Morgunblaðið - 04.10.1978, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. OKTÓBER 1978
13
Orgel-
tónleikar
Hedwig Rummel söngkona og
Flemming Dreisig orgelleikari
héldu tónleika í Dómkirkjunni
fyrir skömmu á vegum Tónlist-
arfélagsins. Tónleikarnir hófust
á smá orgelþætti eftir Francois
Couperin, sem Flemming Drei-
sig lék með þokka. Næst söng
Hedwig Rummel aríu úr Judasi
Makkabeus, eftir Hándel, og tvö
söngva úr Geistliche Lieder op.
105, eftir Reger. Hedwig Rum-
mel söng Reger mjög fallega og
var ekki síður gaman að heyra
undirleikinn hjá Dreisig, sem
var einstaklega fínlegur. Fjórða
atriðið var Flóttinn til Egypta-
lands, op. 63. nr. 4, eftir Otto
Malling (1848 — 1915), danskan
orgelleikara og skólastjóra Kon-
servatóríunnar í Kaupmanna-
höfn. Á eftir þessu svíplitla
verki söng Rummel þrjá söngva
úr Biblíuljóðunum, op. 99 eftir
Dvorák, og var undirleikur
orgelleikarans eftirtektarverð-
ur. Eina nútímaverkið, sem var
flutt á þessum tónleikum er
eftir Leif Kayser, Vivo úr
orgelkonsert 1965. Verkið er
Tðnllst
eftir JÓN
ÁSGEIRSSON
Paul Zukofsky Zygmunt Krauze
Sinfónískir
tónleikar
Efnisskrái
Þorkcll
Sigurbjörnsson
Fylgjur Zygmunt
Konsert fyrir Krauze
píanó og
hljómsveit Mendelssohn
Sinfónía
nr. 3. op. 56
Tilefni tónleikanna var að 1.
október hefur verið gerður að
alþjóðlegum degi tónlistarinnar.
í>að fer að líða að því að hver
dagur verði upptekinn til ein-
hvers konar hátíðahalda og
vandséð að svona sérdaga leikur
hafi nokkurn tilgang. Tónleik-
arnir hófust á nýju verki eftir
Þorkel Sigurbjörnsson, er hann
nefnir Fylgjur. Verkið er, eins
og mörg verka Þorkels, byggt á
þrástefjun og voru í því margir
góðir sprettir. I heild er það
nokkuð kyrrstætt, þar sem
unnið er án afláts úr eiriu stefi
og síðan allt í einu hætt við það
og tekið til við nýtt stef. Þannig
eru heildaráhrifin rofin af
kaflaskiptum og verkið verður
eins og röð samstæðra kafla en
ekki eitt verk. Stjórnandinn
Paul Zukofsky lék einleik á fiðlu
í verkinu og var leikur hans
mjög fallegur.
Annað verkið á tónleikunum
var Konsert fyrir píanó og
hljómsveit eftir Zygmunt
Krauze. Höfundurinn lék á
píanóið og var leikur hans á
köflum fallegur. Verkið minnir
mjög á fríleiknar fantasíur
framúrstefnupoppara, sem eru
að miklu leyti tónflóð í skölum
og hljómum, er hvíla á eins
konar liggjandi bassa. Þrátt
fyrir falleg blæbrigði var verkið
í heild fjarska viðburðalítið,
eins konar rússneskt jafntefli.
Tónleikunum lauk með þriðju
sinfóníunni eftir Mendelssohn. I
heild var flútningur sinfóníunn-
ar nokkuð hægur, nema í öðrum
kaflanum.
Hljómsveitin stóð sig mjög vel
og var auðheyrt að Zukofsky
hefur næmt eyra fyrir formi og
fallegum línum.
Jón Asgeirsson
Hedwig Rummel
langdregið og einhliða í gerð,
eins konar röð af tilbrigðum,
þar sem þrástagast er á sama
„mótívinu".
Eftir Darius Milhaud fluttu
Rummel og Dreisig fimm bænir,
sem eru útfærslur á fornum
trúarsöngvum. Dreisig lauk sín-
um þætti með West-
minster-fantasíunni eftir
Vierne. Fantasían er byggð á
klukkustefi Westminster-kirkj-
unnar og er skemmtilegt til
áheyrnar, ef það er leikið af
miklum tilþrifum, en annars
óttalegt gums. Tónleikunum
lauk með lagi eftir Weyse, sem
um nokkur ár þjáði Islendinga
svo við lá að þeir gleymdu eigin
söngvum. Rummel og Dreisig
eru góðir tónlistarmenn og
gerðu margt mjög fallega, eink-
um í meðferð fíngerðra blæ-
brigða.
Myntsafnarar ætla að
gefa út minnispening
Myntsafnarafélag íslands verð-
ur 10 ára hinn 19. janúar n.k. og í
frétt frá Myntsafnarafélaginu
segir að öilum landsmönnum sé
boðið að taka þátt í samkeppni
um teikningu á minnispeningi.
sem slá á í tilefni afmælisins.
Peningurinn á að vera úr silfri og
verður í crown-stærð.
Crown-stærðin er valin sökum
þess hve algeng myntstærð hún
hefur verið á undanförnum öldum.
Af þessari stærð voru dalirnir
gömlu og spesíurnar, silfurdollar-
ar, minnispeningar Ólympíunefnd-
ar íslands frá 1972 og 1976.
Peningurinn er kringlóttur og sem
næst 39 mm í þvermál. Á peningn-
um skulu koma fram ártölin 1969
og 1979 og nafn félagsins. Fram-
hlið peningsins verður sú hliö, sem
nafn og eða merki félagsins er á og
um það má gera tillögur. Þá segir
að ekki sé skilyrði, að teikning
fylgi af báðum hliðum. Verðlaun
fyrir beztu teikninguna verða 200
þús. kr. eða 100 þús. kr. á hlið, ef
valin verður sitt hvor hliðin frá 2
aðilum.
Skila skal teikningum er skulu
vera 15 sm að stærð í pósthólf 5024
í G.ER hófst í Reykjavík ársfund-
ur félags þeirra manna, sem
vinna á sviði rannsókna í fiskiðn-
aði í V-Evrópu en alls sækja
fundinn 39 útlendingar og 5
íslendingar.
Dr. Björn Dagbjartsson for
stjóri Rannsóknastofnunar fisk-
iðnaðarins sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær. að þetta
væri í níunda sinn. sem þessi
fundur væri haldinn og nú hefði
röðin verið komin að íslending-
um. Bretar. Norðmenn og Hol-
lendingar hefðu verið leiðandi á
þessu sviði. en á þessum fundum
skiptust menn á skoðunum.
„Þessir fundir eru frekar
í Reykjavík 105 fyrir 1. nóvember
n.k.
Slegnir verða 400 peningar, en
félagar i Myntsafnarafélaginu eru
nú 350, og formaður félagsins er
nú séra Ragnar Fjalar Lárusson,
— Fundir félagsins eru haldnir
einu sinni í mánuði í Templara-
höllinni or verður næsti fundur
hinn 14. október kl. 14.30. Þá er
fyrirhuguð myntsýning í Bogasal
Þjóðminjasafnsins í aprílmánuði
n.k.
lokaðir, en á þeim ræða menn um
þær rannsóknir sem í gangi eru og
fást þar oft mikilsverðar
upplýsingar, sem kannski hefðu
ekki komið fram fyrr en um
tveimur árum síðar í vísindarit-
um,“ sagði Björn.
Fulltrúar á fundinum fara í dag
til Vestmannaeyja og kynna sér
fiskiðnaðinn þar, en fundi verður
síðan haldið áfram á miðvikudag
og verður slitið þá um kvöldið. Að
sögn dr. Björns Dagbjartssonar þá
var mest rætt um gerlafræði á
fundinum í gær, „hvort menn
leggja of mikla áherzlu á þær
rannsóknir, eða hvort fólk sé
almennt of kærulaust gagnvart
gerlum," sagði hann.
Vísindamenn í fiskiðn-
aði funda í Reykjavík
Lítilli stnlkn
var gefið 1000 kr. hlutabréf í flugfélagi fyrir 30 árum. Það
bréf er nú orðið að 354.000 króna hlut í Flugleiðum h.f.
Gefðu börnunum hlutabréf í Flugleiðum h.f. í fæðingargjöf,
sem tannfé, í skírnargjöf, afmælisgjöf, fermingargjöf eða
af einskærri fyrirhyggju.
Verðgildi bréfanna eru kr. 10.000, 50.000 og kr. 100.000.
Hafðu samband við næsta umboðsmann eða skrifstofu
Flugleiða. Sími aðalskrifstofu er 27800.
FLUGLEIDIR HF
Hlutabréfadeild sími 2 78 00.