Morgunblaðið - 04.10.1978, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. OKTÓBER 1978
Bætt umferðarmenning er
hagsmunamál okkar allra
Aðhaldsaögerðir
Hækkun sekta. Á síðustu árum
hafa sektir fyrir umferðarlagabrot
verið hækkaðar. Sektir þessar eru
þó í flestum tilvikum allt of lágar
til þess að bera tilætlaðan árang-
ur. Sérstaklega sektir fyrir endur-
tekið brot. Ábyrgð á greiðslu
þessara sekta ætti að ná til
eigenda bifreiðarinnar sjálfrar ef
með þyrfti. Athugandi væri að
sektir þeirra sem aka ökuleyfis-
laust væru eins háar eða hærri en
verðmæti þeirrar bifreiðar sem
ekið er. Með þessu móti væri
sennilega hægt að tryggja að
menrl brytu ekki umferðarreglur
oftar en einu sinni eftir ökuleyfis-
sviptingu.
Ölvun, við akstur. viðurlög.
Refsing vegna ölvunar við akstur
er í dag fyrst og fremst ökuleyfis-
svipting, ásamt nokkurri sekt. Þar
er ljóst að svipting ökuleyfis
kemur mjög misjafnlega niður á
þeim kærða og nánast engar hjá
öðrum. Sektir ættu að hækka
verulega á kostnað sviptingartíma
og jafnvel fella sviptingartíma
alveg niður t.d. við fyrsta brot, en
láta viðkomandi þess í stað
gangast undir ökupróf að nýju.
Hafi aðili átt hlut að umferðar-
óhappi og jafnvel yfirgefið vett-
vang væri refsing verulega mikið
þyngri. Lendi aðili sem er ölvaður,
hefur verið sviptur ökuréttindum,
eða ekki öðlast þau, í umferðar-
óhappi er tjón hans í dag gert upp,
án tillits til þess, þannig að
tjónaskipting ef um hana er að
ræða fer fram án tillits til þessa.
Ökumaður sem þannig er ástatt
um, ætti ekki að vera á ferð á
ökutæki og ætti því ekki að hljóta
bætur frá mótaðila, þó hann sé
umferðarlega séð í rétti. Þá er
nauðsynlegt að gera tryggingar-
félögum auðveldara að gera endur-
kröfur á hendur tryggingartaka,
þar sem það á við. Þau lög og
reglur sem gilda við ölvunarbrot
við akstur virðast óþarflega flókin
og seinvirk og aðalrefsingin fólgin
í ökuleyfissviptingu enda þótt
ökuleyfissvipting leiði sjaldan eða
aldrei til bættra ökusiða eða kenni
hinum seka að aka betur en áður.
Þvert á móti hefur verið bent á
erlendis, að ökumenn sem hætta
akstri í hálft ár eða 1 ár, aka
venjulega verr þegar þeir taka upp
akstur að nýju. Þeir hafa bæði
gleymt umferðarreglum og þeim
hefur förlast færni í akstri.
Nauðsynlegt er að stórhækka
sektir fyrir ölvun við akstur, nota
aðeins skammtíma-ökuleyfis-
sviptingar, en gera hinn ölvaða
ökumann ætíð ábyrgan fyrir því
tjóni sem hann veldur beint eða
óbeint með sínum ólöglega akstri.
Þegar um endurtekin brot er að
ræða eða stórslys, sem orðið hafa í
sambandi við ölvun við akstur, er
eðlilegt að langtíma-ökuleyfis-
sviptingu sé beitt. Ökuleyfi á að
sjálfsögðu aldrei að veita að nýju
nema að undangengnu ökuprófi,
skriflegu og verklegu.
Punktakerfið mun eitt veiga-
mesta atriði, sem hægt er að setja
í lög og reglugerðir til varnar
umferðarslysum en samkvæmt
þessu kerfi er umferðarbrotum
safnað inn á sérstaka skrá og
geymd þar í ákveðinn tíma. Verði
skráð umferðarbrot á hverjum
tíma of viðamikil, getur slíkt leitt
til tímabundins ökuleyfismissis.
Nú eru um 20 ár síðan F.Í.B. benti
fyrst á nauðsyn þessa kerfis.
Líklegt er að það geti sparað
bifreiðaeigendum tugi milljóna
króna ár hvert með fækkun
umferðarslysa. Vegna þessa ber
sérstaklega að fagna því að lagt
var fyrir Alþingi á árinu 1977
frumvarp um breytingu á um-
Síðari hluti
greinargerð-
ar stjórnar
Hagtrygg-
ingar hf.
ferðarlögum, þar sem gert var ráð
fyrir að kerfi þetta verði tekið upp
í íslensk lög. Því miður náði þetta
frumvarp ekki fram að ganga í
síðasta þingi.
IJmferðardómstóll. Allmörg ár
eru siðan F.I.B. benti á að
nauðsynlegt sé að koma á fót
umferðardómstól. Vátryggingarfé-
lög ættu ekki að vera mótfallin
einhverskonar gerðardómi til
ákvörðunar um sök eða sakar-
skiptingu í stað þess að liggja
undir grun um hlutdrægni í
meðhöndlun og uppgjöri tjóna.
Flestir þættir umferðarbrota eru
með þeim hætti að unnt er að meta
þá eftir tölulegu formi, þannig að
út komi gildi, sem auðvelt er að
meðhöndla í tölvu eftir föstum
formum (programmi), og láta
tölvuna túlka niðurstöðu sem
dómsúrskurð.
Lögreglumenn í umferðargæslu
þurfa þá að sjálfsögðu að færa
sérstaklega hannaðar skýrslur um
umferðarbrot. Ökuferilsskrá þarf
að geta tengst í tölvumeðferð
úrvinnslu þessara skýrslna. Með
þessum hætti er unnt að fá
dómsniðurstöðu fáum mínútum
eftir að skýrslugerð er lokið. Slíkri
niðurstöðu væri að sjálfsögðu
hægt að áfrýja til annars dómstigs
gegn hæfilegri tryggingu. Aðaltil-
gangur slíks dómstóls er að gera
málsmeðferð ódýrari og fljótari,
þannig að ákveðin refsing verði í
nánum tímatengslum við um-
ferðarbrotið. Refsing eða dóms-
niðurstaða, sem kemur löngu eftir
að umferðarbrotið hefur verið
framið og er næstum gleymt,
verður torskilin, óvinsæl og ólíkleg
til þess að bæta hegðun þess sem
brotið framdi. Viðurlög fyrir
umferðarlagabrot ættu yfirleitt að
vera eingöngu fjársektir, en öku-
leyfissviptingar aðeins í tilteknum
atvikum. Þegar ástæða er til að
svipa menn ökuleyfi ætti aldrei að
veita það aftur nema að undan-
gengnu ströngu ökuprófi.
Ökuferilsskrá. í áðurnefndum
breytingum á umferðarlögum er
gert ráð fyrir að stofnsett verði
ökuferilsskrá, er nauðsynlegt að
hún sé færð á tölvu og tiltæk
dómurum og lögreglu fyrirvara-
laust, hvenær sem á þarf að halda.
Slíkur upplýsingabanki er nauð-
synlegur grundvöllur fyrir raun-
hæfa og nútímalega dómsmeðferð
á umferðarlagabrotum.
Umgengni —
sóun
Umferðarmengun er mikið
vandamál í flestum þjóðfélögum.
Mikið er talað um mengun frá
stóriðju og iðnaði almennt, en þó
er það svo að mengun vegna
útblásturs bifreiða er yfirleitt
miklu meiri og hættulegri heilsu
manna en jafnvel öll mengun
stóriðjunnar samanlögð. Vegna
víðáttu landsins miðað við bif-
reiðafjölda og næstum stöðugra
vinda er hættan af þessari mengun
minni en víðast hvar annars
staðar.
Mengun á sér stað af völdum
bifreiða á þjóðvegum yfir sumar-
tímann með þeim ógrynnum af
ryki sem þyrlað er upp úr veg-
arstæðum, þannig að ofaníburður
beinlínis hverfur upp í andrúms-
loftið sem vegfarendur anda að
sér. Þetta ryk leggst jafnframt
yfir nærliggjandi beitilönd og
beitihaga dýra.
Þá er rykmökkur yfir þjóðveg-
um stórkostleg slysagildra í um-
ferð, þar sem ökumönnum byrgist
útsýn vegar og þar með nálægra
ökutækja, ástand vegarins með
öllum sínum holum ög hvörfum,
auk bæði dýra og manna sem gætu
verið á eða við þjóðvegi.
Auk þessa má benda á as-
falt-mengun á veturna þegar
bílarnir spæna upp mörg hundruð-
um tonna af asfalti sem fer sem
mismunandi fínn úði út í loftið,
sest á bifreiðar og bifreiðarúður en
fínustu úðaagnirnar fara einnig
inn í bifreiðarnar og sennilega
ofan í lungu ökumanna og farþega,
en þessi efni innihalda tjörusam-
bönd, benzspyrin, sem eru krabba-
meinsvaldandi. Saltaustur á göt-
um er sennilega veigamikill þáttur
í þessari mengun, spillir útsýni úr
bifreiðum og skemmir götur,
sennilega meir en nokkur einn
þáttur umferðarinnar.
Rannsókn á heildarkostnaði
umferðarslysa er þjóðarnauðsyn.
Með upplýsingum um þessi atriði
er hægt að átta sig á því í hvern
kostnað er hagkvæmt að leggja, til
að fyrirbyggja umferðarslys.
Sérhvert umferðartjón veldur
sóun verðmæta í formi skemmda á
tveimur eða fleiri ökutækjum, sem
leiðir til eyðslu á dýrmætum
gjaldeyri til kaupa á varahlutum
til endurbóta á hinum skemmdu
hlutum. Þetta tjón bindur mann-
afla og fjárfestingu á bílaverk-
stæðum við lagfæringu tjónsins án
þess að um verðmætasköpun sé að
ræða. Slys á fólki í umferðartjón-
um bindur fjármagn í heilbrigðis-
þjónustu þ.e. sjúkrarúm, lækna og
hjúkrunarfólk, auk þess sem
þjóðin glatar vinnuframlagi þessa
fólks um lengri eða skemmri tíma.
Ef öll sú vinna og fjármunir sem
bundnir eru afleiðingum umferð-
arslysa nýttust í stað þessa til
aukinnar framleiðslu og verð-
mætasköpunar leiddi það til auk-
innar velmegunar þjóðarinnar. Af
þessum ástæðum eru umferðar-
tjón og fækkun þeirra hagsmuna-
mál okkar þjóðfélagsþegnanna, en
ekki — hagsmunir vátryggingar-
félaganna eins og flestir telja.
Vátryggingariðgjöld ákvarðast af
ástandinu í þjóðfélaginu á hverj-
um tíma, þ.e. því fleiri tjón þeim
mun hærri iðgjöld. Ef þetta tvennt
helst í hendur, þá má vátrygging-
arfélögum á sama standa.
Af framansögðu er ljóst að bætt
umferðarmenning er hagsmuna-
mál okkar allra, og því ber
nauðsyn til að skapa hugarfars-
breytingu meðal almennings í þá
veru áð fækkun umferðartjóna eru
hagsmunir sérhvers ökumanns
sem bifreiðaeiganda og skattborg-
ara, en ekki afmarkað vandamál
umferðaryfirvalda og vátrygging-
arfélaga eins og álitið er af
mörgum.
Athugasemd
MORGUNBLAÖINU hefur borizt
eftirfarandi athugasemd írá pilt-
unum tveimur. sem viðtal var við
í Morgunblaðinu í gær og eru um
þessar mundir að gefa út sína
fyrstu ljóðabóki
„í fyrstu færum vjer þakkir
fyrir birting greinar um ljóðabók
vora. En, þar eð hugmyndir vorar
um heimspeki í sinni víðtæku
mynd eru rangtúlkaðar í þessari
grcin munum vjer tilneyddir að
leiðrjetta.
Vjer erum þeirrar skoðunar, að
það sje aðeins gamaldags deilda-
skipting sálfræði, að tala um
skynsemi óháða tilfinningum og
vilja. Þetta þrennt blandast saman
í hvurri einustu mannlegri hugs-
an. Það er líka verið að þrengja og
um leið falsa skoðanir vorar með
því að segja að indversk heim-
speki varði eingöngu veginn. Vjer
virðum jafnt hinar 3 meginupp-
sprettur heimspekinnar: Menn-
ingu hebrea, gríska fornmenningu
og austurlenzka trúarheimspeki,
er mun fyrir löngu orðin samruni
af þessu þrennu. Vjer lítum á það
sem fáranlega kenningu að setja
hugmyndum landamæri. Að lok-
um viljum vjer tilfæra enn þakkir
vorar fyrir birting greinarinnar.
Mun rangtúlkan skoðana vorra
orsökum og afleiðingum vera vor
sök að jöfnu, enda mun hið eina
sanna tungumál vera þögnin.
Með virðing og þökk
Ólafur Jóh. Engilbertsson
borsteinn K. Bjarnason.“
Ekki ein-
göngu
diskótek
Veitingamaðurinn í Skiphóli í
Hafnarfirði, Birgir Pálsson, kom
að máli við Morgunblaðið og vildi
leiðrétta þann misskilning að
breyta ætti veitingastaðnum í
diskótek. Hann kvað hljómsveit
verða áfram í húsinu, en hins
vegar væri hugmyndin að hafa
möguleika á hvoru tveggja. Þannig
yrði hljómlist spiluð af plötum á
meðan hljómsveit hússins tæki sér
hvíld, sem títt er um hljómsveitir,
sem spila fyrir dansi. Þetta
leiðréttist hér með.
Hafnar flug-
ferðir milli
Akureyrar og
Siglufjarðar
Siglufirði, 3. okt.
FLUGFÉLAG Norðurlands er að
hefja flugferðir milli Siglufjarðar
og Akureyrar. Verður flogið þrisv-
ar í viku, þriðjudaga, fimmtudaga
og sunnudaga. Er til mikilla bóta
að geta nú komist flugleiðis til
Akureyrar. Hægt er að kaupa
farmiða alla leið til Reykjavíkur
með viðkomu á Akureyri og kostar
hann svipað og farmiðinn með
Vængjum til Reykjavíkur. Vængir
fljúga hingað sex sinnum í viku.
- mj.
Litlar birgðir
af hangikjöti
LITIÐ mun nú vera til af hangi-
kjöti í verzlunum í Reykjavík og
t.d. mun það vera uppselt hjá SS.
Morgunblaðinu var tjáð í gær, að
ekki væri von á nýjum hangikjöts-
birgðum í verzlanirnar fyrr en um
og eftir helgi, en nýja kjötið er nú í
reykofnum, og verður tilbúið þá.