Morgunblaðið - 04.10.1978, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. OKTÓBER 1978.
25
l« lk í
fréttum
+ Á hjólaskautum. — Hjólaskautakeppni, er ein þeirra íþrótta sem við þekkjum eiginlega ekki til.
Fæstir munu hafa hugmynd um að þetta sé keppnisgrein í íþróttum. Álitið þetta aðeins leik barna og
unKlinKa. — En fyrir nokkru fór fram alþjóðleg parakeppni á hjólaskautum, suður í Lissabon í
Portúgal. betta eru sigurvcgararnir í 1,—3. sæti, en keppt var um gulh silfur og bronzverðlaun.
Gullið og silfrið féll í hlut Bandarikjamanna, en heimamenn hrepptu bronzverðlaunin.
T
+ Fyrir Barnahjálp Sam-
einuðu þjóðanna. — Leik-
arinn og leikstjórinn frægi
Peter Ustinov var vestur í
Bandaríkjunum fyrir
skömmu, til þess að kynna
þar hina nýju kvikmynd
sína „Death on the Niel“. —
Þar vestra spurðist, að
hann væri búinn að gera
kvikmynd fyrir Barnahjálp
Sameinuðu þjóðanna — og
mun hún vera mjög
skemmtileg.
+ í heimsókn. Wyszynski kardináli yfirmaður kaþólsku
kirkjunnar í Póllandi var fyrir skömmu í heimsókn í
V-býzkalandi. Messugjörð annaðist hann á ýmsum stöðum. en
þessi mynd er tekin er hann flutti messu í minningarkapellunni í
Dachau, fyrir sunnan Miinchen, en þar voru á dögum nazista
illræmdar fangahúðir. Dauchau fangabúðirnar, þar sem hundruð
þúsunda fanga voru myrtir. Kardinálinn hafði lagt á það áherzlu
i' ræðum sínum. að þjóðirnar tækju höndum saman til að vinna að
framtíð Evrópu. — Telpan á myndinni með kardinálanum er af
pólskum ættum.
Finnska lögreglan
náði flugræningja
Oulu. Finnlandi. 1. okt. Reuter.
SÍÐDEGIS á sunnudag tilkynnti
finnska lögreglan að hún hefði
komið höndum vfir flugra'ningja
sem hafði staðið að lengsta
flugráni í Skandinavíu og því
fyrsta í Finnlandi. Lögreglan
gerði áhlaup á heimili ræningj-
ans sem hafði fengið að fara heim
til sín snemma á sunnudagsmorg-
un gegn því að hann gæfi sig
síðan fram. Af því varð þó ekki
og þegar hann fór þess í stað að
senda frá sér nýjar kröfugerðir
var ákveðið að láta til skarar
skríða.
Upphaf niálsins er að maðurinn
Aarno Lamminparras, 37 ára
gamall Finni, hafði rænt Cara-
velle-vél frá Finnair í innanlands-
flugi frá Oulu til Helsinki. Vélin
lenti í höfuðborginni, fór aftur
áleiðis til Oulu, sneri enn á ný til
Helsinki, fiaug til Amsterdam og
tók þar eldsneyti. og var síðan
tekin stefnan á Helsinki eina
ferðina enn. Meðan á flugráninu
stóð leyfði Lamminparras far-
þegununi sem voru 43 að tölu að
fara óhindraðir frá borði.
í fréttum var sagt að flug-
ræninginn hefði um hríð haft í
hótunum um að drepa gísla sína og
hefði hann eftir atferli sínu virzt
undir áhrifum áfengis. Finnska
blaðið Helsinki Sanomat afhenti
honum 37.500 dollara sem lausnar-
gjald og 43.600 dollarar voru
gefnir til hermannasjúkrahúss og
barnaheimilis eins og hann hafði
krafizt.
Eftir að vélin kom loks í síðustu
ferðina til Oulu leyfði flugræning-
inn síðan áhöfninni að fara leiðar
sinnar. Síðan hafði hann heitið
lögreglunni því að gefa sig fram
næsta morgun ef hann fengi að
dvelja á heimili sínu aðfararnótt
sunnudags. Þegar hann varð ekki
við því var svo látið til skarar
skríða eins og áður er sagt. Enginn
mun hafa slasast í áhlaupinu og
flugræninginn mun nú einnig
gangast undir læknisrannsókn.
Meinatækn-
ar hækka í
launaflokkum
EKKI kom til að meinatæknar
færu í verkfall á miðnætti á
laugardag eins og þeir höfðu
boðað. Á síðustu stundu náðust
samningar milli þeirra og viðsemj-
enda, sem er fjármálaráðuneytið.
Fram til þessa hafa meinatæknar
verið í 12. launaflokki, en sam-
kvæmt nýja - samkomulaginu,
verða meinatæknar í 12. flokki
fyrstu sex mánuðina í starfi, í 13.
launaflokki næstu sex mánuði og
flytjast síðan upp í 14. launaflokk
eftir eins árs starf.
Þorsteinn Geirsson skrifstofu-
stjóri fjármálaráðuneytisins sagði
í samtali við Morgunblaðið í gær,
að þetta samkomulag byggðist á
bókun kjaranefndar frá því á
laugardag, en þar segir að meina-
tæknar skuli vera í ofangreindum
þremur launaflokkum. Höfðu
meinatæknar þá á síðustu stundu
snúið sér til kjaranefndar. Launa-
munur í umræddum flokkum er
um 3'Jt á milli flokka.
Dömur - Dömur
Hafiö þiö athugaö hvaö klipping,
permanent eöa
biástur getur gert mikið?
Geriö svo vel, reynið viöskiptin.
Hárgreiðslustofan Dís,
Ásgaröi 22, sími 35610.
Segulstál
Vigtar 1 kíló. Lyftir 60 kílóum.
Stærö 8x9x3 sentimetrar.
Gott til aö „fiska" upp járnhluti úr sjó, ám,
vötnum, gjám, svelg, tönkum. Líka til aö halda
verkfærum og smíöahlutum.
Sendum í póstkröfu.
Sfly(?ÍSllUig)tUilP <J)<S)(n)®@®0Tl ® ©® reykjavik, iccland
VESTURGOTU 16 - SÍMAR 14680 ■ 11480- POS 605-TEIEX, 2057 STURtA IS