Morgunblaðið - 12.10.1978, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 12.10.1978, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 1978 11 Rafaol Friihbcck dc Burjfos er stjórnandi fyrstu áskriftartónleika Sinfóníuhljómsvcitarinnar í kvöld sem cru Beethoven tónleikar, en hér eru hann og Sigurður Björnsson að rifja upp gömul kynni er þeir voru báðir við nám í Miinchen. spjallamannsins í Mattheusar- passíunni, tenórhlutverkið í níundu sinfóníu Beethovens og í Sköpuninni eftir Haydn þegar Rafael Fruhbeck var að hefja sinn feril á Spáni. En að náminu loknu í Miinchen hlaut hann svonefnd Strauss verðlaun og sagði hann að þau hefðu verið sér mikils virði. Hann var því næst spurður hvar hann hefði einkum starfað að hljóm- sveitarstjórn: — í heimalandi mínu hefi ég m.a. stjórnað sinfóníuhljóm- sveitinni í Bilbao svo og fleiri, en svo hefi ég verið við í Kanada, Montreal, í mörgum borgum Bandaríkjanna, t.d. New York, Washington, Fíla- delfíu og Cleveland, stjórnað sinfóníuhljómsveitum á Ítalíu, Frakklandi og Englandi, bæði Fílharmoníunni í London og Konunglegu sinfóníunni. Þá hefi ég verið í Japan nú á síðustu árum. Svo sem sjá má af þessari lauslegu upptalningu er hljóm- sveitarstjórinn mikið á ferða- lögum og var hann spurður hvort honum líkaði það vel. Hann svaraði því til að hann ætti ekki um neitt að velja, honum yrði að líka vel að ferðast, þótt það væri í sjálfu sér ekki alltaf gaman. Héðan fer hann til Madrid, síðan til Berlínar og stjórnar Fíl- harmoníuhljómsveit Berlinar, þá verður hann í Belgíu og síðan til London þaðan sem hann leggur upp í ferð til Japans með Fílharmoníuhljómsveit Lund- úna og verður hún þar með 10 tónleika. Hann sagði að næsta ár væri þegar orðið fullskipað hjá sér, en ekki væri endanlega ákveðið um árið 1980, en í stórum dráttum þó. Rafael Fruhbeck de Burgos hefur æft hljómsveitina síðan Stephen Bishop-Kovacevich leik- ur einleik í fimmta píanókonscrt Beethovens. hann kom um helgina og var hann spurður hvernig honum litist hún: — Við höfum nú ekki æft mikið enn þ.e. á mánudags- og þriðjudagsmorgnum, en æfing- ar hafa gengið vel, hljómsveitin hefur unnið mikið og við von- umst til aö tónleikarnir annað kvöld verði góðir. Beethov- en-sinfónían er erfið, en ég hefi ekki undan neinu að kvarta og tel hljómsveitina góða. Stephen Bishop-Kovacevich hefur áður leikið undir stjórn Rafael Fruhbeck de Burgos, bæði þennan sama píanókonsert og í Israel fyrir tveimur árum og að upptökum þar sem leikinn var 4. píanókonsert Beethovens. Rafael PYuhbeck minntist á upptökur og var hann spurður hvort hann hefði gert mikið af því að stjórna hljómsveitum við plötuupptökur: — Já, ég hef gert nokkuð mikið af því og held að plöturn- ar séu orðnar kringum 100, en ég hefi unnið með hinum ýmsu hljómsveitum. En þótt upptök- urnar séu orðnar þetta margar þá eru tónleikarnir saint sem áður í miklum meirihluta. Að lokum sagði Rafael Frúh- beck de Burgos að hann reyndi að hafa á efnisskrá bæði tónlist gömlu meistaranna og nútíma- verk, en sagði þó að menn vildu frekar hlusta á verk hinna eldri þótt áhugi fyrir nútímatónlist væri sívaxandi. AÐALFUNDUR ÝRAR, fjöi- skyldufélags Landhelgisgæzlu- manna, var haldinn 10. október. Fráfarandi formaður Elín Skeggjadóttir flutti skýrslu stjórnar. Þess má geta, að á starfsárinu gaf Ýr fjárupphæð í Orlofsheimilasjóð Landhelgis- gæzlumanna, en sl. sumar var lokið uppsetningu og búnaði nokkurra orlofshúsa gæzlunnar í Gufudal í Barðastrandarsýslu og voru þau tekin í notkun um mitt sumar. Fjárupphæðin var að mestu það sem inn kom með útgáfu Landhelgisplattans í fyrra. Úr stjórn Ýrar gengu auk formanns þrjar stjórnarkonur og gaf enginn þeirra kost á sér til endurkjörs. Brynja Baldursdóttir var kosin formaður og aðrir í stjórn Gyða Vigfúsdóttir, Jenný Einarsdóttir, Jóna M. Guðmunds- dóttir, Baldur Halldórsson, Guð- rún Ágústsdóttir og Guðrún Pálsdóttir. ÉG ÞRÁI ÁST ÞÍNA er 10. bókin, sem Hörpuútgáfan sendir frá sér eftir BODIL FORSBERG, einn vinsælasta ástarsagn'ahöfund á Norðurlöndum. Bækur Bodil Forsberg eru spennandi og við- burðaríkar. ÞAÐ ERT ÞÚ SEM ÉG ELSKA er þriðja bókin í flokknum Rauðu ástarsögurnar. Höfundurinn er ERLING POULSEN, sém íslenzkir lesendur þekkja, því að vinsælustu framhaldssögurnar í dönsku blöð- unum eru einmitt eftir hann. „Morgunn”, sumarheft- ið 1978 Sumarhefti „Morguns", tímarits Sálarrannsóknafélags íslands, er komið út fyrir nokkru. Meðal efnis í heftinu er ljóð eftir ritstjórann Ævar R. Kvaran, Aidahvörf, ritgerð eftir Martinus, Skýrsla um raunvísindalegt sam- band við fra.mliðna menn sem nú þegar er fyrir hendi, eftir Arnald Árnason í Stykkishólmi, og Yfir- skilvitleg reynsla, eftir dr. Gunn- laug Þórðarson. Þá er ritstjórnar- rabb og raddir lesenda þar sem þeir segja m.a. frá reynslu sinni. r/i Tækiö er meira en bara ferðatæki Auk margra auka- hluta hefur það sér- stakt mikrofónkerfi sem gerir þér kleift að syngja með þinni uppáhaldshljómsveit eða söngvara ða að búa til þinn iginn skemmtiþátt ar sem þú ert sjálf- r kynnirinn. 7x2 Automatic Level Con- trol sér um að upptaka sé jöfn. pr—m Sjálfvirkur stoppari slekkur á tækinu þegar LED bandið er búið. Gefurtil kynna í upp- töku þegarskipta þarf um rafhlöður. Auk fjölda annarra atriða sem skipta máli Verö aöeins kr 69.500. Sendum gegn póstkröfu. Allar geröir SHARP ferðatækja nú fáanlegar. u GF-17D4H/E er tæki sem vert er að skoða og hlusta á Ferðaútvarps- og kassettutæ kið er sannkallað ferðastudíó

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.