Morgunblaðið - 12.10.1978, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 12.10.1978, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 1978 i FÆREYINGANA ÍSLENDINGAR og Færeyingar leika tvo landsleiki í handknatt- leik næstkomandi föstudag og lauRardag. Færeyingar endur- gjalda nú heimsókn íslenzka landsliðsins frá síðasta mánuði. Færeyingar búa sig nú af kappi fyrir c-keppnina, sem haldinn verður í Sviss 10. —18. nóvember. Þeir leika þar í riðli með Italíu og Noregi. Færeyska landsliðið hefur æft mjög vel allt síðasta sumar og Start bítast um bitann ÞEGAR aðeins ein umferð er eftir í norsku deildarkeppninni í knatt- sp.vrnu, er ljóst, að geysileg spenna verður i siðustu umfefðinni, því að Lilleström og Start hafa sama stigafjölda, 32 stig eftir 21 ieik. Lilleström hefur mun betra marka- hlutfali og mun hreppa titilinn í skjóli þess verði liðin jöfn í lokin. Lilleström er eins og mönnum er kunnugt lið Joe Hooley, góðkunn- ingja Keflvíkinga. Annar enn betri kunningi íslendinga, Tony Knapp, þjálfar Víking frá Stavangri. Knapp hefur náð bærilegum árangri með liðið, sem er nú í þriðja sæti með 29 stig. Ekkert lið á möguléika á að ná þessum þremur liðum í síðustu umferðinni, en Knapp á möguleika á að komast með lið sitt í 2. sætið og þar með í UEFA keppnina, ef Start tapar ieik sínum og Víkingur vinnur, því að markahlutfall Víkings er betra en það hjá Start. Staða þriggja efstu liðanna er nú þessi. j Lilleström í I I I ISLENZKU LIÐIN FÖSTUDAGUR MARKVERÐIR. I>orlákur Kjartansson Haukum (nýliði). Sverrir Kristjánsson FII (nýliði). AÐRIR LEIKMENN. Símon Unndórsson KR Jóhannes Stefánsson KR (nýlidi) Friðrik Jóhannsson Ármanni Pétur Ingólfsson Ármanni (nýlidi) SÍKurður Gunnarsson Víkingi Erlendur Hermannsson Víkingi (nýliði) Birjfir Jóhannsson Fram Atli Hilmarsson Fram (nýliði) Konráð Jónsson Þrótti (nýliði fyrirliði). Hilmar SÍKurKislason IIK LAUGARDAGUR MARKVÖRÐUR Jens Einarsson ÍR AÐRIR LEIKMENN Árni Indriðason Víkingi fyrirliði Páll Bjorgvinsson Víkingi Vigifó Sijfurðsson V íkinxi Ólafur Jónsson Víkingi Þórir Gíslason Haukum (nýliði) Guömundur Magnússon FH (nýiiði) Inximar Haraldsson Haukum. Geir Hailsteinsson FH. Lillostrom Start 21 Vikim; 21 11-19 29-13 10-22 31 31 29 undir stjórn „Islandsbanans" Jörgens Pedersens og greinilega mátti sjá umtalsverðar framfarir landsliðsins þeirra er íslenzka liðið lék þar í síðasta mánuði. Um síðustu helgi áttu Færeyingarnir von á b-landsliði Dana til tveggja landsleikja, þannig að landslið þeirra hefur verið saman í æfing- um frá leikjunum við Ísland. Færeyingar koma með allt sitt sterkasta lið hingað til lands í þeim hópi eru auðvitað „út- lendingarnir" frá Danmörku. í síðustu leikjum þjóðanna í Færeyjum gekk íslenzku vörninni mjög erfiðlega að stöðva helztu stórskyttu þeirra Hanus Joensen, en hann gerði samtals 13 mörk í tveimur leikjum. Leikreyndasti leikmaður Færeyinga er Sverrir Jakobsen, en hann hefur leikið alla landsleiki Færeyinga nema einn. Ákveðið hefur verið af Islands hálfu að í fyrri leiknum tefli ísland fram landsliði 23 ára og yngri og mun sá leikur fara fram á Akranesi á föstudagskvöld og hefjast kl. 20.30. Má segja að unglingaliðið sé nær allt skipað „nýliðum" og hafa 3 bætst við hinn upphaflega 22-ja manna hóp er valinn var í upphafi. Aðeins vinnst tími til að hafa eina æfingu hjá liðinu fyrir leikinn á móti Færeyingum. Islenzka liðið er þannig skipað: I síðari landsleiknum sem fram fer í Laugardalshöll á laugardag teflir ísland fram A-landsliði sínu að undanskildum leikmönnum Vals, sem leika í Evrópukeppni um þessar mundir. Leikurinn á laugardag hefst kl. 15.30. í leiknum á laugardag mun íslenska landsliðið reyna varnar afbrigði hluta leiksins, sem íslenskt landslið hefur aldrei fyrr beitt í keppni. í leiknum á iaugardag mun mikið verða lagt upp úr hröðum sóknarleik, með aðaláherslu á hraðaupphlaup. Is- lenska liðið mun hafa eina æfingu fyrir leikinn á laugardagsmorgun. Nú liggur ljóst fyrir að Aust- ur-Þjóðverjar komast ekki hingað til tveggja landsleikja eins og fyrirhugað hafði verið. Leikirnir við Færeyinga eru því einu lands- leikirnir hér á landi þar til Danir heimsækja okkur í desember. Mjög mikilvægt er að áhorfend- ur komi og hvetji okkar ungu landsliðsmenn, sem margir hverjir eru að stíga sín fyrstu spor í landsliðinu. Reynslan hefur sýnt að gott upphaf getur verið gott veganesti þegar fram í sækir. ,Áttialls ekkivon áþessu" ÉG ER auðvitað mjög undr- andi, ég átti alls ekki von á þessu sagði nýi Iandsliðsfyrir- liðinn í handboltanum, Konráð Jónsson Þrótti,- sem er ekki einungis íyrirliði. heldur einn- ig nýliði. Er þetta algert einsdæmi hér á íslandi og vafalaust þótt víðar væri leitað, að leikmaður f landsliði í handholta sé gerður að fyrir liða í sínum fyrsta landsleik. Konráð, sem oft hefur vakið athygii í leikjum sínum með Þrótti íyrir þann sag af mörkum sem hann skorar stundum mun þó aðeins leika fyrri leikinn gegn Færeying- um. en það að Jóhann Ingi gerir hann að fyrirliða þykir hlaðamanni óneitanlega benda til þess að Jóhann hafi í hyggju að nota hann í fleiri landsleikj- um. Mbl. spurði Konráð hvort hann myndi gefa kost á sér í þann erfiða vetur sem íram- • Landsliðsfyrir„ný“liðinn Konráð Jónsson reynir markskot í leik gegn KR. undan er og hvort hann bein- línis gæti það vegna vinnu sinnar. Konráð svaraði að ef Jóhann Ingi myndi velja sig til frekari landsleikja. myndi hann haga málum sfnum sam- kvæmt því og reyna að Jeika eins mikið og frekast væri kostur. Hvort ábyrgðin sem fylgir fyrirliðastöðunni myndi gera hann taugaóstyrkan og þannig skemma fyrir honum leikinn. svaraði Konráði — Það má auðvitað ekki eiga sér stað og ég hef enga trú á að svo verði, þessi stöðuveiting er vissulega mikill heiður, en þetta er heldur enginn stórleik- ur. Hér er fyrst og fremst verið að gefa lítt reyndum leikmönn- um möguleika. -gg- • Þetta eru fyrstu sigurvegarar íþróttafélags Reykjavíkur í kanttspyrnu frá stofnun félagsins. Er þetta 5. fl. C sem sigraði f Reykjavíkurmótinu í sumar. Piltarnir heita, fremri röð frá v.i Guðjón Jónsson, Haraldur Sveinsson, Hreinn Baldursson, Kristinn Grétarsson, Þórarinn Guðjónsson, Þórður Kolbeinsson, Hlynur Jóhannsson, Kristján Snæbjörnsson, Jón Guðjónsson. Aftari röð frá v.i Þorvaidur Þorvaldsson, liðstjóri, Sveinn Arnórsson, Sigurður Þorvaldsson, Skúli Sigfússon, Finnur Páimason, óskar Sigurðsson, Gunnar Rúnarsson, Guðmundur Jónasson og Gunnar Pétursson þjálfari. Eviamenn leika við Slask 21. október — EF AÐ líkum lætur, leikum við gcgn Slask á íslandi laugardag- inn 21. október og síðan í Póllandi 2. nóvember, sagði Jóhann ólafsson í Vestmannaeyj- um í gær. er Mbl. hafði samband við hann vegna samningavið- ræðna ÍBV og Slask að undan- förnu. Framan af voru allar horfur á að báðir leikirnir yrðu leiknir ytra, en í ljós kom, að pólska liðið var ekki svo ríkt, að það gæti borgað undir Eyjaliðið eins og til yrði ætlast. Jóhann sagði að ekki lægi Ijóst fyrir hvar leikið yrði, ÍBV hefði fyrir nokkru sótt um að fá Laugardalsvöllinn, en til þessa hefði ekkert svar borist. Jóhann sagði ennfremur, að innan skamms færi ÍBV að ræða við forráðamenn knattspyrnu- vallarins í Kópavogi, ef Laugar dalsvöllurinn brygðist. — Það er af og frá að Vest- mannaeyingar fái Laugardals- völlinn, það er orðið svo áliðið að ekki verður meira leikið á honum á þessu ári, sagði Baldur Jónsson vallarstjóri í samtali við Mbl. í gær. — Hins vegar stendur þeim Melavöllurinn til boða ef þeir vilja, bætti Baldur við. Hið fræga lið Dynamo Kiev spilaði á Mela- vellinum hér um árið og líkaði það vel. Loks sagði Balduri — Ég vil benda á það, að í Kópavogi er upphitaður völlur, scm einmitt á aö vera góður fyrir leiki á þessum árstíma. Nú ætti það að koma f Ijós hvort þeim milljónum var vel varið, sem fóru í hitunar- búnað vallarins. — gg/SS. ÍFR færir út kvíarnar • íþróttafélag fatlaðra í Reykja- vfk efnir í kvöld til dansleiks í Sigtúni, þar sem fram koma ýmsir skemmtikraftar. svo sem Dúmbó og Steini, Baldur Brjáns- son o.fl. Ágóðinn af dansleik þessum rennur tii útiíþróttasvæð- is, sem ÍFR er scnn að hefja framkvæmdir við að Ilátúni 12. Hugmyndin er að á bletti þessum verði innleiddar nýjar íþrótts- greinar hjá ÍFR, m.a. kappakstur á hjólastólum. kastgreinar. stökk o.fl. Áætlaður kostnaður er 30 milljónir króna og nú í haust hefjast framkvæmdir fyrir um 7 milljónir króna. f stuttu spjalli við Mbl. í gær, sagði Arnór Pétursson. að auk dansleiksins væri á döfinni að gefa út auglýsingablað til fjár- öflunar, venjan væri að ríki og borg borguðu 40% hvort af kostnaði við hönnun íþrótta- mannvirkja, en sá styrkur kæmi ári síðar og yrði því mikið af útgjöldunum nú borgað úr eigin vasa ÍFR auk þess að senda 4 menn á alþjóðlegt mót í Stokk- hólmi fyrstu vikuna í nóvember og er það dýrt fyrirtæki. Fjór menningarnir hafa þegar verið valdir og munu þeir allir keppa í lyftingum. Jón Eiríksson, Sigmar O. Maríusson, Jónatan Jónatans- son og Gísli Bryngeirsson verða fulltrúar íslands. Félagar í ÍFR eru nú um 160, en 40—50 þeirra eru ekki fatlaðir. bær íþróttir sem ÍFR hefur æft á sínum stutta ferli, eru lyftlng- ar, borðtennis, körfuleikur og boccia sem er æft í Hátúni 12 mánudaga, þriðjudaga og mið- vikudaga kl. 20— 22.00 og laugar- daga frá kl. 14—16.00, bogfimi sem stunduð er í anddyri Laugar dalshallar á miðvikudögum kl. 5.30— 7.30 og laugardögum kl. 10.30- 12.00. Sundið æfir ÍFR í Árbæjariaug á miðvikudögum frá kl. 8—10.00 og á laugardög- um frá klukkan 3—5.00. Leeds og Manch. City áfram! NOKKRIR leikir fóru fram í ensku deildarkeppninni í knattspyrnu og var hér um aukaleiki að ræða. Leeds, Manchester City og Peter brough tryggðu sér þá áfram- haldandi þátttöku f keppninni, en Aston Villa og Crystal Palace verða að reyna með sér að nýju. Blackpool gaf MC ekkert eftir í fyrri hálfleik, en í þeim síðari var um einstefnu að ræða og Owen (2) og Booth skoruðu þá fyrir MC. Rothögg Sheffield Utd. greiddu þeir Tony Currie og Frank Grey, er þeir skoruðu á sömu mínútunni í fyrri hálfleik. Eftir það var aðeins spurning hve stór sigurinn yrði. Lítum á úrslitin. Swindon — Peterbrough 0—2 Sheffield Utd. — Leeds 1—4 Man. City — Blackpool 3—0 Crystal Palace —. Aston Villa 0—0 Leeds leikur í næstu umferð á útivelli gegn QPR, MC gegn Norwich og Peterbrough mætir Brighton.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.