókn málsins haldið
áfram í Hafnarfirði. „ökukennar-
inn“ mun hafa fengið réttindi til
ökukennslu fyrir 25—30 árum. Ný
reglugerð var sett um ökukennslu
árið 1960 og var þá starfandi
ökukennurum boðið að fá löggild-
ingu en um það hirti þessi maður
ekki af einhverjum ástæðum. Hélt
hann áfram ökukennslu þrátt
fyrir það. Árið 1970 rann ökuskír-
teini mannsins út og hirti hann þá
heldur ekki um að endurnýja það.
S.l. vor uppgötvaðist að maðurinn
hafði ekki bílpróf og gekk hann þá
undir ökupróf og stóðst það.
Ástæðan fyrir því að engin
athugasemd var gerð hjá Bifreiða-
eftirlitinu var sú, að maðurinn var
talinn svo þekktur ökukennari að
ekki væri ástæða til þess að krefja
hann skiiríkja. Hann mun hafa
útskrifað flesta nemendur sína í
Hafnarfirði. Nú hefur Bifreiða-
eftirlitið sett ákveðnar reglur um
það að ökukennarar sýni lög-
gildingarskírteini í hvert sinn sém
þeir koma með nemendur í öku-
próf.