Morgunblaðið - 12.10.1978, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 1978
Þorsteinn Bjarnason, oddviti
Guðmundur Magnússon.
fra'úslustjóri
Sr. Þorleifur K. Kristmundsson
Jón Úlfarsson, oddviti
Ilelgi Seljan, alþingismaður Vilhjálmur Hjálmarsson, al-
þingismaður
Albert Kemp byggingarstjóri afhendir Einari Georg Einarssyni
skólastjóra lyklana að nýja skólahúsinu.
Framhlið skólans og fannhvítt Hoffellið ( baksýn.
*
„ÞÁTTASKIL hafa orðið í skóla-
málum Fáskrúðsfirðinga með
tilkomu þessa nýja skólahúss. í
hartnær hálfa öld hefur vcrið
kennt í þriingu og ófullkomnu
hráðahirgðahúsnæði. en með til-
komu þessa húss er búið að
kennurum og nemendum eins og
bezt gerist. Það má segja að hægt
sé að koma gamla skólanum fyrir
í öðrum enda þcssa nýja húss.“
l>annig mælti Albert Kemp for-
maður skólanefndar Búðahrepps
og hyggingarstjóri hins nýja
skólahúss Fáskrúðsfirðinga í
viðtali við Mhl. á Búðum á
sunnudag. Samdægurs var
Grunnskóli Fáskrúðsfjarðar sett-
ur við hátiðlega vígsluathöfn
hins nýja skólahúss Fáskrúðs-
firðinga á Búðum.
— Það var hátíðisdagur í Fá-
skrúðsfirði þennan dag, eins og
einn ræðumanna, Guðmundur
Magnússon fræðslustjóri Austur-
lands, komst að orði. Fáskrúðs-
firðingar, ungir sem gamlir,
fl.vkktust til athafnarinnar sem
fram fór á sal skólans. Stendur hið
nýja hús vestast í bænum, ofar-
lega, og er mest áberandi allra
bygginga á Búðum þegar horft er
frá syðri hlíðum fjarðarins.
— Einar Georg Einarsson
skólastjóri Grunnskóla Fáskrúðs-
fjarðar stjórnaði vígsluáthöfninni
og þegar Albert Kemp hafði
afhent Einari lyklana að húsinu
setti Einar skólann. I ræðu sinni
fjallaði Einar Georg um skólann í
dag og þær aðstæður sem við er að
búa. Einnig ræddi Einar um
hlutverk kennara, nemenda og
segir Albert
Kemp um nýtt
skólahús sem
vígt var á
Búðum á
sunnudag
foreldra í skólastarfinu, og líkti
hann skólanum við garð og
skólastarfinu við garðyrkju sem á
sitt undir því komið hvernig veður
skipast.
— Séra Þorleifur Kjartan
Kristmundsson prestur á Kol-
freyjustað sté fyrstur í pontu við
vigsluathöfnina og flutti skólan-
um, kennurum, nemendum og
foreldrum hugvekju. Að því búnu
flutti Helgi Seljan alþingismaður
kveðjur menntamálaráðherra sem
ekki gat komið því við að vera
viðstaddur, sendi Helga sem
fulltrúa sinn í staðinn. I ávarpi
sínu minntist Helgi þess að 19 ára
gamall hóf hann feril sinn sem
kennari í barnaskóianum á Búð-
um.
— Vilhjálmur Hjálmarsson
fyrrverandi menntamálaráðherra
talaði næstur og óskaði Fáskrúðs-
firðingum til hamingju með nýja
skólahúsið, en í ræðu sinni
þakkaði Albert Kemp Vilhjálmi
sérstaklega þann stuðning sem
Vilhjálmur sýndi Fáskrúðsfirð-
ingum í ráðherratíð sinni. Vil-
Skólahúsið séð ofan úr hlfðinni.
hjálmur ræddi nokkuð breyttar
þarfir og kröfur sem gerðar væru í
skólamálum miðað við það sem
verið hefði á uppvaxtarárum hans.
Hann gat þess að mörg byggðarlög
hefðu gert stórátök í skólamálum
á síðustu árum, og nefndi Fá-
skrúðsfirðinga sérstaklega í þeim
efnum.
— Næstur talaði Guðmundur
Magnússon fræðslustjóri og að
máli hans loknu tóku til máls þeir
Þorsteinn Bjarnason oddviti
Búðahrepps og Jón Úlfarsson
oddvigi Fáskrúðsfjarðarhrepps.
Þorsteinn rakti nokkuð aðdrag-
andann að byggingu skólahússins'
og framkvæmdirnar á síðustu
árum, en hann sagði að skriður
hefði ekki komist á framkvæmdir
fyrr en Albert Kemp hefði verið
skipaður byggingastjóri hússins á
árínu 1977. Jón fjalláði aftur á
móti nokkuð um þá breytingu sem
orðið hefur á skólamálum barna
úr sveitinni í kringum Búðir en
með tilkomu nýja hússins á
Búðum var kleift að sameina
skólahverfi Grunnskólans á Búð-
um og heimavistarskólans í
Tunguholti í eitt skólahverfi.
— Albert Kemp sagði að nú
væri brugðið út af hefðbundnum
vana með skólasetningu, enda
væri ærin ástæða til þar sem verið
væri að flytja inn í nýtt skólahús
og sameining tveggja skólahverfa
hefði átt sér stað. Hann sagði að
sá áfangi skólans sem nú væri
tekinn í notkun væri fjórar
almennar kennslustofur, lesstofa,
hópherbergi og eðlis- og náttúru-
fræðistofur, auk þess sem lokið
hefði verið við aðstöðu fyrir
kennara og skólastjóra. Sagði
Albert að hátt væri til lofts og vítt
til veggja í nýja skólahúsinu og
væri það von skólanefndar að
innan veggja hússins mætti
blómgast og dafna það menning-
ar- og fræðslustarf sem húsinu
væri ætlað að þjóna.
Albert sagði að uppbygging
skólahúss á Búðum mætti rekja
allt aftur til ársins 1929 þegar
þáverandi skólahús brann til
kaldra kola í byrjun skólaárs.
Eftir það óhapp var kennt í þrjá
vetur í húsi Franska spítalans, eða
þar til lokið var við að reisa
bráðabirgðahúsnæði það sem nú
er að jafnaði kallað gamli skólinn.
Sagði Albert að þetta bráða-
birgðahús hefði þjónað í hartnær
hálfa öld og hefði fyrir löngu
reynst ófullnægjandi.
Það er svo í kringum árið 1965
að ráðist er í að' láta teikna nýtt
skólahús, en eftir þeirri teikningu
var aldrei byggt. Árið 1970
teiknaði svo Bárður Daníelsson í
Reykjavík það skólahús sem nú er
risið á Búðum. Húsið er 1400
fermetrar að gólffleti og kennslu-
rými er 3650 rúmmetrar. Fram-
kvæmdir við húsið hófust 1972 og
komst austurálman undir þak árið
1973, að sögn Alberts. Síðan
gengur verkið frekar hægt eða þar
til að hreppsnefnd ákveður seinni
part ársins 1977 að setja kraft í
verkið. Sagði Albert að óunnar
væru í húsinu þrjár kennslustofur,
mötuneytisaðstaða og aðstaða
fyrir handavinnu drengja. Hann
sagði að heildarkostnaður hússins
væri orðinn um 90 milljónir króna
en brunabótamat þess væri um
195 milljónir króna. Hefur kostn-
aður við framkvæmdir frá því í
fyrrahaust verið um 65 milljónir.
Albert sagði það von heima-
manna að framkvæmdum við
skólahúsið yrði að fullu lokið á
næstu tveimúr árum. I lok máls
síns las Albert upp skeyti sem
borist hafði frá Sverri Hermanns-
syni alþingismanni sem óskaði
Fáskrúðsfirðingum til hamingju
með skólahúsið.
Trésmiðja Austurlands hefur
verið aðalverktaki hússins frá
upphafi og yfirsmiður Páll Gunn-
arsson. Raflagnir eru teiknaðar af
Ágústi Karlssyni en unnar af
Guðmundi Hallgrímssyni rafverk-
taka. Hita- og vatnslögn er
hönnuð af Fjarhitun hf. í Reykja-
vík, en unnar af Sverri Sigurðs-
syni pípulagningarmeistara í
Reykjavík. Tréverk er unnið af
Trésmiðju Austurlands og Þor-
steini Bjarnasyni, múrverk af
Stefáni Jónssyni, Lars Gunnars-
syni og fleirum, og málningar-
vinna, dúklagningar og uppsetn-
ing hljóðeinangrunar af Þráni
Þórarinssyni og mönnum hans.
—ágás.
MikiII fjöldi Fáskrúðsfirðinga sótti vígsluathöfnina.
ljósm. — ágás.