Morgunblaðið - 12.10.1978, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 1978
3
FRÁG Ullarteppi Teppabútar Áklæði Gluggatjöld Buxnaefni Kjólaefni iEFJUN Ullarefni Sængurveraefni Garn - Margar geröir Loöband Lopi o.m.m. fl. FRÁ SKÓVERKSM. IÐUNNI Karlmannaskór Kvenskór Kventöflur Unglingaskór FRA FATA- VERKSM. HEKLU Fyrir dömur, herra og börn Gallabuxur Anorakkar Vinnubuxur Peysur Smekkbuxur Sokkar FRÁ HETTI Fyrir dömur, herra og börn. Mokkalúffur Mokkahúfur
Lager — Iðnaðardeildar Peysurfrákr.2000- piisfrákr.2.000- r .. Fóöraöir jakkar frá kr. 5.000.- Vesti frá kr. 2000.- IIZKUVOrUr ur Ull Prjónakápur frá kr 4.000.- Ofnar slár frá kr. 6.000.-
Um 50 bækur frá
IÐUNNI fyrir jólin
IAunn Kefur út um 90 bækur í ár,
þar af 50 jólabækur. Meðal bóka
sem út koma hjá Iðunni á næstunni
eru: ljóðabók eftir Jóhann Hjálmars-
son, bók um Kjarval eftir Thor
Vilhjálmsson, skáldsögur eftir Pétur
Gunnarsson, Ólaf Gunnarsson og
Þorstein Antonsson, frásagnabók
eftir Ása í Bæ, nýtt bindi af Öldinni:
Öldin okkar, tímabilið 1961—70, sem
Gils Guðmundsson og Björn Vignir
Sigurpálsson hafa tekið saman,
síðara bindi Svarfdælinga, þriðja
bindi sögu frá Skagfirðingum, end-
urminningar Klemenzar Kristjáns-
sonar á Sámsstöðum, sem Sigurlaug-
ur Brynleifsson skráði, hugleiðingar
og frásagnir Brodda Jóhannessonar
og þjóðlegur fróðleikur á bók eftir
Kjartan Júlíusson á Efri-Skáldsstöð-
um í Eyjafirði, en Halldór Laxness
skrifar inngáng. Þá kemur í þýðingu
Kristjáns Eldjárns bók danskra
arkitekta um sögu átta steinhúsa,
sem reist voru hér á landi íyrir um
200 árum og standa enn. Meðal
barnabóka Iðunnar er Sigrún flytur,
eftir Njörð P. Njarðvík.
Meðal þýddra bóka sem Iðunn
gefur út eru bækur eftir Alistair
McLean, David Morrell, Brian Calli-
son, Hammond Innes og Mary
Stewart, sem áður hafa komið út
bækur eítir hjá Iðunni og einnig
koma nú bækur eftir franska konu,
Jeanne Cordelier, sem lýsir reynslu
sinni sem vændiskona í París, en
bókin hefur vakið mikla athygli og
verið þýdd á fjölda tungumála, og þá
er bókin um stjörnustríðið, „Star
Wars“, eftir George Lucas einnig
væntanleg frá Iðunni fyrir jól.
Meðal barna- og unglingabóka sem
Iðunn gefur út fyrir jólin eru dönsk
verðlaunabók eftir Bent Haller, bók
eftir sænska höfundinn Gunnel
Beckman, norska barnabókahöfund-
inn Evi Bogenæs og bandaríska
unglingabókahöfundinn E.W. Hild-
ick. Einnig bækur eftir Sven Wern-
ström og Ole Lund Kirkegaard.
Tvær Barbapapa-bækur koma út
fyrir jólin og fylgir annarri fjögurra
laga plata með söng kórs Öldutúns-
skóla. Þá gefur Iðunn út nýjar bækur
um Kalla og Kötu og Tuma og Emmu
og í hópi teiknimyndasagna er farið
af stað með fjóra nýja bókaflokka.
Ljóðabók Jóhanns Hjálmarssonar
heitir Lífið er skáldlegt og verður
það etlefta ljóðabók hans. Skáldsaga
Péturs Gunnarssonar nefnist: Eg um
mig frá mér til mín og er sjálfstætt
framhald af bók hans Punktur
Punktur komma strik. Bók Ólafs
Gunnarssonar nefnist Milljón prós-
ent menn og er það hans fyrsta bók
en eftir Þorstein Antonsson hefur
Iðunn áður gefið út Foreldravanda-
málið, en nýja bókin Þorsteins heitir
Sálumessa 77.
Riðuveiki gerir
nú víða vart við sig
SÉRFRÆÐINGAR hafa nú tölu
verðar áhyggjur af því hversu
riðuveiki breiðist nú út hér með
uggvænlegum hraða á vissum
stöðum á landinu.
Að því er Sigurður Sigurðsson,
dýralæknir á Keldum, sagði í
samtali við Mbl. í gær er þó
útbreiðsla þessa skæða sjúkdóms
mest um þessar mundir á Austur-
iandi og í Kelduhverfi, og einnig
hefur veikin fundist á einum bæ í
Jökuldal, eða á svæði sem taliö er
sérlega. viðkvæmt vegna þess að
aðrir möguleikar til lífsafkomu en
sauðfjárrækt eru þar ekki fyrir
hendi með góðu móti. Þá hefur
riðu nú orðið vart á fáeinum
bæjum austan fjalls og er það í
fvrsta sinn sem veikinnar verður
vart sunnanlands.
Bændur eru eindregið varaðir
við því að kaupa fé og hey frá
svæðum þar sem riðuveikinnar
hefur orðið vart.
Sjá „Uggvænlega ör út-
breiðsla á riðuveiki" blsi 23.
Söluop á Akureyri op-
in til kl. 4 að morgni
- VERZLUNARFÓLK tók þess-
um breytingum vel þegar farið
var á leit við það af hálfu
Kaupfélags Eyfirðinga að söluop
yrði opin á kvöldin til kl. 22 og
lengur á sumrin, en þetta er allt
unnið í aukavinnu, sagði Asa
Helgadóttir hjá Félagi verzlunar-
og skrifstofufólks á Akureyri í
samtali við Mbl.
— Nú eru ekki lengur neinar
takmarkanir á þvi hvaða varning
má selja og að því leyti erum við
betur sett en Reykvíkingar, sagði
Ása, en þessu var breytt fyrir
nokkru.
Ása Helgadóttir sagði að auk
verzlana KEA sem hefðu opið
söluop til kl. 22 væri Kjörbúð
Bjarna með opið til kl. 23:30 og
Nesti hefði nýlega fengið leyfi til
að hafa opið um helgar til kl. 4 að
nóttu og hefði það gefizt vel. Sagði
Ása að umferðin hefði þá beinzt
nokkuð úr miðbænum og ylli ekki
ónæði lengur.
— Þessi nýi verzlunartími
svona lengi á nóttunni hefur því
gefizt vel og má búast við að t.d.
ferðamenn eigi eftir að njóta góðs
af honum, enda hefur það sýnt sig
að þeir notfæra sér mikið söluopin
á sumrin, sagði Ása Helgadóttir að
lokum.
Gangbrautavörður
tryggir frekara öryggi
— segir Garðar Sigurgeirsson
SAMÞYKKT var nýlega að ráðinn skyldi gangbrautarvörður við
gangbrautina á Hafnarfjarðarveginum við Ilraunsholtslak. sagði
Garðar Sigurgeirsson bæjarstjóri í samtali við Mbl., en þarna er
gífurleg umfcrð og börnin sem stunda nám í Garðaskóla þurfa að fara
yfir Ilafnarf jarðarveginn þar sem skólinn starfar f húsum sitt hvorum
mcgin vegarins.
Garðar Sigurgeirsson sagði, að
þótt gangbrautarljós væru á þessari
gangbraut þá hefði það sýnt sig að
nemendur hefðu stundum farið út á
götuna áður en bílar staðnæmdust
við rautt ljós og því hefði verið
ákveðið að setja þarna upp ljós til
að fyrirbyggja sem unnt væri að
þarna yrði slys og tryggja öryggi
hinna gangandi, en slys hefur ekki
orðið. Þá sagði Garðar að komin
væru til landsins ljós til að setja
upp á gangbrautina yfir Vífils-
staðaveginn móts við barnaskólann,
þar sem er mikil umferð barna úr
Silfurtúni og Arnarnesi yfir veginn.
— Við teljum okkur tryggari með
þessum ljósum, sagði Garðar, og á
næstunni verður einnig hafist
handa um frekari aðgerðir á
Hafnarfjarðarvegi milli Vífils-
staðavegar og Hraunsholtslækjar
og mun Vegagerðin sjá um það. Þar
er um að ræða að reyna að hindra
eins og unnt er að hægt sé að aka
inn á Hafnarfjarðarveginn og út af
honum á þessum stutta kafla, en
hann er mjög varasamur vegna þess
að bílar geta nánast hvar sem er
komist inn á götuna.
Fyrsta síldin til Eskifjarðar
FYRSTA síldin barst til Eskifjarðar í gær og var hún söltuð hjá
söltunarstöðinni Friðþjófi, en það var Seley sem landaði 200 tunnum af
blandaðri síld. Þá komu 3 loðnuskip til Eskifjarðar í gær, Grindvíkingur
með 700 tonn, Kap II með 650 og Jón Kjartansson með 800. Blíðviðri
hefur verið á Eskifiröi undanfarið að sögn fréttaritara Mbl. og líkti hann
veðrinu við sumarveður.
Sambandsverksmiðjurnar — Akureyri
VERKSMKUU-
ÚTSALAN
Iðnaðarmannahúsinu Hallveigarstíg 1.
SLÆR ÖLL FYRRI MET
Allir gera þaö gott...
og þú líka — þegar þú kemur
SAMBANDSVERKSMIÐJURNAR
AKUREYRI
Verksmiöjuútsalan Iðnaöarmannahúsinu Hallveigarstíg 1.
Teppi
frá kr.
2.300
Peysur kr.
Skólapeysur
,rá kr 1500
karlmannaskór frá kr.